Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2003, Síða 6
6 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003
Velti bíl og stakk af
Tjón í bruna
SAUÐÁRKRÓKUR: Slökkviliðið á
Sauðárkróki var kvatt að einbýlis-
húsi á staðnum um fimmleytið í
morgun. Þar reyndist vera tals-
verður eldur. Húsið sem um ræðir
var mannlaust þar sem íbúar voru
ekki heima. Virtist svo sem kvikn-
að hefði í út frá sjónvarpi. Tals-
verðar skemmdir urðu á húsinu
vegna hita og reyks. Slökkvistarfi
var lokið klukkan sjö í morgun.
VELTI BÍL Ökumaður velti bíl
sínum í Súgandafirði í gær-
kvöld og stakk síðan af. Hann
skildi félaga sinn eftir í bílnum.
Báðir eru grunaðir um ölvun.
Atburðurinn varð um tíuleytið í
gærkvöld. Þegar lögreglan
kom á staðinn hafði ökumaður-
inn velt bíl sínum út af vegin-
um og var horfinn af vettvangi.
Félagi hans var enn í bílnum.
Sá síðarnefndi var fluttur á
sjúkrahúsið á (safirði til að-
hlynningar og eftirlits en mun
ekki hafa verið teljandi slasað-
ur.
Lögreglan náði ökumanninum
og var hann í haldi hennar í
nótt. Hann verður yfirheyrður í
dag. Bíllinn er mikið skemmdur
eftir veltuna.
RÚV stoppar „áróður"
RÍKISÚTVARPB: Heimdallur, félag
ungra sjálfstæðismanna í Reykja-
vík, hefur kvartað til útvarpsstjóra
yfir því að auglýsing frá félaginu,
sem lesa átti fyrir hádegisfréttir í
gær,varekki lesin.Texti hennar
var: „Slökkvum á Ríkisútvarpinu -
Heimdallur" og var tilgangurinn að
vekja athygli á þeirri stefnu félags-
ins að ríkið eigi ekki að reka fjöl-
miðla. Heimdallur fékk þá skýringu
að RÚV birti ekki „ótilhlýðilegan
áróður gegn fyrirtækjum, félögum
eða einstaklingum". Félagið telur
þetta ekki fullnægjandi skýringu,
enda sé auglýsingin ekki ótilhlýði-
legur áróður heldur hluti af póli-
tískri baráttu stjórnmálafélags, og
hefur óskað eftir því við útvarps-
stjóra að hún verði birt, ellegar að
rökstutt verði með ítarlegri hætti á
hvaða forsendum það verði ekki.
Skoðanakönnun DVum fylgi stjórnmálaflokkanna:
Vinstri grænir á uppleið
Skipting þingsæta
skv. könnun DV og breytingar miðað við kosningar 2003
I J iJUUULUJMxx
ULÁUULiÁÍÍULUJULUÁAUJUUULAk
r uixx
iJLUÁUJLUULUJLUJLxxx
FYLGI STJÓRNMÁLAFLOKKA í KÖNNUNUM DV
28.10.03 15,4 41,4 3,5 27,3 11,9
26.08.03 8,9 43,1 5,7 34,9 6,9
Kosningar 17,7 33,7 7,4 31,0 8,8
08.05.03 15,9 35,7 9,3 29,5 8,1
29.04.03 17,0 33,9 9,5 29,0 9,1
03.04.03 12,8 37,6 9,8 30,2 8,4
31.03.03 15,0 42,7 5,6 27,1 9,4
04.03.03 12,2 42,3 3,3 34,5 7,7
25.02.03 17,1 38,8 1,1 33,7 9,3
07.01.03 12,3 37,1 2,7 39,4 8,1
30.09.02 13,8 47,3 1,9 23,7 13,0
02.06.02 25,6 39,7 4,5 17,5 12,0
04.03.02 21,3 40,4 3,0 18,5 15,3
24.10.01 13,0 45,6 3,9 13,5 24,0
07.08.01 12,7 42,1 4,8 18,0 20,9
07.06.01 17,1 35,6 5,9 15,8 25,0
28.01.01 14,8 37,3 2,0 16,5 29,3
12.01.01 9,7 37,4 1,4 27,0 24,1
29.09.00 11,4 46,5 4,4 17,7 19,4
21-22.03.00 12,5 40,6 2,8 25,6 18,4
28-29.12.99 13,2 51,6 2,5 15,5 16,8
20.10.99 14,3 51,0 2,0 17,7 14,5
13.09.99 18,9 48,9 4,7 17,1 9,8
Kosningar 18,4 40,7 4,2 26,8 9,1
Framsókn og Vinstri grænir
bæta við sig fylgi en bæði
Frjálslyndir og Samfylking tapa
fylgi miðað við síðustu skoð-
anakönnun DV. Sjálfstæðis-
flokkur heldur sínu. Almennt er
fylgi flokkanna, utan Frjáls-
lyndra, nær kjörfylgi en í síð-
ustu DV-könnun. Þetta eru nið-
urstöður skoðanakönnunar DV
sem gerð var í gærkvöld.
