Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2003, Side 17
MIÐVIKUDAGUR29. OKTÓBER 2003 TILVERA 17
Uma vill bjarga hjónabandinu
SKILINN: Kill Bill-stjarnan UmaThurman
reynir nú allttil þess að bjarga hjóna-
bandi sínu meðTraining Day-leikaranum
Ethan Hawke en þau hjónin slitu sambúð
fyrir mánuði eftir að hann varð uppvís að
ástarsambandi við kanadíska módelið
Jen Perzow. Thurman virðist ætla að taka
málið föstum tökum því að hún hefur
tekið sér frí frá öllum kvikmyndaleik
næstu mánuðina til þess að geta eytt
meiri tíma með eiginmanninum í við-
leitni sinni til þess að bjarga hjónaband-
inu. Sjálf segist hún tilbúin til sátta barn-
anna vegna en saman eiga þau tvö börn,
Mæju, fimm ára, og Roan, eins árs. „Ég er
nú með börnunum mínum og tilbúin til
þess að eyða haustinu í að reyna að
bæta sambandið. Eftir það ætla ég að
meta stöðuna," sagði Uma í nýlegu við-
tali en bætti við að þau Ethan ættu enn
eftir að setjast niðurtil þess að ræða mál-
ið.
tón ist
Halda nafninu
Kvartettinn fór fljótlega að fá beiðnir um
að koma ffam við ýmis tækifæri og það
leiddi af sjálfu sér að farið var að æfa alls
konar lög. „Við ákváðum samt að halda
nafninu, sem óneitanfega minnir á jólin."
Söngkvartettinn hefur reglulega allan
sinn feril komið fram á tónleikum víðsveg-
ar um landið og í útvarpi og sjónvarpi,
brúðkaupum, jarðarfömm og afmælum og
hefur Rúdolf fengið lofsamleg ummæli fyr-
ir vandaðan og jafnframt nýstárlegan flutn-
ing sinn á lögum sem flestum em mjög
kunn. Meðlimir Rúdolfs em: Sigún Þor-
geirsdóttir sópran, Soffla Stefánsdóttir alt,
Skarphéðinn Hjartarson tenór og Þór Ás-
geirsson bassi.
sinni fyrr
Klassískur vestri
— með snúninqi
KVIKMVNDAGAGNRÝNI
SifGunnarsdóttir
sif@dv.is
Kevin Costner hefur farið margar
rússíbanaferðir á ferli sínum sem kvik-
myndaleikari og leikstjóri og undanfar-
in ár hefur ferðin verið eiginlega sam-
fellt niður á við. En eitt verður ekki af
honum skafið og það er að hann kann
að gera góðan vestra. Open Range er
ekki stór, epísk og yfirdramatísk kvik-
mynd eins og Dansar við úlfa en hún er
grípandi og vel gerð að öllu leyti.
Sagan gerist í villta vestrinu árið
1882 þegar búið er að temja vestrið
heilmikið, mikið er orðið um stór-
bændur sem líta þá homauga sem
flakka um með nautahjarðir sem lög-
um samkvæmt mega vera á beit hvar
sem er. Duvall leikur Boss Spearman,
nautahirði af gamla skólanum, heiðar-
legan mann sem forðast illindi og er
seinþreyttur til vandræða. Með honum
ríðurCharley Waite (Costner) oghefur
gert í áratug. Til viðbótar em þeir með
tvo lærlinga, hinn risastóra og blíða
Mose (Benrubi) og stráklinginn Button
(Luna). Saman em þeir á leið yfir slétt-
umar með nautahjörð en rekast inn í
bæ þar sem landeigandinn Denton
Baxter (Gambon) ræður lögum og lof-
um - líka fógetanum. Baxter þolir ekki
nautahirða sem hleypa hjörðum sín-
um á beit hvar sem er þannig að hann
vill losa sig við Boss og félaga og hirða
hjörðina.
Open Range er klassfskur vestri en
með nútímasnúningi. Sagan erklassísk
- tveir óþekktir menn ríða inn í bæ þar
sem illmenni er við völd og frelsa bæ-
inn (ásamt fagurri konu) úr ánauð. En
frelsaramir em engar hetjur sem ríða
um hémð, Charley á svarta fortíð og
sjálfsmynd hans er veik en hann lítur
upp til Boss sem er ekki bara yfirmaður
hans heldur líka lærifaðir í siðfræði og
listinni að fyrirgefa. Cosmer hefur af-
skaplega næmt auga fyrir efninu og lífi
persónanna sem hann fjallar um. Það
mætti ef til vill kalla hann leikstjóra
hins smáa - smáatriðin lýsa persónun-
um betur en mörg orð, sem er gott því
ekki em þetta orðsins menn.
