Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Blaðsíða 30
30 DV HELGARBLAÐ FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST2003
4
Fa rsæ
ferill Eyjólfs
á enda
Einn kunnasti knattspyrnumaður þjóðarinnar,
Eyjólfur Sverrisson, hefur lagt skóna á hilluna
eftir langan og farsælan ferilsem atvinnumað-
ur. Hann hefur síðustu 14 ár leikið meðal þeirra
bestu í hýsklandi, með árs viðkomu í Tyrklandi,
auk þess sem hann hefur lengi gegnt lykilhlut-
verki í landsliði íslands. Eftir leik við Dani árið
2001 ákvað Eyjólfur hins vegar að hætta að
leika með landsliðinu og einbeita sérað deildar-
keppninni í Þýskalandi. Síðustu vikurog mánuði
hefur aftur á móti talsvert verið fjallað um
mögulega endurkomu hans í landsliðið og ís-
lenska knattspyrnu en Eyjólfur hefur aldrei leik-
ið í efstu deiid hér á landi. Eyjólfur batt hins veg-
ar enda á þessar vangaveltur síðastliðinn mið-
vikudag þegar hann tilkynnti að hann myndi
hvorki leika með íslensku félagsliði í sumar né
landsliðinu. í viðtali við DV rifjar Eyjólfur upp
eftirminnilegustu atvikin á ferlinum, aðskilnað-
inn við fjölskylduna, fjármálin og framtfðina.
Eyjólfur Sverrisson er uppalinn á Sauðár-
króki þar sem hann hóf ungur að leika knatt-
spyrnu með Tindastóli. Fljótlega vakti vask-
leg framganga hans á fótboltavellinum at-
hygli og þegar hann var rétt skriðinn yfir tví-
tugsaldurinn samdi hann við stórlið Stuttgart
í Þýskalandi þar sem annar kunnur íslend-
ingur var allt í öllu, núverandi landsliðsþjálf-
ari Ásgeir Sigurvinsson. Eyjólfur lék lítið með
liðinu fyrst um sinn en eftir að þjálfaraskipti
urðu hjá því fékk hann tækifæri með aðalliði
félagsins. Síðar flutti hann sig um set og lék
síðustu átta ár ferilsins með Herthu Beriín en
um síðustu helgi lék hann einmitt síðasta leik
sinn fyrir félagið. Um var að ræða sérstakan
kveöjuleik sem settur var á fót fyrir Eyjólf og
samherja hans og góðvin, Michael Preetz,
þar sem aðdáendur liðsins fengu tækifæri til
að kveðja hetjurnar sínar og þakka þeim fyrir
vel unnin störf. Eyjólfur segir það hafa verið
einstaka tilfínningu að ganga af velli í lok
leiksins.
„Þarna áttaði ég mig á því að ég væri að
fara frá Berlín og að ferill minn sem knatt-
spyrnumaður væri á enda. Umgjörðin í
kringum þennan leik var mjög glæsileg og
það fékk svolítið á mann að sjá allt þetta fólk
mæta á völlinn til að kveðja mann. Það er
ekki laust við að maður hafi orðið hálfklökk-
ur við að ganga af vellinum," segir Eyjólfúr,
eða Jolly eins og hann hefur jafnan verið kall-
aður af aðdáendum og samherjum sínum í
Þýskalandi.
Ekki alveg hættur
Eyjólfur segist þó ekki hafa alfarið skilið við
knattspyrnuna þótt atvinnumannsferill hans
sé á enda. Hann segir knattspyrnuna hafa
verið allt of stóran hluta af lífi sínu til þess að
geta alfarið sagt skilið við hana strax.
„Þegar maður hefur verið viðloðandi fót-
bolta mestan part ævinnar hendir maður því
ekki bara frá sér og segist ekkert vilja taka þátt
í þessu lengur. Ég held að ég eigi alltaf eftir að
verða viðloðandi knattspyrnuna á einn eða
annan hátt í framtíðinni, það er alveg á
hreinu. Spurningin er bara í hvaða formi það
á eftir að verða en það er svo eitthvað sem
kemur í ljós á næstu mánuðum," segir Eyjólf-
ur sem segist ekki sjá eftir því að hafa tekið þá
ákvörðun að hætta.
Lengi var rætt um hugsanlega endurkomu
Eyjólfs í landsliðið og hvort hann myndi
ganga til liðs við eitthvert íslenskt félagslið og
leika með því í sumar. Hann batt hins vegar
enda á þessar vangaveltur í vikunni þegar
hann tilkynnti að svo myndi ekki vera.
„Það er rétt að nokkur lið hérna heima
höfðu sýnt áhuga á að fá mig en ég gaf það
alltaf skýrt til kynna að ég væri ekki búinn að
gera upp hug minn.'Ég ætlaði bara að bíða og
sjá hvernig formi ég yrði í þegar þessum
kveðjuleik væri lokið. Sá leikur heppnaðist
síðan glæsilega í alla staði og öll umgjörðin í
kringum hann var frábær. Allt verður ein-
hvern tíma að taka enda og mér fannst þetta
þess vegna vera tilvalinn tímapunktur til að
leggja skóna á hilluna og láta þennan leik
þannig marka endinn á ferlinum,“ segir
Eyjólfur.
