Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Síða 20
20 OV HELGARBLAÐ FÖSTUDAGUR 1.ÁGÚST2003 Nýkrýndur íslandsmeistari kvenna í goifi, Ragn- hildur Sigurðardóttir, segist hafa unnið nýaf- staðið íslandsmót í Eyjum ekki eingöngu á keppnisskapinu heldureinnig með örlítilli hjátrú sem og hjálp móður sinnar sem dó fyrir þremur árum. RagnhildursegirDV frá viðburðaríkum 20 ára golfferli, kennarastarfinu, áhuga sínum á hestum og sambandi við einstaka móður. „Þetta byrjaði allt með því að Siggi bróðir minn fékk vinnu á golfvellinum í Grafarholti við það að tína kúlur af æfingasvæðinu. Við bjuggum í Grafarholti, sem er reyndar nánast á golfvellinum svo að það voru hæg heima- tökin. Hann keypti sér kylfúr og fór að reyna að draga mig með sér. Ég var treg í fyrstu enda ekki mikið um stelpur á mínum aldri. Honum tókst þó að lokum ætlunarverk sitt og árið eftir var'ég búin að kaupa mér kylfur. í millitíðinni eignaðist ég reyndar pútter sem ég fékk að launum fyrir „kaddý-störf hjá Sól- veigu Þorsteinsdóttur sem varð íslands- meistari 1982, eða árið sem bróðir minn fékk bakteríuna. Við fengum fljótlega algjöra golf- dellu og vorum uppi á velli nánast allan sól- arhringinn. Foreldrar okkar þurftu litíar áhyggjur að hafa af því að ungarnir leiddust út á hálar brautir á unglingsárunum, við vor- um alltaf á vellinum." Þetta segir hin 33 ára Ragnhildur Sigurðardóttir, nýkrýndur ís- landsmeistari í golfi, spurð hvernig golfáhugi hennar hefði eiginlega kviknað. Það er langt síðan þetta var, eða 20 ár, en golfdella Ragn- hildar hefur lítið minnkað þótt hún hafi minni tíma en áður fyrir æfingar. Þetta er í þriðja sinn sem Ragnhildur hampar íslands- meistaratitlinum en frá 13 ára aldri hefur hún verið óstöðvandi á vellinum, á fjölda titla og verðlauna að baki, sem og 17 ára veru í lands- liðinu, þar á meðal hefur hún orðið 6 sinnum íslandsmeistari í holukeppni, 12 sinnum Reykjavíkurmeistari, með besta skor á Norð- urlandamóti, kylfingur ársins 2 sinnum, stigameistari fslands allmörgum sinnum og varð 9. í kjöri íþróttamanns ársins 1998. Vildi verða dýra- læknir Ragnhildur er í sambúð með Þorvarði Frið- björns- syni, smiði m | '‘gpipfS A sÉ#**£*i tamningamanni, og saman eiga þau tvær dætur, Hildi Kristínu, 11 ára og Lilju, 9 ára. Til fjölskyldunnar telst einnig fjörugur grá- bröndóttur kettlingur, Baltasar. Fjölskyldan hefur komið sér vel fyrir í nýjasta hverfi Mos- fellsbæjar og gólfið á heimilinu prýða flísar sem Ragnhildur lagði meðan hún var að keppa á landsmótinu í fýrra. Stofan er full af verðlaunagripum sem Ragnhildur hefur sankað að sér í gegnum tíðina en einnig er að finna verðlaunagripi á heimilinu í eigu Þor- varðar sem hann hefur fengið fyrir hesta- mennsku en saman á parið 11 hross og er það ein af ástæðunum fyrir að þau fluttu í Mos- fellsbæinn, til þess að þau gætu verið nær hestunum. „Ég hef nú ekki mikið látið að mér kveða á skeiðvellinum en það kemur örugglega að því, hann Dropi minn er nefnilega frábær. Það er svo mikill keppnisandi í mér, ég verð að fá að vera með,“ segir Ragnhildur og glott- ir en parið kynntist einmitt í hestaferð á Þing- völlum á sínum tíma. J golfinu er keppt á jafnréttis- grundvelli, afar, ömmur, pabbar og mömmur, börn og barnabörn leika sérsaman. Það er án efa ein afástæðun- um fyrir þeirri sprengingu sem hefur orðið í íþróttinni hin síð- ustu ár, ásamt hollri útiveru og skemmtilegum leik." Á veturna starfar Ragnhildur sem stærð- fræðikennari í unglingadeildinni í Árbæjar- skóla en hún kláraði Kennaraháskólann fyrir sex árum og eignaðist dæturnar á meðan hún var þar við nám, þá fyrri á fyrsta ári og þá seinni á þriðja ári. „Frá þvf að ég var lítil stelpa var ég ákveðin í því að verða dýralæknir eins og pabbi, en ég gat ekki hugsað mér að fara í langt nám er- lendis og yfirgefa foreldra mína. Ég var og er svo mikil mömmu- og pabbastelpa, enda sé ég ekki eftir því, ég hefði misst af svo mörgum dýrmætum árum með henni mömmu minni. Ég verð bara dýralæknir í næsta Iífi,“ segir Ragnhildur og brosir. „Ég valdi kennarastarfið í byrj- un fyrst og fremst út af golfinu, ég var 15 ára komin í landslið og mikill tími fór í æfingar og landsliðsferðir. Ég sá mér leik á borði vegna sumarfrísins þótt það hafi núna töluvert styst í báða enda með nýjum kjara- samningum." Foreldrar Ragnhildar eru ættaðir að austan, móðir hennar úr Mýr- dalnum og faðir hennar af Rangárvöllum í aðra ætt- ina en úr Bárðardalnum í hina. Ragnhildur fæddist reyndar í London. „Pabbi var þar við nám í dýralækning- um þegar ég fæddist. Þegar ég var 16 ára gat ég valið hvort ég yrði ís- lenskur eða enskur ríkisborgari /, og að sjálfsögðu valdi ég rétt,“ segir Ragnhildur og brosir. Oll systkinin ís- landsmeist- arar k Ragn- hildur á É ÞrJá en einu GOLFARIMEÐ HESTAÁHUGA; Það er mikið fram undan hjá Ragnhildi. Fram undan eru tvö mót ÍToyotamótaröð- inni og síðan er fslandsmeistaramót á milli klúbba. „Að sjá um hestana er einnig heilmikil vinna en skemmtileg," segir Ragnhildur sem er hér myndinni með hestinn Fána en hún og maðurinn hennar eiga 11 hross. bræður og er mikið keppnisskap og metnaður í öll- systkin- unum sem sést best á því að öU hafa þau hampað íslands- meist- aratitíi oftar STÆRÐFRÆÐIKENNARI; A veturna kennir Ragnhildur stærðfræði i Árbæjarskóla en hún segist hafa valið kennarastarfið í upphafi eingöngu út af golfinu þar sem það gefur henni kost á að spiila á sumrin. Hér er Ragnhildur með dætr- um sínum, Hildi og Lilju, sem báðar eru byrjaðar að munda kylfuna. DV-myndirÞÖK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.