Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2003, Page 10
70 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 29. OKJÚBER 2003
Útlönd
Heimurinn í hnotskurn
Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson
Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is
Sími: 550 5829
Harðlínumenn til í viðræður
PALESTÍNA: Ahmed Qurie, for-
sætisráðherra palestínsku
heimastjórnarinnar, sagði í gær
að hópar herskárra Palestínu-
manna hefðu fallist á að taka
aftur upp viðræður um vopna-
hlé í baráttunni við ísrael.
„Ég hef gert öllum palestínsk-
um hópum tilboð, þeim sem
eru innan vébanda Frelsissam-
taka Palestínu, svo og Hamas
og Heilögu stríði íslams, um
vopnahlésviðræður. Þeir hafa
tekið því vel," sagði Qurie.
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvenær viðræðurnar eiga að
hefjast. Litlar líkur eru taldar á
að árangur náist nema Qurie
fallist á beiðni Yassers Arafats
forseta um að mynda endan-
lega heimastjórn fyrir 4. nóv-
ember næstkomandi.
Finnast á lífi
BJÖRGUN: Björgunarmenn
fundu ellefu námumenn á lífi í
suðurhluta Rússlands í morg-
un. Mennirnir höfðu verið lok-
aðir í námunni, á 800 m dýpi, í
sex daga. Einn fannst látinn og
eins er saknað. Á laugardag var
33 mönnum bjargað úr sömu
námu. Annað námuslys varð í
Síberiu í nótt. Að minnsta kosti
fimm létust í slysinu.
Skógareldarnir þeir verstu í sögu Kaliforníu:
Slökkviliðsmenn að
niðurlotum komnir
TILVERAN í RÚST: Ruth Maas virðir fyrir sér rústir heimilis síns í bænum Crest í Kaliforníu.
Hús hennar er eitt þeirra rúmlega tvö þúsund í sunnanverðri Kaliforníu sem hafa orðið
mestu skógareldum í sögu ríkisins að bráð. Maas og fjölskylda hennar misstu svo til allar
eigur sínar þegar eldurinn æddi um hverfi hennar.
Þúsundir íbúa í fjalllendi sunn-
anverðrar Kaliforníu áttu fótum
sínum fjör að launa í gær þegar
þær lögða á flótta undan skóg-
areldunum sem stefndu á heim-
ili þeirra. Eldarnir eru hinir
verstu í sögu Kaliforníu og hafa
tíu þúsund slökkviliðsmenn
verið kallaðir út tii að berjast.
Embættismenn lýstu skógareld-
unum í gær sem þvílíkum náttúru-
hamförum að annað eins sæist ekki
nema á eitt hundrað ára fresti. Gray
Davis, fráfarandi rfkisstjóri, sagði
að tjónið af völdum eldanna, sem
ná að landamærunum að Mexíkó í
suðri til norðurhverfa Los Angeles,
væri komið upp í tvo milljarða doll-
ara. Þar telur hann með kostnað við
slökkviliðsstarfið, eignatjón og
tekjutap.
Vonlaus barátta
Nærri tvö þúsund heimili hafa
fuðrað upp og embættismenn
segja að fjöldi látinna, sem nú eru
átján manns, eigi eftir að hækka
enn frekar þegar björgunarsveitir fá
tækifæri til að fara yfir sviðna jörð-
ina frá landamærunum að Mexíkó
til San Diego. Óttast er að þar kunni
einhverjir ólöglegir innflytjendur
að hafa farist.
Slökkviliðsmenn, sem hafa háð á
tíðum vonlausa baráttu við eldana
undanfarna viku, eru að niðurlot-
um komnir og hefur þeim verið fyr-
irskipað að hvfla sig og safna kröft-
um. Margir þeirra höfðu þá ekki
sofið í þrjá sólarhringa.
Rúmlega 240 þúsund hektarar
lands hafa orðið eldinum að bráð.
