Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2003, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003
AljcEims*
Beint leigu-
flug með
lcelandair
í allan vetur!
Tilboð
5. og 19. nóv.
í 2 vikur:
með flugvallarsköttum.
Sumarhúsa-
eigendur
og aðrir
farþegar
til Spánar!
Tilvalið
tækifæri
til að stytta
veturinn.
www.plusferdir. is
Hlíðasmára 15 • Sími 535 2100
Börn mega vera -son og -dóttir
NORÐURLANDARÁÐ: Dönsk stjórnvöld
stefna að því að nafnareglum verði breytt
þannig að tekið verði tillit til íslenskrar
nafnahefðar. Þetta kom fram á þingi
Norðurlandaráðs í gær.
Að sögn Sivjar Friðleifsdóttur, samstarfs-
ráðherra Norðurlanda, er stefnt að því að
breytingin verið gerð fyrir næsta sumar.
Poul Schliiter, fyrrum forsætisráðherra
Danmerkur, greindi frá því á þinginu að
reynt yrði að breyta nafnareglum frá og
með næsta ári þannig að Danir myndu
taka tillit til endinganna -son og -dóttir í ís-
lenskum nöfnum. Schliiter hefur haft það
verkefni með höndum fyrir Norrænu ráð-
herranefndina að ryðja úr vegi hindrunum
og erfiðleikum sem standa í vegi fyrir
frjálsum flutningum milli Norðurlanda.
Siv segir að á undanförnum árum hafi
borist kvartanirfrá íslendingum í Svíþjóð
og Danmörku sem áttu í deilum við yfir-
völd vegna þess að íslensk nafnahefð
Siv Friðleifsdóttir, samstarfsráðherra Norð-
urlanda. DV-mynd Lennart Perlenham
stangaðist á við reglur í löndunum. Kvört-
unum var komið á framfæri við Norrænu
ráðherranefndina og Schluter.
Svíar breyttu sínum reglum til samræmis
við íslenska nafnahefð síðastliðið vor en í
Danmörku hefur það dregist.
íslendingar fara með formennsku í Nor-
rænu ráðherranefndinni á næsta ári og
hafa beðið Poul Schluter um að halda
áfram störfum sínum fram á næsta sumar.
Umsátursástand vegna báðareiganda í blokkí Kópavogi:
Heldur íbúum í gíslingu
og skolar út illa anda
íbúi í Engihjalla 9 í Kópavogi
heldur nágrönnum sínum nú
nánast í gíslingu með afar
slæmri umgengni og ónæði um
nætur. Málið hefur komið til
kasta lögfræðings Húseigenda-
félagsins og getur svo farið að
krafist verði útburðar í málinu.
Að sögn íbúa í húsinu hefur
ónæði af völdum mannsins staðið
um margra ára skeið. Hann mun
vera frumbyggi í blokkinni og þegar
aðrir íbúar voru orðnir ráðþrota
varðandi úrlausn mála leituðu þeir
til Húseigendafélagsins og gengu í
það í vor. Áður hefur m.a. verið leit-
að til Félagsmálastofnunar í Kópa-
vogi og Umboðsmanns Alþingis.
Hefur manninum þegar verið send
aðvörun en samkvæmt lögum er í
áframhaldandi ferli hægt að krefj-
ast útburðar með dómsúrskurði ef
viðkomandi lætur sér ekki segjast.
Skolar út illa anda
Maðurinn á íbúð á 6. hæð í
blokkinni sem er 10 hæðir og held-
ur hann íbúum 60 íbúða blokkar-
innar nánast í gíslingu með fram-
ferði sínu. Hann er ekki talinn heill
á geðsmunum en það gerir málið
erfiðara en ella. Að sögn eins íbúa,
sem DV ræddi við í gær, standa íbú-
ar af erlendum uppruna á fimmtu
hæð nú ráðþrota en fyrir liggur að
endurnýja baðinnréttingu íbúðar-
innar vegna vatnstjóns af völdum
mannsins sem býr á hæðinni fýrir
ofan. Er þetta fólk í öngum sínum
en eiginkonan er barnshafandi og
komin sjö mánuði á leið. Er þetta í
annað skipti sem innrétting eyði-
leggst hjá þessu fólki vegna þess að
íbúinn á sjöttu hæðinni lætur vatn
flæða svo að það lekur niður í gegn-
um gólfplötu hússins. Ástæðan
sem hann hefur gefið fyrir þessu
framferði er að hann sé að skola út
illa anda.
TIL VANDRÆÐA: Ibúi á 6. hæð í Engihjalla 9 í Kópavogi gerir öðrum Ibúum hússins lífið
leitt. Leitað hefur verið eftir aðstoð Húseigendafélagsins vegna málsins.
