Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2003, Blaðsíða 16
76 TILVBRA MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003
Tilvera
Fólk • Heimilið ■ Dægradvöl
Netfang: tilvera@dv.is
Sími: 550 5813-550 5810
Ekkert framhjáhald hjá Victoríu krydd
FRAMHJÁHALD: Fyrrum
kryddpían Victoría Beckham,
eiginkona knattspyrnugoðsins
Davids Beckhams, segist ekki
geta hugsað sér að halda fram
hjá eiginmanninum. Hún sé
svo yfir sig ástfangin af bolta-
stráknum að hún hafi ekki einu
sinni látið sér detta það í hug.
„Ég hef aldrei séð fallegri mann
en það getur verið af því að ég
er svo hrifin af honum. Ég hef
aldrei svo mikið sem hugsað
um einhvern annan eða látið
mér dreyma um það," sagði
Victoría sem segir eiginmann-
inn helsta ráðgjafa sinn um út-
lit og klæðaburð.
„Hann ráðleggur mér hverju ég
á að klæðast við mismunandi
tækifæri og segir mér líka
hvernig honum líkar hár-
greiðslan og förðunin. Ég
hlusta virkilega á það sem
hann segir," sagði Victoría.
Spurð um félagaskipti Davids
til Spánar sagðist hún hafa í
hyggju að flytja þangað. „Ég
mun setjast þar að og ferðast
til vinnu eftir því sem þarf og
börnin munu ganga í skóla í
Madríd þar sem fjölskyldan
mun búa," sagði Victoría.
TÖKUM LAGIÐ: Gömul skólasystkini úr Menntaskólanum á Akureyri tóku lagið saman.
Lengst til hægri á þessari mynd er Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Bændasam-
takanna, Þorsteinn Gunnarsson er fyrir miðju á þessari mynd og Árþóra kona hans stend-
ur honum á hægri hönd.
Aldarafmæli á Akureyri:
Kátína í Ketilhúsinu
ÞR[R íVEISLUNNI: Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður, Huginn Freyr, sonur Þorsteins,
og Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra.
á samkvæmið að skólasystkin þeirra
fjölmenntu í teitið og rifjuðu upp gaml-
ar minningar frá róttæknisárum þeirra
hjóna.
Forsetinn og frændinn
Herra Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti íslands, var á svæðinu. Hélt hann
ræðu þar sem hann gerði að umtals-
efrii samstarf sitt og Þorsteins á sviði
norðurskautsmála og hvemig Háskól-
inn á Akureyri hefði dafnað undir
stjóm Þorsteins og væri nú orðinn að
alþjóðlega viðurkenndu fræðasetri.
Ýmsir fleiri tóku til máls.
Veislustjóri var Trausti Þorsteinsson
á Dalvík, frændi Þorsteins, en þeir em
ættaðir frá Teigi í Vopnafirði.
Kátlegir hlutir
Sérstaka kátínu vöktu ræður bama
þeirra hjóna, Hugins og Sólveigar, sem
rifjuðu upp ýmsa kátlega huti úr lífi for-
eldra sinna. Raunar var þetta stór dag-
ur einnig hvað Hugin varðar því að
hann útskrifaðist fyrr um daginn með
BA-gráðu fr á Háskóla fslands.
sigbogKPdvJs
Hjónin Þorsteinn Gunnarsson, rektorHá-
skólans á Akureyri, og Árþóra Ágústs-
dóttir kennari héldu upp á 50 ára afmæli
sín í Ketilhúsinu á Akureyri sl. laugar-
dagskvöld. Jil þessa aldarafmælis buðu
þau vinum og vandamönnum og var
margt um manninn.
Þau Þorsteinn og Árþóra em stúd-
entar frá MA. Setti það talsverðan svip
REKTORINN OG FORSETINN. Þorsteinn
Gunnarsson og Ólafur Ragnar reifa mál og
ræða. Ljósm.: Bjarni Eiríksson.
