Helgarblaðið - 07.02.1992, Side 7
Helgar 1 blaðið
Of snemmt að gagnrýna
Þorkell Helgason, aðstoðar-
maður heilbrigðisráðherra,
sagði að of snemmt væri að
gagnrýna niðurskurðinn þar
eð hann lægi ekki endan-
lega fyrir. Ekki væri búið að
ákveða hvað gert yrði við
safnliðinn svo kallaða, þ.e.
þær 500 miljónir sem
greiða á til baka af flata nið-
urskurðinum.
Hann sagði að ráðuneytið væri
að fara yfir spamaðarhugmyndir
spitalanna og að þar kæmi margt
ágætt í ljós.
Þorkell viðurkenndi að sumar
tillögur fælu í sér samdrátt í bækl-
unarlækningum, en þá væri ekki
gert ráð fyrir peningum úr saín-
liðnum. „Við vitum að þessi hætta
er fyrir hendi en auðvitað förum
við þannig í gegnum þetta að fyrst
tökum við spamaðarleiðimar sem
ekki leiða til skerðingar á þjón-
ustu,“ sagði Þorkell. „Það er auð-
vitað ekki skynsamlegt að spara
eyrinn núna og kasta krónunni á
næsta ári,“ sagði Þorkell um þann
kostnað sem hlýst af því að spara
bæklunarlækningar og endurhæf-
ingu. Hann sagði að ekki væri víst
hvort safnliðurinn dygði til þess að
ekki þyrfti að koma til niðurskurð-
ar á þjónustu. Það yrði bara að
koma i ljós.
Hann viðurkenndi líka að sú
hætta væri fyrir hendi að spítalar
reyndu að auka sértekjur sinar,
sem aftur myndi auka kostnað
Tryggingastofnunar. Þó benti hann
á að slíkt gæti fækkað innlögnum
og sparað þjóðfélaginu á þann hátt.
„Við gemm okkur grein íyrir
þessu, en stofnunum hættir nú líka
til að mála skrattann á vegginn,"
sagði Þorkell.
Ráðuneytið ætlar sér tíma til 15.
febrúar til að fara yfir tillögur spít- um króna sem átti að veija til sam-
alanna og til að útdeila 500 miljón- einingar Landakots og Borgarspít-
unum og einnig þeim 250 miljón- ala. Það mál er alveg ófrágengið.
skipulagslaust
ur á einum stað í heilbrigðiskerfinu
veldur oflast auknum kostnaði ann-
arsstaðar og því er spamaður oft
enginn ef á heildina er litið,“ segir í
yfirlýsingunni. Þorvaldur Veigar
sagðist líta það mjög alvarlegum
augum að til stæði að draga úr bækl-
unaraðgerðum og endurhæfingu -
en hvorttveggja spararþjóðfélaginu
fé samkvæmt fjölda rannsókna.
Vandi spítalanna er hinsvegar sá að
velja verður á milli þess að skera
niður þessa þjónustu eða bráðaþjón-
ustuna.
Minni endurhæfing
Dæmi um spamað sem verður
dýrari þegar til lengri tíma er litið er
niðurkurðurinn og breytingamar á
Grensásdeild Borgarspítalans.
Grensás er endurhæfmgardeild og
ásamt bæklunardeildum spítalanna
liggur hún best við spamaði. Það er
hinsvegar dýrara fyrir þjóðfélagið í
heild sinni því skjótur bati þessara
sjúklinga sparar þjóðfélaginu miklar
fúlgur.
A Grensásdeild em 60 rúm. Nú
stendur til að flytja 19 sjúklinga af
Heilsuvemdarstöðinni þangað og
síðan að flytja sjúklinga af Hvíta-
bandinu á Heilsuvemdarstöðina.
Hvítabandið nýtist síðan Geðdeild-
inni sem sparar sér dýrt leiguhús-
næði. Þannig sparast eitt útibú og
kemur það fram sem spamaður
Borgarspítalans í ár. Áhrifin em
margvísleg og benti Sigrún Knúts-
dóttir, formaður starfmannaráðs
Borgarspítalans, á að á undanföm-
um ámm heföi Heilsuvemdarstöð-
inni verið breytt á þann veg að hún
líktist meira heimili en sjúkrastofn-
un, enda mest langlegusjúklingar
þar. Margir þeirra sjúklinga þurfa að
færa sig um set á miklu sjúkralegri
stofnanir, fólk sem bjóst við að ljúka
ævidögum sínum á Heilsuvemdar-
stöðinni.
