Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Síða 30
30
Helqarblað JO"V
LAUGARDAGUR 29. MARS 2003
LAUGARD AGU R 29. MARS 2003 Helgarblaö 1>V
- verðlistinn
Rúnar Kristinsson
Flest liö í Evrópu myndu styrkjast
af því að hafa leikmann eins og Rún-
ar í sínum herbúðum. Hann er algjör
lykilmaöur í Lokeren, einu af topplið-
unum í belgísku úrvalsdeildinni, og
hefur kappinn öðlast mikla virðingu í
öllum þeim löndum sem hann hefur
spilað í. En þótt að Rúnar sé ennþá í
fantaformi, þá
er hann kom-
inn yfir sitt
besta skeið.
Aldurinn
dregur verð-
gildi Rúnars
mikið niður
en nokkrum
árum yngri
væri Rúnar
margfalt dýr-
ari.
Verðmlði:
10-15 milliónir
Guðni Bergsson
Guðni er fyrirliði og lykilmaður í
sæmilegu ensku úrvalsdeildarliði.
Það eru ekki margir íslenskir lands-
liðsmenn sem myndu ná því orðspori
og gæðastimpli sem Guöni hefur unn-
ið sér inn með góðri frammistöðu,
nema þá kannski Hermann Hreiðars-
son. En Guðni er að spila sitt allra
síðasta tímabil
í boltanum
(aldrei skal þó
segja aldrei...)
og ætlar að
snúa sér að
lögfræðistörf-
rnn í sumar.
Nema ein-
hver lög-
fræðiskrif-
stofan á íslandi
bjóði i kappann þá er Guöni verðlaus.
Verðmiði:
Verðlaus
Þórður Guðjónsson
Las Palmas keypti Þórð dýrum
dómum fyrir tveimur árum og notaði
hann síðan ekki neitt. Þórður fór að
láni til Derby í einhverjar vikur í lok
síðasta keppnistímabils og var
orðrómur um að félagið ætlaði að
kaupa Þórð á um 150 milljónir. Ekk-
ert varð úr þeim viðskiptum og var
-..—----það Bochum í
Þýskalandi
sem hreppti
að lokum Þórð
á útsöluverði.
En þrátt fyrir
að spiia reglu-
lega í þýsku
úrvalsdeÚd-
arliði er það
mat DV-
Sports að
Þórður hafi fallið í verði.
Verðmiöi:
30-50 milltónir
Lárus Orri Sigurðsson
Lárus Orri stendur sig öllu jöfnu
vel þegar hann leikur fyrir lið sitt
WBA. Hann verður þó tæpast talinn í
úrvalsdeildarklassa en Lárus Orri er
vamarmaður vel yfir meðallagi í
ensku 1. deildinni. Eins og með
marga aðra menn í landsliðinu er
Lárus Orri rétt viö þrítugsaldurinn
og þá eru
menn byijaðir
að lækka í
verði. En þar
með er alls
ekki sagt að
menn séu út-
brunnir. Ef
viljinn er fyr-
ir hendi get-
ur Lárus
Örri verið 1
fullu fjöri í nokkur ár til viðbótar.
Verömiði:
30-50 milliónir
Arni Gautur Arason
Ámi Gautur er af flestum talinn besti
markvörðurinn í Noregi og hefur sú
deild oftar en ekki reynst mikill stökk-
pallur fyrir leikmenn inn í ensku úrvals-
deildina. Frammistaða Áma Gauts með
Rosenborg í Meistaradeild Evrópu hefur
vakið athygli stórliða og hefúr hann
m.a. verið orðaður við Arsenal og fleiri
lið. Werder
Bremen bauð 45
miUjónir í
hann í fyrra en
því boði var
umsvifalaust
hafnað. Einn
af, ef jafnvel
ekki sá allra
besti mark-
vörður sem
landið hefur alið
af sér er meira virði.
Verðmiði:
70-90 milliónir
Birkir Kristinsson
Frá því aö Birkir Kristinsson sneri
heim frá hinum harða heimi atvinnu-
mennskunnar hefur hann verið besti
leikmaður ÍBV í SímadeUdinni ár eftir
ár. Ýmsir hafa beðið lengi eftir að Birk-
ir slægi slöku við en þeir sömu verða
sífeUt fyrir vonbrigðum því þessi frá-
bæri markvörður hefur engu gleymt
þótt hann sé
vissulega kom-
inn vel yfir
meðalaldurs-
skeið knatt-
spymumanna.
En þó að Birk-
ir haldi áfram
að gleðja augu
Eyjamanna þá
er hann þvi
miður vegna ald-
ursins ekki krónu viröi.
