Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2003, Blaðsíða 48
Fréttaskot Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða
er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5090
. SKAFTAHLÍÐ 24 105 RBYKJAVÍK [ STOFNAÐ 7970 ] SÍMI5505000
Didda 39
" -,,Ég er búin að skipta við
Krumma son minn á afmælis-
degi. Hann fæddist um kvöld-
matarleytið á .
aðfangadag og
fólk hefur haft
tiltölulega lítinn
áhuga á afmæl-
inu hans hingað
til. Mér finnst
hins vegar fínt
að eiga afmæli þá,“ segir lista-
konan Didda sem er 39 ára í
dag. „Ég ætla að nota daginn í
að fara í afmælisveislur ann-
arra. Ég veit um nokkrar," seg-
ir Didda sem er nýbakaður
Eddu-verðlaunahafi fyrir leik
sin í kvikmyndinni Storm-
viðri.„Mér finnst fínt að hafa
náð þessum aldri því ég bjóst
aldrei við að verða nema sext-
án. Það voru allir búnir að
segja mér að maður dræpist
þá. En nú veit ég að fjörið byrj-
ar fyrst á næsta ári því þá verð
ég fertug," segir afmælisbarn
dagsins.
Eg er 25!
Vitleysingar Þjóðin plötuð
Fólk er dásamlegt. En þjóðir
geta verið vitlausar. Sést best þegar
fyrstu og stundum einu snjókorn
vetrarins falla. Þá skipta allir um
dekk á bílunum sínum. Setja jafn-
vel nagla í sem skemma göturnar.
Árlegur viðburður og skiptir þá
engu hvort hálka er þann veturinn
eða ekki. Væri svo sem í lagi ef um-
gangurinn af dekkjunum kostaði
ekki 40 þúsund krónur. Og þetta
gera allir.
Þetta er svona í þrjá til fjóra
daga á ári sem hálkan er til ama í
höfuðborginni. Þjóðin gæti sparað
milljarða með því að sitja heima þá
daga eða nota bara leigubíla. I
staðinn fyrir að kaupa ný dekk. Á
landsbyggðinni þyrftu kannski
sumir betri dekk yfir veturinn. Alla
vega sjúkrabflarnir og brunabíll-
inn. Sveitafólkið getur að skað-
lausu setið heima í glerhálkunni
þessa fáu daga og örfáu svellbung-
ur vetrarins.
Vetrardekkin eru þó smámál á
við viðbótariífeyrissparnaðinn
sem unnið hefur hug og hjörtu
flestra. Sjálfur býst ég ekkert frekar
við að fá eitthvað úr lífeyrissjóðn-
um mínum þegar þar að kemur. En
Á bakinu með Eiríki Jónssyni
viðbótarsparnaðurinn
mylla fjáraflamanna af
gerðum. Prívat og opinberra.
Tryggingafræðingurinn minn
búinn að reikna út að með því að
taka þátt í myllunni skerðist ráð-
stöfunartekjur meðalmanns um
tæpar fimm þúsund krónur á mán-
uði. Þegar umsýsluþóknun sjóðs-
ins, skattur ríkisins og annað hefur
verið klipið af er ávinningurinn
948 krónur. Fólk heldur hins vegar
að það sé að græða 15 þúsund.
Framlag launþegans sjálfs stendur
undir 92,7 prósentum af heildar-
tölunni en framlag annarra er að-
eins 7,3 prósent. Segir trygginga-
fræðingurinn. Hann kann að reik-
na.
Verst af öllu er að í skilmálum er
tekið fram að rekstur viðkomandi
sjóða sé óviss og ávöxtunin líka. Það
ætti að vera auðvelt að verja fimm-
þúsundkallinum sem í þetta fer
mánaðarlega í eitthvað arðvæn-
legra. Þetta eru miklir peningar
þegar upp er staðið. En þeir fara í
eitthvað annað en lífeyri þess sem
borgar. Þetta er eiginlega vitlausara
en nagladekkin. Og allir dansa með.
r*
Metsölulisti
Penninn Eymundsson
26. nóv.
Bilarnir okkar
■
Kynningarverö
7-990 kr.
fullt
verð
980
Gildir
aramota
Fyrsta bók sinnar tegundar á íslandi. Saga bílsins og þjóðarinnar
rakin í máli og myndum frá 1904 til nútímans.
• Um 1000 Ijósmyndir
• Yfir 300 síður
• Ómetanlegur Ijósmyndafjársjóður í fyrsta sinn fyrir
augu almennings
• Frumkvöðlarnir, aksturshetjurnar og trökkdræverarnir
• Frásagnir af svaðilförum, skondnum uppákomum
og dagsins önn
Höfundar eru Örn Sigurösson, fyrrverandi formaður Fornbílaklúbbs
íslands og Ingibergur Bjarnason.
4. sæti
Almennt efni