Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Page 8
8 FRÉTTIR FÖSTUDACUR 1. ÁGÚST2003 594 6000 www.merkur.is Skútuvogi 1 2a Heimdallur hvetur til lagabreytinga SKATTAR; Stjórn Heimdallar hefur sent þingmönnum Sjálfstæðisflokks- ins bréf og hvetur þá til að standa að nauðsynlegum lagabreytingum á næsta þingi til að tryggja að fjárhags- upplýsingar borgaranna verði fram- vegis ekki gerðar opinberar í álagn- ingar- og skattskrám. (stjórnmála- ályktun Heimdallar frá aðalfundi fé- lagsins árið 2002 var m.a. fjallað um álagningarskrár. (ályktuninni sagði: „Þá áréttar féiagið þá skoðun sína að fjármál borgaranna séu einkamál þeirra. Því er mikilvægt að Alþingi komi í veg fyrir, með lagabreytingu, að einstaklingar komist í álagningar- skrár annarra." Þá var jafnframt ályktað um málið á síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins en í einni af álykt- unum fundarins sagði: „Landsfundur vekur athygli á því að þrátt fyrir nauð- syn á öflun, skráningu og vörslu upp- lýsinga verði að virða friðhelgi einka- lífs. Landsfundur leggur því til að op- inber birting álagningar- og skatt- skráa verði lögð af." Heimdallur hefur lengi mótmælt opinberri birtingu á álagningar- og skattskrám en þar sem það er á valdi löggjafans að breyta núverandi fyrirkomulagi var gripið til þess ráðs að senda þingmönnum flokksins tölvubréf um málefnið að þessu sinni. FISKELDI: Samtök laxeldisfyrirtaekja víða um heim hafa þegar brugðist við rannsókninni og segja hana óvísindalega og fulla af villum Frambit vinstra og hægra Síríus rjómasúkkulaði er ferðafélagi íslendinga númer eitt. Þér standa fimm freistandi tegundirtil boða I sígildum lOOg og 200g umbúðum. Hvernig sem þú velur að bita i uppáhalds Sírius ijómasúkkulaðið pitt skaltu njóta pess og hafa pað gott í sumar. NÓI SÍRÍUS Skýrsla um mikla PCB-mengun í eldislaxi gæti haft áhrifá sölu: Harkalega gagn- rýnd af laxeldis- mðnnum Ný bandarísk rannsókn á PCB- magni í eldislaxi hefur vakið nokkra athygli en þar er sagt að magnið sé langt umframt eðli- leg mörk. Laxeldismenn hafa hins vegar brugðist hart við rannsókninni og segja hana unna á vafasömum forsendum. Kristján Þ. Davíðsson, fram- kvæmdastjóri Granda, segir að lax- eldisfyrirtæki muni bregðast hart við skýrslunni enda sé vísindalegt gildi hennar mjög hæpið. „Þarna er verið að leggja út af rannsóknum á tíu fiskum sem er að sjálfsögðu mjög lítið úrtak," sagði Kristján f samtali við DV. íslenskir fiskar voru meðal þeirra sem rannsakaðir voru. Jafnframt hafa niðurstöður rannsóknarinnar verið gagnrýndar fyrir að miða við staðla náttúru- verndarstofnunar Bandaríkjanna (EPA) en ekki við staðla matvæla- og lyfjaeftirlitsins (FDA) þar í landi. Staðlar EPA varðandi PCB í sjávar- afurðum miðast við að PCB-magn eigi að vera mun minna en gert er ráð fyrir í stöðlum FDA. Hörð viðbrögð framleiðenda Samtök laxeldisfyrirtækja víða um heim hafa þegar brugðist við rannsókninni og meðal annars kölluðu Samtök laxeldismanna í Bresku Kólumbíu hana óvísinda- lega, fulla af viflum og sögðu hana hluta af neikvæðri fjölmiðlaherferð gegn stéttinni. „Þarna er verið að leggja út afrannsókn- um á tíu fiskum sem er að sjálfsögðu mjög lítið úrtak." Engu að síður má telja að rann- sóknin geti haft einhver áhrif á neyslu á eldislaxi því fjölmiðlar um allan heim hafa verið duglegir við að fjalla um niðurstöður hennar síðustu daga. Engin leið er hins vegar að sjá fýrir hversu mikið muni draga úr sölu eldislax að svo stöddu. kja@dv.is Hemmi Gunn haslar sér völl hjá Vestfirska forlaginu Vestfirska forlagið á Hrafnseyri hefur ráðið Hermann Gunnars- son sem kynningar- og mark- aðsstjóra. Hermann mun hafa umsjón með öllu kynningarstarfi forlagsins, auk þess að sjá um nýstofhaðan bóka- klúbb sem ber nafnið Bókaklúbbur Hemma Gunn og Vestfirska forlags- ins. Hemma Gunn þarf ekki að kynna fýrir landsmönnum. Þáttur hans, Á tali, sló eftirminnilega í gegn og svo hefúr Hemmi skrifað þijár bækur. Hemmi, sem er af vestfirskum ætt- um, hefur dvalist erlendis um skeið en er nú aftur kominn heim í heiðar- dalinn. -cká

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.