Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR FÖSTUDACUR 1.ÁGÚST2003 CTTGÁFUFÉLAG: ÚtgáfufélagiöDVehf. FRAMKVÆMDASTJÓRI: örn Valdimarsson AÐAmrTSTJÓRl: Óli Björn Kárason AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fatc Auglýsingar: 550 5727 - Rltstjóm: 550 5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingan auglysingar@dv.is. - Drelfing: dreifing@dv.is Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setnlng og umbrofc Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. DV Bingó \ Nú spilum við allt / ma \ spjaldið og ætti I # ekki að líða á VI M J lönguáðuren __' einhver fær bingó. Verðlaun fyrir bingó á allt spjaldið eru afar glæsileg, vikuferð til Portúgals með Terra Nova Sól. Athugið að samhliða einstökum röðum hefur allt spjaldið verið spilað í sumar þannig að tölumar sem dregnar hafa verið út f bingóleik DV til þessa gilda á allt spjaldið. Átjánda talan sem kemur upp er 46. Þeir sem fá bingó láti vita í sfma 550 5000 innan þriggja daga. Ef fleiri en einn fá bingó er dregið úr nöfnum þeirra. Dætur Saddams farnar til Jórdaníu - erlend frétt bls. 12 Þurrkar í Evrópu geta valdið hörmungum -erlend frétt bls. 14 Bíó og sjónvarp -Tilvera 54-55 og 60-63 Efni blaðsins Baltasar Kormákur æfir með Neista á Hofsósi - frétt bls. 4 Skattakóngarnir - frétt bls. 6 Skýrsla um PCB t eldislaxi gagnrýnd - frétt bls. 8 Samráð haft um tryggingar SAMKEPPNISMÁL: Sam- keppnisstofnun álítur að Sjóvá- Almennar og T ryggingamið- stöðin hafi haft með sér sam- ráð í tengslum við útboð á slysatryggingum lögreglu- manna árið 1996. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag og er fréttin byggð á frumskýrslu Samkeppnisstofnuar um meint samráð tryggingafélaga. TM mun hafa boðið lægst í um- ræddu útboði en síðar dregið tilboð sitt til baka. Fram kemur að Sjóvá hafi vitað af þessu án þess þó að Ríkiskaup hafi gert fyrirtækinu viðvart. Samkeppn- isstofnun ályktar því að félögin tvö hafi sammælst um aðTM drægi tilboð sitttil baka þegar Ijóst var að fyrirtækið hefði boðið lægsta verðið. Efnahagsbatinn hafinn Haldið tii haga EFNAHAGSMÁL: Efnahags- batinn er hafinn og margt bendirtil vaxandi uppsveiflu á komandi mánuðum. Þetta kemur fram í ársfjórðungsriti Seðlabankans en þar segir að hagvöxtur hafi verið góður á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, um 3,3%, og vísbendingar eru um áframhaldandi hagvöxt. Dagskrá 5. sumartónleikanna í Skálholti hefst á morgun, laugardag, kl. 14 - en ekki í dag eins og misritaðist í DV í gær - á umræðu um framtíð lista í Skálholti. Kl. 15 tekur Bachsveitin í Skálholti að flytja tónlist og kl. 21 mun Rúnar Óskarsson hefja flutning nýrra verka. Flluti tónlistarinnar er endurfluttur á sunnudag. Umfangsmesta barnaklámsmál sem upp hefur komið hérlendis: Lögregla sér fyrir endann á rannsókn Lögregla rannsakar umfangsmesta barnaklámsmál á íslandi: Maður á fertugsaldri tældi til sín börn og unglinga á Netinu Myndbönd talin sýna manninn í kynlífsathöfnum með ungmennum Maðurinn htfur idtað «****#»<*|rrt*«.*Uw4h«»w hW4 4 Rannsókn lögreglunnar á barnaklámsmálinu svokallaða gengur vel og er nú farið að sjá fyrir endann á henni. Hörður Jóhannesson, sem stýrir rannsókninni, sagði í samtali við DV í gær að henni yrði væntanlega lokið innan skamms en gat þó ekki gefið nánari tímasetningar. Hann sagði að málið fengi síðan hefð- bundna ákærumeðferð. Lögreglan handtók mann íyrir tveimur mánuðum, eftir að hún hafði fengið ábendingar um að hann hefði verið að tæla börn og ungmenni á Netinu. Lögreglu höfðu borist ábendingar um grun- samlega hegðun mannsins á spjallrásinni Yrkinu. Við húsleit sem gerð var á heimili hans fannst gríðarlegt magn af myndböndum og DVD-diskum sem innihéldu þúsundir klámmynda og eru þær að meginhluta taldar vera barnaklám. Maðurinn, sem er tæplega fertugur, einhleypur Reykvíkingur, játaði að hafa átt efnið og telst það brot að fullu rannsakað. Honum var síðan sleppt úr varðhaldi. Við nánari skoðun á