Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Page 8
8 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 Hæstiréttur sýknar Arna Afram aflamarká Flæmingjagrunni HÆSTIRÉTTUR: Hæstiréttur sýkn- aði í gær Árna Mathiesen sjávar- útvegsráðherra af kröfum Magn- úsar Þórs Hafsteinssonar alþing- ismanns um að tiltekin ummæli ráðherra sem birtust í sjónvarps- viðtali skyldu ómerkt. Þá fór Magnús fram á miskabætur. Um- rædd ummæli ráðherra féllu í viðtali við sjónvarpsstöðina Fjöl- sýn þegar umræða um brottkast var í hámarki. Ráðherrann sakaði Magnús Þór, sem þá var starf- andi fréttamaður hjá RÚV, um að hafa sviðsett frétt af brottkasti. Hæstiréttur lítur svo á að með ummælum sínum hafi ráðherra ekki farið út fyrir mörk tjáningar- frelsis. Héraðsdómur Reykjaness hafði áður ómerkt ummæli Árna og dæmt hann til að greiða 100 þúsund króna sekt. Árni Mathiesen. RÆKJUVEIÐAR: Nýlokið er árs- fundi Norðvestur-Atlantshafs- fiskveiðistofnunarinnar, NAFO, sem haldin var í Nova Scotia í Kanada. Á dagskrá fundarins var ákveðið heildaraflamark og stjórn veiða á NAFO-svæðinu sem er hafsvæðið vestan og sunnan Hvarfs á Grænlandi. Is- lendingar lögðu fram tillögu sem gerði ráð fyrir umtalsverðri fækkun eftirlitsmanna og að gerður yrði samanburður á þeim skipum sem hefðu eftir- litsmenn um borð og þeim sem einungis væru með gervi- hnattaeftirlit. Samþykkt var að eftirlitsmenn yrðu í helmingi fiskiskipa og sparast við það mikið fjármagn. Samþykkt var óbreytt stjórn á veiðunum fyrir árið 2003 og að dagafjöldinn yrði sá sami og á árinu 2003. Is- land hefurfrá því að NAFO sam- þykkti að taka upp sóknarstýr- ingu til stjórnunar á rækjuveið- um á Flæmingjagrunni árið 1995 mótmælt því fyrirkomu- lagi. (sland ítrekaði mótmæli sín við sóknarmarkskerfið og mun áfram stjórna veiðunum ein- hliða með aflamarki sem ákveð- ið verður á næstu mánuðum. Foreldrahúsið aðstoðar ungmenni sem eru í neyslu og með geðrask- anir og einnig aðstandendur þeirra: Miklu alvarlegri og of- beldisfyllri mál en áður Miklu alvarlegri og ofbeldis- fyllri mál koma nú til kasta For- eldrahúss Vímulausrar æsku heldur en áður. Þetta kom m.a. fram þegar DV heimsótti For- eldrahúsið í gær. Til Foreldrahússins leita m.a. aðstandendur ungra fíkniefna- neytenda. Sum ungmennin eiga við erfið geðræn vandamál að stríða til viðbótar við neysluna. En hlutverk Foreldrahússins er mun víðtækara. Þar vinna nú 19 manns, ýmist fastráðnir eða verktakar. Starfsemin skiptist í stórum drátt- um í tvennt. Annars vegar er for- varnarstarf, sem felst m.a. í nám- skeiðahaldi fyrir foreldra barna frá leikskólaaldri og upp úr. Hins veg- ar er fjölskylduráðgjöf þar sem for- eldrar geta leitað til sálfræðinga, og sótt ýmiss konar ráðgjöf. For- eldrar barna sem framið hafa voðaverk af einhverju tagi geta sótt þangað stuðning en þeir hafa oft viljað gleymast. Þá má nefna „Við höfum horft á eftir ungmennum sem hafa gefist upp og tekið eig- ið iíf. Við höfum horft á eftir ungmennum inn fyrir fangelsismúrana." aðstoð við foreldra barna sem eru á skilorði eða hafa komist í kast við lögin. Sjálfshjálparhópar foreldra eru starfræktir. Þangað kemur fólk