Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2003, Side 36
36 DVSPORT FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003
DVSport
Keppnií hverju orði
Netfang: dvsport@dv.is
Sími: 550 5885 • 550 5887 ■ 550 5889
Lárus Orri frá í 3 til 4 mánuði
erlendis
KNATTSPYRNA: Landsliðs-
maðurinn Lárus Orri Sigurðs-
son mun ekki spila með West
Brom næstu þrjá til fjóra mán-
uðina vegan meiðsla á hné
sem hann varð fyrir í leik gegn
Crystal Palace. Upphaflega var
talið að Lárus Orri yrði ekki
nema þrjár til fjórar vikur frá en
speglun í gær leiddi í Ijós að
liðþófi er illa skaddaður.
Þetta þýðir að Lárus Orri missir
af landsleiknum þýðingarmikla
gegn Þjóðverjum 11. október
næstkomandi.
Gary Megson, knattspyrnu-
stjóri West Brom, sagði í
samtali við opinbert vefsvæði
félagsins í gær að það væri
mjög slæmt fyrir félagið að
missa Lárus Orra í allan þennan
tíma.
íslenskir sigrar
KNATTSPYRNA: (slensku
ungmennalandsliðin, skipuð
stúlkum 19 ára og yngri og
piltum 17 ára og yngri, voru (s-
landi til sóma í gær þegar þau
unnu bæði sína leiki í riðla-
keppni Evrópukeppninnar.
U-17 ára landslið pilta lagði Al-
baníu, 3-1, í sínum fyrsta leik í
Litháen. Rúrik Gíslason úr HK
skoraði tvö mörk og Matthías
Vilhjálmsson eitt fyrri íslenska
liðið.
U-19 ára landslið stúikna bar
sigurorð af Slóvakíu, 5-3, í sín-
um riðli sem fram fer í Slóvakíu
og hefur liðið unnið tvo fyrstu
leiki sína. Harpa Þorsteinsdótt-
ir, Dóra María Lárusdóttir, Greta
Mjöll Samúelsdóttir, Nína Ósk
Kristinsdóttirog Dóra Stefáns-
dóttir skoruðu mörk íslands.
HK-ingar gerðu sér lítið fyrir og rúlluðu yfir Islandsmeistara Hauka:
Ekki Flóki(ð) mál
HK-HAUKAR
27-25 (13-7)
Dómarar:
Anton Leifsson og
Hlynur Pálsson
7/10
Gæði leiks:
8.10
Ahorfendur:
320.
Hörður Flóki Ólafsson, HK
Gangur leiksins: 0-1,4-1, 7-3, 9-5,11-7, (13-7), 13-8, 15-12, 20-13,23-18, 26-21,27-23, 27-25.
HK
Mörk/ þar af víti ískot/vit!, > Hraðaupphl.
Brynjar FreyrValsteinsson 7 3
Alexander Arnarson 5 (9) 0
Haukur Sigurvinsson 4/4 0
Augustas Strazdas 4(8)0
Atli Þór Samúelsson 3 0
Samúel IvarÁrnason 2(2.0
Andrlus Rackauskas 2 0
Vilhelm Gauti Bergsvelnsson 0 2 0
Samtals: 27/4 (56/5)3
Fiskuð víti
Alexander Arnarson 2
Atli Þór Samúelsson 2
Augustas Strazdas 1
Varin skot/þar af vfti ikot á sig/víti)
Hörður Flóki Ólafsson 26/3 52 %
Amar Freyr Reynisson 0(1/110%
Brottvfsanlr 16 mínútur. (Jón Bersi
Ellingsen og Augustas Strazdas fengu rautt
fyrir 3 brottvísanir)
HAUKAR
Mörk/ þar af víti í : Ásgeir Örn Hallgrlmsson Jón Karl Björnsson Hraðaupphl. 8 3 5/5 (6/6)0
Þorkell Magnússon 3 (3)0
Matthlas Árni Ingimarsson 3(5)0
Dalius Rasikevicius 3 1
Andri Stefan 2 noso
Halldór Ingólfsson 1 0
Samtals: 25/5 <55/9 :4
Fiskuð víti
Þorkell Magnússon 3
Matthlas Árni Ingimarsson 2
Halldór Ingólfsson 2
Ásgeir Örn Hallgrímsson 1
Dalius Rasikevicius 1
Varin skot/þar af víti ; ? á sig/vrti)
Birkir (var Guðmundsson 21/1 44%
Brottvfsanin 12 mlnútur.
