Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Side 24
2-4- H&lgarblað H>"V" LAUGARDAGU R 29. MARS 2003 Sushi er smáréttir sem höfða bæði til sjónsktjnjunar og bragðlauka þvíþóttferskt og gott hráefni sé aðalatriðið leikur handverkið líka stórt hlutverk. Sushi skiptist í nokkra undirflokka, svo sem nigiri, maki og gungkan. Uppistaðan ísushi eru soðin og edikslöguð hrísgrjón - okome, sem búið er að móta ílitlar kúlur og svo fiskur af ijmsu tagi, oftast hrár sem lagður er ofan á. Þang - nori er líka ómissandi ísushi. Það er notað til að binda utan um hrígrjóna- og fiskbögglana og einnig er það notað sem form sem fyllt er með hrísgrjónum, hrognum og skelfiski af gmsu tagi. Kjöt, grænmeti og sveppir koma líka við sögu ísushi og sojasósa, piparrót og engifer. Sushi er þjóðarréttur Japana og afar vinsæll þar ílandi. Á síðari árum hafa sprottið upp sushi-staðir víða um hinn vestræna heim og meðal annars teygt anga sína hing- að til lands. Oftast ersushi borðað með prjónum. Sáraeinföld matargerð rjúka úr og þau færð upp í trédall. Kombuið er fjar- lægt úr ediksblöndunni og henni er síðan dreift yfir grjónin sem eru slegin í sundur svo að þau fari ekki í köggla. - segir Guðjón Þór á Sticks’n’Sushi „Sushi á sér árþúsunda hefð í Japan. Gerð þess virðist flókin en er í raun sára- • einföld,“ segir Guðjón Þór Baldursson, yfirkokk- ur á Sticks’n’Sushi í Aðal- stræti 12. Viðurkennir þó að dálítið dútl sé að skera niður hráefnið, hreinsa hrísgrjónin og undirbúa matreiðsluna. Sticks’n’Sushi var opnað fyrir rúmum tveimur árum og auk þess að vera vinsæll staður hjá ferðalöngum, ekki sist japönskum, eru ís- lendingar komnir á bragðið. Ásamt með sushiinu er líka boðið upp á grillpinna á Sticks’n’Sushi, eins og nafn staðarins ber með sér. Ferskur fiskur „Fiskurinn sem við notum í sushi er aðallega lax og bleikja, rauöspretta og koli. í Japan er hefð fyrir notk- un túnfisks og við bjóðum upp á hann líka sem og tígrisrækju, smokkfisk og kolkrabba," segir Guðjón og lýsir matargerðinni nánar. „Grunnhráefnið í sushi er japönsk hrísgrjón og þau þarf að hreinsa vel til að þau nái að loða saman án þess að klessast. Reyndar er hægt að kaupa sérstök forhreinsuð hrisgrjón en við kaupum grjón sem við nuddum saman í íláti og skol- um mjög vel.“ Samsetning Piparrótarmauki, wasabi, er smurt yfir hráan fisk eða léttsteiktan kjötbita sem lí grjónakoddanum er hvolft á og svo snúið \ viö þannig að fiskurinn 5 eða kjötið vísi upp. " Þetta heitir nigiri. Maki er rúllur sem búnar eru til úr grjónum, ýmiss konar fiski, I'!® . grænmeti og i fleira. Þriðja gerðin heitir gungkan. í því er þang (nori) notað sem form utan um grjónakodda sem reistur er upp og formið fyllt með hrognum eða öðru hráefni. Meðlæti Með sushi er borið wasabi, engifer og soja. Wasabi er sterkt mauk úr japanskri piparrót sem fæst í duft- formi og er bleytt upp með vatni. Engifer fæst þunn- um sneiðum í edikslegi og góð japönsk sojasósa er ómissandi. „Að vissu leyti er sérstök athöfn að borða sushi,“ segir Guðjón. „Algengasta aðferðin er að taka smá klípu af Wasabi og hræra saman við soyjasósuna áður en sushiinu er dýft ofan í og bitið í. Engiferið er borðað milli bita, meðal annars til að fríska upp munninn og hreinsa bragðlaukana.” 5 cm af burrkuðu kombu (burrkuðu banai) Sykurinn, saltið og kombuið er látið liggja í edikinu í nokkra klukkutíma. 300 g hrisarión 330 mlvatn Grjónin eru soðin í vatninu, mesti hitinn látinn 2 matsk. svkur 1/2 tesk. salt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.