Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Qupperneq 47

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2003, Qupperneq 47
FÖSTUDAGUR 1.ÁGÚST2003 TILVERA 51 — Höfuðstafír Áttatíu og fimm ára ! Sæmundur Valdimarsson myndhöggvari Sæmundur Valdimarsson mynd- höggvari, Tunguvegi 22, Reykjavík, verður áttatíu og fimm ára á morg- un. Starfsferill Sæmundur fæddist á Krossi á Barðaströnd og ólst þar upp í for- eldrahúsum. Hann fór sína fyrstu vertíð á sjó á fermingarárinu á skút- unni Gretti frá Stykkishólmi. Eftir það vann hann árstíðabundið fjarri heimilinu við sjósókn, t.d. í Vest- mannaeyjum, og á sfldarárunum, en einnig við fiskvinnslu í Reykjavík og önnur tilfallandi störf. Sæmundur og Guðrún, kona hans, hófu sinn búskap á æskuslóð- unum en 1948 fluttu þau suður og bjuggu í Kópavogi í tuttugu ár eða þar til þau fluttu aftur til Reykjavík- ur 1974. Sæmundur var verkamaður allan sinn starfsaldur, fyrst í ísbirninum, og síðan í stóriðjuverinu Áburðar- verksmiðjunni. Þar sat hann í trún- aðarmannaráði, í stjórn lífeyris- sjóðsins og einnig starfaði hann í Dagsbrún og Menningar- og fræðslusambandi alþýðu. Listamannsferill Sæmundar hófst um 1970. Hann hélt sína fyrstu sýn- ingu á höggmyndum úr rekaviði 1974. Frá þeim tíma hefur hann haldið fjölda sýninga, ýmist einn eða með öðrum. Verk hans hafa vakið athygli innlendra og erlendra listunnenda, og um þau hefur verið skrifað í blöð og virt tímarit. Sæmundur hefur nú gert um 500 styttur sem eru allar í eigu einstak- linga, fyrirtækja og stofnanna. Sjötíu og fimm ára Kolbeinn Helgason, Mávahrauni 14, Hafnarfirði, verður sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferll Kolbeinn fæddist á Hrappsstöð- um f Glæsibæjarhreppi í Eyjafirði. Hann vann við verslunar- og skrif- stofustörf á Akureyri 1949-56 og 1962-77, og vann við fiskvinnslu í Vestmannaeyjum, á Raufarhöfn og á Akureyri 1957-61. Kolbeinn varð skrifstofústjóri á Hrafnistu DAS í Hafnarfirði 1977 og sinnti því starfi til 1998 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Kolbeinn sat í stjórn Félags versl- unar- og skrifstofufólks á Akureyri 1953-77, var gjaldkeri þar 1953-56, varaformaður 1967-75 og formað- ur félagsins 1976-77. Hann sat flest Alþýðusambandsþing 1956-76 sem fullrúi félagsins, sat í stjórn Alþýðu- flokksfélags Akureyrar í nokkur ár, var formaður þess 1966-69 og sat í flokksstjórn Alþýðuflokksins 1966-70. Hann sat í stjórn Krossa- nesverksmiðjunnar 1966-70, í framtalsnefnd Akureyrarkaupstað- ar 1968-77 og hefur starfað í Odd- fellowreglunni um árabil. Kolbeinn var kjörinn heiðursfé- lagi Félags verslunar- og skrifstofu- Ífólks á Akureyri 18.4. 1996 og er heiðursfélagi Starfsmannafélags Hrafnistu í Hafnarfirði frá 28.2. 1998. Um styttumar og gerð þeirra má lesa í bókinni Sæmundur og stytt- urnar hans, eftir Guðberg Bergsson, útg. 1998. Fjölskylda Sæmundur kvæntist 19.10. 1947 Guðrúnu Magnúsdóttur, f. 5.9. 1917, frá Langabotni í Geirþjófsfirði. Saman eiga Sæmundur og Guð- rún börnin Valdimar Hermann, f. 1947; Hildi, f. 1948; Magnús, f. 1950; Gunnar, f. 1952. Sæmundur var annar í röð átta systkina sem fæddust á tímabilinu Fjölskylda Kolbeinn kvæntist 8.8. 1964 Sig- ríði Aðalbjörgu Jónsdóttur, f. 13.11. 1928, forstöðukonu á Hrafnistu DAS íHafnarfirði. Foreldrar hennar em Jón Jónsson, fyrrv. skipstjóri, frá Tjömum í Eyjafirði og k.h., Guð- björg Benediktsdóttir húsmóðir. Dætur Kolbeins og Sigríðar em Guðrún Emilfa, f. 24.12. 1970, leik- skólakennari í Hafnarfirði; Kristín, f. 24.1. 1974, skrifstofúmaður í Hafnarfirði, gift Vormi Þórðarsyni forritara og eiga þau einn son. Bræður Kolbeins, samfeðra: Haukur, f. 1913, nú látinn, hús- vörður Digranesskóla, var kvæntur Halldóru Guðmundsdóttur; Njáll, f. 1917, nú látinn, iðnverkamaður á Akureyri, var kvæntur öldu Einars- dóttur; Haraldur, f. 1921, fyrrv. kaupfélagsstjóri Kaupfélags verka- manna á Ákureyri, kvæntur Ás- laugu Einarsdóttur, fyrrv. bæjar- fúlltrúa á Akureyri. Foreldrar Kolbeins vom Helgi Kolbeinsson, f. 17.3. 