Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2003, Qupperneq 29
MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 DVSPORT 29
Ragnhildur á fimm yfir pari
Scholes frá í 3-4 vikur
Vassell til KTP
KÖRFUKNATTLEIKUR: Keith
Vassell, sem fékk íslenskt ríkis-
fang síðasta vor, hefur samið
við finnska félagið KTP um að
leika með því út tímabilið.
Vassell lék með Hamri á síð-
ustu leiktíð en þar á undan í
'nokkur ár með KR. Hann lék
sinn fyrsta leik með KTP um
helgina og skoraði 14stig og
þótti standa sig vel.
GOLF: Ragnhildur Sigurðar-
dóttir lék á vel á fyrsta degi úr-
tökumótsins fyrir Evrópumóta-
röð kvenna í golfi sem fram fór
í gær í Portúgal. Ragnhildur
byrjaði vel og lék fyrstu 11 hol-
urnar einstaklega vel og var á
pari eftir þær. Á 12. holu lenti
hún í hremmingum og fór
hringinn á 77 höggum eða
fimm yfir pari. Sigurður Péturs-
son, þjálfari Ragnhildar, var
ánægður með stelpuna á
fyrsta hring. „Hún var að spila
rosalega vel og er svona um
miðjan hóp eftir fyrri hringin,"
sagði Sigurður þegar DV náði
tali af honum í gær. Hann var
bjartsýnn á að Ragnhildur
myndi standa sig vel áfram
seinni daginn. „Þetta er spurn-
ing um spennustigið og ekkert
sem bendir til annars en hún
verði í góðum gír í dag þar
sem hún er vön."
Spurður út í vallaraðstæður
sagði Sigurður að völlurinn
væri einn sá fallegasti sem
hann hefði séð. „Þetta er mjög
fallegur og erfiður völlur. Hann
er stór og mikill gróður í kring.
Flöturinn er stór og erfitt að
lesa línuna."
KNATTSPYRNA: Paul Scho-
les, leikmaður Manchester
United, verður að öllum líkind-
um frá í 3-4 vikur vegna nára-
meiðsla sem hafa verið að
plaga hann á tímabilinu.
Scholes hefur þegar misst af
fjórum leikjum á þessu tímabili
vegna sömu meiðlsa og þarf
hann að fara í uppskurð á báð-
um nárum. Hann hafði tekið
sér hvíld um tíma og virtist
vera klár í slaginn en verður að
hvíla sig í 3-4 vikur til viðbótar.
Hann mun missa af deildar-
leikjum gegn Liverpool og
Chelsea í nóvember og einnig
leiknum gegn Rangers í meist-
aradeildinni. Þá er líklegt að
hann missi af vináttulandsleik
Englendinga og Dana.
n, þjálfarí ÍBV
verki hjá okkur, þetta er sú deild
sem við erum að spila í og við eig-
um eftir að bæta okkur, það er al-
veg á tæru."
Birkir ívar var ekki valinn í lands-
liðshópinn sem mætir Pólverjum
um helgina og kom það mönnum
nokkuð á óvart. Birkir segist vitan-
lega ekki sammála þessu vali lands-
liðsþjálfarans.
„Eina leiðin til að sýna að ég eigi
heima í liðinu er að standa mig á
vellinum. Ég tel mig sjálfan vera í
landsliðsklassa, ef ég gerði ekki það
héldi það sjálfsagt enginn en það er
ekki mitt að velja landsliðið. Ég get
þó tvímælalaust bætt mig og ég
ætla mér að vera í þeim landsliðs-
hópum sem fara á Evrópumótið í
janúar og á Ólympíuleikana í
haust." eirikurst@dv.is
h
Sigfús Sigurðsson fórí læknisskoðun í gær:
Fær ekki fulla
sjón á auganu
„Ég fékk bara góðar fréttir.
Þetta er ekki eins slæmt og það
hefði getað verið þannig að það
var lán í óláni að hafa sloppið
svona vel. Það er smáskekkja í
sjónlínunni sem réttist með
gleraugum eða linsu," sagði
Sigfús Sigurðsson, leikmaður
Magdeburg í Þýskalandi,
spurður út í stöðuna á auganu
en Sigfús varð fyrir því óláni að
fá putta í augað á dögunum.
