Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2003, Side 2
2 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003
ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson
AÐALRIT5TJÓRI: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRIT5TJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Ritstjóm: ritstjorn@dvJs - Auglýsingar: auglys-
ingar@dv.is. - Drelflng: dreiflng@dv.is
Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerð og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endur-
gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl
við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Efni blaðsins
íbúar blokkar í gíslingu
- frétt bls. 4
Vinstri grænir á uppleið
- frétt bls. 6
Slökkviliðsmenn að
niðurlotum komnir
-fréttbls. 10-11
Barátta konu við stein-
runnið kerfi
- leiðaraopna bls. 12-13
Michael Jackson hvítari
en nokkru sinni
-Tilvera bls. 16-17
Bíó og sjónvarp
-Tilvera bls. 26-27
Drap hundinn til að
endurheimta seðla
Ýmislegt leggja menn nú á sig
til að endurheimta glatað fé. Kín-
verskur maður einn brá á það ráð
að drepa hundinn sinn til að
endurheimta peningaseðla sem
hvutti hafði etið á meðan hann
átti að standa um þá vörð.
Múrarinn Sun Xiaoshan frá
Honghuborg í Hubei-héraði
hafði fengið andvirði nærri þrjá-
tíu þúsunda íslenskra króna fyrir
að aðstoða annan íbúa bæjarins
við að reisa hús. Peningana skildi
hann síðan eftir heima þegar
hann og eiginkonan fóru út að
vinna næsta dag.
Peningana setti múrarinn
undir glerdisk og tjóðraði hund-
inn sinn þar skammt frá svo eng-
inn vogað sér nú inn til að stela
fénu. En þegar múrarinn kom
heim var hundurinn búinn að
eta allt nema sjö þúsund krónur.
Björgólfur kemur með nýja hugsun inn
UMMÆLI FÓLKS: Þátttakendur
í könnun DV létu ýmis um-
mæli falla þegar spurningarn-
ar voru bornar fram. Hér á eft-
ir fylgja nokkur ummæli sem
féllu þegar spurt var um ein-
staklinga í viðskiptalífinu.
„Allt þetta sjálftökulið er jafn
slæmt," sagði maður á höfuð-
borgarsvæðinu. Kona á Norð-
urlandi sagði: „Ég get ómögu-
lega svarað því, maður er ekk-
ert inni í þessu viðskiptalífi.
Þetta er alveg sér heimur."
„Það er voðalega erfitt að
nefna einn umfram annan,
maður leiðir svo lítið hugann
að þessu," sagði karl á Suður-
landi. Kona í Reykjavík sagði:
„Björgólfur virðist ekkert hafa
breyst þótt hann hafi auðg-
ast." Kona á Suðurnesjum
sagði: „Jóhannes hefur gert
meira fyrir heimilin í landinu
en flestir í þessu viðskiptalífi
svo ég er ekki í vafa." Og karl
fyrir vestan sagði: „Björgólfur
kemur með nýja hugsun inn í
viðskiptalífið. Þó valdablokk-
irnar séu svipaðar og áður er
allt annar bragur á þessu."
„Nú segi ég pass," sagði karl í
Reykjavík.
Skjálftahrina
SKJÁLFTAR: Jarðskjálftahrina
hófst við Kleifarvatn í gærkvöld
og mældust stærstu skjálftarnir
um 2,5 á Richter. Fjölmargir
skjálftar komu fram á mælum
Veðurstofu fslands fram yfir
hálftíu í gærkvöld, en skjálftar
voru þó að koma fram á svæðinu
fram undir klukkan þrjú í nótt.
Upptökflestra skjálftanna voru
um 4-6 kílómetra NNA af Krýsuvík.
Skoðanakðnnun DVum álit almennings á einstaklingum í viðskiptalífinu:
Björgólfur Guðmundsson
nýtur langmests álits
Björgólfur Guðmundsson,
stjórnarformaður Landsbank-
ans, ber höfuð og herðar yfir
aðra einstaklinga í íslensku við-
skiptalífi þegar kjósendur eru
spurðir á hvaða einstaklingi í
viðskiptalífinu þeir hafi mest
álit.
Þetta er niðurstaða skoðana-
könnunar DV sem gerð var í gær-
kvöld. Spurt var: Á hvaða einstak-
lingi í viðskiptalífinu hefur þú mest
á lit um þessar mundir?
Tæplega helmingur eða 49,4 pró-
sent nefna Björgólf Guðmundsson.
Athygli vekur að samanlagt nefna
rúm 57 prósent Björgólf, Björgólf
Thor Björgólfsson, son hans, eða
Björgólfsfeðga. Ljóst er því að
Björgólfsnafnið er fólki ofarlega í
huga þegar það leiðir hugann að ís-
lensku viðskiptalífi.
