Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2003, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 DVSPORT 3 7
Ármann Smári farinn frá Val
KNATTSPYRNA: Ármann
Smári Björnsson, sem leikið
hefir með Val, er genginn í rað-
ir FH-inga og mun án efa
styrkja Hafnarfjarðarliðið
næsta sumar. Ármann Smári
var með uppsagnarákvæði í
samningi sínum við Val ef liðið
myndi falla og ákvað að nýta
sér það.
„Mig langar að prófa eitthvað
nýtt og FH er góður kostur.
Það eru spennandi tímar hjá
félaginu þar sem liðið spilar í
UEFA. Sú keppni getur verið
stökkpallur fyrir mann upp á
að komast í atvinnumennsku.
Þessi ákvörðun mín er tekin í
fullu samráði við Val og von-
andi skilja Valsmenn að ég vilji
spila í efstu deild," sagði Ár-
mann Smári.
Spurður út í hvaða stöðu hann
komi til með að spila með FH
sagði Ármann Smári að hann
myndi spila þá stöðu á vellin-
um sem hann yrði settur í.
„Það skiptir mig engu máli
hvort ég er settur í vörnina eða
látinn spila í framlínunni.
Stefnan hjá mér er að vinna tit-
il með FH og annað er auka-
atriði.
Guðni Rúnar eftirsóttur
KNATTSPYRNA: Guðni Rúnar
Heigason, leikmaður Vals, er
orðaður við nokkur félög fyrir
næsta sumar, enda engin furða
að önnur félög sýni stráknum
áhuga þar sem hann átti mjög
gott sumar. Guðni Rúnar vildi
þó ekki gera mikið úr því að
önnur félög væru að sækja eft-
ir hans þjónustu.
„Það hafa engin félög talað við
mig en stjórn Vals hefur heyrt
frá einhverjum liðum. Ég er
sallarólegur yfir þessu öllu. Ef
ég fer frá Val þá verður það ein-
ungis sem lánsmaður og færi
síðan aftur í Val þegar liðið yrði
komið aftur í efstu deild. Ann-
ars er ekkert tiltökumál fyrir
mig að spila í 1. deild næsta
sumar," sagði Guðni Rúnar.
Úrslit í nótt:
Philadelphia-Miami 89-74
Allen Iverson 26 (11 stoðs.), Kenny
Thomas 15, John Salmons 10,
DerrickColeman 10, Aaron McKie
10 - Dwayne Wade 18, Eddie
Jones 15 (8 stoðs.), Brian Grant 13.
San Antonio-Phoenix 83-82
Tim Duncan 24 (12 frák.), Malik
Rose 12, Ron Mercer 11, Anthony
Carter 10 - Stephon Marbury 24,
Shawn Marion 20, Jake Voskuhl 10
(9 frák.), Amare Stoudamire 10.
LA Lakers-Dallas 109-93
Gary Payton 21 (9 stoðs., 7 frák.),
Devean George 16 (7 frák.), Derek
Fisher 16, Shaquille O'Neal 16 (9
frák.), Karl Malone 15(10 frák., 9
stoðs.), Bryon Russell 10, Luke
Walton 5, Jannero Pargo 5, Horace
Grant 3, Kareem Rush 2 - Dirk
Nowitzki 19(13 frák.), Antoine
Walker 19, Antawn Jamison 17,
Michael Finley 12, Steve Nash 8,
Tony Delk 7, Josh Howard 4,
Shawn Bradley 4, Eduardo Najara
2, Marquis Daniels 1.
DEILDA81KARINN 1
ENGLAND
J
Arsenal-Rotherham 1-1
Jeremie Aliadiere (11.)- Darren
Byfield (90.).
Blackpool-Crystal Palace 1-3
Keith Southern (88.) - Andrew
Johnson (24.), Dougie Freedman,
(víti 62.), Andrew Johnson (87.)
Bristol City-Southampton 0-3
- James Beattie (31.), Brett Ormer-
od (67.), Graeme Le Saux (89.)
Leeds-Manchester United 2-3
Jose Vitor Roque Junior (49.,114.),
- David Bellion (78.), Diego Forlan
(108.), Eric Djemba-Djemba (117.)
