Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2003, Síða 24
MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003
^ 40
*
*
keppni í hverju orði
Rafpostur: dvsport&dv.is
Bipgir Lelfup lék
vel í Hollandi
Birgir Leifur Hafþórsson hafn-
aöi í 16.-20. sæti á Fortis Open í
Hollandi sem lauk i gær en mót-
ið er hluti af áskorendamótaröð-
inni í golfi.
Birgir Leifur spOaði frábær-
lega fyrsta daginn, lék á þremur
höggum undir pari og var í 4.-12.
sæti.
Honum gekk illa á öðrum
degi, lék á 78 höggum eða sex
höggum yfir pari og var í 49.-66.
sæti eftir annan dag.
Hann reif sig síðan upp á
þriðja degi, sýndi frábæra takta
þegar hann lék á fjórum höggum
undir pari og komst upp í 28.-32.
sæti mótsins.
Birgir Leifur náði síðan að
fylgja eftir góðum þriðja degi í
gær, lék á tveimur höggum und-
ir pari og endaði í 16.-20. sæti á
þremur höggum undir pari.
Þetta var fyrsta mót Birgis
Leifs á tímabilinu og lofar það
góðu upp á framhaldið. -ósk
Jason Kidd,
leikstjórnandi
New Jersey
Nets, sést hér
meö sigurlaun-
in sem liöiö
fékk fyrir aö
bera sigur úr
býtum í austur-
deild NBA-
deildarinnar en
liöiö fékk bikar-
inn afhentan
eftir fjóröa leik-
inn gegn
Detroit. Reuters
Ama María hætt að þjálfa
Körfuboltadrottningin Anna María
Sveinsdóttir, sem var spilandi þjálfari Kefla-
víkur sl. tvö tímabil, hefur ákveðið að segja
skilið við þjáifun liðsins og einbeita sér að
því að leika með liðinu næsta tímabil. Ekki
hefur verið gengið frá arftaka hennar en
ljóst er aö með hana innanborðs verður
Keflavíkurliðið mjög sterkt þar sem allt
bendir til þess að aðrir leikmenn verði
áfram. Þá er Erla Reynisdóttir komin heim
eftir að hafa leikið í háskólaboltanum síð-
ustu ár og mun hún styrkja liðið enn frekar,
en Erla var einn besti leikmaður landsins
áður en hún fór vestur um haf. -Ben
KQRFUBOLTI J
Ga b & ■ f
Urslit vesturdeildar
23. maí 2003
Dallas-San Antonio
86-93
Stig Dallas: Nick Van Exel 16, Dirk
Nowitzki 15 (9 frák.), Raja Beli 14,
Michael Finley 11, Steve Nash 10 (9
stoðs.), Raef LaFrentz 10, Walt Willi-
ams 5, Adrian Griffin 2.
Stig San Antonio: Tim Duncan 34 (24
frák.), Tony Parker 29 (8 stoðs.),
Bruce Bowen 13, Stephen Jackson 12,
David Robinson 4, Malik Rose 2 (8
frák.), Emanuel Ginobili 2.
25. maí 2003
Dallas-San Antonio
95-102
Stig Dallas: Steve Nash 25, Michael
Finley 25, Nick Van Exel 22 (8 frá-
köst, 3 stoðsendingar), Raef LaFrentz
7, Walt Williams 7 (8 fráköst, 3 stoðs-
sendingar), Raja BeU 5, Eduardo
Najera 4.
Dirk Nowitzki lék ekki með vegna
meiðsla.
Stig San Antonio: Tony Parker 25 (5
stoðsendingar), Tim Duncan 21 (20
fráköst, 7 stoðsendingar), Emmanuel
GinobUi 21 (6 fráköst), Stephen
Jackson 17 (3 stoðsendingar), Malik
Rose 8 (8 fráköst), Bruce Bowen 4,
David Robinson 2, Speedy Claxton 2,
Steve Kerr 2.
Staöan í einviginu er 3-1 fyrir San
Antonio, sem getur unniö Vesturdeild-
ina með sigri á þriðjudag.
KORFUBOLTI J
GO B Æ jL,
Urslit austurdeildar
24. maí 2003
Urslitakeppnin í NBA-deildinni í fullum gangi um helgina:
NewJersey-Detroit
102-82
Þurftu bara fjora
- New Jersey Nets er komið í úrslit NBA-deildarinnar eftir að hafa sópað Detroit Pistons, 4-0
Stig New Jersey: Jason Kidd 26 (12
frák., 7 stoðs.), Kenyon Martin 14 (10
frák.), Richard Jefferson 14, Jason
CoUins 10, Rodney Rogers 10, Kerry
Kittles 9, Lucious Harris 9, Aaron
WiUiams 8, Brian Scalabrine 2.
Stig Detroit: Clifford Robinson 21,
Richard HamUton 20, Ben WaUace 10
(13 frák.), Jon Barry 8, Chauncey
BiUups 6, Corliss WiUiamson 6,
Tayshaun Prince 4, Mehmet Okur 4,
Chucky Atkins 3.
New Jersey vann einvígiö, 4-0.
New Jersey Nets þurfti ekki
nema fjóra leiki til að klára Detroit
Pistons og komast í úrslit NBA-
deildarinnar annað árið í röð. í
fyrra mætti liðið Los Angeles
Lakers í úrslitum, átti aldrei mögu-
leika og tapaði að lokum, 4-0.
Núna telja bæði leikmenn og for-
ráðamenn liðsins að liðið sé betur í
stakk búið til að spila úrslitaleikina
og ætla sér stóra hluti.