Þetta er ekki skemmtileg spamað-
arleið en öllu alvarlegra er það með
Grensásdeildina.
„Það stendur sem sagt til að
minnka deildina um þriðjung," sagði
Einar Már Valdimarsson, taugasér-
ffæðingur á Grensásdeild. „Við
skiljum ekki með nokkm móti að
það sé spamaður að því að hálflania
Grensásdeildina. Okkur virðist þetta
brjóta gjörsamlega í bága við mark-
miðið sem á að vera spamaður í
heilbrigðiskerfinu. Eg held að end-
anleg niðurstaða verði sú að Borgar-
spítalinn framleiði fleiri hjúkmnar-
sjúklinga. Þannig að það er enginn
spamaður í þessu fyrir þjóðfélagið.
Þvert á móti tapar þjóðfélagið á
þessu. Okkur er þetta algerlega
óskiljanlegt og það hefur enginn ffá
þessari deild verið haföur með í ráð-
um. Það má vera ljóst að spara megi
í krónum fyrir Borgarspítalann með
því að skera niður starfsemi og
fækka deildum, en þjóðfélagið spar-
ar ekkert á því. Spítalinn myndi
spara langmest með því að loka al-
veg og fá í staðinn eignarhlut í Is-
lenskum aðalverktökum," sagði Ein-
ar Már.
Lengri legutími
Hann sagði að flestir á deildinni
væm heilablóðfallssjúklingar, þá
sjúklingar sem orðið heföu fyrir
slysi eða skaða á heila eða tauga-
kerfi og loks þeir sem kæmu í end-
urhæfmgu eftir ýmisskonar beinbrot.
Einar Már sagði að sýnt heföi verið
ótvírætt fram á það með rannsókn-
um að batahorfur þessara sjúklinga
yltu á því að þeir fengju virka og al-
hliða endurhæfingu, helst strax á
fyrsta degi. Hann benti á að á Grens-
ásdeildinni væri sérhæföur hópur
fólks sem fylgdist með sjúklingum
frá því þeir kæmu á bráðavakt á
Borgarspítalanum og þangað til eflir
að þeir væm famir heim. Heilablóð-
fallssjúklingar þurfa ofl iðjuþjálfun,
sjúkraþjálfun og talþjálfun og því
fyrr sem hafist er handa því betri
verður árangurinn og því betri sem
árangurinn verður því minni kostn-
aður fyrir þjóðfélagið. Margir sjúk-
linganna verða aftur nýtir þjóðfé-
lagsþegnar.
Einar Már sagði að ef þrengt yrði
að deildinni væri ljóst að ekki yrði
hægt að flytja þessa sjúklinga strax
af slysadeild upp á Grensásdeild.
Því myndi hópur þeirra safnast sam-
an á langlegudeildinni á Borgarspít-
alanum án þess að fá eins virka end-
urhæfingu. Þannig myndu þessar
spamaðaraðgerðir ekki stytta legu-
tímann á spítalanum, auk þess sem
batahorfur sjúklinganna versnuðu og
kostnaður þjóðfélagsins ykist. Borg-
arspítalinn gæti hinsvegar sparað
nokkrar krónur í ár - enda væri hon-
um skylt að gera það. Alþingi heföi
þegar samþykkt fjárlög.
Tilfærslur innan
ríkisins
Önnur leið sem verður farin til að
ná fram spamaði er að auka sértekj-
ur. Þannig ætlar Borgarspítalinn til
dæmis að ráða tvo sjúkraþjálfara
sem munu taka fólk utan úr bæ í
þjálfun og greiðslur Tryggingastofn-
unar fyrir það munu renna til spítal-
ans. Spamaðurþjóðfélagsins af
þessu verður enginn. í heild ætlar
Borgarspítalinn að auka tekjur sínar
um tæpar 30 miljónir króna á þenn-
an hátt og fækka þannig 200 miljón-
unum sem spítalanum er gert að
spara.
Með þessu gætu til dæmis biðlist-
ar í sjúkraþjálfun styst. En á meðan
myndu biðlistamir lengjast á bækl-
unardeildinni, svo dæmi sé tekið.
Þetta lýsir því hvemig flati niður-
skurðurinn leiðir til þess að hver
reynir að bjarga sér. Sjúkrahús úti á
landi munu senda sjúklinga í aukn-
um mæli til stóm spítalanna í
Reykjavík. Þó sagði Þorkell að spít-
alinn á Siglufirði segðist geta sparað
án þess að senda fólk suður. Reykja-
víkursjúkrahúsin reyna að hagræða,
til dæmis með því að fá auknar tekj-
ur ffá Tryggingastofnun ríkisins.
