Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2003, Page 32
MIÐVIKUDACUR 29. OKTÓBER2003
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR 550 55 55 Við tökum við fréttaskot- um allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 kr. Fullrar nafnleyndar er gætt. Rekstrarþjónusta Oruggur rekstur tölvukerfa TÖLVUMIÐLUN sími: 545 5000 ■ www.tm.is
I DÓMI MÓTMÆLT: Viooó Siourðsson
mótmælir hér dómi í leik (R og Hauka
fyrr í mánuðinum á ansi skrautlegan
máta. (forgrunni á myndinni er (R-
ingurinn HannesJón Jónsson.
DV-mynd Valli
/
LOG HSÍ
Eftirfarandi greinar fjalla um
heimild framkvæmdastjóra HS( að
vísa til aganefndar ummælum
Viggós Sigurðssonar eftir leik
Hauka og (R.
Ummæli Viggós Sigurðssonar inn á borð til aganefndar HSÍ:
Mun svara fullum hálsi
9.14.
Stjórn eða framkvæmdastjóra HS(
er heimilt að vísa til úrskurðar
aganefndar atvikum sem skaðað
geta ímynd
handknattleiksíþróttarinnar eða
þeirra sem þátt taka í leiknum. Slík
atvik hafa þá ekki komið fram í
atvikaskýrslu dómara eða
eftirlitsmanns á kappleikjum en
geta verið hvers kyns ósæmileg
framkoma á leikstað eða á annan
hátt opinberlega.
9.15.
Framkvæmdastjóri skal skila
greinargerð til aganefndar ásamt
gögnum máli sínu til staðfestingar
sem málsaðilar skulu fá afrit af.
Málsaðilum skal gefinn kostur á að
skila skriflegri greinargerð fyrir
næsta fund aganefndar. Ef
aganefnd telur að um ósæmilega
hegðun hafi verið að ræða skal
nefndinni heimilt að úrskurða
viðkomandi eftir eðli brotsins.
Félag viðkomandi leikmanns eða
starfsmanns er ábyrgt fyrir
sektargreiðslum.
Viðurlög geta verið eftirfarandi:
a) áminning
b) ávítur
c) sekt að upphæð kr. 30.000
d) leikbann
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdarstjóri HSÍ, vísaði um-
mælum Viggós Sigurðssonar í
fjölmiðlum, þeirra á meðal DV,
inn á borð til aganefndar sem
hefur tekið málið til umfjöllun-
ar. Viggó gefur lítið fyrir það og
segist ætla að svara fyrir sig.
„Við erum í raun að fara í gegn-
um þennan feril í íyrsta skipti,"
sagði Einar. „Reyndar kom svipað
mál til aganefndar eftir mótslok í
vor og þótti þeim þá ekki ástæða til
að aðhafast vegna þeirra um-
mæla.“
Málsatvik eru þau að Viggó Sig-
urðsson sakaði dómara leiks ÍR og
Hauka, sem fyrrnefnda liðið vann
með 6 marka mun, að vinna gegn
Haukum í leiknum og reyndar
fleiri leikjum sem dómararnir, Ant-
on Gylfi Pálsson og Hlynur Leifs-
son, hafa dæmt á undanförnum ár-
um. Þá lét hann það í veðri vaka að
þeir dómarar væru settir á flesta þá
(eiki sem væru fyrirfram tvísýnir hjá
Haukum.
Aganefnd fundaði í gær og mun
nú væntanlega biðja Hauka um að
skila greinagerð um málið. For-
ráðamenn liðsins hafa tvo daga til
þess. Að því loknu verður tekin
ákvörðun en viðurlagaheimildir
aganefndar eru tíundaðar hér til
hliðar á síðunni.
Þá hefur dómaranefnd HSI
einnig tekið málið til umfjöllunar,
„Ég lít á það sem grín ef
þeir ætla sér að beita
mér einhverjum sektum
eða leikbanni. Ég vísa
hér í landslög og mun
svara öllu slíku fullum
hálsi."
en þá aðeins það sem snýr að
.henni. Sú nefnd getur þó ekki beitt
neinum viðurlögum.
„Ég hef fullt mál- og tjáningar-
frelsi," sagði Viggó Sigurðsson þeg-
ar hann var inntur eftir viðbrögð-
um við umfjöllun aganefndar um
málið. „Alltaf virðast menn rjúka
upp til handa og fóta þegar ég tjái
mig og það sýnir á hvaða leikskóla-
velli þessir me'nn eru. Ég stend fast
við það sem ég sagði því mynd-
bönd af leikjum Hauka þar sem
Anton og Hlynur dæma sýna
hvernig er í pottinn búið.
Ef það á að vera verkefni aga-
nefndar að vernda dómara vegna
ummæla þjálfara eftir að leik er
lokið er það misskilinn vettvangur
og hafa þeir ekki nokkurn skapað-
an hlut með það að gera,“ sagði
Viggó. „Og þessi umræða um að
þetta sé skaðlegt fyrir íþróttina er
auðvitað bara híægileg," bætti
hann við.
/
Kem af fjöllum
„Ég kem af fjöllum að aganefnd
skuli vera að fjalla um þetta mál.
Eru þessir dómarar hafnir yfir
landslög? Má ekki gagnrýna störf
þeirra?
Ég lít á það sem grín ef þeir ætla
sér að beita mig einhverjum sekt-
um eða leikbanni. Ég vfsa hér í
landslög og mun svara öllu slíku
fullum hálsi. Það er alveg klárt,"
sagði Viggó.
eirikurst@dv.is
/
/
/
/
Veðrið á morgun
Vffi 8-13m/s. Él um landið norðanvert en annars léttskýjað að mestu. Hiti í
kringum frostmark sunnan til að deginum en annars 0 til 6 stiga frost.
©
-3
-3
<8
Veðriðídag
10)
*
s
10)
Veðrið kl. 6 i morgun
Sólarlag
■ kvöld
Rvik 17.22
Ak. 16.58
Sólarupprás
á morgun
Rvík 09.03
Ak. 09.59
Síðdegisflóð
Rvík 21.07
Ak. 13.03
Árdegisflóð
Rvík 08.40
Ak.01.40
Akureyri
Reykjavík
Bolungarvik
Egilsstaðir
Stórhöfði
Kaupmannah.
Ósló
Stokkhólmur
London
Barcelona
NewYork
Parfs
Winnipeg
snjókoma
léttskyjað
skýjað
skýjað
léttskýjað
þokumóða
skýjað
rignmg
léttskýjað
rigning
þokmóða
alskýjað
0
0
0
0
2
4
2
8
7
15
13
1
-3
Sm Áauglýsingar ^
550 5000 ^