ÁTALf: Hjónin Sigurður Þór Salvarsson fjölmiðlamaður og Guðrún Alda Harðardóttir, lekt-
or við HA, spjalla við forseta (slands, Ólaf Ragnar Grímsson.
RÚDOLF: Skarphéðinn Hjartarson, Þór Ásgeirsson, Sigún Þorgeirsdóttir og Soffía Stefánsdóttir.
Söngkvartettinn Rúdolf með nýja plötu
Söngkvartettinn Rúdolfhefur gefið út
þriðja geisladisk sinn sem ber nafnið
Allt annað. Á fyrri plötum kvartetts-
ins voru jólalög en á Allt annað
kveður við nýjan tón eins og nafnið
bendirtil.
DV hitti að máli Sigrúnu Þor-
geirsdóttur og Þór Ásgeirsson, sem
mynda helming kvartettsins, og
bað þau að lýsa tónlistinni á nýju
plötunni: „Lögin flokkast öll með
klassíkum dægurperlum fyrri ára,
íslenskum og erlendum. Við flytj-
um lögin án undirleiks - a cappella
- þar sem raddimar taka að sér
hlutverk hljóðfæra. Af íslenskum
lögum má heyra lög eins og
Tondeleyjó, Játning og í grænum
mó eftir Sigfús Halldórsson, Spil-
verkslagið Icelandic cowboy, Vím-
an eftir Magnús Eiríksson, Við
heimtum aukavinnu eftir Jón Múla
og Leyndarmál efir Þóri Baldurs-
son. Áf erlendum lögum má nefna
sænsku lögin Sá skimrande var
aldrig havet eftir Evert Taube og Uti
vár hage, Smile, A Nightengale
Sang in Berkley Square, Try to
Remember og Love Walked In.
Sungu fyrst í Bandaríkjunum
Rúdolf hefur verið starfandi í
rúm tíu ár: „Við höfum starfað með
hléum og höfum nánast alltaf
sungið án undirleiks. Við vorum í
Bandaríkjunum á sínum tíma og
þar kynntumst við söng sem þess-
um og unnum að hluta til fyrir okk-
ur með slíkum söng. Það er mjög
hentugt að syngja án undirleiks,
t.d. ekkert vesen með rafmagn. Við
verðum í staðinn að treysta á okkur
sjálf. Þegar við komum heim
ákváðum við svo að prófa þetta og
það vildi svo til að jólastemningin
stóð sem hæst og það kom eigin-
lega af sjálfu sér að við fórum að
syngja jólalög. í framhaldi af því
skírðum við okkur Rúdolf."
Jackson er hvítari en nokkru
Furðupopparinn Michael Jackson er
nú orðinn hvítari en nokkru sinni fyrr,
þótt blökkumaðursé, svo hvítur að
börn eru hrædd við hann.
„Það er engu líkara en hann hafi
dottið ofan í krítarkrukku," segir
heimildarmaður bandaríska blaðs-
ins Daily News í New York.
Sagt er frá því að á góðgerðasam-
komu hafi fjögurra ára krakka,
Kalien að nafni, brugðið svo við að
hitta popparann að hann hrökklað-
ist aftur á bak, dauðskelkaður við
þessa furðuveru.
Sjálfur hefur Michael Jackson
haldið því fram að hann þjáist af
húðsjúkdómi sem geri það að verk-
um að hörund hans upplitast, ef
svo má að orði komast.
„Maður á bágt með að trúa því að
Michael Jackson hafi einu sinni
verið svartur karlmaður. Núna lítur
hann út eins og furðuleg hvít
kona,“ segir heimildamaður
bandaríska dagblaðsins.
FURÐULEG KONA: Michael Jackson er eins
og furðuleg hvít kona en ekki eins og
svartur karlmaður, sem hann þó er.
ö' J&
r .j
| m
IM ,