1876, d. 1951, bóndi á Hrappsstöðum, síðar verkamaður á Akureyri, og k.h., Guðrún Jónsdóttir, f. 27.4. 1892, d. 1984, húsfreyja. Ætt Helgi var sonur Kolbeins, b. á Svertingsstöðum í Öngulsstaða- hreppi, Jónssonar og Ingibjargar, systur Sigurlaugar, ömmu Indriða 1916-34. Foreldrar Sæmundar: Guðrún Margrét Kristófersdóttir, f. á Brekkuvöllum, og maður hennar, Valdimar Hermann Sæmundsson, f. 1892 og uppalinn á Krossi. Sæmundur mun halda sýningu á Kjarvalsstöðum 6.9. 2003 og í tilefni þess verður gefinn út geisladiskur með öllum hans verkum. Sæmundur dvelur með fjölskyldu sinni í dag en býður gestum að skoða heimasíðu sína sem opnuð er í tilefni af 85 ára afmælinu hans: sa- emundurvald.is Indriðasonar rithöfundar. Ingi- björg var dóttir Jósefs, b. á Kálf- borgará í Bárðardal, Þórarinssonar, b. á fshóli í Bárðardal, Jónssonar. Móðir Ingibjargar var Helga, systir Ásmundar á Hvarfi í Bárðardal, föður Valdimars ritstjóra, föður Héðins alþm. Helga var dóttir Sæ- mundar, b. á Arndísarstöðum, bróður Jóns, langafa Barða, fyrrv. skrifstofustjóra VSÍ, og Kristjáns forstjóra Friðrikssona. Jón var einnig langafi Þóris, afa Höskuldar Þráinssonar prófessors. Sæmundur var sonur Torfa, b. í Holtakoti, Jónssonar, b. á Kálfárborg, Álfa- Þorsteinssonar, b. á Ytrileikskálaá, Gunnarssonar. Guðrún var dóttir Jóns, b. í Sól- heimatungukoti, Bjarnasonar og konu hans, Halldóru Jónsdóttur, b. í Hrísnesi í Þverárhlíð, Sigurðsson- ar, b. í Sanddalstungu, Jónssonar, b. og dbrm. í Deildartungu, Þor- valdssonar, ættföður Deildar- tunguættar. Kolbeinn verður að heiman á afmælisdaginn. Kolbeinn Helgason fyrrv. skrifstofustjóri Hrafnistu íHafnarfirði Umsjón: Ragnar Ingi Aðalsteinsson Þáttur Netfang: ria@ismennt.is í dag byrjum við á limru eftir Þórarin Eldjárn. Hann var á hagyrð- ingamóti á Siglufirði fyrir tveimur árum og orti þá um Siglufjarðar- göngin: Göngin hér umhverfis yður eru í austur og vestur, því miður. Ágætis göng en áttin kolröng. Best væri norður og niður. Það hefur flogið fyrir síðustu dagana að þetta sé áicvæðavísa. Göngin eru farin norður og niður. Fyrir nokkru var viðtal í einhverjum fjölmiðlinum við ungan jarð- fræðing sem var að rannsaka jarðlög úti fyrir Norðurlandi til að leita að gasi. Þegar hann hafði notað fleirtölumyndina „gös“ hvað eftir annað í viðtalinu orti Pétur Þorsteinsson á Kópaskeri: Eftir mæður, bösl og brös bjartri tíð vér fögnum því öxfirðingar eiga gös í ógeðslegum mögnum. Sú næsta er eftir Hjálmar Freysteinsson og skýrir sig sjálf: Flugumar suða í sælutón í sóiskini baða sig álftahjón við hafflötinn slétta, já, himneskt er þetta veður - í boði Og Vodafone. Næst er nýleg vísa eftir Björn Jónsson, bóksala og fyrmm prest á Húsavík: Kona nokkur kom með fleyg, kankvís þdtta sagði: Nú langar mig í ljúfa veig með lflcamlegu bragði. Þegar ég var í MA forðum daga gerðist það að einum bekkjarfélaga okkar varð fótaskortur á tungunni og gaf eftirfarandi yfirlýsingu; Ég dett ekki í hug ... Hann var frekar seinmæltur og því ekki búinn að leiðrétta sig og setningunni ekki lokið þegar hagyrðingar höfðu sett saman vfsu: Örlögum ég lýsi ijótum, lítinn mér það sýnir dug ef brotna ég á báðum fótum bara ef ég dett í hug. Sú næsta er eftir Kristján Eiríksson: Votir limir, veður strítt, vonlaus drykkjarföngin; allt er það sem orðið nýtt eftir brekkusönginn. Að lokum ein eftir Sigurð Ingólfsson: Nú má sólin blessuð brenna blítt sem aldrei fyr. Ég er eins og undanrenna útá nýhrært skyr. smáauglýsingablaðið -berðu saman verð og árangur Sama verð á smáauglýsingum alla daga 500 kr. 700 kr. 950 kr. Smáauglýsing án myndar, pöntuö á www.smaauglysingar. is Smáauglýsing án myndar, pöntuö hjd DV eöa Islma Smáauglýsing meö mynd, pöntuö hjd DV, Islma eöa á www.smaauglysingar.ls Við birtum - það ber árangur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.