íbúarnir á flótta
Yfirvöld fyrirskipuðu rúmlega
fjörutíu þúsund íbúum Lake Ar-
rowhead og Big Bear, sem eru vin-
sælir áfangastaðir ferðamanna um
áttatíu kflómetra austur af Los Ang-
eles, að yfirgefa heimili sín þar sem
eldurinn var kominn ískyggilega
nærri.
Eldarnir hafa eyðilagt að minnsta
kosti tuttugu heimili í nágrenni
Lake Arrowhead og þúsundir til
viðbótar kunna að brenna til ösku
áður en slökkviliðsmönnum tekst
að ná tökum á eldinum.
Heiti sunnanvindurinn
sem hefur gert allt
slökkvistarf svo erfitt,
Santa Anas vindurinn, er
einn afföstu punktum
lífsins í sunnanverðri
Kaliforníu. í gegnum tíð-
ina hefur vindi þessum
verið kennt um allt sem
aflaga fer.
Heitt hefur verið í veðri f sunnan-
verðri Kaliforníu og hafa hlýir
sunnanvindar aðeins orðið til þess
að næra eldtungurnar.
Kristel Johnson, talskona banda-
rísku skóglendisstofnunarinnar,
sagði að eldarnir gæfu frá sér svo
mikinn hita að þeir hefðu myndað
eigin veðrakerfi þar sem funheitar
vindhviður breiða eldinn út.
Yfirmenn slökkviliðs Kaliforníu
sögðu seint í gærkvöld að svo virtist
sem tekist hefði að ná tökum á
tveimur verstu eldunum. Slökkvi-
liðsmenn þurfa þó enn að berjast
við að minnsta kosti átta aðra elda,
hugsanlega miklu fleiri.
Blásið til sóknar
Andrea Tuttle, forstöðurmaður
skógarmála í Kaliforníu, sagði
fréttamönnum í gær að heldur
hefði sljákkað í sunnanvindunum
sem ýttu eldhafinu á undan sér
niður úr fjöllunum. Slökkvfliðs-
menn hefðu því getað blásið til
sóknar í fyrsta sinn í fjóra daga.
Hún vildi þó ekkert spá fýrir um
hvenær tækist að hafa hemil á eld-
inum sem ógnar fjallabæjum í San
Diego og San Bernardino-sýslum.
„Við höfum aldrei séð svona
mikinn eld og aldrei hafa jafnmarg-
ir íbúar orðið fyrir búsifjum," sagði
Andrea Tuttle. „Þetta er fyrirbæri
sem gerist aðeins á hundrað ára
fresti. Þetta er náttúrulegt eldskeið
móður náttúru og þegar vindarnir
blása svona verður það okkur um
megn, um tíma, að ráða niðurlög-
um þessa."
Erfiður dagur í dag
Spáð er heldur svalara veðri í
sunnanverðri Kaliforníu í dag.
Slökkviliðsmönnum er það mikill
léttir en um leið er ekki laust við að
þeir séu eilítið kvíðnir.
„Miðvikudagurinn gæti orðið
erfiður af því að kuldaskilin munu
valda því að hvassir vindar fara að
blása í norðurhluta rfldsins," sagði
Andrea Tuttle.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti hefur lýst yfir neyðarástandi í
fjórum sýslum á brunasvæðunum.
Þá mun Arnold Schwarzenegger,
nýkjörinn rfldsstjóri Kaliforníu,
hitta leiðtoga þingsins í Was-
hington í dag til að biðja um fjár-
hagsaðstoð sem ríkið á nú rétt á
vegna neyðarástandsins.
Schwarzenegger heimasótti
brunasvæðin á mánudag til að
kynna sér slökkviliðsstarfið af eigin
raun en eiginkona hans, Maria
Shriver, heimsótti athvarf fyrir fólk
sem hafði þurft að flýja að heiman.
Hjá Raymond Chandler
Heiti sunnanvindurinn sem hef-
ur gert allt slökkvistarf svo erfitt,
Santa Anas vindurinn, er einn af
föstu punktum lífsins í sunnan-
verðri Kaliforníu. í gegnum tíðina
hefur vindi þessum verið kennt um
allt sem aflaga fer, hvort heldur það
eru morð og önnur óáran eða sjúk-
dómar á borð við astma og exem.
