Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Síða 42
46
H&lqarb/acf 13 "V
LAUGARDAGUR 29. MARS 2003
Georqe W.Bush i/ar veikur alkóhólisti þeg-
ar hann var fertugur og drgkkjutúrarnir
voru farnir að nálgast heilar vikur. Það
var Billg Graham prédikari sem hjálpaði
honum að stíga fgrstu skrefin á leið sinni
til Jesú Krists en ídag er Bush endurfædd-
ur íKristi. Hann er talinn einn trúaðasti
forseti Bandaríkjanna og undir hans
stjórn íHvíta húsinu eru reqluleqar stund-
ir fgrir biblíulestur og biblíukennslu.
„Þaö var ótrúlegt að ég skyldi sigra. Ég átti í
höggi viö friðsæld, hagsæld og sitjandi forseta.“
Svona lýsti George W. Bush naumum sigri sín-
um í forsetakosningunum áriö 2000 fyrir Göran
Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, þegar hann
hélt að búið væri að slökkva á myndavélunum.
Georg W. Bush er eins og sjálfsagt margir vita
sonur fyrrum forseta Bandaríkjanna. Hann er
elstur bama Barböru og Georgs Bush eldri, fædd-
ur 6. júlí 1946. Hann fæddist í New Haven í Conn-
ecticut en fljótlega flutti fjölskyldan til Odessa í
Texas og síðan til Midland sem er þar rétt hjá og
í þessum olíuborgum á sléttunum í Texas er
George yngri alinn upp. Hann átti systumar
Robin og Dorothy og bræðurna Jeb, Neil og Mar-
vin. Robin lést úr hvítblæði þegar George var sjö
ára gamall og varð mikill harmur í fjölskyldunni
vegna þess.
Með hafnabolta á heilanum
Þegar George var barn var hann mjög áhuga-
samur um hafnabolta, skildi kylfuna aldrei við
sig og vildi helst ekkert annað gera en að stunda
þá vinsælu íþrótt en líklega er sanngjarnt að segja
að hafnabolti sé þjóðaríþrótt. Æskuvinir Bush
segja að hann hafi helst aldrei viljað gera nein
heimaverkefni í skólanum og það eina sem hann
vildi leggja á minni voru tölur tengdar hafna-
bolta.
Þegar George var 13 ára flutti fjölskyldan til
Houston í Texas og æskuvinur hans, Doug
Hannah, minnist þess að um það leyti æfði móðir
hans lestur með honum í þrjá tíma á hverjum
laugardegi. Það er ekki alveg Ijóst hvort George
náði nokkurn tíma fullu valdi á því að lesa og
telja menn líklegt að hann sé með lesblindu á
vægu stigi. Hann sést aldrei skrifa neitt hjá sér og
krefst munnlegra skýrslna frá aðstoðarmönnum
sínum. Hann hefur sjálfur sagt hve illa honum féll
að fá 0 fyrir fyrsta enskuverkefnið í gagnfræða-
skólanum í Houston. Lesblinda er ekki merki um
gáfnaskort en í 30% tilvika fylgir athyglisbrestur.
Biblían á hveijum degi
Áður en Bush varð forseti starfaði hann eink-
um að ýmsum fjárfestingarverkefnum bæði í olíu-
iðnaði og bankarekstri sem gengu misjafnlega vel
en um tíma átti hann hafnaboltalið og sinnti því
af sérstakri alúð, mætti á æfingar og sat löngum
stundum með leikmönnunum og talaði um sport-
ið.
Bush vaknar mjög snemma á hverjum morgni
og byrjar daginn oftast á því að lesa í bók eftir
vinsælan prédikara, Oswald Chambers, sem heit-
ir My Utmost for His Highest og eru prédikanir.
Hann vill helst skipta vinnudegi sínum niður í
10-15 mínútna fundi með tveggja tíma hléi yflr
miðjan daginn en það notar hann til að hvíla sig
og spila tölvuleiki. Bænastundir og biblíukennsla
eru fastir liðir og er ætlast til þátttöku alls starfs-
fólks Hvíta hússins í þeim. Bush fer yfirleitt
snemma að sofa eftir léttan kvöldverð. Hann
skokkar og hleypur sér til heilsubótar og hefur
gert nánast alla ævi.
Trúin á Guð hefur mótað líf George Bush meira
en ætla mætti og leikur stöðugt stærra hlutverk í
lífl hans. Hann hefur talað um stríðið sem nú er
haflð í írak sem krossferð og hefur í vaxandi
mæli skilgreint sig sem stríðsmann Guðs sem sé
útvalinn af honum til þess að berjast við ill öfl og
segist tala við Guð.
Þess sér víða merki í aðgerðum Bush að trúar-
leg afstaða hefur áhrif á stjórnmálaskoðanir hans
og þess vegna er fróðlegt að skoða aðeins nánar
hvemig hinn trúaði forseti fann Jesú og gerði
hann að lausnara lífs síns.
David Frum sem hefur starfað sem ræðuritari
Frelsaði
forsetinn
fyrir Bush hefur lýst því hvernig það er nánast
skylda í nánasta starfsliði Bush að mæta á
biblíufundina og taka þátt í bænastundum.
Bush fetaði í fótspor foður síns og fór í Yale og
var sæmilegur meðalnemandi, félagi í Delta
Kappa Epsilon bræðrafélaginu og var þekktur
svallari en bræðrafélögin í amerískum háskólum
eru ekki fyrir neina engla. Bush var í Þjóðvarð-
liði Bandaríkjanna eftir háskóla og komst þannig
undan herþjónustu í Víetnam og hefur þar áreið-
anlega notið föður síns.
f skugga Baklíusar
Bush giftist ekki fyrr en 1977 þegar hann kynnt-
ist Lauru Welch sem var bókavörður og með þeim
tókust góðar ástir. Einn skuggi var þó á sambúð