Hálfgert sjómannslíf
Síðustu átta árin hefur Eyjólfur verið bú-
settur í Berlín þar sem hann hefúr leikið með
liði Herthu. Hann segir aðskilnaðinn við fjöl-
TAKK FYRIR OKKUR: Eyjólfur og félagi hans hjá Herthu
Berlín, Michael Preezt, ganga af velli á Olympíu-
leikvanginum í Berlín eftir kveðjuleik þeirra fyrir
félagið um síðustu helgi. DV-myndir Pjetur
með Besiktas í Tyrklandi þar sem hann varð
meistari með liðinu. Eyjólfur segir það hafa
verið sérstaka upplifun að vera knattspyrnu-
maður í Tyrklandi þar sem mikil læti hafi ver-
ið í kringum hvern einast leik.
„Þetta var mjög sérstök upplifún, Tyrkirnir
eru svo fanatískir þegar kemur að fótbolta og
það er stöðugur metingur í gangi. Áhorfend-
ur voru t.d. alltaf mættir tveimur tímum fyrir
leik til þess að syngja og vera með læti til þess
að toppa aðdáendur hins liðsins. Svo er mik-
il dýrkun á einstökum leikmönnum þarna og
það gilti náttúrlega líka á hinn veginn. Ann-
aðhvort voru menn algjörar hetjur eða bara
illmenni sem áttu ekkert gott skilið. Þetta var
mjög sérstakur tími," segir Eyjólfur um leið
og rifjar upp sögu sem gerðist eftir einn leik í
Tyrknesku deildinni.
„Eftir einn leik, sem við höfðum unnið
mjög naumlega með marki á síðustu mínút-
unni, ædaði allt að verða vitlaust. Við þurft-
um að bíða í þrjá tíma inni í búningsklefa eft-
ir því að lögreglan rýmdi svæðið fyrir utan
völlinn og þegar við loksins komumst í rút-
una og vorum að keyra í gegnum bæinn byrj-
aði draslinu að rigna yfir okkur. Rúðurnar f
rútunni brotnuðu og ég man sérstaklega vel
eftir því að Raimond Aumann, sem var lengi
markmaður hjá Bayem Múnchen, fleygði sér
niður á gólfið og öskraði: Jolly, Jolly! Hjálp-
aðu mér, leggstu ofan á mig!“ segir Eyjólfúr
og hlær.
„Það vom nokkur svona augnablik þar sem
maður varð dálítið smeykur en það er mikill
hiti í fólkinu þama. Það var t.d. ekkert óal-
gengt að fá grjót í rúðurnar á rútunni þegar
við vomm að íceyra burt eftir leiki."
Margt sem stendur upp úr
Á lögnum ferii sfn um sem knattspyrnu-
maður hefur Eyjólfur upplifað margar góðar
stundir og slæmar. Þá hefur hann leikið við
hlið fjölda heimsklassa leikmanna og mætt
IGÖÐRA VINA HOPI: Bjarni Jóhannsson, Logi Ölafsson, Eyjólfur og Anna Pála Gísladóttir kona hans, Asgeir
Sigurvinsson og Alfreð Glslason I kveðjuhófi Eyjólfs sem haldið var um síðustu helgi eftir slðasta leik hans með
Herthu Berlín. Umgjörð leiksins var öll hin glæsilegasta og skemmtu viðstaddir sér konunglega.
skylduna hérna heima oft hafa verið erfiðan
og líkir lífi knattspyrnumannsins við sjó-
mannslíf.
„Það var oft mjög erfitt að vera án fjölskyld-
unnar en það fer líka gríðarlegur tími í fót-
boltann þannig að maður var oft mjög upp-
tekinn af honum. Auk þess vomm við alltaf
að taka þátt í Evrópukeppnum þannig að
maður var alltaf að þvælast eitthvað um og
var þess vegna lítið heima. Þetta er búið að
vera mikið hótellíf og ég hef eiginlega búið í
ferðatöskum aUan minn feril. Eg hef oft líkt
þessu við sjómannslíf þar sem þetta vom
svona tímabil þar sem ég sá alltaf fyrir end-
ann á aðskilnaðinum fljódega. Fyrst átti þetta
bara að vera í þrjú ár, svo bættist alltaf ár og
ár við og áður en maður vissi af var maður
búinn að vera f Berlín í átta ár. Maður gat
þess vegna oft huggað sig við það að þessu
færi nú fljótlega að ljúka þótt maður hafi svo
alltaf verið lengur."
Núna er Eyjólfur aftur á móti kominn heim
í faðm fjölskyldunnar og sér fram á öllu ró-
legri tíma næstu mánuðina. Hann segist þó
ekki alveg vita hvað hann muni taka sér fyrir
hendur á næstunni enda er hann enn að átta
sig á aðstæðum þar sem hann hefur verið bú-
settur erlendis í 14 ár.
„Ég er bara nýfluttur heim og það tekur
alltaf sinn tíma að koma sér fýrir og átta sig á
því hvað sé um að vera hérna á íslandi. Ég á
líka alveg eftir að venjast veðráttunni," segir
Eyjólfur og brosir um leið og hann horfir út í
rigninguna og rokið.
„Svo þarf ég að kíkja á fótbotlaleiki og byrja
að kynnast því aðeins. Það er náttúrlega langt
síðan ég hef verið búsettur hérna heima, hef
verið erlendis síðustu 14 ár þannig að ég þarf
aðeins að ná áttum og koma mér fyrir áður
en ég fer að spá í framhaldið."
TrylltirTyrkir
Á 14 ára ferli sem atvinnumaður í knatt-
spyrnu hefúr Eyjólfur lengst af leikið í Þýska-
landi, eða 13 ár. Hann lék svo eitt tímabil