Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2003, Page 3
MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003
19
Sport
Handknattleiksmaðurinn Patrekur JóhannessonE
Missti stjónn
- gæti fengið allt að 6 mánaða leikbann fyrirí
Mikil spenna er lokaumferð skosku knattspyrnunnar fór fram:
Rangers meistari
um yfir þessu öllu saman,“ sagði
Patrekur Jóhannesson, landsliðs-
maður í handknattleik, lauk giftu-
ríkum ferli hjá þýska félaginu
Essen á laugardaginn á fremur leið-
inlegan hátt. Hann lenti í útistöðum
við annan dómara leiksins eftir að-
eins átta mínútna leik og í kjölfarið
hrækti hann á gólflð og í átt að dóm-
aranum sem umsvifalaust útilokaði
hann frá frekari þátttöku í leiknum.
Hrækti ekki á dómarann
„Það sem gerðist var að það var
brotið á mér og ég mótmælti. Ég
viðurkenni það að ég missti mig
þama í augnablik og spýtti á gólfið.
Það fór í áttina að dómaranum. Ég
viðurkenni það að hún flaug ansi
langt en fór ekki á hann. Ég spurði
dómarann út í málið eftir leikinn og
hann játaði að hrákinn hefði ekki
farið á hann heldur í áttina að hon-
um og því hefði hann strax gefið
mér útUokun,“ sagði Patrekur i
samtali við DV-Sport í gærkvöld.
Þessi hráki gæti dregið dilk á eft-
ir sér fyrir Patrek því harðasta refs-
ingin fyrir útilokun er sex mánaða
leikbann.
„Mitt mál verður örugglega tekið
fyrir i þessari viku og ég hef ekki
hugmynd um það á þessu stigi máls-
ins hver niðurstaðan verður," sagði
Patrekur sem var augljóslega mjög
leiður yfir þessu öllu.
Leiöinlegt aö enda svona
„Ég hefði gjarnan viljað ljúka
ferlinum með Essen á öðrum nót-
um. Þetta gerðist og ég breyti því
ekkert úr þessu. Þetta er ekki
skemmtilegt," sagði Patrekur og
hann leggur áherslu á það að hann
hefði aldrei reynt að hrækja á dóm-
arann.
„Ég viðurkenni það að ég var
mjög reiður en ég ætlaði mér ekki
að spýta á dómarann. Ég ætlaði að
spýta á gólfið. Ég hef oft gert það og
það gera margir leikmenn. Ég talaði
við leikmann í Flensburg og hann
sagði að örugglega fimmtiu prósent
leikmanna hræktu á gólfið og hann
sagði að ég hefði verið óheppinn að
dómarinn hefði verið að horfa í aug-
un á mér á sama tíma og ég hrækti,
sem og að hrákinn hefði lent við
hliðina á honum. Ég hef heyrt að
það sé talað um að ég hafi gengið að
dómaranum og hrækt framan í
hann en það er algjört kjaftæði,"
sagði Patrekur.
Patrekur gerði á dögunum samn-
ing við spænska félagið Bidasoa,
sem Heiðmar Felixson leikur með,
og ef allt færi á versta veg yrði hann
í banni með félaginu til loka nóvem-
bermánaðar. Ætli bannið hafi áhrif
á stöðu hans hjá félaginu?
„Umboðsmaðurinn minn mun
tala við þá á morgun og ég veit ekki
hvað þeir geta gert. Hvort þeir geta
sagt upp samningnum eða hvað
þeir gera. Ég hef hreinlega ekki
hugmynd um það. Það verður bara
að koma í ljós á morgun. Það má vel
vera að þeir geti rift samningnum
og þá er ég atvinnulaus í hálft ár.
Þetta er vægast sagt hrikalegt
ástand og óvissan mikil. Það er
nógu slæmt að horfa fram á að fá
leikbann en það er ívið verra að
verða hugsanlega atvinnulaus í
hálft ár,“ sagði Patrekur.
Óvissa með landsliðiö
íslenska landsliðið kemur saman
á næstu dögum og er Patrekur í
hópnum. Hann veit ekki enn hvort
bannið hefur áhrif á þátttöku hans í
landsliðinu.
„Ég held það,'já. Ég er samt ekki
með það á tæru. Sumir hafa sagt að
ég megi ekki leika með landsliðinu
meðan ég er í banni en aðrir segja
manni öfugt þannig að maður veit
ekki hvað maður á að halda. Ég var
að tala við Guðmund landsliðsþjálf-
ara áðan og hann ætlaði að fara í
málið á morgun," sagði Patrekur
sem fmnst það ansi hart ef hann fær
sex mánaða bann fyrir þennan
hráka.
„Júgóslavneski landsliðsmaður-
inn Jovanovich lenti í þvi héma fyr-
ir nokkrum ámm að ráðast á tvo
menn sem hann barði og rotaði.
Hann fékk sex mánaða bann fyrir
það og mér fmnst ansi hart ef ég fæ
svo sama bann fyrir einn hráka sem
lenti ekki einu sinni á dómaranum.