Athygli vekur að
samanlagt nefna rúm
57 prósent Björgólf,
Björgólf Thor, son hans,
eða Björgólfsfeðga.
í öðru sæti þessarar könnunar er
Bjarni Ármannsson, forstjóri fs-
landsbanka, en 10,3 prósent
nefndu hann. Jóhannes Jónsson,
kenndur við Bónus, er þriðji en 9
prósent nefndu hann. Sonur Jó-
hannesar, Jón Ásgeir, kemur næst-
ur með 5,2 prósent atkvæða. Þá
Björgólfur Thor, 3,9 prósent, Björg-
ólfsfeðgar, 3,9 prósent, Baugsfeðg-
ar, 3,4 prósent, og Kári Stefánsson,
forstjóri íslenskrar erfðagreiningar,
með 3 prósent.
Rannveig Rist er eina konan á
blaði með 2,1 prósent. Loks fengu
Jón Helgi Guðmundsson í Byko,
MEST ALIT
Björgólfur Guðmundsson 49,4%
Bjarni Ármannsson 10,3%
Jóhannes Jónsson 9,0%
Jón Ásgeir Jóhannesson 5,2%
BjörgólfurThor Björgólfsson 3,9%
Björgólfsfeðgar 3,9%
Baugsfeðgar 3,4%
Kári Stefánsson 3,0%
Rannveig Rist 2,1%
Jón Helgi Guðmundsson 0,9%
MagnúsGunnarsson 0,9%
Magnús Scheving 0,9%
Aðrir-samtals 73%
Hlutfall afþeim sem afstöðu tóku
Magnús Gunnarsson, nýkjörinn
stjórnarformaður Eimskipafélags-
ins, og Magnús Scheving, driffjöður
Latabæjar, 0,9 prósent hver.
Aðrir fengu minna en samanlagt
fylgi þeirra er 7,3 prósent.
Úrtakið í þessari könnun DV var
600 manns á kosningaaldri, jafnt
skipt milli kynja og hlutfallslega
milli höfuðborgarsvæðis og lands-
byggðar. Hringt var eftir símaskrá
og ofangreind spurning borin fram.
Tæp 40 prósent tóku afstöðu til
tiltekinna einstaklinga í þessari
könnun, aðrir voru óálcveðnir eða
svöruðu ekki.
hlh@dv.is
Bjaml Jóhannes
Ármannsson. Jónsson.
LANGEFSTUR: Enginn í íslensku viðskiptalífi kemst með tærnar þar sem Björgólfur
Guðmundsson hefur hælana. Hann nýtur langmests álits með Islendinga samkvæmt
skoðanakönnun DV sem gerð var í gærkvöldi.
Jón Ásgeir Björgólfur Thor
Jóhannesson. Björgólfsson.
Kári Rannveig
Stefánsson. Rist
Kviknaði í íbúðarhúsnæði í Hafnarfirði í nótt:
Eldur í
Töluverðar skemmdir urðu í
íbúð í Hafnarfirði þegar eldur
kom upp í henni í nótt. Engin
slys urðu á íbúum sem komust
út af eigin rammleik.
ELDUR í KJALLARA: Töluverðar skemmdir
urðu á kjallaraíbúðinni. DV-myndir GVA
sófa í kjallaraíbúð
Það var klukkan 3.41sem slökkvi-
liðinu barst tilkynning um að eldur
væri í íbúðarhúsnæði í Hafnarfirði.
Um var að ræða þríbýlishús á Aust-
urgötu 11. Höfðu húsráðendur
samband við slökkvilið og til-
kynntu um eldinn.
Þegar slökkviliðið kom á staðinn
reyndist vera eldur í kjallaraíbúð
hússins. Höfðu íbúar hennar, kona
og tvö börn, vaknað og voru komin
út þegar slökkviliðið bar að.
Talsverður eldur reyndist vera í
íbúðinni og virtist svo sem hann
hefði átt upptök sín í sófa í stofu. Vel
gekk að ráða niðurlögum hans og
reykræsta húsnæðið. Talsverðar
skemmdir urðu af völdum reyks og
hita á húsinu, sem er gamalt timbur-
hús. Austurgata 11 er gamla
símstöðin, teiknuð af Guðjóni
Sanúelssyni. JSS@dv.is
AUSTURGATA 11: Þegar slökkvilið kom á staðinn í nótt var eldur í kjallaraíbúð hússins.
(búar, kona og tvö börn, voru komin út þegar slökkviliðið bar að.Talsverðar skemmdur
urðu.