Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Síða 25
LAUGARDAGUR 29. MARS 2003
HelQorblaö XXXT
25
DV-mynd Sigurður Jökull Ólafsson
Tanja Sif Árnadóttir sushi-
gerðarinaður sker niður
bleikju til að leggja ofan á
hrísgrjónakodda, nigiri.
Japönsku hrísgrjónin eru
færð úr suðupottinum yfir í
trédall þar sem ediksblönd-
unni er hellt yfir þau og
hrært í til að forðast að
grjónin klessist.
Sushi samanstendur af rnörg-
um niismunandi smáréttum
og hér raðar Tanja þeim listi-
lega á trébretti.
Alta Vista frá Argentínu
og hið franska JP Chenet
- er val Steinþórs Einarssonar hjá Rafkóp-Samvirki
Matur á japanska vísu hefur átt vaxandi vinsæld-
um að fagna hér á landi enda mikið lostæti. í vetur
kynntum við til sögunnar hvítvín, Alta Vista Tor-
rontés Premium, og fylgdi þá sögunni að þetta vín
gengi mjög vel með allri austurlenskri matreiðslu.
Góð vísa er aldrei of oft kveðin og sama má segja um
vín. Gott vín aldrei of oft drukkið.
Alta Vista víngerðin í Argentínu á sér langa sögu
en hefur ekki hafist til vegs og virðingar fyrr en á
allra síðustu árum. Á 60 hekturum á besta stað í
Mendoza héraðinu, Lujan de Cuyo, i yfir 850 m hæð
yfir sjávarmáli hefur franska víngerðarfyrirtækið
Gam Audy komið sér fyrir með Jean-Michel Arcaute
í broddi fylkingar. Gam Audy vínfyrirtækið á rætur
að rekja til Bordeaux í Frakklandi og hefur meistar-
inn sjálfur verið valinn víngerðarmaður ársins í
Frakklandi í tvígang. í Alta Vista vínunum upphefja
frönsk víngerðarlist og frábær ræktunarskilyrði í
Argentínu hvort annað í æðra veldi.
Alta Vista Torrontés Premium er hreint torrentés
vín. Af því leggur mikinn og góðan blómailm með
vott af rósum. Vínið er bjart og ferskt með krydd-
keim. Alta Vista Torrentés gengur mjög vel með
austurlenskri matreiðslu og fuision-matreiðslu og
hentar einnig vel með reyktum mat, bæði kjöti og
fiski. Einnig humri. Alta Vista Torrontés Premium
fæst í sérvöruverslunum ÁTVR í Kringlunni og
Heiðrúnu og kostar flaskan 1310 krónur.
Frá Argentínu til Frakklands. Frá Petersbach,
norður af Vosges fjallgarðinum í Alsace í Frakk-
landi, kemur JP-Chenet Chardonnay Reserva. Það er
framleitt af Les Grand Chais de France (LGCF) fyr-
irtækinu sem stofnað var 1979 af Joseph Helfrich
með það fyrir augum að framleiða ódýr og að-
gengileg vín fyrir alþjóðamarkað. Er fyrirtækið
nú orðið stærsti útflytjandi á frönskum vínum
í heiminum.Framleiðendur JP-Chenet eru
þekktir fyrir stöðuga og góða framleiðslu.
JP Chenet vínin þykja koma á óvart mið-
að við verð og útlitið er sannarlega
minnisstætt en sveigður háls flöskunn-
ar er hluti af ímynd JP-Chenet og vekur
jafnan athygli.
JP-Chenet Chardonnay Reserva er eins
og nafnið bendir til, unnið úr einni vinsæl-
ustu hvítvínsþrúgunni, Chardonnay. Vínið
er ljósgyllt að lit, tæplega meðalopið með
frísklegum keim af eplum, sítrónum,
möndlumassa og hunangi. Það er meðal-
bragðmikið með góða endingu, þurrt en
með sætan ávöxt. JP-Chenet Chardonnay
Reserva þykir passa einstaklega vel með
fiskréttum eða ljósu kjöti en er einnig gott
eitt og sér. JP-Chenet Chardonnay Reserva
fæst i sérvöruverslunum ÁTVR í Heiðrúnu
og Kringlunni og kostar flaskan 1150 krón-
ur.
Umsjón
Huukur Lárus
Hauksson