Ég neita að trúa því að það gerist,"
sagði Patrekur að lokum.
Guömundur sleginn
Guðmundur Guðmundsson lands-
liðsþjálfari var sleginn yfir tíðind-
unum þegar DV-Sport leitaði eftir
viðbrögðum hans í gærkvöld.
„Ég verð að játa að mér þykir það
mjög miður að þessi staða skuli
vera komin upp. Við ætlum að sjálf-
sögðu bara að kynna okkur málið
ofan í kjölinn á morgun. Við höfum
ekki enn haft tækifæri til þess og
við munum reyna að skoða málið
frá öllum hliðum. Ég hef rætt við
Patrek sjálfan en að öðru leyti hef
ég engar upplýsingar um þetta mál
nema það sem komið hefur fram í
fjölmiðlum. Ég mun auðvitað setja
mig í samband við þýska hand-
knattleikssambandið á morgun og
fá afrit af skýrslunni úr leiknum
þannig að við getum skoðað málið
frá öllum hliðum. Svo munum við
kynna okkur hvaða afleiðingar
þetta hefur fyrir Patrek, sem og fyr-
ir okkur.“ -HBG
Glasgow Rangers varð í gær
skoskur meistari í 50. skipti.
Rangers lagði Dunfermline, 6-1, á
sama tíma og erkifjendurnir í Glas-
gow Celtic lögðu Kilmamock, 4-0.
Þar með höfðu Rangers og Celtic
hlotið jafn mörg stig í vetur en
Rangers varð meistari þar sem
markahlutfall þeirra var betra.
„Það er mjög fín lina á milli sig-
urs og taps og það var mikil spenna
í allan dag en ég er hreint í skýjun-
Alex McLeish, þjálfari Rangers, í
leikslok. „Frammistaða leikmann-
anna á þessari leiktíð hefur farið
langt fram úr mínum björtustu
vonum og ég er virkilega stoltur af
strákunum," sagði McLeish.
Þetta er í fyrsta skipti síðan 1986
sem titillinn ræðst á markamun og
þetta var annað stóra áfallið á
einni viku hjá Celtic því þeir töp-
uðu fyrir Porto í framlengdum leik
í úrslitum Evrópukeppni félagsliða
fyrr í vikunni.
„Ég verð að hrósa leikmönnum
og stuðningsmönnum félagsins.
Þeir hafa staðið sig frábærlega og
lagt sig alla fram í allan vetur,“
sagöi Martin O'Neill, stjóri Celtic,
en þeir áttu rosalegan endasprett í
deildinni eftir að margir voru bún-
ir aö afskrifa þá og að lokum mun-
aði svo litlu að þeim tækist að ná
titlinum. -HBG
Söpenstam grét
- sænska golfdrottningin komst ekki í gegnum niöurskuröinn
Sænska golfdrottningin Annika
Sörenstam varð i síðustu viku
fyrsta konan síðan 1945 til þess aö
taka þátt í PGA-mótaröðinni í golfi
þegar hún tók þátt i Colonial-mót-
inu í Texas.
Hún stóð sig frábærlega þegar
hún spilaði fyrsta hringinn sem
hún fór á 71 höggi, eða einu yfir
pari. Annan hringinn fór hún á 74
höggum, eða fjórum yfir pari, og
fyrir vikið komst hún ekki í gegn-
um niðurskurðinn en hún var fjór-
um höggum frá því takmarki sínu.
Engu að síður frábær árangur hjá
þessum magnaða íþróttamanni
sem hefur verið undir miklu álagi
vegna þess fjölmiðlafárs sem varð
vegna þátttöku hennar í mótinu.
„Þetta er búið að vera mikið álag
og mikil pressa. Ég væri samt til í
að koma aftur á morgun,“ sagði
Sörenstam við blaðamenn eftir
mótið en hún grét er hún gekk af
18. flötinni.
„Ég gaf allt. Ég reyndi og virki-
lega gaf allt sem ég átti í þetta
mót,“ sagði Sörenstam sem segist
ekki ætla að taka þátt í móti með
körlunum aftur.
„Ég mun ekki endurskoða þá
ákvörðun mína. Ég er virkilega
þakklát fyrir að hafa fengið þetta
tækifæri en ég veit hvar ég á
heima. Ég mun taka með mér þá
ótrúlegu reynslu sem ég náði mér í
hérna og ég vil halda áfram að
vinna mót. Ég vil setja met og sú
reynsla sem ég nældi mér í hérna á
þessu móti mun hjálpa mér að ná
þeim markmiðum mínum," sagði
Sörenstam að lokum en hún fékk
hlýjar kveðjur frá áhorfendum
mótsins er hún kom á flötina á 18.
holunni. Áhorfendur stóðu upp fyr-
ir henni og öskruðu „Áfram
Annika". -HBG
Tilfinningarnar báru Anniku Sörenstam ofurliöi er hún lauk keppni á Colon-
ial-mótinu og hún brast í grát. Reuters