„Ég var heppinn með það að fá
lófann í nefið og síðan á ská upp í
augað. Ef ég hefði fengið puttann
beint í augað þá hefði ég orðið
blindur á því auga á staðnum og
ferillinn líklegast búinn. Sem betur
fer slapp ég vel. Það er ekki orðið
ljóst hvenær ég má byrja að spila
aftur en ég fæ úr því skorið á mánu-
daginn eftir viku. Þá getur vel verið
að ég megi byrja strax.
Ég er með svona 60-65% sjón
eins og er og fæ væntanlega ekki
fulla sjón aftur. Ég er að vonast til
að fá svona 70-90% sjón aftur á
„Ég er að vonast til að
fá svona 70-90% sjón
aftur á augað
augað og þá kemur þetta ekki til
með að há mér neitt."
Spurður út í hvort hann hafi ekki
verið smeykur áður en hann fór í
skoðun í gær sagðist Sigfús hafa
verið bjartsýnn og jákvæður og ekki
hafa hræðst útkomuna.
„Ég hef þá kenningu að líta
jákvætt á hlutina." ben@dv.is
Fjórir sigrar
Stúdína í röð
unnu nýliða ÍR með 28 stigum, 81-53, í Kennaraháskólanum í gær
Stúdínur komust einar í topp-
sæti 1. deildar kvenna { gær
með 28 stiga sigri á nýliðum ÍR,
81-53, í íþróttahúsi Kennara-
háskólans. Þrátt fyrir góða
byrjun náði ungt og óreynt ÍR-
lið ekki að halda í við fS-liðið
sem leikur betur með hverjun
leik og vann i gær fjórða leik
sinn í röð.
ÍR-liðið virtist ætla að fylgja eftir
góðum sigri á Grindavík í upphafi
leiks og nýliðamir komust meðal
annars í 0-8 og fyrsta karfa Stúdfna
kom ekki fyrr en eftir þrjár og hálfa
mínútu. Eftir það komust ÍS-konur
í gang og um miðjan hálfleikinn
voru þær komnar með frumkvæð-
ið sem þær héldu út allan leikinn.
Stúdínur lögðu ofurkapp á að
loka á Eplunus Brooks í þessum
leik og hún komst lítið áleiðis enda
oft tví- eða þrfdekkuð. Á móti
vantaði meiri ákveðni í hinar í ÍR-
liðinu en þeim gekk illa að stilla
upp og það hjálpaði þeim ekki að
koma Brooks í góða stöðu undir
körfunni. ÍR-liðið var inni í leikn-
um í hálfleik en við slæma byrjun á
þeim seinni misstu þær trúna og
eftir það var leikurinn eign ÍS.
Það hefúr verið gaman að fylgj-
ast með uppsveiflu ÍS-liðsins, allt
frá því að það mátti þola slæmt tap
í Njarðvík í fyrsta leik. Síðan þá
hefur liðið leitóð betur með hveij-
um leik og mikið munar um að
lykilmenn liðsins, Alda Leif Jóns-
dóttir og Lovísa Guðmundsdóttir,
eru að fá góða hjálp frá félögum
sínum í sókninni. Sóknin, sem gekk
illa í byrjun móts, er farin að ganga
eins og smurð vél eins og sést á því
að fimm leikmenn eru að skora á
bilinu 10 til 15 stig í leiknum í gær.
Sóknin er farin að
ganga eins og smurð
vél eins og sést á því að
fimm leikmenn eru að
skora á bilun 10 til 15
stig í leiknum í gær.
Alda Leif Jónsdóttir átti mjög
góðan leik í gær, var ákveðnari en
fyrr í vetur og stjómaði leik liðsins
vel. Lovísa Guðmundsdóttir var
mjörg sterk í fyrri hálfleik en hitti
verr í þeim seinni en það kom ekki
að sök því þær Svandís Sigurðar-
dóttir, Svana Bjarnadóttir og Stella
Rún Kristjánsdóttir léku þá við
hvern sinn fingur. Bæði Svana og
Stella eiga mikinn þátt í beittari
sóknarleik ÍS-liðsins og auk góðra
stiga þá spilaði Svandís síðan frá-
bæra vöm á Brooks í gær.