QPR-Manchester City 0-3
- Shaun Wright-Phillips (22., 77.),
Jonathan Macken (79)
Wolves-Burnley 2-0
Kenny Miller (48.), Jody Craddock
(81.)
Bolton-Gillingham 2-0
Stelios Giannakopoulos (25.), Hen-
rik Pedersen (66.)
Reading-Huddersfield 1-0
Nicky Forster (83.)
i . D E i L D
ENGLAND
-■%
J
Cardiff-Watford 3-0
2 . d E I L D
ENGLAND
i
Barnsley-Wrexham 2-1
1 . D E 1 L D
SPÁNN :i
Úrslit:
Real Zaragoza-Real Madrid 0-0
Staða:
Deportivo 8 7 0 1 19-6 21
R. Madrid 9 6 2 1 20-9 20
Valencia 8 6 1 1 14-3 19
Osasuna 8 4 2 2 10-7 14
R. Betis 8 3 4 1 12-9 13
Sociedad 8 3 3 2 9-7 12
Barcelona -8 3 3 2 8-7 12
Santander 8 3 2 3 12-10 11
A. Bilbao 8 3 2 3 10-8 11
Sevilla 8 2 5 1 11-10 11
Villarreal 8 2 5 1 10-9 11
Málaqa 8 3 1 4 9-12 10
A. Madrid 8 3 1 4 7-12 10
Valladolid 8 3 1 4 11-17 10
CeltaVigo 8 2 3 3 11-11 9
Zaragoza 9 2 2 5 6-10 8
Murcia 8 1 3 4 7-13 6
Albacete 8 2 0 6 8-13 6
Mallorca 8 1 2 5 7-15 5
Espanyol 8 0 2 6 7-20 2
Samtals
BREYTiNGAR HJA LEEDS
HRIKALEGT TAP: John McKenzie,
stjórnarformaður Leeds, kynnti
ársreikning féfagsins i gær en hann
sýndt tap upp a rúma sex milljarða
á síðasta ári.
Seldir:
Rio Ferdinand til Man. Utd 33
Jonathan Woodgate til Newc. 8
Robbie Fowler til Man. City 7,5
Robbie Keane til Tottenham 6
Oliver Dacourt til Roma 3
Lee Bowyer til West Ham 0
Samtals 57,5
Allar upphæðir í millj. punda
Keyptir:
Jody Morris frá Chelsea 0
Leeds birti ársreikning sinn fyrir árið 2002 í gær:
Rúmlega sex milljarða tap
Veltan minnkaði um 21% og skuldir félagsins nema um tíu milljörðum
Enska úrvalsdeildarfélagið
Leeds birti í gær ársreikning
sinn fyrir tímabilið 1. júlí 2002
til 30. júní 2003. Ekki er hægt að
segja að ársreikningurinn hafi
verið glæsileg lesning því að
hann sýndi tap upp á rúma sex
milljarða fyrir skatta sem er
versta afkoma í sögunni hjá
ensku knattspyrnufélagi.
John McKenzie, stjórnarformað-
ur félagsins, tilkynnti þetta á blaða-
mannafundi í gær en hann hefur
barist við að koma fjárhag félagsins
á réttan kjöl síðan hann tók við af
Peter Ridsdale.
Velta félagsins minnkaði um 21%
á milli ára og var 8,2 milljarðar,
tekjur af sjónvarpsútsendingum
minnkuðu um 36% og skuldir fé-
lagsins jukust um 13 milljónir upp í
rúmlega tíu milljarða þrátt fyrir að
leikmenn eins og Rio Ferdinand,
Jonathan Woodgate, Robbie
Fowler, Robbie Keane og Oliver
Dacourt væru seldir frá félaginu.
Launakostnaður jókst um 387
milljónir þrátt fyrir að allir þessir
leikmenn væru seldir og er nú um
88% af heildarveltunni. Þar er fé-
lagið komið út á hálan ís því að flest
ráðgjafarfyrirtæki hafa bent á að
Velta félagsins minnk-
aði um 21% á milli ára
og var 8,2 milljarðar
það sé ómögulegt að reka félag þar
sem launakostnaður nemur meira
en 2/3 af heildarveltu.
