Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Síða 34
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003
HafnaiH Magdeburg
Alexander Petersons, leikmaður
Gróttu/KR, hafnaði í gær tilboði frá
þýska úrvalsdeildarliðinu Magdeburg.
Petersons æfði í nokkra daga með Mag-
deburg fyrir skemmstu og í kjölfarið
gerði liðið leikmanninum tilboð sem
hann hafnaði síðan í gær. Nokkur er-
lend lið eru á höttunum eftir Petersons
en hann fer til þýska annarrardeildar-
liðsins Dusseldorf í næstu viku og æfir
með liðinu í mokkra daga.
-JKS-
Síöari leikirnir í 8-liöa úrslitum karla í handknattleik í kvöld:
GeysHega nftið í húli
- Ágúst Jóhannsson sér fram á mikla baráttu í leikjum kvöldsins
íris Svavarsdótíir, frjálsí-
þróttakona úr FH, náði besta ár-
angri ársins í hástökki kvenna
innanhúss í vikunni þegar hún
fór yfir 1,70 metra á innanfélags-
móti FH í Kaplakrika. Þetta er
besti árangur hennar innanhúss
og jafnt besta árangri hennar ut-
anhúss skv. afrekaskrá FRÍ.
Gerður Rún Guðlaugsdóttir,
iR, lenti i þriðja sæti í 10 km
götuhlaupi á danska meistara-
mótinu sem haldið var í Svend-
borg. Gerður hljóp vegalengdina
á 36,46 mínútum sem er janframt
besti árangur hennar.
Enski landsliðsmaðurinn
Owen Hargreaves, sem leikur
með Bayem Múnchen, hefur
bæst á langan sjúkralista liðsins.
Fimm aðrir lykilmenn þess voru
meiddir fyrir. Úr þessu ættu
þessi meiðsl ekki að koma i veg
fyrir að Bæjarar vinni sinn 18.
meistaratitil en liðið hefur 14
stiga forystu í deildinni. Liðið
þarf sjö stig til viðbótar til að
landa titlinum.
Clarence Seedorf hjá AC Mil-
an meiddist á hné í leiknum
gegn Ajax í meistaradeildinni í
Amsterdam í fyrrakvöld. Meiðsl-
in eru svo alvarleg að hann leik-
ur ekki meira það sem eftir lifir
tímabilsins.
Kylfingurinn Birgir Leifur
Hafþórsson hefur tilkynnt fé-
lagaskipti yfir í Golfklúbb Kópa-
vogs og Garðabæjar. Birgir Leif-
ur hefur fram að þessu leikið
undir merkjum Glofklúbbs Leyn-
is á Akranesi. Hann ætlar að
leika á mótum hér innanlands í
sumar og í haust á úrtökumótum
Evrópsku mótaraðarinnar eins
og undanfarin ár.
Skoska liðið Celtic mætir
Boavista frá Portúgal í undanúr-
slitum UEFA-bikarsins á Celtic
Park í Glasgow í kvöld. Celtic
teflir fram sínu sterkasta liði og
á Ricardo Pereira, þjálfari Boa-
vista, von á erfiðum leik. Hann
segir Celtic líklegra liðið enda á
heimavelli með 60 þúsund áhorf-
endur að baki sér.
Martin O’Neill, knattspymu-
stjóri Celtic, varar menn við of
mikUli bjartsýni og vill halda sig
á jörðinni. Boavista sé sýnd
veiöi en ekki gefin. „Við stefnum
auðvitað leynt og ljóst að þvi að
komast í úrslit keppninnar,"
sagði O’Neill. Þess má geta að
Celtic hefur ekki tapað 10 leikj-
um í röð á heimavelli í Evrópu-
keppni.
í hinum undanúrslitaleiknum
eigast við Porto og Lazio. Þama
er á ferð mjög athyglisverð
viðureign þar sem möguleikam-
ir eru jafnir eins og þjáifarar
beggja liða komust að orði á
blaðamannafundi í gær. Lazio
verður án tveggja sterkra leik-
manna en Jaap Stam og Dejan
Stankovic eiga við meiðsl að
stríða.
Essen sigraði Kiel, 27-25, í
þýsku bundeslígunni í hand-
knattleik í gærkvöld. Patrekur
Jóhannesson skoraði 2 mörk
fyrir Essen og Guðjón Valur
Sigurðsson 1. Magdeburg sigr-
aði Pfullingen, 38-30, og Lemgo
sigraði Wilhelmshavener, 29-26.
