Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2003, Page 30
30 DVSPORT MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER2003
Island tekur boði Mexíkós
KNATTSPYRNA: fslenska
karlalandsliðið mun að öllum
líkindum leika vináttulandsleik
við Mexíkó 19. nóvember en
samkomulag náðist í gær á
milli þjóðanna.
KSÍ á þó enn eftir að fá svar frá
félögum íslensku leikmannana
sem leika í Evrópu en Logi
Ólafsson landsliðsþjálfari sagði
í samtali við DV að hann ætti
ekki von á því að það yrði
neinn vandamál að fá flesta þá
leikmenn sem óskað yrði eftir í
leikinn. „Þetta er nánast frá-
gengið.
Við erum búnir að senda inn
beiðnir á þau félög sem okkar
strákar leika með og ég reikna
ekki með að það verði neitt
vandamál að fá þá í þennan
leik. Það er mikilvægt að fara
með þá leikmenn úr þeim
kjarna sem við Ásgeir höfum
verið að vinna með. Reyndar
eru Þórður Guðjónsson, Eiður
Smári Guðjohnsen og Loker-
en-bræður búnir með kvótann
en það er okkar skilningur hjá
KSÍ að það þurfi ríka ástæðu
fyrir því að banna mönnum að
fara í svona leik á alþjóðlegum
leikdegi.
Það er frábært tækifæri að fá
að spila við þjóð eins og
Mexíkó sem er eins léttleikandi
og raun ber vitni. Leikmenn
liðsins eru mjög svo teknískir.
Það er ekki oft sem við fáum
að leika við svona þjóð og því
er þetta mjög spennandi verk-
efni," sagði Logi.
Mexíkó er í 8.-10. sæti á styrk-
leikalista FIFA ásamt ftalíu og
Tyrklandi og því engir aukvisar
sem íslenska liðið etur kappi
við. Leikurinn fer fram í Banda-
ríkjunum, nánar tiltekið í San
Francisco.
Líklegt þykir að Mexíkanar
verði vel studdir þrátt fyrir að
leikurinn verði í Bandaríkjun-
um en margir landar þeirra
búa á þessu svæði.
USA fellur
KNATTSPYRNA: Islenska
kvennalandsliðið er í 17. sæti á
styrkleikalista FIFA en þetta er í
þriðja sinn á þessu ári sem list-
inn er gefinn úr. Á meðal Evr-
ópuþjóða er Island í 10. sæti
en Þýskaland er komið í efsta
sæti eftir að hafa orðið Heims-
meistari á dögunum á kostnað
Bandaríkjanna.
Lftill vinskapur á milli tveggja skærustu stjarna Los Angeles Lakers, Shaquille O'Neal og Kohe Bryant:
Shaq er enginn leiðtogi
Kobe Bryant gagnrýnir Shaq eftir að sá síðarnefndi kallaði Lakers sitt lið
LITLIR KÆRLEIKAR: Það eru litlir kærleikar á milli stórstjarnanna tveggja, Kobe Bryant og Shaquille O'Neal, þessa dagana og gengur
skítkastið á milli þeirra. Reuters
Það ríkir lítill vinskapur á milli
stórstjarnanna Kobe Bryants og
Shaquille O'Neal hjá Los Angel-
es Lakers þessa dagana. Þessir
tveir frábæru leikmenn hafa oft
lent upp á kant hvor við annan
en steininn tók úr á sunnudag-
inn þegar tvímenningarnir
rifust heiftarlega. í kjölfarið
lýsti O'Neal því yfir að Lakers-
liðið væri hans lið en Bryant
svaraði honum í gær þar sem
hann gagnrýndi Shaq harka-
lega og sagði furðulegt að
þetta væri hans lið þar sem
hann væri enginn leiðtogi.
Forsaga málsins er sú að O'Neal
sagði við blaðamenn á föstudaginn
að Bryant ætti að senda boltann
meira á meðan hann væri að koma
sér í form í stað þess að fara alltaf
sjálfur eins og hans er vani.
Bryant, sem er að jafna sig eftir
aðgerðir á hné og öxl í sumar, var
ekki sáttur við orð félaga síns og
sagðist alveg örugglega ekki þurfa
leiðsögn á þvi hvernig hann ætti að
spila, ekki einu sinni frá O’Neal.
„Ég veit hvernig ég spila mína
stöðu. Hann getur haft áhyggjur af
því hvernig hann spilar inni í teign-
um, öðru ekki,“ sagði Bryant.
O’Neal gaf litið fyrir ummæli
Bryants og sagði að á meðan Lakers
væri liðið sitt þá segði hann sína
skoðun.
Lakers er liðið mitt
„Það vita allir að Lakers er liðið
mitt. Ef hann þolir þá staðreynd
ekki þá getur hann bara farið,”
sagði O’Neal og vísaði til þess að
Bryant hyggst notfæra sér klásúlu í
samningi sínum við Lakers og
verða laus allra mála frá félaginu
næsta sumar, hugsanlega til að fá
betri samningi annars staðar.