Verðmiði:
Verðlaus
Pétur Marteinsson
Þrátt fyrir að standa sig ávaUt vel
með Stoke City þegar hann spUar, virð-
ist Pétur aldrei ná að faUa í kramið hjá
knattspymustjórum liðsins. Er það mik-
U synd, því aUir þeir sem þekkja til pUts
vita að þarna er á ferð mjög frambæri-
legur varnarmaður. Hann var valinn
besti leikmaður Svíþjóðar fyrir
nokkrum árum
og spUaði
einnig við góð-
an orðstír hjá
Stabæk í Nor-
egi áður en
hann fór tU
Stoke. En nú,
þrítugur að
aldri og oftar
en ekki utan
leikmannahóps
Stoke er Pétur falur á mjög ódým verði.
Verðmiði:
0-10 milliónir
Ivar Ingimarsson
Mörg sterk lið voru á höttunum eftir
hinum samningslausa ivari fyrir þetta
keppnistímabil, enda var þessi sterki
vamar- og miðjumaður búinn að standa
sig frábærlega með Brentford á síðasta
tímabili. Á endanum ákvað ivar að taka
tilboði frá hinu fimasterka 1. deildarUði
Wolves. FljóUega tók að haUa undan fæti
og var kappinn
lánaður tU botn-
liðs Brighton
þar sem hann
hefur öðlast
sjáUstraust á
ný. ívar er á
besta aldri og
getur auðveld-
lega náð enn
lengra. Með
vaxandi reynslu
mun verð hans hækka enn frekar.
Verðmiði:
50-70 milliónir
Biarni Þorsteinsson
Það efast enginn um að Bjarni er
afburða vamarmaður og getur hann
bæði spUað í miðri vöminni sem og í
hægri bakverðinum. En það sem
hrjáir hann mikið eru mjög takmark-
aðir sóknarhæfileikar. Molde í Nor-
egi keypti Bjama af KR fyrir fáeinum
árum og í dag er aUur gangur á því
hvort haim er
í liðinu. DV-
Sport efast
stórlega um
að Bjarni hafi
nægUega
burði tU að
plumma sig i
miklu sterk-
ari deUd en
sú norska er.
Verömiöi:
5-10 milliónir
Indriði Sigurðsson
Indriði er gríðarlega fjöUiæfur leik-
maður og hefur hann náð að festa sig
vel í sessi hjá liði sínu í Noregi, Lil-
leström. Hann hefur verið burðarásinn
í 21 árs landsliði íslands síðustu ár og
mun án nokkurs vafa vera lykilmaður í
A-landsliðinu á komandi árum. Þrátt
fyrir að vera aðeins 22 ára hefur Indriði
öðlast mikla
reynslu sem at-
vinnumaður
siðustu tvö ár-
in. DV-Sport
mur að lnd-
■^sijfejiafi alla
* ’ íttf til að ná
)g telur
degt að
ÉÍfí^tröm
leyfi honum að
fara nema um dágóða summu sé að ræða.
Verðmiði:
20-25 milliónir
Gvlfi Einarsson
Gylfi er sóknar-miðjurmaður að upp-
lagi og finnur hann sig ávailt best í
þeirri stöðu. En hjá Lilleström stendur
Gylfi í mikilli samkeppni um þá stöðu
og hefur hann reyndar á köflum verið
settur í stöðu hægri bakvarðar með mis-
jöfnum árangri. Gylfi er ekki í sama
gæðaflokki og féiagi hans hjá Lilieström,
Indriði Sigurðs-
son, og á Gylfi
ekki fast sæti í
liði sínu. DV-
Sport telur að
Gylfi muni
ekki stunda at-
vinnu-
mennsku utan
Norðurland-
_ anna og má
gera ráð fyrir að
Gylfi sé falur á sanngjömu verði.
Verðmiði:
5-10 milliónir
Marel Baldvinsson
Marel er sennilega sá leikmaður
íslenska landsliösins sem er auðveld-
ast að verðsetja. Hann var seldur frá
Stabæk til Lokeren fyrr á árinu og
borgaði belgíska félagið 22 milljónir
fyrir þjónustu hans. Marel hefur ver-
ið í byrjunarliði Lokeren upp á
síðkastið og staðið sig með stakri
prýði í nýrri
stöðu, en mat
DV-Sports er á
þann veg að
verðgildi ís-
lenska vík-
ingsins hafi
nokkum veg-
inn staðið í
stað síðan þá;
hvorkihækk-
að né lækkað.
