Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2003, Blaðsíða 39
DV Sport
LAUGARDAGUR 29. NÚVEMBER 2003 39 *
Duff fagnar marki Damien Dufffagnar hér marki sinu gegn Lazio ímeistaradeildinni ásamt Geremi, Wayne Bridge og John Terry.
írski landsliðsmaðurinn Damien DufF
segir leikinn gegn Manchester United
vera mikla prófraun fyrir Chelsea-liðið
Viljum vinna
meistarana
írski landsliðsmaðurinn Damien
Duff er þess fullviss að leikmenn
Chelsea muni spila betur gegn
Manchester United á morgun
heldur en gegn Sparta Prag á
miðvikudaginn í meistaradeildinni
þar sem liðið gerði markalaust
jafntefli á heimavelli.
„Við vitum það allir að við getum
spilað betur heldur en við gerðum á
miðvikudaginn og það er öruggt að
við verðum að gera það efvið ætlum
að eiga einhvern möguleika gegn
Manchester United," sagði Duff við
fjölmiðla í gær.
Krafan er sigur
„Það eyðir enginn 150 milljónum
punda í leikmenn til þess að hafna í
öðru sæti. Við viljum vinna allar
keppnir og alla leiki sem við tökum
þátt í. Það er frábært að vera hluti af
jafnöflugum leikmannahópi og er
hjá Chelsea í dag en við gerum okkur
grein íyrir því að kröfurnar eru sigur
og ekkert annað í hverjum leik sem
við spilum."
Duff sagði að það væri óvenjulegt
að spila svokallaðan sex stiga leik
svona snemma á tímabilinu.
„Við gerum okkur grein íyrir því
hvað er undir. Leikurinn kemur
kannski ekki til með að skera úr um
hver endanieg staða liðanna verður í
vor en úrslit hans geta skipt miklu
máli upp á framhaldið. Hann er
ákveðinn prófsteinn á hversu langt
Chelsea-liðið er komið á þeirri braut
að verða topplið," sagði Damien
Duff.
Setjum pressu á okkur
„Við setjum mikla pressu á sjálfa
okkur og sú staðreynd að menn voru
mjög niðurlútir eftir leikinn við »
Sparta Prag, þar sem við náðum ekki
að vinna, sýnir karakterinn í liðinu
og metnaðinn sem leikmenn liðsins
hafa til að ná alla leið á toppinn. Ef
við ætlum okkur á toppinn þurfum
við að vinna leiki gegn bestu liðum
ensku úrvalsdeildarinnar
Manchester United er án nokkurs
vafa eitt þeirra," sagði þessi snjalli
íri.
oskar&dv.is
Tveir sigursælustu þjálfarar íslenskra boltaíþrótta, Viggó Sigurðsson, þjálfari íslandsmeistara Hauka í
handknattleik, og Willum Þór Þórsson, þjálfari íslandsmeistara KR í knattspyrnu, spá í spilin fyrir
stórleik helgarinnar á milli Chelsea og Manchester United. Viggó er stuðningsmaður Manchester United
en Willum styður Chelsea.
Viggó Sigurðsson, þjálfari
íslandsmeistara Hauka í hand-
knattleik, er eldheitur stuðnings-
maður Manchester United. Hann
var staddur á flugvellinum í Vín í
gær þegar DV Sport náði í hann, á
leiðinni til Skopje í Makedóníu þar
sem Haukar mæta Vardar í
meistaradeildinni. Viggó sagðist
ekki búast við að sjá leikinn gegn
Chelsea en þeir Páll Ólafsson,
aðstoðarþjálfari hans, myndu leita
„Chelsea er með frábært lið,
heimsklassaleikmenn í öllum
stöðum, en í dag er það
sundurleitur hópur stjarna sem
ekki þolir pressuna sem myndast
þegarlið eru í toppbaráttunni."
allra leiða til að sjá hann.
„Ég veit ekki hvort hann er
sýndur í ríkissjónvarpinu í Make-
dóníu en þetta er leikur sem ég vildi
helst ekki missa af,“ sagði Viggó.
Aðspurður sagði hann að
leikurinn legðist vel í sig.
„Þetta verður öruggur sigur
minna manna. Ég spái því að hann
endi 3-1 fyrir Manchester United og
það mun ekki koma til með að
skipta máli að leikurinn er á
Stamford Bridge, heimavelli
Cheisea," sagði Viggó.
Mun heilsteyptara lið
Hann sagði enn fremur að ensku
meistararnir væru með mun
heilsteyptara lið heldur en Chelsea
og það myndi gera gæfumuninn.
„Chelsea er með frábært lið,
heimsklassaleikmenn í öllum stöð-
um, en í dag er liðið sundurleitur
hópur stjarna sem ekki þolir
pressuna sem myndast þegar lið eru
í toppbaráttunni. Lið Manchester %
United er mun heilsteyptara,
leikmenn liðsins hafa miklu meiri
reynslu og ég treysti þeim til að klára
Chelsea."
Viggó sagði að hann væri mjög
ánægður með gengi liðsins það sem
af væri tímabilinu.
„Ég verð að viðurkenna að mér
leist ekkert á blikuna þegar Alex
Ferguson tók þá ákvörðun að selja
David Beckham en Ferguson hefur
tæklað það vandamál eins og öll
önnur. Hann hefúr leyst brotthvarf
Beckhams á snilidarlegan hátt og ég
sé ekkert því til fyrirstöðu að liðið
verji meistaratitilinn ívor. Leikurinn
á morgun er prófsteinn á liðið og
það mun standast prófið."
Öruggur sigur minna manna
Chelsea hefur allt að sanna
Willum Þór Þórsson, sem stýrt
hefur KR-ingum til Islands-
meistaratitils í efstu deild í knatt-
spyrnu undanfarin tvö ár, er ákafur
stuðningsmaður Chelsea og hefur'
fylgst með rússnesku byltingúnni
hjá Abramovich á Stamford Bridge
af miklum áhuga. Willum Þór mun
væntanlega fylgjast með leiknum á
morgun en annars verður hann
upptekinn við að stýra sínum
mönnum í íslandsmótinu innan-
húss sem fram fer um helgina.
Vaxandi að undanförnu
„Ég hlakka mikið til að sjá
þennan leik. Chelsea-liðið hefur
gengið í gegnum miklar breytingar á
undanförnum árum; margir
frábærir leikmenn hafa gengið til
liðs við félagið og þótt
spilamennskan hafi, eðli málsins
samkvæmt, ekki verið mjög stöðug
þá hefur liðið verið vaxandi að
undanförnu. Það er kominn meiri
stöðugleiki í það, og ég held að
lykillinn að þessum stöðugleika sé
innkoma Frakkans Claude Makalele
á miðju liðsins. Hann hefur fært
liðinu festuna og stjörnurnar í
kringum hann blómstra.
Hafa allt að sanna
Varðandi leikinn gegn
Manchester United sagðist Willum
Þór hafa fulla trú á sínum mönnum.
„Ég held að þessi leikur sé eins og
úrslitaleikur fyrir leikmenn Chelsea.
Þeir hafa allt að sanna og þurfa að
sýna að þeir geti unnið Manchester
United og Arsenal sem standa á milli
þeirra og titilsins. Ég Ég hef fulla trú
á mínum mönnum og tel að þeir
vinni nokkuð öruggan sigur, 2-0.
oskar@dv.is
„Ég held að þessi leikur sé
eins og úrslitaleikur fyrir
leikmenn Chelsea - þeir
hafa allt að sanna."