Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2003, Síða 9
25
MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003
y
2-2, gegn meistaraefnunum í Val í hörkuleik
Við markið gerði Vanda Sigur-
geirsdóttir róttækar breytingar á
liðsuppstillingu sinni. Ema Erlends-
dóttir, hægri kantmaður, fór út af og
Guðrún 'Jóna Kristjánsdóttir kom
inn á í vömina. Við þetta færðist
Þómnn Helga á miðjuna, Ásthildur í
sóknina og Katrín Ómarsdóttir í
stöðu Emu. Breytingin virtist ætla
að skila árangri á 38. mínútu en
ágætur skalli Ásthildar, eftir langa
sendingu Eddu, var vel varinn af
Guðbjörgu.
Hún kom þó engum vörnum við í
svipuðu færi á 51. mínútu. Þá var það
reyndar slæmt úthlaup hennar sem
gerði Ásthildi kleift að skalla boltann
yfir hana og í autt markið. Hrefna Jó-
hannesdóttir fékk síðan sitt besta
færi skömmu síðar en góður skalli
hennar var vel varinn.
Annað mark Vals kom eins og
þnuna úr heiðskíru lofti. Kristín Ýr
fékk boltann frá Dóru Stefánsdóttur,
skaut lausu skoti í varnarmann og
fékk boltann aftur og brást þá ekki
bogalistin. Gott skot þar sem boltinn
hafnaði í fjærhorninu.
KR-ingar vom svo nálægt því að
jafna á 74. mínútu. Edda tók horn og
Hrefna átti gott skot í slá. Boltinn
barst svo aftur til Eddu sem skaut af
löngu færi en aftur hafnaði boltinn í
slánni. Þremur mínútum síðar kom
svo jöfnunarmarkið, sem var þó afar
klaufalegt. Boltinn barst til ÁsthOdar
og virtist Guðbjörg ætla að ná að
fanga boltann en fyrirliði KR náði að
skaila hann fram hjá henni þar sem
hún renndi honum yfir markiínuna.
Heimaliðið var nær því að skora
sigurmarkið en Valur. Varamaður-
inn Anna Berglind Jónsdóttir fékk
tvö kjörin færi en skaut á 80. mínútu
í slá af löngu færi og á næstsíðustu
mínútunni lét hún veija frá sér í upp-
lögðu færi.
"Þær skutu kannski oftar en okkar
skot vom betri," sagði Edda Garðars-
dóttir, leikmaöur KR, eftir leik. "Við
emm samt ágætlega sáttar við stigið
enda Valur með gott lið. Nú mætum
við Blikum næst og sá leikur verður
sjálfsagt ekkert auðveldari," sagði
Edda. Hún ásamt Ásthildi var í al-
gjöra aðalhlutverki í sínu liði enda
upphafsmaðurinn að flestum sóknum
KR-liðsins. Einnig ' var gaman að
fylgjast með Þóranni Helgu sem var
mjög dugleg allan leikinn og gilti þar
einu hvort hún var í vörn eða á
miðju.
Hjá Valsstúlkum var Katrín Heiða
best í annars fremur jöfnu liði. Mál-
fríður og Pála voru duglegar í vörn-
inni og Dóra María var algeru lykil-
hlutverki í sóknarleik liðsins þar
sem allir boltar virtust rata á hana.
"Við hefðum mátt halda þetta út
fyrst við komumst yfir," sagði Katrín
Heiða í samtali við DV-Sport. "En
þetta var hörkuleikur og bæði lið
hefðu, þannig séð, geta unnið í dag.
Við lögðum auðvitað upp með að
vinna og einhvern tímann hefðum
við sætt okkur við stig á þessum velli
en ekki í dag. Við vildum vinna,“
sagði Kristín. -esá
KR-Valup 2-2
0-1 Laufey Ólafsdóttir .........33.
skot úr teig . Kristín Ýr Bjamadóttir
1-1 Ásthildur Helgadóttir .... 51.
skalli úr teig . . . Edda Garðarsdóttir
1- 2 Kristín Ýr Bjamadóttir . . 71.
skot utan teigs . . Dóra Stefánsdóttir
2- 2 Ásthildur Helgadóttir .... 77.
skot úr teig .... Edda Garðarsdóttir
Skot (á mark): 11 (8) - 16 (10) Horn: 2-3 Aukaspyrnur: 10-6 Rangstöóur: 3 -3 Varin skot: Þóra 8 - Guðbjörg 4. 1 r
Besta Irammistaðan á vellinum: Ásthildur Helgadóttir, KR
@@ Ásthildur Helgadóttir, Edda
Garðarsdóttir, KR - Katrín Heiða
Jónsdóttir, Val.
