Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Blaðsíða 36
36 H&lgarb/ad DV LAUGARDAGUR 29. MARS 2003 Spyrjum að leikslokum Kristján Pálsson, fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er ásamt félögum stnum að stofna T-listann, Framboð óháðra á Suðurlandi. Hann segir frá ástæðu þessa og gerir upp samskipti sín við Sjálf- stæðisflokkinn. ,.Áróður minna fvrrum félaga er því miður mjög lymskufullur og á inargan liátt mjög ógeðfelldur eins og hann hefur birst síðustu daga og til þess gerður að liræða fólk. Ég ætla ekki að tíunda nákvæmlega hvað verið er að gera en aðferðirnar minna oft frekar á vinnubrögð í einræðisríki en í lýðræðisríki eins og fslandi." Kom það þér mjög á óvart að uppstillingar- nefnd Sjálfstœóisflokksins í Suðurkjördœmi skyldi ekki setja þig á framboðslista flokksins? „Auðvitað kom það mér mjög á óvart og ekki síður stuðningsmönnum mínum að ég, sem sitj- andi þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í átta ár, væri ekki á listanum. Þá tvo mánuði sem uppstillingarnefndin sat við sitt leynimakk var ekkert við mig rætt. Þegar ég fékk grun um að eitthvað óhreint væri í pokahorninu sex dögum fyrir kjördæmisþing hafði ég samband við for- mann uppstillingarnefndar og krafðist fundar með honum. Þá fyrst upplýstist hvaða niður- stöðu nefndin hafði komist að.“ Er þá nokkur önnur skýring á fjarveru þinni á listanum en persónuleg óvild í þinn garð? „Það kemur mér mjög á óvart að einhver skuli bera slíka óvild í garð einhvers manns. Ekkert það var uppi sem benti til þessarar niðurstöðu. í síðasta prófkjöri hafði ég yfirburði yfir efsta mann þeirra nú, Árna Ragnar Árnason. Það er nokkuð ljóst að hann og hans menn hafa unnið að þessari niðurstöðu lengi. Með undirróðri í minn garð innan nefndarinnar og ódrengskap, sem ég hef ekki kynnst fyrr eða síðar, tókst þessi flétta. Ég veit ekki til þess að ég hafi nokkurn tíma gert eitthvað á hlut þessa fólks nema þá að vinna það í prófkjöri." Ólýðræðisleg vinnubrögð Var erfitt að segja sig úr Sjálfstæðisflokknum eða vafðist það ekkert fyrir þér? „Það tók mig ekki langan tíma að komast að niðurstöðu eftir að miðstjórnin hafði hafnað DD- framboði. Það var þó ekki sársaukalaust að skilja við flokkinn eftir átta ára þingsetu. Eftir að framkvæmdastjóri flokksins lýsti því yfir í Morgunblaðinu að kjörnefndirnar hefðu unnið frábært starf og val á lista tekist sérlega vel var þó engin önnur leið til en sérframboð. Enginn lif- andi maður sem á stuðningsfólk eins og ég gat unað við aðra niðurstöðu en sérframboð eftir það sem á undan var gengið. Það er eina leiðin til að sýna fólki í hvert óefni lýðræðishugsjónin er komin innan Sjálfstæðisflokksins. Virðingin gagnvart fólki er ekki mikil hjá flokki sem lætur jafn ólýðræðisleg vinnubrögð viðgangast og mið- stjórnin gerði. Flokkur eins og Sjálfstæðisflokk- urinn verður að kunna að sýna fólkinu sínu virðingu og umhyggju, annars er hann ekki eft- irsóknarverður félagsskapur.“ Þetta hlýtur aö vera óþœgileg staóa innan flokksins. Hafði forysta flokksins ekki samband við þig til að telja þér hughvarf? „Jú, ég átti löng samtöl við Davíð Oddsson og fleiri. Ég fann að þeir vildu greiða götu mina eft- ir að uppstilllingarnefndin hafði lokið störfum. Ég gat hins vegar ekki séð sjálfan mig fara í ann- að umhverfi með þetta mál óleyst. Eftir að ég hafði rætt við mitt stuðningsfók og fengið mikla hvatningu til að fara fram með sérframboð lét ég slag standa.“ Sérframboð í oddaaðstöðu? Áttu von á að eiga eftir að ganga aftur til liðs við Sjálfstœðisflokkinn? „Ekki eins og staðan er I dag.“ Myndirðu ganga í einhvern annan flokk? „Ég get engu svarað um það heldur . Er ekki hœpiö að sérframboð dugi nema einu sinni? „Oftast eru nú sérframboð sett fram til að duga einu sinni. Það kemur auðvitað fljótt í ljós hvort nauðsynlegt verður að halda T-listanum gangandi. Það eru dæmi um að sérframboð hafi lent í oddaaðstöðu á Alþingi og náð með því miklum völdum eins og gerðist á sínum tíma þegar Stefán Valgeirsson náði inn með sérfram- boði. Pólitísku línurnar í dag eru þannig að tvær fylkingar eru hnífjafnar og auðvitað gæti þessi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.