Val á leikurum hefúr tekist einstak-
lega vel í Open Range. Robert Duvall
nær fullkomlega utan um persónuna
Boss - hvað hann er töff, húmorískur
en líka viðkvæmur og þreyttur á flakk-
inu. Og dásamleg er senan þegar hann
er búinn að sætta sig við að þeir
Charley ætla að mæta margmenni í
byssubardaga og eyðir stórfé í að
kaupa svissneskt súkkulaði og vindla
frá Kúbu til að prófa eitthvað nýtt sinn
síðasta dag. Costner er sennilega aldrei
Laugarásbíó/Regnboginn
Open Range
★★★
betri en þar sem hann ber við himin á
hestbald, hann er algjörlega afslappað-
ur í hlutverki Charleys, byssumannsins
með samviskukvalimar, og samleikur
þeirra Duvalls er hlýr og persónulegur.
Anette Bening gerir mikið úr eina
kvenhlutverki myndarinnar og
Michael Gambon sver með írskum
hreim og er sannarlega illmenni.
Myndatakan er æðisleg, hvort sem
hún sýnir náttúrufegurðina, regn-
flæddan smábæinn, rómantík eða
átök. Reyndar er byssubardaginn í lok
myndarinnar einn sá besti og „raun-
verulegasti" sem ég hef séð, það er líkt
og maður finni sjálfúr fyrir skotunum.
Þeir sem geta legið löngum stund-
um yfir gömlum Wayne- og Cooper-
vestrum ættu að drífa sig f bíó, líka
vegna þess að Costner nær nýrri sýn á
gamla sögu. ekki ráða allir við það.
Leikstjóri.-Kevin Costner. Handrit:Craig Storper.
Kvikmyndataka:James Muro.Tónlist: Michael
Kamen. Aðalleikarar: Robert Duvall, Kevin
Costner, Annette Bening,Michael Gambon,
Michael Jeter, Diego Luna og James Russo.
CHARLEY CXS BOSS: Byssumenn sem snúa bökum saman gegn illmennum. Kevin Costner
og Robert Duvall.
VATNSFÆLI MONOSILAN
Prófað og uppfyllir kröfur RB 88-02
„Áhrif VATNSFÆLI á steinsteypu",
skýrsla nr. H/03 og H85/216, Type B,
og H/8445 216, Type C,
og seit undir nafni.
MUR SILAN 0G GRUN SILAN
VATNSFÆLNI ER OKKAR FAG
KISILL ehf.
Ananaustum 15, sími 551 5960,
101 Rvík, e-mail kisill@simnet.is
11
jV/Tí lla
i.Vl.11\JlW d.
Guftrún Kristjansdottir
Birkir IndriSasonÓskar
Dagur Eyjólfsson
Valdís Josefsdóttir
Elfeser ÞÓr JÓnsson
Guðbjörg Valdimarsdóttir
Rlmar Ingi Ólason
Kristfn Kara Jóhannsdóttir
Harpa Hrönn Stefónsdóttir
Sigurlaug Sunna Gunnarsdóttir
Krakkaklúbbur DV og Sam-film óskar vinningshöfum til hamingju.
_ . nóvember
ámMkL9og16.
Vinningartil vimingshafa úti á iandi veröa
KveSja. TÍgri og Kittý
kiúbht/f'
•A »±*A\
Pokemon 4
I Krafefeaklötetei BW
Hafþór Örn ÞÓrisson
TÓmas Tandri JÓhannsson
Stefón Kari (Egisson
ffigir Öjrn Sfmonarson
filma Omarsdóttir
ÞÓrður Þorsteinn ÞÓrSarson
guftrún Kristjónsdóttir
Isabella Mist Thomasdóttir
flnna Vilborg Omarsdóttir
Fannar MÓr Harftarson
Stefonía Sandra
Lydfa Yr Gunnarsdóttir
filexanderJ)agur Hilmarsson
Bergþóra Olöf Björgvinsdóttir
Stefón Heiftar fiuftunsson
Tinna BirnaBylqja firnarsdóttir
Silja Ros Holldórsdóttir
Snædfs LÍf Pólmadóttir
Jóhann Geir Hilmisson
Theodóra Guftnadóttir
Helena Svava Hjaltadóttir
0rna Karen Johannsdóttir
Iris Gunnarsdóttir
Inga Hermannsdóttir
Krakkoklúbbur DV oskar
vinningshöfum til homingju.
Vinningartil vinningáiafa verða sendir.
Kveftja. TÍgri og Kittý
A
★Gítarinn ni»t *★★★★★★★*★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
M Stórhöfða 27
1 sími 552-2125 og 895-9376
T www.gitapinn.is
gitarinn@gitarinn.is J
WbD.r] j>JóðJa£|ii£jj'fe)P
>dB
D£J
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
i
V