@ Þóra Helgadóttir, Þórunn Helga
Jónsdóttir, Katrín Ómarsdóttir, Ólína
Kristin Sigurgeirsdóttir, KR - Mál-
fríður Sigurðardóttir, Pála Marie Ein-
arsdóttir, Laufey Jóhannesdóttir,
Dóra Stefánsdóttir, Kristín Ýr
Bjamadóttir, Dóra María
Lárusdóttir, Val.
Sport
Grindvíkingar veröa fyrir miklu áfalli:
Grétan brotinn
- leikur ekki knattspyrnu næstu vikurnar
Markakóngur efstu deildar karla
á síðustu leiktíð, Grétar Ólafur
Hjartarson, leikur ekki knattspyrnu
næstu 2-4 vikumar eftir að í Ijós
kom að hann er ökklabrotinn. Grét-
ar hefur ekkert leikið knattspymu
síðan í deildarbikamum
gegn Keflavík er hann varð
fyrir meiðslunum. í fyrstu
var talið aö meiðslin væru
minniháttar en í gær kom í
ijós að hann er ökklabrot-
inn.
Mikið áfail
„Þetta er gríðarlega mik- Grétar
ið áfall enda er Grétar okk- Hjartarson.
ar skæðasti sóknarmaður,“
sagði Bjami Jóhannsson, þjálfari
Grindavíkur, er DV-Sport náði tali
af honum í gærkvöld.
„Þetta setur mikið strik í reikn-
inginn og þá sérstaklega sóknar-
leikinn. Þannig að við verðum að
finna einhverja lausn á þessu,“
sagði Bjami. Hann útilokar ekki að
Grindvíkingamir leiti út fyrir land-
steinana til þess að frnna mann til
að leysa Grétar af.
Höldum öllu opnu
„Við höldum öllu opnu
með það en við verðum að
hafa hraðar hendur þar
sem það lokast fyrir fé-
lagaskiptin núna um mán-
aðamótin. Við erum ekki
með neina leikmenn í sigt-
inu eins og er. Við eram
bara að reyna að jafna okk-
ur á þessu og svo eigum við
leik á morgun þannig að við skoð-
um væntanlega málið eftir Fylkis-
leikinn,“ sagði Bjami Jóhannsson,
þjálfari Grindavíkur, að lokum í
samtali við DV-Sport. -HBG
Ólafur
Breiöablik lagöi FH, 2-0, í Kaplakrikanum:
Mangrét gerði
gæfumuninn
- kom inn á í síðari hálfleik og lagði grunninn að sigrinum
Breiðablik sigraði FH 0_2 i
Kaplakrikanum á laugardaginn í
Landsbankadeild kvenna.
Leikurinn sem spilaður var á
frjálsíþróttavelli Hafnarfjarðarliðs-
ins einkenndist af mikilli baráttu á
miðjunni en marktækifærin vora
aftur á móti af skomum skammti.
Sigur Breiðabliks var helst að
þakka innkomu Margrétar Ólafsdótt-
ur í siðari hálfleik, en í fyrri hálf-
leik höfðu gestirnir í Kópavogi ekki
náð að ógna marki FH að neinu ráði.