Eftir að hafa skorað fyrsta
markið í leiknum sáu íslands-
meistarar Hauka í handknatt-
leik aldrei til sólar gegn bikar-
meisturum HK. Kópavogsliðið
skoraði því næst 4 mörk í röð og
lét forystuna aldrei af hendi.
Lykillinn að sigri HK-manna var
markvarsla Harðar Flóka Ólafsson-
ar í fyrri hálfleik. Hann varði 18 skot
í fyrri hálfleik, þar af 3 víti og 2
hraðaupphlaup og var hlutfalls-
markvarsla hans 72% - sem verður
að teljast framúrskarandi góður ár-
angur.
I sókninni átti Brynjar Freyr frá-
bæran leik ásamt Litháanum
Augustas Strazdas sem fellur vel að
leik HK. Alexander Arnarson var
einnig afar drjúgur á línunni. Vörn-
in var þétt fyrir án þess þó að hún
beitti óvenjumikilli hörku og var
greinilega allt annar bragur á liðinu
heldur en í síðasta leik, gegn ÍR,
sem tapaðist með 7 mörkum.
Sigur HK sanngjarn
Haukarnir voru hins vegar varla
skugginn af sjálfum sér og þeir
komust aldrei í gang gegn sterku
liði HK. Helst ber að nefna mark-
vörslu Birkis ívars f síðari hálfleik,
sem var góð.
„Við spiluðum fyrir það fyrsta
ömurlegan fyrri hálfleik og leik-
mennirnir virtust ekki átta sig á því
að það þarf að leggja sig fram til að
sigra,“ sagði þjálfari Hauka, Viggó
Sigurðsson.
„Fyrst og fremst fannst mér við
vera að brenna af í dauðafærum
hvað eftir annað og gáfum þar með
leikinn frá okkur. Sigurinn var mjög
svo sanngjarn fyrir HK.“
Fann mig vel
Markvörður HK, Hörður Flóki
Ólafsson, var vitanlega ánægður
með sinn hlut, sér í lagi í fyrri hálf-
leik. „Ég fann mig vel. Vörnin var
frábær eins og hún venjulega er hjá
HK. f seinni hálfleik gáfum við þó
eftir en náðum að halda haus og
láta sóknarleikinn ganga upp,“
sagði Hörður Flóki.
„Með Hauka sem andstæðinga
getur maður aldrei verið öruggur
með sig. Aiveg sama hvað það er
stutt eftir og mikill markamunur.
Þetta eru toppmenn í handbolta
með frábæran þjálfara og þeir
kunna klárlega sitt fag,“ sagði
Hörður Flóki en þrátt fyrir yfirburði
HK í leiknum voru íslandsmeistar-
arnir aldrei langt undan.
Nokkur spenna hljóp í leikinn á
lokamínútunum þegar HK-menn
lentu í vandræðum með brottvís-
anir. Sigurinn var þó aldrei í hættu
og var fögnuður heimamanna í lok-
in rnikill. eirikurst@dv.is
RÓLEGUR: Viggó Sigurðsson hafði hægt um sig á bekknum í Digranesi. Aðstoðarþjálfarinn Páll Ólafsson er í baksýn. DV-mynd Hari
Tap gegn Besiktas
Átta stiga tap KR, 89-81, í Kaupmannahöfn
KR-ingar töpuðu fyrsta leik
sínum á alþjóðlega mótinu í
körfuknattleik í Kaupmanna-
höfn í gær. Andstæðingarnir
voru tyrkneska iiðið Besiktas
sem fóru með sigur af hólmi,
89-81, eftir hörkuleik.