ÍR-liðið hefúr sýnt á sér tvær
hliðar í upphafi móts og það sem
liðið vantar tilfmnanlega meira er
stöðugleiki í sitt lið. Heimaleikina
hefur ÍR þannig unnið sannfær-
andi en á útivöllum hefur liðið
mátt þola stór töp. ooj&dv.is
Staðan í delldinni:
(S 5 4 1 317-278 8
Njarðvík 4 3 1 253-221 6
Keflavík 4 2 2 331-281 4
(R 5 2 3 308-351 4
KR 413 246-273 2
Grindavík 4 1 3 220-271 2
Næstu lelkin
Njarövík-Keflavík mlð. 29. okt. 19.15
Grindavík-KR fim. 30. okt. 19.15
KR-lR lau. 8.nóv. 16.00
Grindavík-Keflavík lau. 8. nóv. 17.15
fS-Njarðvík mán. 10. nóv. 19.30
Flest stlg aö meðaltali:
Andrea Gaines, Njarðvlk 23,5
Hildur Sigurðardóttir, KR 21,0
Birna Valgarðsdóttir, Keflavík 18,0
Eplunus Brooks, (R 17,2
Sólveig Gunnlaugsd., Grindavlk 15,3
Díana Jónsdóttir, Njarðvík 14,0
Erla Þorsteinsdóttir, Keflavlk 12,3
Stella Rún Kristjánsdóttir, (S 12,0
Lovísa Guðmundsdóttir, IS 11,6
Gréta Mar Guðbrandsd., Njarðvík 11,5
Flest fráköst að meðaltall:
Eplunus Brooks, IR 18,0
Hildur Sigurðardóttir, KR 12,5
Andrea Gaines, Njarðvík 12,0
Lilja Oddsdóttir, KR 10,3
Svandls Sigurðardóttir, (S 9,8
Flestar stoðsendlngar að meðaltali:
Alda Leif Jónsdóttir, (S 6,4
Andrea Gaines, Njarðvík 6,3
Erla Reynlsdóttir, Keflavík 5,0
Hildur Sigurðardóttir, KR 4,8
Svava Ósk Stefánsd., Keflavík 4,3
ÍS-ÍR
81-53 (37-31)
Dómarar:
Aron Smári Barber
og Reginn H. Ketilsson
6/10
Gæði ieiks:
7/10
Ahorfendur:
50
Maður leiksins:
Alda Leif Jónsdóttir, IS
Gangur leiksins:
0-8, 5-8, 5-10,9-10, 9-12,17-12, (22-17),
24-17, 32-19, 35-23, 35-31, (37-31),
41-31,52-37, (59-42), 59-43, 69-45,
74-48,74-52,81-52,81-53.
Stig skoruð (Frákðst) Stoðsendingar
Alda Leif Jónsdóttlr 15(5) 11
Svana Bjarnadóttir 14(9)0
Lovlsa Guðmundsdóttir 13 4
Stella Rún Kristjánsdóttir 12 (3) 2
Svandls Anna Siguröardóttir 10(10) 1
Guðrún Baldursdóttir 8(4)3
Hafdls Helgadóttir 7:0
Hrafnhildur Kristjánsdóttir 2(0)2
Jófrlður Halldórsdóttir 0(2)2
Stig skoruð (Fráköst) Stoðsendingar
Eplunus Brooks 12(13)2
Ragnhildur Guðmundsdóttir 10(2)0
Kristrún Slgurjónsdóttir 8(2) 1
Eva María Grétarsdóttir 7(0)3
Rakel M. Viggósdóttir 5(2)2
Hrefna Dögg Gunnarsdóttir 5(3)0
Bryndís Gunnlaugsdóttir 4(0) 1
Kristín Þorgrlmsdóttir 2(7)0
Sara Sædal Andrésdóttir 0(2)3
43 (23) FrAköst (sókn) 31 (8)
Svandis 10, Svana 9 - Brooks 13
25 Stoösendlngar 12
Alda Leif 11, Lovlsa 4 - Eva 3, Sara 3
23 Stolnir boltar 11
Alda Leif 7, Svandfs 5 - Ragnhildur 4
3 Varln skot 1
Lovísa 2, Svandís 1 - Brooks 1
17 Tapaðlr boltar 33
24/7 (29%) 3ja stlga skot 8/2 (25%)
10/6(60%) Vftanýting 25/13 (52%)
——
IÍTÍ