Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2003, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÚBER 2003 TILVERA 25
Spurning dagsins: Fylgistþú með fréttum?
Grímúlfur Finnbogason:
Já.
Asgeir Kristjánsson:
Stundum.
Helga Björnsdóttin
Já.
Ástrfður Rlkharðsdóttin
Oftast.
Adda Rún Jóhannsdóttin
Oftast,já.
Hulda Þorstelnsdóttin
Ofstast.
Stjörnuspá
Gildir fyrir fimmtudaginn 30. október
Myndasögur
VV MaXnsbetm (20. jan.-18.febr.)
—
Þú gætir átt í erfiðleikum í
samskiptum við fólk og það gerir þér
erfitt að nálgast þær upplýsingar sem
þú þarfnast. Reyndu að taka því rólega,
Lj Ó n Í ð (23. júll- 22. igúst)
Þín bíður gott tækifæri fyrri
hluta dagsins. Það gæti tengst
peningum á einhvern hátt. Þú hugar
að breytingum heima fyrir.
X Fistomifm febr.-20. mars)
Vertu orðvar, þú veist ekki
hvernig fólk tekur því sem þú segir.
Þú gætir lent í því að móðga fólk
eða misbjóða því.
Meyjan (22. ágúst-22. sept.)
Fólk gæti reynt að nýta sér
góðvild þína og þú verður að beita
kænsku til að koma í veg fyrir það
án þess að valda deilum.
T Hrúturinn (21.mars-19.aprn)
Þú minnist gamalla tíma í
dag og það tengist ef til vill endur-
fundum við gamla vini. Ef þú hyggur
á ferðalag er góður tími núna.
o
Vogin (23.sept.-23.okt.)
Það verða miklar framfarir á
einhverjum vettvangi í dag. Peninga-
málin valda-þér samt einhverjum
áhyggjum og erfiðleikum.
ö
Nautið (20. aprH-20.maí)
Þótt eitthvert verk gangi vel
skaltu ekki gera þér of miklar vonir. Nú
er tími breytinga og þú þráir að taka
þér eitthvert nýtt verkefni fyrir hendur.
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0v.)
Dagurinn verður góður og
þú gætir orðið heppinn í fjármálum.
Tíma, sem þú eyðir í skipulagningu
heima fyrir, er vel varið.
Tvíburamirp;. mal-21.júnl)
Dagurinn einkennist af ró-
legu andrúmslofti. Þú gætir þó orðið
vitni að deilum seinni hluta dagsins.
Það er lítið sem þú getur gert.
Bogmaðurinnf22.n&-2í.*ij
Vonbrigði eða óvæntar fréttir
gætu haft skaðleg áhrif á stöðu þína
fyrri hluta dagsins. Þú skalt því fresta
mikilvægum ákvörðunum þar til síðar.
Krabb'm (22. júní-22.júií)
Þú þarft að bíða eftir öðrum í
dag og vinna þín líður fyrir seinagang
annarra. Ekki láta undan þrýstingi
annarra í mikilvægum málum.
Steingeitin (22.des.-19.jan.)
Ekki treysta á aðra til að hjálpa
þér að halda loforð þín eða leysa verk-
efni fyrir þig.Treystu heldur á eigin
dómgreind og þá mun allt fara vel.
Krossgáta
Lárétt: 1 ragn, 4 barmur,
7 ráfl, 8 poka, 10 krafts,
12 beita, 13 káf, 14 dimm,
15 svelgur, 16 feriU, 18
pláss, 21 menn, 22 faðm-
ur, 23 reynsla.
Lóðrétt: 1 stía, 2 ðþétt, 3
hjálpfús, 4 skrýtlur, 5
eyri, 6 hrúga, 9 karl-
mannsnafn, 11 svipuð-
um, 16 vatnagróður, 17
hætta, 19 væta, 20 starf.
Lausn nelst i sltunni.
Hvíturáleik!
Þeir voru mai'gir af erlendu bergi
brotnir sem vélaðir voru til Islands
að tefla á fslandsmóti skákfélaga.
