Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2003, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2003, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 23 I>V Sport Viöureign Stjorn- unnar og Afturetd ingar í Garðabæ i gær var lítt spenn öi ö markalausu jafn- tefli. Stjörnumaö- urinn Sveinn Magnússon reynir hér aö komast fram hjá Mosfell- ingnum Alberíi Ás- valdssyaí. DV-mynd PÖK ' ‘f m - þegar Stjarnan og Afturelding skildu jöfn, 0-0, í döprum og tilþrifalitlum leik í Garðabæ Leikur Stjörnunnar og Aftureld- ingar í Garðabænum í gær fer seint í sögubækurnar. Hann var vægast sagt daufur og tæplega 100 áhorf- endum var ekki skemmt. Fóru þeir sneyptir heim á leið að leik loknum enda lauk honum með markalausu jafntefli. Stjömumenn vom betri aðilinn í leiknum frá upphafi. Þeir stýrðu umferðinni á meðan leikmenn Aft- ureldingar lágu í skotgröfunum og freistuðu þess að beita skyndisókn- um. Þrátt fyrir ágætt spil á köflum gekk Garðbæingum bölvanlega að opna vörn Mosfeflinga og þegar það gerðist tókst þeim ekki aö koma boltanum fram hjá Axeli Gomez í marki Aftureldingar. Skyndisóknir gestanna í fyrri hálfleik voru mátt- lausar og gekk þeim ákaflega illa að halda boltanum innan liðsins. Stjömumenn mætti mjög ákveðn- ir til síðari hálfleiksins og juku sóknarþungann jafnt og þétt. Þeir komust einna næst því að skora þegar Dragoslav Stojanovic átti bylmingsskot á 65. mínútu sem hafnaði í þverslá. Stojanovic var aft- ur á ferðinni tíu minútum síðar þeg- ar hann fékk glæsilega sendingu inn fyrir vörn Aftureldingar frá Vii- hjálmi Vilhjálmssyni. Hann reyndi að lyfta boltanum yfir Axel sem sá við honum og varði glæsilega. Leikurinn opnaðist örlítið á lokamínútunum og sáust þá nokkur færi en markverðir beggja liða voru vel á tanum og vörðu oft meistara- lega. Niðurstaðan varð því jafntefli sem Mosfeliingar sætta sig örugg- lega vel við en Garðbæingar hljöta að gráta horfin stig. Bjarki Guðmundsson átti ftnan leik í marki heimamanna og greip oft virkilega vel inn i leikinn þegar vörn Stjörnumanna opnaðist en hún var oftar en ekki á tæpasta vaði í þessum leik. Þjáifarinn Valdimar Kristófersson lék þó ágætlega í mið- verðinum. Vilhjálmur var fínn á miðjunni - dreifði spilinu vel og átti nokkrar ágætar skottilraunir. Dragoslav átti síðan ágæta spretti inn á milli. Axel Gomez átti stórleik hjá Mos- fellingum og þeir geta þakkað hon- um stigið. Vörn liðsins lék einnig ágætlega og fór Magnús Einarsson þar fremstur í flokki. Annars var spilamennska liðsins ekki á háu plani og voru leikmennimir lengst- um í mestu vandræðum með að ná þrem sendingum sín á milii. Sturla Guðlaugsson var þó ágætur á kant- inum og átti nokkrar ftnar sending- ar sem ollu hættu. Henning Jónas- son var oft ágengur í teignum og var klaufi að skora ekki. Vantaöi greddu Valdimar Kristófersson, þjálfari Stjömunnar, var ekki sérstaklega kátur þegar DV-Sport náði tali af honum i leikslok. „Þetta var ekki nógu gott. Ef við ætlum okkur eitthvað i þessari deild verðum við að taka 3 stig á heimavelli. Annars var ég mjög ánægður með strákana. Þeir spil- uðu vel en það vantaði alltaf síðustu sendinguna til að klára dæmið og strákarnir voru ekki alveg nógu graðir í teignum. Menn þurfa að vera graðari i boltann ef þeir ætla að skora.“ Maður leiksins: Axel Gomez, Aftureldingu. -HBG Jafntefli á Þórsvellinum 0-1 Þorsteinn Gestsson .......(70.) 1-1 Jóhann Þórhallsson........