Lemgo er efst i deildinni en á eft-
ir koma Flensburg, Magdeburg
og Essen. -JKS
Siðari leikirnir í 8-liða úrslitum
karla í Esso-deildinni i handknatt-
leik fara fram í kvöld og hefjast
þeir allir klukkan 19.15. Úrslitin
sem komu hvað mest á óvart í
fyrstu umferð voru sigur Framara
á Haukum í Hafnarfirði. Önnur
úrslit voru samkvæmt bókinni.
Ekki kæmi samt á óvart þótt grípa
þyrfti til oddaleiks í öllum viður-
eignunum en það kemur allt sam-
an í ljós eftir leikina í kvöld.
Ágúst Jóhannsson, þjálfari
Gróttu/KR, sagði að það hefði
komið sér og fleirum geysilega á
óvart að Framarar skyldu vinna
Hauka á útivelli í fyrsta leiknum.
„Það er bara þannig að ef Fram-
arar ná að leika góðan vamarleik
Þriðja úrslitarimma Grindvík-
inga og Keflvíkinga um íslands-
meistaratitilinn í körfuknattleik
verður háð i Grindavík í kvöld og
hefst hún klukkna 19.15. Keflvíking-
ar leiða einvígið, 2-0, og geta þannig
með sigri í kvöld landað íslands-
meistaratitlinum. Grindvíkingar
munu gera allt sem í þeirra valdi
stendur til að vinna og koma sér
þannig inn í einvígið en það tekst
ekki nema aliir leikmenn liðsins
leggist á eitt. Keflvíkingar hafa sýnt
það í úrslitakeppninni og þeir hafa
á að skipa mjög öflugu liði og eru
ekki árennilegir.
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari
eru þeir mjög erfiðir viðureignar.
Ég hallast samt að því að Haukar
vinni leikinn í Safamýrinni í
kvöld þó svo að ég útiloki alls ekki
að Framarar geti klárað þetta ein-
vígi. Ég met stöðuna þannig að
þetta sé úrslitaleikur um það
hvort liðið komist áfram; það er
að segja ef Haukar vinna í kvöld
þá klára þeir dæmið í oddaleik á
heimavelli. Ég vil ekki trúa öðru
en að Haukar rífi sig upp og finni
lausn á framliggjandi vörn Fram-
liðsins,“ sagði Ágúst sem spáir
einnig í aðra leiki kvöldsins í 8-
liða úrslitunum.
Býr meira í FH-liðinu
„Ég sá leik Valsmanna og FH-
KR, sagöi Keflvíkinga hafa fengið
mikið sjálfstraust eftir leikina við
Njarðvíkinga og það hefði fylgt
þeim inn í leikina gegn Grindavík.
„Ég sé þetta sjálfstraust, sem
Keflvikingar hafa, klára rimmuna
við Grindvíkinga. Fyrstu tveir leik-
ir liðanna hafa verið hörku-
skemmtilegir en Keflvíkingar hafa
verið sterkari og ég sé fátt sem get-
ur stöðvað þá. Ég er svolítið hrædd-
ur um að Keflvíkingar hampi titlin-
um í kvöld en ég vona samt að þetta
einvígi fari út í fleiri leiki. Það er
langt síðan ég hef séð jafnt gott lið
og Keflvíkingar eiga um þessar
mundir. Keflvíkingar voru nógu erf-
inga á Hlíðarenda þar sem Valur
var miklu betra liðið. Valsmenn
voru þar miklu grimmari og
ákveðnari í því að sigra. Ef Vals-
liðið heldur áfram að spila þann
varnarleik sem það hefur verið að
gera er ekki nokkur spurning um
að það klárar dæmið í Kaplakrika
í kvöld. Engu að síður veit ég að
það býr miklu meira í FH-liðinu
en menn eins og Logi Geirsson
voru að leika langt undir getu í
fyrsta leiknum. Eins fundu mark-
menn FH-liðsins sig ekki í leikn-
um og fleira væri hægt að tína til.
