Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Page 28
28 OV HELCAHBLAO FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST2003 4 Ástin spyr ekki um stund og staö og getur Amor skotið fólkí hjartað hvarog hvenærsem er. Fjöl- mörg sambönd hafa t.d. byrjað á útihátíðum þar sem rómantíkin liggur oftar en ekki í loftinu á Ijúfri sumarnótt. DV hafði upp á tvennum hjónum sem kynntust á þjóðhátíðinni i Eyjum og hafa verið saman síðan. Algjör grís í Eyjum Fyrir ellefu árum var Sálin aðalhljómsveit- in á þjóðhátíðinni í Eyjum. Pétur Kristinsson, þá tuttugu og fjögurra ára, vildi alls ekki missa af sveitinni og dreif sig til Eyja ásamt Andra félaga sínum - og það með stæl. „Á þessum tfma bauð Þyrluþjónustan upp á ferðir til Eyja frá Seljalandsfossi. Við félagarn- ir höfðum aldrei farið í þyrlu og ákváðum að prófa þennan fararmáta og var það vel þess virði," segir Pétur. Það vildi þó ekki betur til en svo að himinninn á tjaldinu gieymdist í bílnum og voru bíllyklarnir sendir í land með næstu ferð ásamt leiðbeiningum um hvar himininn væri að flnna. Á meðan þyrluflug- maðurinn var að leita að himninum í landi biðu þeir félagarnir úti á velli í Eyjum. Til að stytta biðina tóku þeir upp bjór og voru orðn- ir nokkuð fjörugir þegar þeir fengu loks him- ininn í hendumar. Farþegar vom að tínast til Eyja, þar á meðal Ágústa Valdís Jónsdóttir, þá nítján ára, sem tók strax eftir þessum hávaða- sömu strákum á flugvellinum. Leiðir þeirra Péturs og Valdísar lágu síðan saman um kvöldið við stóra sviðið. Þar skörtuðu þeir fé- lagarnir skærgulum Bónusfánum með bleik- um Bónusgrísum en fánana höfðu þeir fund- ið á skralli í Reykjavík kvöldið áður. „Valdi's kom að okkur og benti á fánana, sem við höfðum bundið um okkur eins og skikkjur, og sagði „Flott svín!“," segir Pétur. Þar með tóku þau tal saman. „Mér leist strax vel á hana enda gullfalleg stúlka," rifjar Pétur upp og má segja að fundur þeirra hafi verið algjör grís í orðsins fyllstu merkingu - bónusgrís. Á iaugardeginum höfðu þau svo mælt sér mót en það misfórst. Seinna um kvöldið var sá misskilningur leiðréttur við stóra sviðið; voru Pétur og Valdís meira og minna saman alla helgina og hafa nú verið saman í ellefu ár. „Þetta gekk mjög hratt alveg frá upphafi. Þremur árum eftir að við kynntumst giftum við okkur," segir Pétur. Parið verður í Eyjum um verslunarmannahelgina í ár en það verð- ur í sjötta sinn sem þau fara saman á þjóðhá- ELLEFU ÁRA AFMÆLI: Pétur og Valdís munu halda upp á það í Eyjum um helgina að ellefu ár eru síðan þau byrjuðu saman. Ástarævintýri þeirra byrjaði þar á þjóðhátíðinni árið 1992, nánartiltekið við stóra sviðið á „pikköpp"-línunni „Flott svin!" f ÞÁ GÖMLU GÓÐU DAGA: Þessi mynd af þeim Pétri og Valdísi ertekin í byrjun sambandsins. f ár fara þau í sjötta sinn saman á þjóðhátíð en þau segja hátíðina eiga sérstakan stað í hjarta sínu. tíð. „Við eigum okkar tengsl við Eyjar og að okkar mati er þjóðhátíðarstemningin óborg- anleg. Spáin er líka svo góð í ár,“ segir Pétur og er greinilega spenntur. Að þessu sinni verður hann þó ekki með neina Bónusgrís- skikkju um hálsinn enda er fáninn góði löngu týndur. ' UNG OG ÁSTFANGIIN: Svava c Ási hafa verið saman síðan 1973 og er þessi mynd tekin í upphafi sambandsins. „Áttum að hittast" Árið 1973 fór Svava Jakobsdóttir, þá tutt- ugu og eins árs á þjóðhátíðina í Eyjum ásamt kunningjakonu sinni. Ekki hafði hún áður komið til Eyja en hafði þó farið á útihátíðir í Húsafelli. Ferðin til Eyja átti eftir að verða af- drifarík því þar kynntist hún Ásgrími Guð- mundssyni, eiginmanni sínum, en þó ekki fyrr en undir lok hátíðarinnar. „Við vorum á heimleið á mánudeginum og kunningjakona mín fór á undan mér inn í flugvélina. Hún hafði sest við hliðina á strák sem hún var spennt fyrir og var að ræða við hann. Ég sett- ist í mitt sæti og hélt hún kæmi þegar hún væri búin að tala við strákinn. Þess vegna sagði ég nei þegar skeggjaður strákur með rautt, sítt hár kom og spurði hvort sætið við hliðina á mér væri laust," segir Svava. Stuttu seinna kom hann aftur og sagðist verða að sitja við hliðina á henni þar sem þetta væri eina lausa sætið í vélinni. „Mér leist ekkert of vel á hann í fyrstu. Hann var alskeggjaður og eldrauður í framan af sólinni en það var skemmtilegt að tala við hann,“ segir Svava. Sjálf var hún algjör pæja því að hún hafði komist í sturtu í heimahúsi í Eyjum fyrir heimferðina og farið í dragt sem systir henn- ar hafði saumað. Þrátt fyrir að Svava og Ási hefðu átt ágætisrabb á leiðinni kvöddust þau á flugvellinum án þess að skiptast á síma- númerum. Það leið þó ekki á löngu þar til ieiðir þeirra lágu saman á ný, eða einungis nokkrum klukkutímum seinna. „Á þessum tíma leigðum við saman, ég og kunningja- konan sem fór með mér til Eyja. Hún vildi endilega að við drifum okkur á ball í Klúbbn- um þetta mánudagskvöld. Ég var nú ekki mikill djammari en lét tilleiðast og viti menn: Fyrsti maðurinn sem ég sá á staðnum var Ási,“ segir Svava. Leist henni mun betur á manninn í það skiptið enda var hann búinn að fara í sturtu og var mættur glerfínn á ball- ið. „Við byrjuðum saman þetta kvöld og höf- um verið saman upp frá því. Ég held því fram að við höfum átt að hittast," segir Svava. Síðan eru liðin þrjátíu og tvö ár og hafa þau Svava og Ásgrímur verið gift í tuttugu og níu ár. Þau búa í Reykjavík, eiga þrjá syni og munu að öllum líkindum eyða verslunarmannahelginni í Borgarfirði ásamt ættingjum. snaeja@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.