KR-ingar leiddu nánast allan
íyrri hálfleikinn, höfðu yfir, 25-21,
eftir fyrsta leikhluta og 44-40 í
hálfleik.
í síðari hálfleik náði KR mest
þrettán stiga forystu, 57-44, en
leikmenn Besiktas gáfust ekki
upp og komust í fyrsta skipti yfír
frá því í fyrsta leikhluta, 71-70,
þegar fimm mínútur voru til
leiksloka. Tyrkneska liðið hélt
í síðarí hálfleik náði
KR mest þrettán stiga
forystu, 57-44, en
leikmenn Besiktas
gáfust ekki upp.
frumkvæðinu það sem eftir lifði
leiks og vann að lokum með átta
stiga mun, 89-81.
Woods með 30 stig
Bandaríkjamaðurinn Chris
Woods skoraði 30 stig fyrir KR,
Skarphéðinn ingason skoraði 12
stig, Steinar Kaldal 10, Baldur
Ólafsson og Arnar Kárason 8 stig
hvor, jóhannes Árnason 6 og
Magni Hafsteinsson skoraði 5 stig
fyrir KR sem mætti BF Kaup-
mannahöfn í morgun en leikur-
inn var ekki byrjaður þegar blaðið
fór í prentun.
Tyrkneska liðið er sterkt og
hefur meðal annars innan sinna
raða fyrrum leikmann Chicago
Bulls í NBA-deildinni, Khalid El-
Amin, sem gerði KR-ingum oft og
tíðum lífíð leitt. oskar@dv.is
Valsmenn neðstir
Töpuðu öllum leikjum sínum í Reykjavíkurmótinu
Valsmenn töpuðu fimmta og
síðasta leik sínum í Reykjavík-
urmóti karla í körfuknattleik
með 27 stigum á heimavelli
sínum í gær og þar með er
Ijóst að liðið endar án stiga í
neðsta sæti mótsins.
Valsmenn töpuðu fyrir Fjölni í
gær, 78-105. Þeir munu þurfa að
hafa mikið fyrir hlutunum í vetur
og það er ljóst að fallbarátta í 1.
deild er líklegri kostur fyrir þá en
að berjast fyrir að tryggja sig upp
í úrvalsdeild á ný.
Hilmir Hjálmarsson átti mjög
góðan leik hjá Fjölni, var með 26
stig, 10 fráköst, 6 varin skot og 5
stoðsendingar en auk hans léku
þeir Hjalti Vilhjálmsson (16 stig, 9
frák.j, Magnús Pálsson (14 stig,
11 frák. og 5 stoðs.) og Sverrir
Karlsson (11 stig, 8 frák., 6 stoðs.)
vel og það var einnig gaman að
sjá marga unga stráka koma inn á
og gera góða hluti.
Hjá Val var Gylfi Már Geirsson
yfirburðamaður líkt og í öllu mót-
inu en hann skoraði 18 stig í gær
auk 11 frákasta og 6 stoðsendinga
en þjálfarinn, Birgir Guðfinns-
son, bætti einnig við 18 stigum og
þeir Ágúst Jensson og Ragnar
Steinsson skoruðu 12 stig hvor.
í hinum leik kvöldsins vann Ár-
mann/Þróttur lið ÍS, 75-66. Birgir
Mikaelsson skoraði 15 stig fyrir
Ármann/Þrótt og þeir Stefán
Guðmundsson, Halldór Úlriks-
son og Halldór Sigurðsson voru
aUir með 11 stig. Hjá ÍS gerði
Guðmundur Ásgeirsson 13 stig,
Aðalsteinn Pálsson var með 11 og
þjálfarinn Bjami Magnússon