McKenzie reyndi samt að vera
bjartsýnn á fundinum og sagði að
félagið væri loksins farið að sjá ljós
í enda ganganna.
„Okkur hefur tekist að minnka
kostnað um 2,6 milljarða á þessu
ári og endurskipulagt á meðal
stjórnenda okkar. Við munum ekki
þurfa að selja leikmenn þegar leik-
mannamarkaðurinn verður opn-
aður á nýjan leik í janúar þannig að
liðið ætti að vera f stakk búið til að
berjast í úrvalsdeildinni," sagði
McKenzie en Leeds er í næstneðsta
sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Ekki sök McKenzie eða Reid
John Boocock, formaður stuðn-
ingsmannafélags Leeds, vildi ekki
kenna McKenzie eða Peter Reid,
knattspyrnustjóra liðsins, um
ástandið.
„Það hafa engar áætlanir verið
gerðar hér á undanförnum árum og
félagið er að súpa seyðið af því
núna. Það situr uppi með skuldir
sem eru óviðráðanlegar og það hef-
ur að sjálfsögðu áhrif á félagið. Það
eru líka vandamál á vellinum en
það er ekki hægt að kenna Peter
Reid um það. Hann erfði þetta frá
David O’Leary líkt og McKenzie
sem þarf að hreinsa upp skítinn eft-
ir Peter Ridsdale," sagði Boocock.
„Það hafa engar áætl-
anir verið gerðar hér á
undanförnum árum og
félagið er að súpa
seyðið afþví núna."
Á sama tfma var tilkynnt að
Trevor Birch, fyrrum yfirmaður
knattspyrnumála hjá Chelsea,
myndi taka við sama starfi hjá
Leeds 1. nóvember næstkomandi.
Menn binda miklar vonir við Birch
og sagði McKenzie að þar færi
maður með mikla þekkingu og
reynslu á stjórnun knattspyrnuliðs.
Hans bíður mjög erfitt verkefni,
sennilega það erfiðasta á starfsferl-
inum.
oskar@dv.is
Lánleysi Leeds heldur áfram
Stuðningsmenn Leeds
United máttu þola ýmis-
legt í gær sem þeir vilja
gleyma sem allra fyrst.
Snemma dags komu fréttir
þess efnis að félagið væri
skuldugt upp fyrir haus og
um kvöldið máttu þeir
horfa á Eric Djemba-
Djemba, leikmann
Manchester United, slá
Leeds út úr deildarbikarn-
um, 2-3, með marki í lok
framlengingar og von-
brigðin leyndu sér ekki í
leikslok.
Mark Djemba-Djemba
kom aðeins þremur mín-
útun eftir að Leeds hafði
jafnað 2-2. Staðan eftir
venjulegan leiktíma var
1-1. Peter Reid, stjóri
Leeds, bar sig þó vel að leik
loknum. „Þetta var tæpt.
Þetta var frábær knatt-
spyrnuleikur. Ég er mjög
vonsvikinn með dómara
leiksins en mér finnst að
hann hafi rænt okkur víta-
spyrnu. Strákarnir eru
mjög svekktir en við höld-
um áfram. Þeir stóðu sig
frábærlega í leiknum og
lukkan mun snúast með
okkur fyrr en seinna, við
verðum að halda áfram að
leggja hart að okkur."
Arsenal má þakka fyrir
að vera komið áfram eftir
að hafa sigrað Rotherham í
vítaspyrnukeppni, 9-8.
Arsene Wenger hvíldi sína
bestu menn og er greini-
lega ekki að leggja mikia
áherslu á þessa keppni.
Ólafur Ingi Skúlason var á
bekknum hjá Arsenal en
kom ekki inn á.
Guðjón Þórðarson og
lærisveinar hans hjá
Barnsley unnu góðan
heimasigur gegn Wrexham
í 2. deildinni í gærkvöld og
náðu í þrjú dýrmæt stig.
ben@dv.is