Niðurstöður könnunar DV urðu
þau að 10,3 prósent sögðust
mundu kjósa Framsóknarflokkinn
ef kosið yrði nú, 27,8 prósent Sjálf-
stæðisflokkinn, 2,3 prósent Frjáls-
lynda flokkinn, 18,3 prósent Sam-
fylkinguna, 8 prósent Vinstrihreyf-
inguna grænt framboð og 0,4 pró-
sent aðra flokka. 18,7 prósent sögð-
ust óákveðin og 14,2 prósent neit-
uðu að svara spurningu um stuðn-
ing við flokka eða samtals 32,8 pró-
sent. Þannig tóku 67,2 prósent af-
stöðu til ákveðinna flokka.
Samanlagt sögðust
56,8 prósent mundu
kjósa stjórnarflokkana
miðað við 52 prósent í
síðustu DV-könnun og
51.4 prósent í kosning-
unum.
Af þeim sem afstöðu tóku sögð-
ust 15,4 prósent mundu kjósa
Framsókn. Það er 2,3 prósentustig-
um færri en í kosningunum í vor en
6,5 prósentustigum fleiri en í skoð-
anakönnun DV í lok ágúst. Fram-
sókn hefur því náð sér á strik á ný.
41.4 prósent sögðust mundu kjósa
Sjálfstæðisflokkinn, 7,7 prósentu-
stigum fleiri en í kosningunum en
1,7 prósentustigum færri en í síð-
ustu könnun. Sjálfstæðisflokkur
heldur því fylgisaukningu sinni frá
því í kosningunum. Samanlagt
í sókn og vörn
- breyting á fylgi flokka i
prósentustigum frá kosningum
sögðust 56,8 prósent mundu kjósa
stjórnarflokkana miðað við 52 pró-
sent í síðustu DV-könnun og 51,4
prósent í kosningunum.
Af þeim sem afstöðu tóku sögð-
ust 3,5 prósent mundu kjósa Frjáls-
lynda en 5,7 sögðust mundu kjósa
þá í síðustu könnun en þeir fengu
7,4 prósenta fylgi í kosningunum.
Frjálslyndir eru því á niðurleið. Þá
sögðust 27,3 prósent mundu kjósa
Samfylkinguna, 7,6 prósentustig-
um færri en í könnun DV í ágúst og
3,7 prósentustigum færri en í kosn-
ingunum. Samfylking hefur því
dalað. Loks sögðust 11,9 prósent
mundu kjósa Vinstri græna sem er
5 prósentustigum fleiri en í kosn-
Nýrþingmaður þ( Tapaðurþingmaður
ingunum og 3,9 prósentustigum
fleiri en í ágústkönnun DV. Vinstri
grænir hafa því rétt verulega úr
kútnum. Þá sögðust 0,2 prósent
mundu kjósa aðra flokka.
Úrtakið í könnun DV var 600
manns, jafnt skipt milli kynja og
hlutfallslega milli höfuðborgar-
svæðis og landsbyggðar. Hringt var
eftir símaskrá og kjósendur spurð-
ir: Hvaða lista mundir þú kjósa ef
þingkosningar færu fram núna?
Niðurstöðurnar má sjá í meðfylgj-
andi gröfum.