Verðmiði:
20-25 milljónir
íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu verðlagt af blaðamönnum DV-Sports:
Heiðar Helguson
virði ?
Eiður Smári Guðjohnsen jafn-
ast á við alla hina landsliðsmenn
Islands í knattspymu, ef tekið er
mið af verömæti. Þetta eru nið-
urstöður úttektar DV-Sports í til-
efni að landsleik Skota og íslend-
inga í dag. íslenskt landslið hef-
ur líklega aldrei verið verðmæt-
ara en um þessar mundir og
liggur mesti munurinn í einum
leikmanni, Eiði Smára Guðjohn-
sen. En ef aðrir leikmenn eru
teknir með í dæmið er verðmæti
íslenska landsliðsins í knatt-
spymu á bilinu 1900 milljónir til
rúmlega 2200 milljónir.
Þetta em niðurstöður blaða-
manna DV-Sports eftir að hafa
metið hvem og einn leikmann
liðsins, feril hans, orðspor, aldur
og getu. í úttektinni er tekið mið
af ástandi enska leikmanna-
markaöarins, en þar er enn allt i
uppnámi eftir að verðmiði
flestra leikmanna fór langt yfir
það sem eðlilegt má kalla
skömmu eftir aldamótin síðustu.
Þrír flokkar
Ef úttektin er grandskoðuð má
sjá að íslenska liðinu er í raun
hægt að skipta í þrjá verðflokka.
í þriðja og aftasta flokknum
fer kjarninn af íslenska liðinu;
atvinnumenn í Noregi, Belgíu og
í neðri deildum Bretlandseyja.
Allir eru þeir metnir á undir 50
milljónir króna, að undanskild-
um Árna Gauti Arasyni, mark-
verði Rosenborg í Noregi, sem
gæti slagað hátt í 100 milljóna
króna markið fari svo að eitt-
hvert lið beri víurnar í hann.
Aðrir leikmenn eru margfalt
verðminni og að mati DV-Sports
eru tveir leikmenn íslenska liðs-
ins verðlausir.
í miðflokknum er að finna
þrjá leikmenn sem allir spila i
Englandi, þá Heiðar Helguson
hjá Watford, Jóhannes Karl Guð-
jónsson hjá Aston Villa og Her-
mann Hreiðarsson, sem seldur
var til Charlton á miðvikudag á
verði sem DV-Sport kemst næst
því að kalla hlægilegt miðað við
getu.
Jóhannes Karl varð dýrasti
leikmaður í sögu íslenskrar
knattspymu þegar Real Betis
keypti hann á 570 milljónir árið
2001. Eins og lesa má i nærmynd
af Jóhannesi Karli má færa rök
fyrir þvi að þar hafl verið farið
einum of frjálslega með peninga-
budduna. Þá er það mat DV-
Sports að Heiðar Helguson hafi
ekki fallið mikið í verði þrátt
fyrir að mikil kreppa hafi verið
á enska leikmannamarkaðinum
frá því að Watford keypti hann
af Lilleström.
Einn og yfirgefinn í fyrsta og
verðmætasta flokknum trónir
síðan Eiður Smári Guðjohnsen.
Augljóslega ber hann höfuð og
herðar yfir samheija sína og af
heildarverðmæti íslenska liðsins
er Eiður helmingurinn. Hann er
ímynd landsliðsins á alþjóða-
vísu og er hann svo sannarlega
imynd hins „íslenska víkings“.
Ef Eiður heldur áfram að bæta
sig sem knattspymumaður mun
verð hans vafalaust hækka enn
meira.
Talnaleikur
Eflaust telja margir þessar
fjárhæðir vera fjarri sannleikan-
um. Allir geta leikið sér að
leggja saman tölur eða upphæðir
og hafa margir landsmenn um
leið ábyggilega lúmskt gaman af
því. Einhverjir segja íslenska
landsliðið meira virði, aðrir
minna. En þar sem hver og einn
hefur sína skoðmi ber að taka
þessum fjárhæðum sem birtast
hér með fyrirvara.
-vig
Eiður Smári Guðjohnsen
Um það verður ekki efast; Eiður
Smári er í algjörum sérflokki í is-
lenska landsliðinu. Hann er á besta
aldri og spilar í liði sem er með
þeim alla fremstu í heiminum í dag,
Chelsea. Á æfingum kljáist hann
við eintóma landsliðsmenn og
keppinautar hans um sæti í fremstu
víglínu Chelsea eru ekki ómerkari
kappar en þeir Gianfranco Zola,
sem nú þegar er orðin goðsögn í
ítalskri knattspymusögu, og Jimmy
Floyd Hasselbaink, einn mesti
markaskorari Hollendinga hin síð-
ustu ár.