Eins og á öskuhaugunum
„Hann er alltaf á ferðinni á næt-
umar á meðan aðrir vilja reyna að
sofa,“ sagði nágranni mannsins.
„Ég sá inn í íbúðina um rifu á dyr-
unum um daginn og þetta er eins
og á öskuhaugunum. íbúðin er
bara rúst og varla tilbúin undir tré-
verk.
Það em þrjár íbúðir í hvorri álmu
á hverri hæð, merktar A, B og C.
Hinum megin em íbúðir D, E og F.
Sameiginleg þvottahús em fyrir
hverjar 3 íbúðir. Ég leit inn í þvotta-
húsið þar sem maðurinn býr og
hann er búin að gjöreyðileggja það.
Hann lætur vatn flæða og var búinn
að eyðileggja gólfefni og hefur auk
þess notað sameiginlegan tengil
fyrir þvottavélina sína til að spara
sér rafmagnskostnað."
Annar íbúi staðfesti þetta og seg-
ir að maðurinn hafi gert gott betur
og hreinlega kveikt í þvottahúsinu.
Umsátursástand hafi verið á köfl-
um í blokkinni vegna framgöngu
mannsins.
Fljúgandi Húsavíkurmynd
„Einu sinni tók hann sig tif og
henti fram af svölunum mynd í
glerrarama af Húsavík. Myndin
flaug niður á gangstéttina 6 hæðum
neðar og mölbrotnaði. Þá er hann
með þá áráttu að þegar hann kem-
ur fram á gang snemma á morgn-
ana opnar hann upp á gátt allar dyr
sem hann sér. Neyðarútganga, dyr
út á svalir, allt skilur hann eftir
galopið. Til að tryggja að dyrnar út
á svalir héldust opnar setti hann
eitthvert rifrildi úr skápum í hurð-
arfalsið. Nágranni fjarlægði það og
setti það fyrir framan dyrnar að
íbúð mannsins. Hann kom að
vörmu spori og henti þessu drasli
fram af svölunum. Svo er sígarettu-
slóðin og ruslið eftir hann úti um
alla ganga." hkr@dv.is
„Erum að íhuga útgáfu"
segir Bjarni Þorsteinsson, útgáfustjóri foriagsins
Handrit fyrsta bindis umdeildr-
ar ævisögu Halldórs Laxness
eftir prófessor Hannes Hólm-
stein Gissurarson er komið í hús
í höfuðstöðvum Eddu útgáfu og
er þar til skoðunar með útgáfu
fyrir jól íhuga.
Bjarni Þorsteinsson, útgáfustjóri
Almenna bókafélagsins sem er eitt
af forlögunum undir hatti Eddu,
staðfesti þetta í samtali við DV.
„Við erum að skoða málið og
verðum að fara að taka ákvörðun
um útgáfu," sagði Bjarni í samtali
við DV í gær.
Samkvæmt heimildum, sem DV
treystir, er þeg-
ar búið að
ákveða að Al-
menna bókafé-
lagið gefi bók-
ina út þótt hún
verði augljós-
lega seint á
ferðinni í bóka-
flóðinu, úr því
sem komið er.
Þetta er því
fyrsta bindið af boðuðum þremur
bindum sem Hannes Hólmsteinn
Gissurarson hefur lýst yfir að hann
ætli að skrifa um Halldór Laxness.
Fyrsta bindið mun heita Halldór,
annað Kiljan og
það þriðja Lax-
ness. Hart hefur
verið deilt um
þessar áætíanir
prófessorsins
en Halldór
Guðmundsson,
fráfarandi út-
gáfustjóri Máls
og mertningar,
síðar Eddu, hef-
ur unnið að gerð ævisögu Laxness í
nokkur misseri.
Fjölskylda Halldórs Laxness
greip til þess ráðs í lok september
sl. að loka bréfasafni skáldsins á
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson.
Landsbókasafni, sem var gefið
þangað árið 1996, fyrir öllum nema
Halldóri Guðmundssyni og Helgu
Kress.
í viðtali við DV 4. október sl.
sagði Hannes Hólmsteinn að Jónas
Sigurgeirsson, sem rekur Bókafé-
lagið, væri útgefandi sinn en hon-
um væri ffjálst að ráðstafa útgáfu-
réttinum og aðrir útgefendur hefðu
sýnt bók sinni áhuga. Bjarni Þor-
steinsson hjá Almenna bókafélag-
inu staðfesti í samtali við DV að það
hefði verið Hannes Hólmsteinn
sjálfur sem kom að máli við félagið
og kom handritinu til þess.
polli@dv.is