efninu sáust brot af heimamyndböndum sem virðast sýna manninn í kyn- ferðislegum athöfnum með ung- mennum. Hörður vildi ekkert segja til um hvort umræddur mað- ur væri sjálfur á myndböndunum né hvort um íslensk börn væri að ræða. Hins vegar leikur ekki grun- ur á að maðurinn hafi staðið að dreifingu eða sölu myndanna heldur einungis haft þær til einka- nota. Lögreglu höfðu borist ábendingar um grun- samlega hegðun mannsins á spjall- rásinni Yrkinu. Um er að ræða umfangsmesta mál sinnar tegundar sem komið hefur til kasta lögreglunnar hvað varðar magn hjá einum einstak- lingi. Varsla barnakláms er refsi- verð samkvæmt almennum hegn- ingarlögum og getur varðar tveggja ára fangelsi ef brotin eru stórfelld. -ekA Fíkniefnaeffírlit lög- reglu hert verulega Lögregla verður með gífurlegt fíkniefnaeftirlit um verslunar- mannahelgina. Lögreglustjórar um land allt verða með fíkniefnaeftirlit í sínum um- dæmum og verða m.a. með leitar- hunda sér til aðstoðar. Lögreglan er nú með á annan tug fíkniefnaleitar- hunda og er það fjölgun frá því sem áður hefur verið. Þá hefur rikislög- reglustjóri, með stuðningi dóms- málaráðuneytis, kallað til starfa eftir- lits- og aðgerðarhóp sérþjálfaðra lög- reglumanna úr fíkniefnadeild lögregl- unnar í Reykjavík og lögreglunni í Haíharfirði. Auk þess hefur hann fengið til liðs við lögregluna starfs- menn tollstjórans í Reykjavík sem stjóma sérstaklega þjálfuðum leitar- hundum. Þessi hópur skiptir með sér verkum og fer um allt land þar sem útisamkomur verða og íylgist með ferðalöngum frá Þorlákshöfn og Bakkaflugvelli til Vestmannaeyja, í samstarfi við lögregluna á Selfossi, Hvolsvelli og í Vestmannaeyjum. Lögreglan í Reykjavík verður með fíknieftiahunda við eftirlitið, meðal annars þar sem fólk safnast saman til að ferðast með flugi og rútum á sam- komustaðina. -FKA HVERJIR ERU ÓDÝRASTIR? UTSALA 40% TTL 90% Fílor bú ver3ið ? Opnunartími: Virkir dagar kl. 10-18 "Laugardagar kl. 11-16 Sunnudagar Id. 12-16 FATALAND Fákafeni 9 • Reykjavik Dalshraun 11 • Hafnarfirði SKEMMDIRNAR SKOÐAÐAR: Þorsteinn Sæberg, skólastjóri Árbæjarskóla, virðir fyrir sér skemmdirnar sem hlutust vegna vatnslekans í skólanum í fyrrinótt. Ljóst er að tjónið nemur tugum milljóna króna en flesta gólfdúka hússins þurfti að rífa upp vegna vatnsskemmdanna. DV-mynd GVA Vatnsleki kom upp íÁrbæjarskóla í fyninótt: Tugmilljóna tjón Vatnsleki kom upp í Árbæjarskóla í fyrrinótt. Miklar skemmdir hlut- ust af og Ijóst er að tjónið nemur milljónum, jafnvel tugmilljónum króna. Fleiri hundruð fermetrar vom á floti í byggingunni þegar menn urðu lek- ans fyrst varir á sjötta tímanum. Blöndunartæki í eldhúsi á annarri hæð virttst hafa gefið sig með þeim af- Ieiðingum að heitt vatn flæddi víða um skólabygginguna. Allt tiltækt slökkyilið var þegar kallað á vettvang til þess að dæla vatninu út. Vatn flæddi á milli hæða og komst meðal annars í tölvubúnað skólans, tæki og aðra innanstokksmuni þannig að ljóst er að tjónið nemur milljónum, jafnvel tugum milljóna króna. Þá skemmdust flestir gólfdúkar hússins, loftplötur og hætta var talin á að vegg- ir hefðu einnig skemmst við lekann. „Mikill fjöldi fólks var að störfúm í skólanum í gær og var þá m.a. unnið að því að rífa upp alla gólfdúka í hús- inu,“ segir Þorsteinn Sæberg, skóla- stjóri Árbæjarskóla. Hann segir þó ekki hægt að meta tjónið fyrr en efttr helgi, þegar skemmdimar verða að fullu komnar í ljós. „Þetta verður svo látið þoma á næstu dögum og eftír helgina verður tjónið metíð en ljóst er að það er þó nokkuð," sagði Þorsteinn en allt ræst- ingastarfsfólk skólans, sem annars átti að vera í sumarffíi, var kallað út í gær ttl að aðstoða við aðgerðimar. Mikil endumýjun hefur átt sér stað á eldri byggingu skólans í sumar og þykir ljóst að sumt af þeirri vinnu verði að gera upp á nýtt Samt sem áður er steffit að því að hefja skólastarf á sama tíma eins og venjulega, þann 25. ágúst. agust@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.