Staðan í lékhléi var markalaus en
á upphafsmínútu síðari hálfleiks lék
Margrét vöm FH grátt og náöi að
senda góða sendingu fyrir markiö
og þar var Gréta Mjöll Samúelsdótt-
ir og skoraði hún í annarri tilraun
eftir að Sigrún Ingólfsdóttir hafði
varið fyrra skot hennar. Breiðablik
bætti síðan öðru marki við tíu mín-
útum síðar þegar Helga Hannesdótt-
ir náði boltanum eftir mistök í vöm
FH og lyfti hún boltanum öragglega
yflr Sigrúnu. Eftir þetta var leikur-
inn í raun búinn þar sem FH-stúlkur
sköpuðu sér aldrei nein hættuleg
marktækifæri. Sif Atladóttir átti þó
góðan leik í framlínu FH og fékk
hún gott færi á 81. mín þegar hún
slapp inn fyrir vörn Breiðabliks en
hún skaut fram hjá. Sif sýndi oft og
tíðum góð tilþrif en hana vantaði
stuðning frá stöllum sínum í FH
sem einbeittu sér nær allar að
vamarleiknum. FH-stúlkur eiga þó
hrós skilið fyrir annars ágætan
varnarleik og með Sigrúnu í mark-
inu áttu Breiðablikstúlkur í mesta
basli með sóknarleikinn lengst af.
Innkoma Margrétar skipti sköpum
fyrir Breiðablik en þær höfðu samt
talsverða yfirburði í leiknum. Á
lokamínútu fyrri hálfleiks urðu
Breiðabliksstúlkur fyrir áfalli þegar
Björg Ásta Þórðardóttir meiddist á
ökkla, en þetta var fyrsti leikur
hennar eftir langvarandi meiðsli i
ökklanum, og vonandi að meiðslin
séu ekki eins alvarleg og þau virtist
vera. Breiðabliksstúlkur eru eftir
sigurinn með fullt hús stiga en FH
hefur mátt þola tvo tveggja marka
ósigra, reyndar gegn tveimur af
sterkustu liðum deildarinnar. Þær
geta því gengið uppréttar af velli og
með agaðri sóknarleik gætu þær far-
ið að hala inn stig.
"Okkur vantar stigin og ég hef
fulla trú á að þau fari að koma. Við
spiluðum vel í fyrri hálfleik en leik-
urinn breyttist þegar Margrét kom
inn á, hún er frábær leikmaður og
breytir liðinu hjá þeim og þær
byrjuðu vel með tveimur mörkum á
fyrstu tíu mínútunum. Við komum
síðan aftur inn i leikinn en náðum
ekki að skora og það er nokkuð sem
við þurfum að gera tfl að ná í stigin,"
sagði Sigurður Víðisson, þjálfari FH,
að leik loknum.
Gríðarlegur styrkur
„Við þurftum að hafa fyrir þessu
en þetta var mjög góður sigur. Þetta
breyttist að sjálfsögðu með innkomu
Margrétar og hún er gríðarlegur
styrkur fyrir okkur en leikurinn
var samt ekkert í hættu fram að því.
FH-stelpurnar voru mjög sprækar
og við spiluðum við Þór/KA/KS síð-
ast. Það var erfiður leikur og deild-
in virðist vera frekar jöfn og von-
andi helst það þannig áfram,“ sagöi
Ólafur Þ. Guðbjörnsson, þjálfari
Breiðabliks, við DV-Sport að leik
loknum. -ÞAÞ
0-1 Greta M. Samúelsdóttir . . 46.
skot úr markteig . . Margrét Ólafsd.
0-2 Helga Ósk Hannesdóttir . . 55.
skot úr teig .......vann boltann
Skot (á mark): 10 (3) - 10 (6) Horn: 2-7 Aukaspyrnur: 7-10 Rangstööur: 0 -4 Varin skot: Elsa 3 - Sigrún 3. íl Pl i
Besta frammistaðan á vellinum: Margrét Ólafsdóttir, Breiðabl.
@® Sigrún Ingólfsdóttir, Sif
Atladóttir (FH) - Margrét Ólafs-
dóttir, Helga Hannesdóttir,
Gréta Mjöll Samúelsdóttir
(UBK).
@ Hlín Pétursdóttir, Sigríður
Guðmundsdóttir, Valdís Rögn-
valdsdóttir (FH) - Bryndís
Bjamadóttir, Ema B. Sigurðs-
dóttir, Elín Steinarsdóttir. Björg
Ásta Þórðardóttir (UBK).