sem á börn í neyslu, börn með geðraskanir, börn sem eru á með- ferðarstofnunum ríkisins og síðast en ekki síst foreldrar eldri einstak- linga sem enn hafa ekki náð að fóta sig í lífinu. Þá rekur ijölskyldu- ÚRRÆÐALEYSI: „Við vitum ekki til þess að þessi börn séu enn komin með úrræði eða hvernig þeim hefur reitt af." ráðgjöf Vímulausrar æsku for- eldrasíma allan sólarhringinn. Þangað berast yfir 2500 símtöl á ári. GOTT HEIMIU: „Við viljum sjá og munum berjast fyrir að komið verði á stofn góðum stað fyrir þetta fólk." Nýr þáttur í starfsemi Foreldra- hússins er stuðningsmeðferð fyrir börn og unglinga sem koma út af meðferðarheimilum. Sú meðferð getur varað frá sex mánuðum til tveggja ára. Geta hvorki lifað né dáið Starfsfólk Foreldrahússins gaf sér tfma til að setjast niður með DV í gær og ræða starfsemina þótt miklar annir kölluðu að. í gær- morgun hafði mál fárveiks ein- staklings komið inn á borð þess og verið var að leita allra leiða í heil- brigðisgeiranum til að leysa það. „Við fáum inn miklu fleiri og al- varlegri mál nú heldur en áður,“ sögðu þær Jórunn Magnúsdóttir og Þórdís Sigurðardóttir. „í ágúst sl. komu hingað til dæmis foreldr- ar 4-5 fíkniefnaneytenda með mjög alvarlegan geðrænan vanda. Við vitum ekki til þess að þessi börn séu enn komin með úrræði eða hvernig þeim hefur reitt af. Foreldrarnir reyna að hugsa um þá einstaklinga sem lenda í svona löguðu af fremsta megni. En þess- ir einstaklingar geta hvorki lifað né dáið. Ferlið sem þessir einstak- lingar lenda oftast í er að þeir eru ofvirkir sem börn með misalvar- legar hegðunarraskanir. Þeir lenda gjarnan í einelti og fara í neyslu. Þessu lífi fylgir oft mikið ofbeldi. Ef þeir hafna því að fá hjálp er ekkert hægt að gera. Það er hræðilegt fyr- ir foreldra að horfa upp á barnið sitt eyðileggja sig, en geta ekkert gert. Og ef þeir reyna, þrátt fyrir allt, þá ganga þeir á lokaðar dyr. Þess eru allt of mörg dæmi að þeir þurFi að horfa upp á málin fara stigversnandi, sjá barninu sínu hraka og vera sjálfir að hrynja nið- ur.“ í fangelsi eða dauðann Jórunn og Þórdís hafa starfað í Foreldrahúsinu um tæpra fimm ára skeið. „Við höfum horft á eftir ungmennum sem hafa gefist upp og tekið eigið líf," halda þær MÖRG VERKEFNI: Mörg verkefni liggja fyr- ir hjá Foreldrahúsinu í vetur eins og endranær. Hér eru þær f.v. Elísa Wíum, Jór- unn Magnúsdóttir og Þórdís Sigurðardótt- ir að virða fyrir sér verkefnaáætlun. áfram. „Við höfum horft á eftir ungmennum inn fyrir fangelsis- múrana. Síðasta úrræðið sem hægt er að grípa til er svipting sjálfræðis. En hún þjónar engum tilgangi ef hún varir aðeins nokkra daga. Þrátt fyr- ir að þeim hafi fjölgað gífurlega sem berjast um í neyslu og geð- röskunum þá eru engin neyðarúr- ræði sem hægt er að grípa til á stundinni. Við höfum verið að berjast fyrir að komið verði á stofn góðum stað fyrir þetta fólk. Þar yrði það að- stoðað við að taka á sínum málum. Slíkur staður hefði þurft að vera kominn fyrir mörgum árum. En nú þurfum við að standa saman og hjálpa þessu fólki, sjúklingum sem aðstandendum, sem er komið í þrot.“ -jss

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.