O’Neal sagðist þó ekki hafa mikl-
ar áhyggjur af því að þessa orrahríð
félaganna hefði áhrif inni á vellin-
um.
„Ég hef engar áhyggjur af því. Ég
er hér til að vinna. Ef hann er frír þá
gef ég á hann og ég ætlast til að fá
boltann frá honum þegar ég er frír.
Mér er nákvæmlega sama hvað
hann hann gerir utan vallar og ég
veit að honum er nákvæmlega
sama hvað ég geri. Það eina sem ég
fer fram á við hann er að hann spili
fyrir liðið,” sagði O’Neal.
Kobe Bryant tók þessum orðum
Shaq ekki þegjandi og hljóðalaust
þegar hann var spurður út í þau í
viðtali á vefsíðunni espn.com.
Blaðamaðurinn Jim Gray spurði
hann út í þau orð Shaq að Lakers
væri hans lið og allir vissu það.
Öllum sama hver á þetta lið
„Það skiptir ekki máli hver á
þetta lið. öllum er sama. Mér er
sama, Karl (Malone) er sama, Gary
(Payton) er sama og öðrum leik-
mönnum liðsins og stuðnings-
mönnum er sama. Það er meira til í
lífinu heldur en að vera aðalmaður-
inn í Lakers-liðinu. En ef þetta er
hans lið þá er kominn tími til fyrir
hann að haga sér þannig. Það þýðir
því lítið fyrir hann að mæta í æf-
ingabúðir fyrir tímabilið feitur og
ekki í formi þegar liðið reiðir sig á
forystuhlutverk hans innan vallar
sem utan. Það þýðir þá ekkert fyrir
hann að kenna alltaf öðrum um ef
illa gengur hjá liðinu eða kenna
starfsmönnum um að gera ekki
meira úr meiðslum hans til að
hann geti falið hvað hann er í lélegu
formi. Að auki þýðir það að hann
verður að axla ábyrgð á tapi með
jafn glöðu geði og hann axlar
ábyrgðina á meistaratitli," sagði
Bryant.
Undarlegur leiðtogi
Hann var síðan spurður að því
hvort hann teldi Shaq vera leiðtoga.
„Leiðtogar væla ekki um nýjan
samning og reyna að þvinga fram
30 milljóna dollara árslaun í fjöl-
miðlum þegar tvær stórstjörnur
[innsk. blm. Karl Malone og Gary
Paytonl spila nánast frítt. Leiðtogi
heimtar ekki boltann í hverri sókn
þegar þrír aðrir leikmenn [innsk.
blm. Malone, Payton og Bryant]
spila með honum ásamt öðrum
leikmönnum sem hafa staðið í eld-
línunni með honum í mörg ár og að
auki hóta leiðtogar ekki að hætta að
spila vörn og taka fráköst ef þeir fá
„Ég hefspilað handar-
brotinn, með tognaðan
ökkla, rifinn axlar-
vöðva, brotna tönn,
saumaða vör og ónýtt
hné og þarfekki ráð-
leggingar frá manni
sem missti affimmtán
leikjum vegna tá-
meiðsla sem allir vissu
að voru ekki alvarleg."
ekki boltann í hverri sókn."
Bryant var síðan spurður út í þær
ásakanir Shaqs að hann spilaði ekki
fyrir liðið.
„Það er bara bull. Ég hef fórnað
mínum leik fyrir Shaq í mörg ár.
Það var það sem Phil Jackson vildi
að ég gerði. Jackson bað mig um að
bera uppi sóknarleikinn hjá liðinu
á síðasta ári þar sem Shaq var ekki í
formi til þess og þess vegna gerði ég
það á tímabili. Það fór hins vegar
ekki vel í Shaq að hann var ekki að-
almaðurinn í sóknarleiknum hjá
okkur og þá bað Jackson mig um að
stíga til baka sem ég gerði. Hlutverk
mitt innan liðsins er eingöngu það
sem Phil Jackson segir mér- annað
ekki.”
Þarf engin ráð frá honum
Aðspurður um þá skoðun Shaqs
að hann þyrfti að breyta leik sínum
á meðan hann jafnaði sig fullkom-
lega á meiðslunum sagði Bryant að
hann þyrfti ekki á ráðleggingum
hans að halda.
„Ég hef spilað handarbrotinn,
með tognaðan ökkla, rifinn axlar-
vöðva, brotna tönn, saumaða vör
og ónýtt hné og þarf ekki ráðlegg-
ingar frá manni sem missti af
fimmtán leikjum vegna támeiðsla
sem allir vissu að voru ekki alvar-
leg,” sagði Bryant.
Það má mikið vera ef þetta verða
síðustu orðaskipti þeirra félaga og
getur þessi orrahríð ásakana varla
verið til þess að hjálpa liðinu í
undirbúningi sínum fyrir tímabilið
sem hófst í nótt. oskar@dv.is