Þegar öllu er á botninn hvolft hall-
ast ég að því að FH-ingar vinni
Valsmenn á sínum heimavelli í
kvöld og oddaleik þurfi síðan til
iðir með Damon Johnson innan-
borðs en með tilkomu Edmunds
Saunders er liðið það sterkasta sem
ég hef lengi séð á íslandi. Ég hef
sagt að það eina sem geti stöðvað
þetta lið sé þeir sjálfir og ég hugsa
að það stafi af kæruleysi ef þeir tapa
leiknum við Grindavík í kvöld. Ég
trúi samt ekki öðru en að Grindvík-
ingar leggi allt í sölumar en þeir
verða þá að eiga stórleik eigi það að
takast hjá þeim. Það er eitthvað sem
segir mér að þessari rimmu ljúki í
kvöld þó að ég voni annað,“ sagði
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR, í
samtali við DV. -JKS
að skera úr um hvort liðið fari
áfram í undanúrslit.“
Trú á ÍR-ingum
„Fyrirfram var ég búinn að spá
því að ÍR myndi vinna viðureign-
ina við Þór 2-1. Ég sá síðari hálf-
leik í fyrsta leik liðanna í sjón-
varpi þar sem ÍR-ingar voru miklu
betri. Mér fannst leikur Þórsara
hálf vandræðalegur á köflum og
þeir þurfa heldur betur að bretta
upp ermarnar í kvöld. Ég hef al-
veg eins trú á því að ÍR-ingar
vinni á Akureyri í kvöld og kom-
ist áfram. Það er erfitt að leika á
Akureyri en ef ÍR-liðið nær að
leika agaðan leik þá klárar það
þessa viðureign í kvöld.“
HK svarar fyrir sig
„Ég held að HK-liðið hljóti að
koma til baka og jafni þannig
viðureignina gegn KA. íslands-
meistarar KA léku sannfærandi í
fyrsta leiknum á Akureyri en það
er aldrei að vita nema rútuferðin
hafi setið eitthvað í HK-mönnum.
Ég neita að trúa því að menn eins
og Árni Stefánsson og hans menn
vilji nú fara í frí með 2-0 tap á
bakinu. Ég hef að óreyndu ekki
trú öðru en að HK-menn svari fyr-
ir sig í leiknum í Digranesi í
kvöld. Þetta verður hörkuleikur
tveggja baráttuliða en hinu má
ekki gleyma að nokkrir leikmenn
KA-liðsins hafa yfir mikilli
reynslu að ráða. Það getur þvi
brugðið til beggja vona en HK-lið-
ið hefur verið að leika sérlega vel
í vetur og ég hef því tröllatrú á
þeim í kvöld,“ sagði Ágúst Jó-
hannsson, þjálfari Gróttu/KR.
-JKS
Tíu leikir voru háðir í
bandaríska körfuboltanum í nótt
sem leið og urðu úrslit í þeim
þessi.
Washington-Boston .........83-87
Jordan 21, Brown 17, Stackhouse 16 -
Walker 24, Pierce 20, Bremer 20
Orlando-Toronto............88-82
McGrady 37, Giricek 14, Hunter 8 -
Williams 15, Alston 14, McCoy 12
Atlanta-New Jersey........97-92
Terry 24, Rahim 18, Glover 18 - Kidd
23, Rogers 15, Kittles 14, Jefferson 14
Detroit-Chicago .........111-102
Billups 29, Robinson 24, Okur 19 -
Crawford 26, Rose 24, Curry 20
MiUwaukee-LA Clippers . . 112-92
Kukoc 26, Cassell 22, Payton 21 -
Brand 21, Maggette 20, Piatkowski 16
New Orleans-Cleveland . . .100-81
Mashbum 28, Wesiey 17, Magloire 14
- Jones 21, Hgauskas 15, Boozer 10
San Antonio-Portland .... 84-79
Ginobili 17, Parker 15, Bowen 13 -
Anderson 20, Stoudamire 12, Wells 12
Utah Jazz-Houston .........94-73
Harpring 23, Kirilenko 15, Padgett 13 -
Taylor 10, Posey 10, Rice 9, Mobley 9
Phoenix-Dallas ...........112-89
Marion 31, Marbury 20, Stoudemire 17 -
Nowitzki 26, Van Exel 22, Johnson 9
Seattle-Minnesota.........100-92
Allen 33, Lewis 19, Radmanovic 12 -
Gamett 29, Szczerbiak 26, Hudson 13
Þaö var á köflum ekkert gefiö eftir (fyrstu viöureign ÍR og Þórs og svo veröur einnig á Akureyri i kvöld.
Landa Keflvíkingar íslandsmeistaratitlinum í kvöld?
Fátt sem stöðvar þá
- segir Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR-inga