Endastöðin er svo Landspítalinn, en
þar hafa enn ekki verið teknar
ákvarðanir um hvemig eigi að mæta
niðurskurðinum. Búið er að ákveða
almennan niðurskurð sem á að skila
100 miljónum þó að Þorvaldur
Veigar telji erfitt að ná þetta miklum
spamaði. Þá em eftir 300 miljónir
króna. Stjómamefnd Ríkisspitala
telur sig ekki geta tekið ákvörðun
fyrr en búið er að ganga ffá því hvað
verður um bráðaþjónustu Landa-
kotsspítala sem leggja á niður.
Þorvaldur Veigar sagði að Land-
G. Pétur Matthíasson
skrifar
spítalinn gæti ekki tekið við þessu
án aukinnar fjárveitingar og sama
sagði Sigríður Snæbjömsdóttir
hjúkrunarforstjóri um Borgarspítal-
ann. Hún sagði að eflaust væri hægt
að spara með því að sameina bráða-
þjónustuna en að það yrði ekki gert
nema til kæmi fjámiagn til að auka
starfsemina á Borgarspítalanum.
Hún benti á að nú væri hvert rúm
skipað, auk þess sem búið væri að
koma upp aukagjörgæslu á öðmm
deildum spítalans. Þá vantaði tæki
og tól til að hægt væri að sinna auk-
inni bráðaþjónustu. Aukafjárveiting
til spítalanna vegna þess hlýtur að
mirmka spamaðinn af því að skera
Landakotsspítalann niður um 38
prósent.
Sigríður sagði að í sjúkrahúsmál-
um væri erfitt að vera að hugsa ein-
ungis vikur eða mánuði ffam í tím-
ann. Líftími ríkisstjóma væri auk
þess of stuttur. „Það verður að hugsa
að minnsta kosti fimm ár fram í tím-
ann,“ sagði hún.
Hagræðingu tekur nokkuð langan
tíma að ná fram. Sigríður sagði að
nú væri reynt að herða sultarólina
sem ffekast mætti, til dæmis með
því að gera starfsfólk meðvitaðra
um kostnað, reyna að nýta fólkið á
sem bestan hátt, taka upp breytta
þjónustu með til dæmis fimm daga
deildum. Þá sagði hún að reynt væri
að fara þá leið að skipuleggja vem
sjúklings á spítalanum þannig að
sem minnst yrði um dauðan tíma.
„Þetta hefur leitt til mikils spamaðar
víða erlendis,“ sagði Sigriður.
Hún taldi hinsvegar, likt og flestir
aðrir sem Helgarblaðið ræddi við, að
þessi spamaður yrði ekki tímabund-
inn einsog ráðamenn heföu á orði.
„Það verður örugglega klipið meira
af okkur en mögulegt er áffam,"
sagði Sigríður. Hún taldi vænlegra
að fara aðrar spamaðarleiðir, svo
sem að auka heimahjúkrun sem gæti
stytt legutímann á sjúkrahúsunum.
Þorvaldur Veigar benti hinsvegar
á að hagræðing heföi átt sér stað hin
síðustu ár sem heföi leitt til styttri
legutíma hvers sjúklings. Kosmaður
heföi hinsvegar aukist vegna þess að
spítalamir sinntu fleiri verkefnum,
til dæmis hjartaaðgerðum. í þeim
aðgerðum er fólginn spamaður fyrir
þjóðfélagið því það er ódýrara að
gera þær hér á landi en að senda fólk
til útlanda. Auk þess benti hann á að
við hagræðingu á Landspítalanum
ykist kostnaðurinn. Vegna þess að í
hagræðingu felst að legutíminn er
styttur og spítalinn ræður þannig við
fleiri sjúklinga en ella, og hann bætti
því við að fyrstu dagamir væm dýr-
astir. Sjúklingamir á spítölunum em
þar af leiðandi veikari en áður og
þurfa meiri þjónustu og dýrari, sagði
Sigrún. Þannig að því hagkvæmari
sem spítalinn er, því dýrari verður
hann sjálfur þótt kostnaður þjóðfé-
lagsins minnki fyrir vikið.
Heilsugæslan
Heilbrigðisráðuneytinu hefur ver-
ið gert að spara á fjórða miljarð
króna í ár með flata niðurskurðinum
og öllu. Þar í er til dæmis lyfjakostn-
aðurinn sem frægur er orðinn. A
sjúkrahúsunum er um að ræða flatan
niðurskurð upp á 700 miljónir
króna, auk um 400 miljóna króna
niðurskurðar á Landakoti, og niður-
skurðar á St. Jósefsspítala og fleiri
spítölum út á landi.