(75.) Þór og HK skildu jöfn, 1-1 í fyrstu deild karla á Þórsvellinum i gær. Þórsarar vom meira með boltann í byrjun leiks en leikmenn HK virt- ust líklegri tii að skora og vel út- færð upphlaup þeirra vom stór- hættuleg. Á 14. minútu fengu gestirnir guliið tækifæri til að komast yfir. Þá var dæmd vítaspyma þegar brot- ið var á Þorsteini Gestssyni en Zor- an Panic skaut í stöng. Bæði lið fengu ágætis færi til að skora fram- an af leik en inn vildi boltinn ekki. Á 55. mín. átti Zoran hörkuskot ut- an við teig sem smaii í tréverkinu. HK menn tóku síðan forystima á 70. mínútu þegar Þorsteinn Gests- son fékk sendingu inn fyrir vöm heimamanna og afgreiddi boltann örugglega í netið, fram hjá Atla M. Rúnarssyni í markinu. Það tók hins vegar heimamenn einungis 5 mínútur að jafna leikinn. Þórsarar tóku homspyrnu, HK- menn hreinsuðu en boltinn barst aftur inn í teig þar sem Jóhann Þór- halisson stóð einn og óvaldaður fyr- ir framan markið og skaut öruggu skoti fram hjá Gunnleifi í markinu. Þórsarar náðu að skora mark á lokamínútu leiksins en það var dæmt af vegna rangstöðu. Gunnleifur var sterkur i markinu hjá HK, öryggið uppmálað í teign- um og óhræddur við að fara út í háu boltana. Báðir miðverðimir, þeir Ásgrím- ur og Guðbjartur, áttu skinandi leik og náðu að halda eitruðum sóknar- mönnum heimamanna niðri lengst- um. Zoran Panic spiiaði vel og Þor- steinn var síógnandi frammi. í jöfnu liði heimamanna átti Ingi Heimisson skinandi leik og þegar á leikinn leið kom Jóhann Þórhalls- son sterkur inn og skapaði oft og tíðum usla í vörn gestanna, oftast nær eftir góðar sendingar frá Orra Óskarssyni á miðjunni. Þórsarar söknuðu Hlyns Birgissonar leiðtoga sins í vöminni, en hinn gamal- reyndi kappi Páli Gíslason tók að sér þaö hlutverk í leiknum og leysti vel. Maður leiksins: Ásgrímur Al- bertsson, HK. -ÆD KNATTSPYRNAJ ~ 2o BBÖILB Léttir-fR ...................0-3 0-1 Óskar Alfreðsson (27.), 0-2 Engil- bert Friðfinnsson (76.), 0-3 Óskar Al- freðsson (88.). KFS-Selfoss..................2-1 1-0 Davíð Egilsson (17.), 1-1 Ingþór Guðmundsson (75.), 2-1 Hafþór Rúnarsson (90.). Vlöir-KS ....................1-0 1-0 Kári Jónsson (68.). Tindastóll-Sindri............2-0 1-0 Elías Ámason (57.), 2-0 Elías Árnason (65.). Fjölnir-Völsimgur............2-3 0-1 Ásmundur Arnarson (14.), 1-1 ívar Bjömsson (58.), 2-1 Andri Gunnar Andrésson (64.), 2-2 Baldur Sigurðsson (83.). (75.), 2-3 Staðan: Boban , Jovic Völsungur 2 2 0 0 9-4 6 Víðir 2 2 0 0 5-1 6 ÍR 2 1 0 1 5-3 3 Fjölnir 2 1 0 1 5-5 3 KS 2 1 0 t 2-2 3 Tindastóll 2 1 0 1 4-6 3 KFS 2 1 0 1 3-5 3 Selfoss 2 0 1 1 2-3 1 Sindri 2 0 1 1 1-3 1 Léttir 2 0 0 2 1-5 0 A-ridill Víkingur Ó.-Deiglan ...........1-0 Númi-Grótta....................2-2 Drangur-Skallagrímur...........0-2 B-rióill Hamar-lH ......................1-4 Leiknir R.-Ægir................9-1 Afríka-Freyr...................0-2 C-riðill Reynir Á.-Vaskur...............2-1 Magni-Hvöt.....................2-2 Neisti H.-Snörtur..............4-3 D-riöill Einheiji-Neisti D..............1-3 Huginn-Fjarðabyggð ............3-2 Sigurður fep til Snæfells Samkvæmt heimildum DV hefur Sigurður Þorvaldsson, sem leikið hefur með ÍR undanfarin ár í Intersport-deildinni, ákveðið að yfirgefa herbúðir félagsins og leika með Snæfelli næsta vetur. Sigurður er 23 ára og lék sína fyrstu landsleiki á miUi jóla og nýárs. Þetta er mikiU missir fyr- ir ÍR-inga þar sem Sigurður hef- ur verið einn besti leikmaður liðsins og griðarlega mikilvægur í sókninni. Að sama skapi er þetta mikfll liðsstyrkur fyrir Snæfell og ljóst er að menn þar á bæ ætla sér stóra hluti næsta vetur. ÍR-ingar gætu misst fleiri leikmenn fyrir næsta tímabil þar sem Hreggviður Magnússon hyggur á nám í Bandaríkjunum í 3. deildar háskóla. -Ben Mitre Nitro Hg gervigrassk., Mitre Turbo takkaskór, barnast. 36-38,5. Kr. 3-990,- Mitre T urbo takkaskór, Mitre Nitro Hg gervigrassk., Jói útherji knattspyrnuversl u n Ármúlíj 36 » símí 588 1560

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.