Eiður Smári er sonur Arnórs
Guðjohnsens, eins ástsælasta knatt-
spymumanns íslendinga fyrr og síð-
ar, og sáust strax á unga aldri með-
fæddir knattspyrnuhæfileikar sem
aðeins örfáir útvaldir búa yfir. Að-
eins 15 ára gamall var Eiður orðinn
fastamaður í úrvalsdeildarliði Vals
á íslandi og ári síðar gerði hann
sinn fyrsta atvinnumannasamning
viö PSV I Hollandi. Þar hitti hann
fyrir einn besta knattspyrnumann
heims, hinn brasiliska Ronaldo, og
þótti Eiður engu slðri fótboltamað-
ur, ef ekki betri. Þegar allir
vegir virtust vera honum fær-
ir dundi áfallið yfir; Eiður fót-
brotnaði í landsleik með ung-
lingalandsliði íslands og var
um tíma óttast um feril hans.
En eftir óhóflega vinnu og
mikla endurhæfingu fór Eiður
á kreik á ný og var það KR
sem gaf honum tækifærið til
að sanna sig. Ekki löngu
seinna var hann keyptur af
enska 1. deildarliðinu Bolton og sló
hann þar í gegn á sínu öðru ári. ís-
lenski víkingurinn var kominn aft-
ur og vakti það heimsathygli þegar
Eiöur gekk til liös við Chelsea. Það
voru þó blendnar væntingar sem
gerðar voru til Eiðs og voru margir
á því að hann gæti ekki plummað
sig hjá einu sterkasta liði heims. En
á sínu öðm ári hjá Chelsea sló hann
í gegn og myndaði hann hættuleg-
asta sóknardúett ensku knattspyrn-
unnar ásamt Hasselbaink.
í kjölfarið spratt hver orðrómur-
inn á fætur öðrum upp í breskum
fjölmiðlum um að Eiður væri undir
smjásjánni hjá þeim allra stærstu;
félögum á borð við Arsenal,
Manchester United, Barcelona og
fleiri ámóta. Óánægja Eiðs með
laun sín hjá Chelsea hafa löngum
verið í brennideppli og af þeim sök-
um hafi hann viljað fara frá félag-
inu. Þrátt fyrir allt þetta fár hefur
Eiður ávallt haldið tiyggð sinni við
Chelsea með þvi að lýsa yfir vilja
sínum til að skrifa undir nýjan
samning við félagið.
Eiður Smári stenst samanburð
við allra fremstu sóknarmenn sem
völ er á í heiminum í dag. Það er
ekki furða að Chelsea vilji halda
honum; hann styrkir alla leik-
mannahópa. Ef enskur væri, þá yrði
130-150 milliónir
Verðmiði:
1 milliarður
Eiður sennilega byrjunarmaður
landsliðsins við hliðina á Michael
Owen. Hann er betri en Emile
Heskey, Francis Jeffers og fleiri
enskir landsliðsmenn, en í þessari
upptalningu eru menn sem seldir
hafa verið á síðustu árum fyrir
meira en milljarð íslenskra króna.
Eiður er sannkallaður gullmoli og
lyftir íslenskri knattspymu á hærra
plan á alþjóðavísu. -vig
Verömiði:
Heiðar Helguson sló í gegn hjá Lil-
leström eftir að hafa verið keyptur þang-
að frá Þrótti fyrir nokkrum árum. Enska
úrvalsdeildarliðið Watford keypti síðan
Heiðar af norska liðinu fyrir um 200
milljónir þegar uppsveiflan á verði enska
leikmannamarkaðsins var í hámarki. Er
það eindregið mat DV-Sports að það verð
hafi verið of
hátt. En eftir að
hafa átt erfítt
uppdráttar í
fyrra, m.a.
vegna meiðsla,
hefur Heiðar
verið frábær í
vetur. Hann er
markahæstur
hjá Watford í
ár með 12 mörk
og er uppáhald stuðningsmanna liðsins.
Einn oq yfirqefinn ffqrsta oq verðmætasta
flokknum trónir sfðan Eiður Smári
Guðjohnsen. Auqljósleqa ber hann höfuð oq
herðar yfir samherja sína oq af
heildarverðmæti fslenska liðsins er Eiður
helminqurinn. Hann er fmynd landsliðsins á
alþjóðavfsu oq er hann svo sannarleqa
fmynd hins „ fslenska víkinqsu.