Sá leikmaður sem hefur fremur
öðrum borið lið New Jersey Nets
uppi í úrslitakeppninni er leik-
stjórnandinn Jason Kidd. Hann hef-
ur farið hamförum, stjómað sínum
mönnum af mikilli festu og verið
duglegur við að keyra upp hraðann
þegar það hefur átt við. New Jersey
hefur nú unnið tíu leiki í röð í úr-
slitakeppninni og nálgast óðfluga
met San Antonio Spurs frá tímabil-
inu 1999 þegar liðið vann 12 leiki í
röð.
>,
*
Jafnar sig fljótt
Það er. þó ekki laust við að þaö
hafi farið um stuðningsmenn New
Jersey Nets í fjórða leiknum á laug-
ardagskvöldið þegar rétt tæpar sjö
mínútur voru til leiksloka. Þá
missteig Kidd sig og lá í gólfinu, sár-
kvalinn og sáu hörðustu aðdáendur
liðsins möguleikana á titli hverfa út
um gluggann í einu vetfangi. Þessir
sömu stuðningsmenn ættu þó aö
vera famir að þekkja hörkuna í
Kidd því hann var aðeins utan vall-
ar í 45 sekúndur og leiddi sína
menn til sigurs.
Byron Scott, þjálfari New Jersey
Nets, sagði eftir leikinn að hann
hefði verið smeykur þegar Kidd
meiddist.
„Ég skal viðurkenna það að ég
vildi ekki hugsa þá hugsun til enda
ef Kidd myndi meiðast. Það væri
skelfilegt fyrir okkur. Ég er þakklát-
ur fyrir það að við skulum fá tíu
daga hvíld núna - það veitir ekki af.
Ég tók áhættu með því að setja
hann inn á aftur í því ásigkomulagi
sem hann var í en hann hefur bara
svo góð áhrif á aðra leikmenn liðs-
ins. Hann verður slæmur í ökklan-
um í nokkra daga en jafnar sig síð-
an fljótt,“ sagði Scott.
Mikil vonbrigöi
Úrslit einvígisins gegn New Jers-
ey voru mikil vonbrigði fyrir for-
ráðamenn og leikmenn Detroit Pi-
stons.
„Það er skelfilegt að tapa á þenn-
an hátt. Þetta færir okkur sönnur
fyrir því að þótt tímabilið sem slíkt
hafi verið gott þá er fullt af veikum
punktum hjá okkur sem við þurfum
að bæta. Ég held að það þurfi ekki
að hvetja menn til að æfa í sumar,
vonbrigðin núna kveikja i mönn-
um,“ sagöi Joe Dumars, forseti
Detroit, eftir leikinn á laugardags-
kvöldið.
Meiri reynsla
Clifford Robinson, hinn marg-
reyndi leikmaður Detroit, sem hef-
ur marga úrslitakeppnisfjöruna sop-
ið með Portland, var með skýring-
amir á gengi Detroit gegn New Jers-
ey.
„Það skal enginn segja mér að
þeir séu með betra lið en við. Þeir
hafa hins vegar meiri reynslu en
okkar lið eftir árið í fyrra og ég er
sannfærður um að þar skildi með
liðunum í þessu einvígi. Við gerð-
um okkur einfaldlega ekki grein fyr-
ir alvöru málsins - það voru okkar
mistök," sagði Robinson.
Það skipti líka miklu máli fyrir
Detroit að leikstjórnandi liðsins,
Chauncey Billups, sem hafði farið
mikinn í úrslitakeppninni, var
meiddur og gat ekkert beitt sér gegn
Jason Kidd, besta manni New Jers-
ey Nets.
„Það hefði verið frábært að geta
mætt Kidd og leikið gegn honum á
fullu,“ sagði Billups.
Detroit þarf þó ekki að örvænta
því að liðið á annan valrétt í nýliða-
valinu í sumar. Það þykir mjög lík-
legt að liðið velji Júgóslavann Dar-
ko Milicic, 2,20 metra háan ungling,
sem þykir vera gífurlegt efni. Hann
ætti að styrkja liðið mikið. -ósk
Guðmundur jafnaði
met Vais í gær
Guðmundur Bragason jafhaði landsleikjamet Vals
Ingimundarsonar í 85-76 sigurieik á Noregi í gær-
kvöldi - Gummi hefur spilað 164 leiki og slær því
metið verði hann með á Smáþjóðaleikunum. Hann
var sáttur með hlutina eftir þessa þrjá leiki:
„Það er gaman að vera kominn inn í þetta aftur og
mér finnst liðið líta ágætlega út - þetta eru sprækir
strákar og það er góður andi í liðinu og við erum
bjartsýnir. Við erum búnir að nota tækifærið í þess-
um þremur leikjum og prófa marga hluti og ýmsar
samsetningar og þetta er allt á réttir leið.“
Tíu ár síöan aö gulliö vannst
En hvað um Smáþjóðaleikana - er ekki steöian sett
á gullið? „Að sjálfsögðu," segir Guðmundur og bætir
við: „Það eru liðin tíu ár frá því að við unnum það
mót síðast og kominn tími á að ná í gullið og ef menn
verða á tánum og halda einbeitningunni þá er mögu-
leikinn til staðar - engin spurning," sagði Guðmund-
ur en hann hefur ekki enn ákveöið hvort hann muni
spila á næsta keppnistímabili en miðað við glottið á
andlitinu á honum þegar hann er spurður um það verður það að teljast lík-
legra en ekki enda á kallinn nóg inni. Guðmundur skoraði 12 stig og tók 5
fráköst á 20 mínútum sem hann spilaði í gær. Nánar er fjallað um
landsleikina gegn Norðmönnum á síðum 20 og 21 í DV-Sporti í dag en
íslensku A-landsliðin unnu þar sex góða sigra. -SMS/ÓÓJ