Sögur og kvæði hafa verið samin
um vindinn, tákngerving ólgunnar
sem býr undir rólyndislegu yfir-
borði letilífsins á þessum slóðum.
Spennusagnahöfundurinn
Raymond Chandler er einn þeirra
sem hafa skrifað um Santa Anas
vindinn. í sögu sinni Rauðum vindi
lýsir hann Santa Anas sem vindin-
um sem „krullar á manni hárið,
gerir manni bylt við og fær mann til
að klæja".
Bílsprenqja varð f?sí!'*?ín9?a.r
sex að alourtila 10sl° ofundn,r
Enn varð mannfall í írak í gær
þegar sex manns biðu bana í
bílsprengju skammt frá lög-
reglustöð í Falluja.
Auk þeirra sex sem létust slösuð-
ust átta manns; allt óbreyttir borgar-
ar. Þá sprakk sprengja í borginni
Basra í gær. Breskur hermaður og
tveir óbreyttir borgarar særðust.
Sprengjuárásirnar í gær koma í kjöl-
far blóðugrar árásar á mánudag en
þá létust 35 manns þegar sprengjum
var varpað á höfuðstöðvar Rauða
krossins í Bagdad og þrjár lögreglu-
stöðvar. Auk þess var tilkynnt í gær
að bandarískur hermaður hefði fall-
ið á mánudag. Þar með hafa 114
RÚSTIR: Iraskir lögreglumenn og borgarar
virða fyrir sér rústir bílsins sem sprakk
skammt frá lögreglustöð (Falluja.
Sprengjan varð sex manns að aldurtila.
bandarískir hermenn fallið f Irak ffá
því Bush forseti lýsti yfir sigri þann 1.
maí síðastíiðinn. AIls létust 115
bandarískir hermenn í sjálfu stríð-
inu.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
efndi til blaðamannafundar í gær
þar sem hann sagði árásir á óbreytta
borgara í Irak ekki draga úr staðfestu
Bandaríkjanna. „Það ríkir hættu-
ástand í frak vegna þess að hryðju-
verkamenn vilja okkur burt," sagði
Bush meðal annars. Hann sagði
unnið að því að finna þá sem stóðu
að hinni mannskæðu árás f fyrradag.
Bandaríkjaforseti sagði jafnframt að
ekki stæði til að senda fleiri her-
menn til Iraks að svo stöddu.
Norska lögreglan telur að allt
að átta manns hafi tekið þátt t'
vopnuðu ráni í póstmiðstöð-
inni í Ósló á mánudagskvöld.
Eftirlitsmyndavélar náðu
myndum af ræningjunum og
er lögreglan að rannsaka þær.
„Við höldum áfram að fara yfir
málið en við erum með góðar
myndir," sagði rannsóknarlög-
reglumaðurinn Terje Kristiansen
við blaðið VG.
Heimildarmaður Aftenposten
segir að ræningjamir hljóti að
hafa þekkt vel til aðstæðna í póst-
miðstöðinni, bæði um húsnæðið
sjálft og starfsemina. Ein kenning
lögreglunnar er sú að ræningjarn-
ir hafi jafnvel mánuðum saman
njósnað um starfsemina með því
að þykjast vera póststarfsmenn.
Lögreglan kannar nú hvort
ræningjarnir hafi ef til vill komist
yfir teikningar af byggingunni
með því að hafa samband við
skipulagsskrifstofu Óslóarborgar.
I hverri viku fara hundruð millj-
óna íslenskra króna í gegnum
póstmiðstöðina. Lögreglan telur
að ræningjunum hafi orðið á í
messunni og að þess vegna hafi
þeim ekki tekist að hafa umtals-
verðan hluta þess fjár á brott.
Skotvopnum var beitt á flóttan-
um undan lögreglunni og talið er
að einn eða fleiri ræningjanna
hafi særst í átökunum.