Brvniar Gunnarsson
Baráttuhundurinn Brynjar Gunnars-
son hefur verið einn af burðarásum
Stoke City frá því að Guðjón Þórðarson
keypti hann á 60 milljónir ekki löngu
eftir að hafa tekið við stjórn liðsins.
Brynjar getur spilað í vöm jafnt sem á
miðju og hafa komið upp sögusagnir
um að sterkari lið hafi verið að bera ví-
umar í hann.
DV-Sport telur
samt sem áður
nokkuð ljóst að
færi svo að
Brynjar yrði
seldur nú,
væri kaup-
verðið ábyggi-
lega ekki
meira en það
em borgað var
fyrir hann á sínum tima.
Verðmiði:
40-60 milliónir
Trvggvi Guðmundsson
Tryggvi hefur fyrir löngu sannað sig
sem einn helsti markaskorarinn innan
Noregs. Það vefst ekki fyrir neinum að
Tryggvi, sem er 29 ára gamall, verði
dýr leikmaður innan Noregs, fari svo
að hann verði seldur, en Tryggvi lýsti
nýlega yfir óánægju sinni hjá Stabæk.
Hann var í vikunni orðaður við nokkur
1. deildar lið í
Englandi og
einnig Lokeren
í Belgíu, en
DV-Sport telur
samt sem áður
að Tryggvi fari
ekki til liðs ut-
an Norður-
landanna. En
innan þeirra
er Tryggvi einn
af þeim allra bestu sem völ er á.
Verðmiði:
30-50 milliónir
Arnar Grétarsson
Amar hefur farið sífelit vaxandi sem
leikmaður eftir að hann gekk til liðs við
Lokeren í Belgíu og er hann nú, ásamt
hinum Islendingunum í liðinu,
ómissandi fyrir félagið. Hann hefur skor-
að 13 mörk á þessu tímabili, mörg hver
guilfalleg, og spilamennska hans er einn
af lykilþáttum velgengni Lokeren í ár.
Fyrir fáeinum
árum hefði Am-
ar, miðað við
form sitt í dag,
verið mikils
virði. En aldur-
inn (31) er það
sem hrindir
stærri félögun-
um frá Amari
og er mjög lík-
egt að Amar
ljúki atvinnumannaferli sínum í Belgíu.
Verðmiði:
15-20 milliónir
Arnar Þór Viðarsson
Amar Þór hefur blómstrað á miðj-
unni hjá Lokeren í ár og í fyrra eftir
að hafa spilað sem vinstri bakvörður
framan af ferlinum. Helsti Akkilesar-
hæll Amars Þórs er varnarleikurinn
og reyna andstæðingar hans yfirleitt
að nýta sér þennan veikleika hans til
hins ýtrasta. Amar er 25 ára gamall,
fyrirliði eins
öflugasta liðs
belgísku úr-
valsdeildar-
innar og getur
ekki annað en
bætt sig sem
leikmaður.
En þangað til
varnarhæfi-
leikar Amars
1 ' Þórs batna fer
verðið á honum ekki hækkandi.
Verðmiði:
30-50 milliónir
Jéhannes K. Guðiónss.
Með fullri virðingu fyrir knatt-
spyrnuhæfileikum Jóhannesar Karls,
þá er glottið sennilega ekki enn farið af
andlitum forráðamanna IJK Waalwijk
eftir að hafa fengið yfir 500 milljónir frá
Real Betis fyrir kappann. Með fulla
stjóm á skapi sínu er Jóhannes mjög
sterkur leikmaður, og það er engin til-
viljun að hann
H sé fastamaður i
I liði Aston Villa
I þessa stund-
I ina. Samt sem
> áður vill Gra-
í» rm flM ham Taylor,
I stjóri Vilia,
ekki borga
l Betis meira en
200 milljónir
fyrir Jóhannes.
DV-Sport telur það vera nær réttri upphæð.
Verðmiði:
180-220 milltónir
Hermann Hreiðarsson
Þrátt fyrir að hafa verið seldur til
Charlton á miðvikudag fyrir upphæð
sem talin er hafa numið um 100 múljón-
um, er ekki nokkur spuming að Her-
mann er mun verðmætari. Ef ekki hefði
verið fyrir flárhagserfiðleika Ipswich þá
hefði Hermann sennilegast farið fyrir
tvöfalt ef ekki þrefalt hærri fjárhæð.
Hermann hefur
sýnt það og
sannað að hann
getur vel spilað
á æðsta stigi
enskrar knatt-
spyrnu. Hann
hefur verið
lykilmaður í
öllum þeim fé-
lögum sem
hann hefur spil-
að með á undanfómum ámm.
Verðmiði:
250-300 milliónir