Framsókn sterk úti á landi
Þegar niðurstöðurnar eru
greindar eftir kyni og búsetu kemur
í ljós að Framsókn og Vinstri græn-
ir eru sterkari meðal kvenna en
karla en Sjálfstæðisflokkur og
Frjálslyndir meðal karla. Ekki er
marktækur munur á afstöðu kynj-
anna til Samfylkingarinnar.
Framsókn sækir mun meira fylgi
til landsbyggðarfólks en þar mælist
fylgi Framsóknar 24,8 prósent.
Vinstri grænir eru sömuleiðis sterk-
ari á landsbyggðinni. Sjálfstæðis-
flokkur og Samfylking eru hins veg-
ar mun sterkari á höfuðborgar-
svæðinu en á landsbyggðinni. Ekki
er munur á fylgi Frjálslyndra eftir
búsetu.
Skipting þingsæta
Þegar þingsætum er skipt miðað
við atkvæðafjölda í könnuninni
fengi Framsókn 10 þingmenn, fékk
12 í kosningunum. Sjálfstæðis-
flokkur fengi 27 þingmenn, bætti
við sig 5 mönnum. Samanlagt
fengju stjórnarflokkarnir 37 þing-
menn og öruggan meirihluta en
þeir fengu 34 í kosningunum.
Samfylkingin fengi 17 þingmenn,
tapaði 3, Vinstri grænir fengju 7,
bættu við sig 2 og loks fengju Frjáls-
lyndir 2 þingmenn, töpuðu 2.
hlh@dv.is
Iðnnemasamband íslands berst fyrir tryggingum fyrir nemendur í verknámi:
Einn til tveir nemendur slasast á hverri önn
Iðnnemasamband (slands hefur
á undanförnum árum háð
harða baráttu fyrir því að verk-
námsnemendur í framhalds-
skólum verði tryggðir. Ríkið
tryggir ekki nemendur í fram-
haldsskólum, eins og fram hef-
ur komið í DV.
„Við eftirgrennslan okkar hefur
komið í ljós að slys á nemendum í
skólum eru ekki tilkynningaskyld,"
sagði Jónína Brynjólfsdóttir, fram-
kvæmdastjóri ÍNSÍ, við DV. „Því
liggja hvergi fyrir fullnægjandi
upplýsingar né skýrslur um tíðni
slysa sem þeir verða fyrir.
Gróflega má þó gera ráð fyrir að
1-2 nemendur slasist á hverri önn.
Þá erum við að tala um að nem-
endur sagi í eða af putta, sem get-
ur leitt til þess að viðkomandi
verði öryrki upp á einhverjar pró-
Spurð um slysamál sem
hefðu farið fyrir dóm
kvaðst Jónína geta
nefnt dæmi um stúlku
sem hefði sagað fram-
an affingri.
sentur. Þetta á sér í lagi við um
stóru skólana.“
Jónína benti á að vinnuveitend-
ur yrðu að skyldutryggja starfsfólk
sitt. Þá væru slys sem yrðu á
vinnustöðum tilkynningaskyld til
Vinnueftirlits ríkisins. Enginn
hefði eftirlit með slysum sem
nemendur á verknámsbrautum
yrðu fyrir.
Hún sagði enn fremur að erfitt
væri fyrir nemendur að leita réttar
síns. Þeir yrðu þá að fara í mál við
kennara sinn, sem væri kapítuli út
af fyrir sig. Enginn ætlaði sér að
lenda í slysi og það væri algjörlega
út í hött að draga kennana til
ábyrgðar. Þeir væru að jafnaði
með 10-12 nemendur í hóp og úti-
lokað fyrir þá að fylgjast nákvæm-
lega með hverjum og einum.
Aðspurð um slysamál sem hefðu
farið fyrir dóm kvaðst Jónína geta
nefnt dæmi um stúlku sem hefði
sagað framan af fingri. Það mál
hefði farið fyrir dómstóla og lyktað
þannig að stúlkan hefði engar
bætur fengið.
„Þetta fyrirkomulag tryggingar-
mála í framhaldsskólum á landinu
er með öllu óskiljanlegt," sagði
Jónína. „Ríkið tryggir, með öðrum
orðum, ekld framtíð íslands."
JSS@dv.is
TRYGGINGAR ©NNEMA: Hörð barátta hefur verið fyrir tryggingum iðnnema.