Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Síða 51
LAUGARDAGUR 29. MARS 2003
H&tgarblacf 33'V"
55
Það vantar þetta létta
Árið 1946 keyptu þeir bræður fyrsta
traktorinn sem þeir eignuðust. Hann
var af Mc Cormick gerð, 27 hestöfl, en
vinna þurfti mikið land til ræktunar á
Hrísum. Þennan traktor á Hermann
enn þá og hann lítur vel út enda er
breitt yfir hann inni í vélageymslu
sem hann á. Hann kom á jámhjólum,
eins og títt var með landbúnaðartæki
í þá daga en skömmu eftir að þeir
fengu hann settu þeir hann á gúmmí-
dekk og er hann á sömu dekkjum.
Hermann hafði, eins og Þorgils bróðir
hans, mikinn áhuga á alls konar söfn-
un.
„Ég hef ailtaf haft áhuga á þessu
létta,“ segir Hermann.
„Ég hef svo gaman af skemmtiþátt-
um úr bæði útvarpi og sjónvarpi. Mér
finnst vanta meira skemmtiefni í út-
varpið. Ég sakna revíuflutningsins.
Það má líka vera meira af þessu létta
í sjónvarpinu."
Hermann á mikið safn skemmti-
þátta úr bæði þýska, austurríska og
svissneska sjónvarpinu og það efni
þekur alveg heilan vegg í herberginu
hjá Hermanni. „Það er svo fallegur
söngur í þessum þáttum og fallegir
búningar," segir Hermann og lætur
eina spólu í videótækið því til sönnun-
ar. Sveinn Ólafsson mágur hans hefur
tekið þetta efiii upp af gervihnatta-
diski og sent honum. Þá hefur hann
safhað bæöi íslenskum og mið-evr-
ópskum þjóðlögum. Hermann hefur
gaman af því að ferðast þó hann geri
samt ekki mikið af því.
„Ég fór m.a. til Mallorca þegar ég
var fimmtugur og eins fór ég til
Þýskalands fyrir nokkrum árum með
mági mínum og systur og það var
mjög gaman,“ segir Hermann.
Sér óorðna liluti fyrir
„Ég gifti mig aldrei. Það var svo
mikið að gera hjá mér og ég hafði bara
ekki áhuga á því,“ segir Hermann og
hlær.
„Ég hef samt alltaf haft gaman af að
vera með skemmtilegu fólki og ég fæ
mér stundum rauðvínsglas."
Auk þess að stunda búskapinn í
sveitinni vann Hermann á vertíðum
hjá Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur. Keyrði
hann þá á milli á traktornum en þeir
voru ekki yfirbyggðir þá eins og nú.
„Það var oft mikið að gera hjá
Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur og mér lík-
aði vel við verkstjórann Helga Krist-
jánsson sem þá var,“ segir Hermann.
Hermann segist vera berdreyminn
og sjá oft ýmsa óorðna hluti fyrir.
Hann segist oft sjá þetta á gangi
tunglsins og þegar það minnkar líður
lengra á milli atburða.
„Ég sagði t.d. Þorgilsi nákvæmlega
hvað við myndum þéna á vertíðinni í
Hafnarfirði forðum. Eins var með
nýja veginn hérna í sveitinni sem
lagður var fyrir stuttu. Þá sá ég einnig
fyrir mér nýju brúna á Tunguá og
stórvirku tækin sem þar voru notuð,“
segir Hermann.
„Þá hefur fólk haft samband við
mig og spurt mig um hluti sem það
skilur ekki og það er afskaplega þakk-
látt fyrir. Maður er ánægður ef maður
getur hjálpað og fær það margborgað
bara með ánægjunni," segir Hermann.
Þeir bræður Hermann og Þorgils
voru mjög samrýndir í sínum búskap
og foreldrar þeirra bjuggu hjá þeim
allt til dauðadags á Hrísum. Hermann
er núna með 120 kindur og 3 hesta.
Hann fer allra sinna ferða á Land
Rover sem hann á, módel 1973, og ber
númerið A 5180. Una aðstoðar bróður
sinn á allan hátt við búskapinn og
munar ekki um aö keyra inn að Hrís-
um á fólksbílnum sínum. Una á
reyndar gamlan Willys-jeppa frá 1962
sem bar númeriö P 308 en hann er
núna geymdur á sama stað og Mac
Cormick-vélin hans Hermanns. Her-
mann hefúr alltaf gaman af því þegar
gesti ber að garði og tekur vel á móti
þeim. Hann er ræðinn og hefur gaman
af að segja frá. Það fer vel á því að
hafa lokaorðin á þessu spjalli við Her-
mann setningu sem hann sagði við
mig á einum stað í viðtalinu.
„Ég þekki bara gott og skemmtilegt
fólk.“ -PSJ
Una við Willys-jeppann sinn frá 1962 sem hún geymir
hjá Herinanni bróður sínuin.
Hermann við Mac Cormick-dráttarvélina góðu frá 1947 og var hún önn-
ur í röðinni af þessari gerð sem kom til landsins.
Subaru Legacy Outback,
árg. 1996, ek. 65 þús., ssk., ailt rafdr., ABS, airbag,
CD, kastarar, þjónustubók, þakbogar, nýtt í
bremsum og bíll nýryðvarinn. Ásett verð ca. 1390
Verð 1090 þús.
Toyota Corolla Xli H/B 1, 3,
árg. 8/91, ek. 118 þús., ssk., samlæsingar, útvarp,
nýtt I bremsum og nýir demparar að aftan.
Vel með farinn og vel þjónustaður bíll.
Verð22oþús.
Subaru Legacy GL stw,
árg. 1/98, ek. 91 þús., ssk., rúður og speglar rafdr.,
samlæsingar, krókur, þakbogar, þjónustubók,
nýtímareim.
Verð 1250 þús.
Bjóðum ailt að 100% fjármognun
MIKLATORCl • SÍMI 551 7171 • FAX 5 5 1 7225 • www.abs.is
■
Aðalbílasalan - fyrstir í notuðum!
Góð og traust þjónusta við viðskiptavini Aðalbílasölunnar
hefur verið lykilforsenda fyrir velgengi henna síðastliðin 48 ár.
Viljir þú kaupa eða selja bíl þá getur þú treyst á þjónustu okkar.
gpflLBÍLflSIi ijJH
P f HJARTA BORCARINNAR
Honda CRV Rvsi,
árg. 1998, ek. 94 þús., ssk., abs, airbag,
rúður og speglar rafdr., topplúga.
Verð 1390 þús.
Verð 1570 þús.
Saab 95 SE,
árg. 1/99, ek. 38 þús., ssk., álfelgur,
rúður og speglar rafdr., ABS, CD, airbag,
spólvörn, einn hlaðinn búnaði.
Verð 2190 þús.
Toyota Corolla Terra L/B i, 6,
árg. 3/2001, ek. 46 þús. 5 gíra, ABS, airbag,
CD, rúður og speglar rafdr., samlæsingar.
Verð 1290 þús.
Subaru Forester,
árg. 9/99, ek. 40 þús. ssk., abs, airbag, álfelgur, fjarstýrðar samlæs., þjófavörn
og fjarstart, rúður og speglar rafdr., sumar- og vetrardekk.
Peugeot 206 CC 2.0,
árg. 3/02, ek. 16 þús., 5 gíra, hardtop, leðuráklæði,
álfelgur, airbag, ABS, CD, loftkæling, rafm í rúður
og speglar rafdr., kastarar, digitalmiðstöð.
Verð 2250 þús.
<
■tr