Einn þeirra var í sömu skáksveit og
ég, Frakkinn Igor-Alexandre Nataf.
Við tefldum báðir fyrir Vestmanna-
eyjar og Frakkinn var stórskemmti-
legur, stór og með mikið „lftið-fjör-
legt“ tagl, nýjasta karlmannatíska frá
París!? Sennilega litu einhverjar
meyjamar hann hým auga, hvað veit
ég. En Þröstur Þórhallsson lét sér fátt
um finnast og mátaði kappann. Það
er greinilegt að Þröstur er í ham um
þessar mundir og þegar sá gállinn er
á honum stenst honum fátt snúning.
Það er hið ánægjulegasta mál fyrir ís-
lenska skákhreyfingu því að Þröstur
teflir skemmtilega og er með margar
brellur venjulegast í farteskinu!
Hvítt: Þröstur Þórhallsson (2441)
Svart: Igor-Alexandre Nataf (2545)
fslandsmót skákfélaga 2002-03 (2),
25.10. 2003
41. Hxh4 Da6 42. Hhxh7+ og mát!
1-0
Lausn á krossgátu
UQI oz ‘B-4 61 ‘u3o it
‘J3S 91 ‘UltUtJt 11 ‘ni3a 6 ‘SOJf 9 ‘JIJ s ‘JBJBpUBjq ‘3nQ!lB5[IA 8 ‘JJ3I 3 ‘spq l UJQJQPl
•UUBJ 83 ‘Subj 88 ‘JBUing 18 ‘tutýj 81
‘QQIS 91 ‘BQ! Sl ‘5PIPP H ‘OU 81 ‘uSB 81 ‘SQB 01 ‘Jpias 8 ‘!J§!a L ‘JI!Jq i ‘Aioq i mqjpq
Hrollur
Andrés önd
Samtíðarmenn komnirút
DAGFARI
Kjartan Gunnar Kjartansson
kgk&dv.is
Samtíðarmenn Vöku - Helgafells
eru komnir út, eigulegt rit í tveimur
bindum og vönduðu bandi. Ritið
hefur að geyma myndir, æviágrip
og fjölskylduhagi sautján þúsund
einstaklinga sem borið hefur á í
fselnsku þjóðlífi á undanförnum
árum. Ekki veitir af góðu bókbandi
fyrir slíkt uppsláttarrit enda verður
það líklega mikið notað á mörgum
bæjum á næstu árum, ekki síður en
fyrri rit af svipuðum toga.
Við íslendingar höfum einlægt
þurft að vita deili á öllum þeim sem
kveða sér hljóðs eða ganga fram
fyrir skjöldu á einu eða öðru sviði.
Hverra manna þeir eru, hver fjöl-
skylda þeirra er, hvaðan þeir koma
af landinu og hver menntun þeirra
er og fyrri störf. Við erum stöðugt
að fjalla um slíka einstaklinga eða
hafa við þá samskipti, spyrja spurn-
inga um þá og viljum frá svörin sem
fyrst. Útgáfu sem þessari er ætlað
að svara þeirri þörf. Fyrsta almenna
talið í þessum flokki persónufræði-
rita eru íslenzkar æviskrár þar sem
fjallað er um ævir sigldra, íslenskra
manna frá landnámstímum til
1941, í samantekt Páls Eggerts Óla-
sonar.
Fyrstu eiginlegu samtíðarmenn-
irnir er ritið Hver er maðurinn? ís-
lendingaævir Brynleifs Tobiasson-
ar, útg. 1944. Síðan komu út ís-
lenzkir samtíðarmenn í samantekt
Jóns Guðnasonar og Péturs Har-
aldssonar, útg. 1965, þá Æviskrár
samtíðarmanna, Torfa Jónssonar,
útg. 1982, og loks Samtíðarmenn
Vöku - Helgafells, 1993 og nú 2003.
Ef að líkum lætur verða þessir
Samtíðarmenn lesnir sundur og
saman eins og forverar þeirra.