I spamaðarskyni var lagt á 600
króna gjald fyrir heimsókn á heilsu-
gæslustöð, auk hækkunar á ýmsum
öðmm gjöldum. Katrín Fjeldsted er
læknir á Heilsugæslustöðinni í Foss-
vogi. Hún var ekki viss um að þetta
myndi leiða til nokkurs spamaðar.
Hún benti á að heilsugæslustöðin
þyrfti að verða sér úti um sjóðvél og
beina línu við greiðslukortafyrirtæk-
in. Þetta þýddi mjög aukna vinnu
hjá ritumnum og væri þröngt fyrir.
Þá sagði hún að þessi breyting hlyti
að kalla á endurskoðun á launum rit-
aranna sem nú ynnu líkt og gjaldker-
ar án þess að fá greitt gjaldkerakaup.
Auk þess bjóst hún ekki við að það
væri hægt að bjóða ritumnum upp á
svona mikið vinnuálaga nema í
stuttan tíuma. Þótt nú gilti ráðninga-
bann hlyti að koma að því að bæta
þyrfti við stöðum. Þá væri spamað-
urinn af því að taka upp þetta gjald
orðinn hæpinn.
Katrín benti einnig á í því sam-
bandi að ekki ætti að ráða afleys-
ingalækna, sem þýddi að ef til vill
300 læknisheimsóknir þyrffu að
dreifast á hina læknana. Þeir gætu
ekki tekið við öllu þannig að einhver
hópur færi til sérffæðinga sem væri
dýrara, og sumir létu vera að koma.
Þá tapaði stöðin gjöldunum sem
ættu að renna í reksturinn, þannig að
heildartapið gæti orðið jaftimikið og
laun afleysingalæknis.
,JÉg er mest hissa á því að fólk
skuli ekki bera sig verr út afþessu,“
sagði Katrín sem taldi ekki að heim-
sóknum heföi fækkað. Hinsvegar
gerir gjaldið henni erfiðara fyrir sem
lækni því henni finnst læknisftæði-
lega rétt að biðja fólk að koma aftur
og láta athuga sig en það kostar þá
aukagjald. Líklegt er að fólk spari
það við sig, en þá gætu veikindi ef
til vill tekið sig upp aftur og orðið
þjóðfélaginu dýrari.
Starfsfólkið
Sigrún Knútsdóttir sagði að spam-
aðurinn fæli ekki annað í sér en til-
færslu fjármuna og þannig væri
þjóðhagslegur spamaður enginn.
Hinsvegar heföu fulltrúar starfsfólks
í stjóm Borgarspítalans samþykkt
spamaðarhugmyndimar vegna þess
að það gæti ekki hlaupist undan
ábyrgðinni og heföi því reynt að
hafa sín áhrif til þess að niðurskurð-
urinn yrði sem sársaukaminnstur.
Hún sagði að þetta yrði verulegur
skellur fyrir starfsfólk sem yrði af
launum, auk þess sem álagið ykist.
Hún sagði að það væri rangt að allt
starfsfólk spítalans heföi boðist til
að taka á sig kjaraskerðingu. Nokkr-
ir sérfræðingar heföu verið tilbúnir
til þess en þeir heföu flestir aðra
tekjumöguleika á stofum úti í bæ.
Hún taldi heldur ekki að um
skammtímalausnir væri að ræða og
taldi að með skerðingu á bæklunar-
og endurhæflngardeildum væri farið
mörg ár aftur í tímann. Þá heföi nið-
urskurðuri.in þau áhrif að ekki væri
hægt að kaupa tæki sem kostuðu að
visu mikið í upphafi en spömðu
peninga þegar til lengri tíma væri
litið. Hún nefndi sem dæmi tæki til
smásjáraðgerða vegna bijóskloss og
tæki til að vinna á gallsteinum.
Niðurstöðuna sagði hún vera þá
að starfsfólk væri uggandi um sjálfl
sig, uggandi um að það yrði að veita
minni þjónustu og verri vegna auk-
ins álags.
Það er greinilega álit þeirra sem
vinna innan sjúkrastofnana að niður-
skurðurinn verði lítill sem enginn
þegar upp er staðið. Hann muni
valda kostnaði í sumum tilvikum og
teQa fyrir bata sjúklinga í öðrum,
auk þess sem hann sé skref aflur-
ábak út frá læknisfræðilegu sjónar-
miði.
Föstudagurinn 7. febrúar