Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2003, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 FRÉTTIR 11
Berst fyrir leiðtogasætinu
STJÓRNMÁL; Þingmenn
breska fhaldsflokksins
greiða atkvæði í dag um
vantraust á leiðtoga flokks-
ins, lain Duncan Smith. Alls
fóru 25 þingmenn flokks-
ins, af 165, fram á atkvæða-
greiðsluna. Duncan Smith
þarf stuðning meirihluta
þingmanna til að halda
leiðtogasætinu. Nái hann
því ekki verður efnt til leið-
togakjörs innan flokksins
og getur hann ekki boðið
sig fram. Hart hefur verið
sótt að Duncan Smith og
hann m.a. sakaður um
skort á persónutöfrum og
að valda ekki leiðtogahlut-
verkinu. Úrslit atkvæða-
greiðslunnar ættu að vera
kunn um sjöleytið í kvöld.
Leyniskýrslur
RANNSÓKN; GeorgeW.
Bush Bandaríkjaforseti
kvaðst í gær reiðubúinn að
láta nefnd, sem rannsakar
árásina 11. september 2001,
í té gögn úr Hvíta húsinu.
Um er að ræða leyniskýrslur
sem forsetinn fékk í kjölfar
atburðanna. Ekki verður þó
leyfður aðgangur að nema
hluta skýrslnanna.
Norðurland
SmÁauglýsingar §
Komdu með bílinn til okkar á
miðvikudögum milli 13.00 og
17.00. Þú getur pantað Ijós-
myndatíma í síma 696 2794 eða
með tölvupósti, akureyri@dv.is.
Við Ijósmyndum bílinn og
aðstoðum þig við textagerð.
Ekkert aukagjald, einungis 950
krónur hver birting.
Afgreiðsla DV er í Akureyri Centrum,
Hafnarstræti 94 (gegnt Bautanum).
Garmisch-Partenkirchen er staðsett við rætur Zugspitze
jökulsins í þýsku Ölpunum og hefur verið gestgjafi Ólympíuleika
og Heimsmeistaramóta. Garmisch er einnig ein aðal heilsulind
Þýskalands og þægilegt er að iáta dekra við sig í einni af
mörgum Spa-heilsulindum bæjarins eftir ánægjulegan dag
í skíðabrekkunum. í Garmisch er ríkt menningarlíf og mikið
úrval verslana og veitingastaða sem taka vel á móti skíðafólki
þegar hvíla á brekkurnar. Fararstjóri Terra Nova-Sólar er Gísli
Blöndal og verður hann hópnum innan handar.
!r0?|tebrúar-7
o . 19. februar -
o7 feb. - 5. ntars
MasterCard
Skíðaferðir með Terra Nova-Sól
■viku skíðaferð til Garmisch-Partenkirchen í þýsku Ölpunum
TERRA
NOVA
Stangarhyl 3 ■ HOReykjavík • Sími: 591 9000
info@terranova.is ■ Akureyri Simi: 466 1600
25 ARA OG TRAUSTSINS VERÐ
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um breytingu
á deiliskipulagi í Reykjavík
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýst til
kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagsáætlun í
Reykjavík:
Grafarlækur-Stekkjarmóar-Djúpidalur.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi vegna Grafarlæks-
Stekkjarmóa-Djúpadals, golfæfingaskýli og þjónustu-
bygging.
Tillagan gerir ráð fyrir að byggingarmagni á byggingarreit
e3 verði breytt úr 800m2 í 2000m2 og að mesta hæð
byggingar hækki úr 7,0m í 8,0 m frá neðstu gólfplötu.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og
byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
08:20 - 16.15, frá 29. október 2003 - til 10. desember
2003. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins,
skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að
gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og
athugasemdum við hana skal skila skriflega til skipulags-
fulltrúa eigi síðar en 10. desember 2003.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 29. október 2003.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur