Helgarblaðið - 07.02.1992, Side 8

Helgarblaðið - 07.02.1992, Side 8
Helgar 8 blaðið Kynþátta- hatur vex í Svíþjóð Innflytjendur í Svíþjóð hafa að undanfornu orðið fyrir miklu aðkasti, árásum og jafn- vel morðtilraunum upp á síð- kastið. Á annan tug morðtilrauna hafa verið gerðar í Stokkhólmi og ná- grenni þar sem fómarlömbin em þeldökkir innflytjendur. Lögrelgan hefúr komist að því að í fimm tilfellum hið minnsta hafi sama eða sams konar skot- vopn verið notað og benda líkur til þess að um einn tilræðismann sé að ræða, eða lítinn hóp manna sem nota sama vopnið. Rann- sókn lögreglunnar beinist eink- um að ofstækisfullum hægri- samtökum og hópum sem berj- ast sérstaklega gegn innflytjend- um. Á sama tíma og kynþáttahatur vex með sífellt meira ofbeldi fjölgar einnig mótmælagöngum þeirra sem vilja veija innflytj- enduma. Þeir kreQast þess að stjómvöld grípi til aðgerða til að tryggja öryggi innflytjenda og þyngi viðurlög við ofbeldisverk- um. Hundrub Svía hafa ab undanförnu mótmælt vaxandi of- beldi i garö innfiytjenda. / Ukraína breytir ekki klukkunni Talsvert hefur verið um það síðan Sam- veldi sjálfstæðra ríkja var stofnað á rústum Sovétríkjanna að Úkraína og Rússland hafl verið með hálfgert hnútukast hvort í annað, svona til að sýna sjálfstæði sitt. Um daginn neitaði Úkraína að fylgja fordæmi Rússa og flýta klukkunni um eina klukkustund. Það leiddi hins vegar til mikillar ringulreiðar, a.m.k. á flugvöllum, því farþegamir reiknuðu með því að Moskvu-tíminn gilti, enda er miðað við hann í farseðlunum. Sjálfstæðisbröltið hefiir sumsé ýmsa fylgi- kvilla. Bölmódur í banda- rísku efnahagslifi „ Sjúklegt ofstæki í efna- hagsmálum er orðið að vana í Bandaríkjunum. Und- anfarin 20 ár hafa Banda- ríkin horft á önnur ríki, að- allega Japan, nálgast for- ystu þeirra í lífskjörum og kvartað mestallan tímann. “ Bandaríkjamenn hafa um þessar mundir miklar áhyggjur af ástandi efha- hagsmála vestur þar. Stjórnvöld draga upp ákaf- lega dökka mynd af ástandinu og búa þjóðina undir þrengingar. Vandinn sem George Bush for- seti og stjóm hans standa frammi fyrir er vissulega mikill og ekki bætir úr skák að í nóvemberbyijun fara fram forsetakosníngar í land- inu. Forsetanum er því mikið í mun að grípa til skjótvirkra ráð- stafana og að fá fólk til að trúa því að tíðin fari brátt batnandi. íslensk fyrirmynd? Það er eins og maður hafi ein- hvem tímann heyrt bölmóðinn áð- ur sem nú ríður yfir í bandarísku samfélagi. Ekki ósvipaður áróður hefúr dunið á eyrum okkar Islend- inga um nokkurra mánaða skeið, eða allt frá því að stjómarskipli fóm fram hér síðastliðið vor. Söngurinn um erfitt árferði og Árni Þór Sigurösson skrifar nauðsyn róttækra aðgerða í efna- hagsmálum er oft sunginn til að skapa betri sóknarfæri, skapa betri stöðu gagnvart gagnrýninni. Stjómvöld hvar sem er í heiminum nota iðulega þetta ráð til að búa þjóð sína undir áföll og erfiðleika, telja úr henni allan kjark þannig að þau geti síðan óáreitt farið sínu fram. Þetta er okkur ekkert nýtt. Nú er að vísu margt rétt um erf- iðleikana í bandarísku efnahagslífi. Þó er það svo að margir sæmilega virtir aðilar vilja gera minna úr erf- iðleikunum en stjómvöld. Þannig fjallar breska vikuritið The Econ- omist nýlega um sjúklega ofstæk- ishyggju Bandaríkjamanna undir titlinum „Sam, Sam, the paranoid man“. Þar er sú skoðun sett fram og rökstudd að vandinn í banda- rísku efnahagslífi sé í raun ekki eins mikill og af er látið og ef til vill aðeins sá að þjóðina vantar leiðtoga. Ræðu, sem Bush hélt þjóð sinni fyrir skemmstu og átti einvörð- ungu að fjalla um innanríkismál, var beðið með mikilli eftirvænt- ingu. Almennt var búist við að hann myndi þar kynna ítarlega efnahagsáætlun en það fór á annan veg. Flestir fréttaskýrendur eru sammála um að ræðan hafi verið ótrúlega innihaldsrýr og fæstir orð- ið nokkm nær um við hveiju mætti búast. I leiðara The Economist segir m.a.: „Sjúklegt ofstæki í efnahags- málum er orðið að vana í Banda- ríkjunum. Undanfarin 20 ár hafa Bandaríkin horfi á önnur ríki, aðal- lega Japan, nálgast forystu þeirra í lífskjörum og kvartað mestallan timann.“ Tímaritið heldurþví fram að undanfama mánuði hafi óttinn við ástandið í efnahagsmálum og kannski sérstaklega við uppgang annarra ríkja, verið að ágerast og að kröfumar um að eitthvað verði aðhafst muni e.t.v. að þessu sinni leiða til þess að eitthvað verði gert - „og að öllum líkum verður það afturkippur“ segir þar. Efnahagsbatinn augljós Neyðarpakki í ríkisfjármálum til að hleypa nýju blóði í efnahagslíf- ið, staðfastari stefna í viðskipta- málum, einkum gagnvart Japan, og nýjar leiðir til að byggja upp iðn- aðinn eru meðal atriða sem búast má við að gripið verði til. „Þessi og önnur falsúrræði em ekki ein- göngu eitthvað sem þrýstihópar í Washington hafa komið fram með. í ársbyrjun 1992 em ógnvænlegar líkur á að þau verði reynd. Þess vegna er mikilvægt fyrir Bandarík- in að skoða gaumgæfilega raun- vemlegan styrk og veikleika efna- hagslífsins og hugsa vandlega um rétt markmið í stjórn efnahags- mála,“ segir The Economist. Þetta eru nokkuð þung orð en sennilega öll í tíma töluð. Það er bent á að margvísleg teikn séu á Iofii um að efnahagslægðinni sé lokið eða senn að ljúka, það sjái að minnsta kosti þeir sem vilja. I þvi efni megi vitna til nýlegra talna um bygg- ingaframkvæmdir, verðlag á hluta- bréfamarkaði, framboð á pening- um, spamað og margar fleiri mik- ilvægar vísbendingar. Ennfremur megi benda á að dollarinn sé nú að jafna sig og það eitt sé merki um að íjármagnsmarkaðurinn hafi þef- að uppi efnahagsbatann. Þingið og forsetaembættið munu nú vera að undirbúa að leggja á hilluna áform um að örva efna- hags- og atvinnuiífið með skatta- lækkunum og aukningu opinberra útgjalda en slík stefnubreyting hlýtur að þurfa marga mánuði til að ná tilætluðum áhrifum á fram- leiðslu og vinnumarkaðinn. Fjár- iagahallann, sem er á þessu ári áætlaður 350 miijarðar dollara, átti að laga með einhveijum svona að- gerðum en Bush getur með engu móti hugsað sér að hverfa frá lof- orðum sínum um að hækka ekki skatta. Þótt ýmislegt kunni að hafa farið aflaga í bandarísku efnahags- lífi standa Bandaríkjamenn að mörgu leyti vel að vígi. Vandamál- ið sem glíma þarf við í ríkisfjár- málum er ekki nauðsynlega fjár- lagahallinn sem orsakast af efna- hagslægð eða öðrum slíkum skammtímaþáttum. Það er hinn viðvarandi halli, sem er aðeins lít- ill hluti þessara 350 miljarða, sem brýnt er að taka á. Utflutnings- framleiðsla Bandaríkjanna hefur tvöfaldast á síðustu 5 árum. Ut- flutningur annarra iðnríkja hefur á sama tíma aukist um fjórðung. Þannig hefur hlutur Bandaríkjanna í heildarútflutningsframleiðslu OECD-ríkja aukist úr 14% árið 1987 í 18% á síðasta ári. Lækkun dollarans, frá miðjum síðasta ára- tug, hefúr að sjálfsögðu hjálpað til en einnig sú staðreynd að fram- leiðni í bandarísku efnahagslífi er ein sú mesta sem þekkist. I heild- ina tekið er ffamleiðni tvisvar sinnum meiri í Bandaríkjunum en Japan. Þessum staðreyndum er að sönnu ofi mætt með þeim rökum að Japanir og ýmsar aðrar Asíu- þjóðir nálgist Bandaríkin óðfluga. Það er út af fyrir sig rétt - en hveiju skiptir það? Er ekki eins líklegt að það muni ffekar örva bandarískt efnahagslíf og Ieiða til ódýrari framleiðslu þar, neytend- um til hagsbóta? Vanmóttur og getuleysi The Economist bendir á að ein af megin hindrunum í efnahagslíf- inu sé vanmáttur stjómvalda til að hemja lántökur. Með því að flýta sér um of með óþörfúm skamm- tímaaðgerðum sé hætt við að lang- tímavandinn aukist. Einkennilega eyðslusöm heilbrigðisþjónusta, réttarreglur sem í raun virka sem þung skattbyrði á atvinnulífinu og menntakerfi sem skilar alltof mörgum bömum óvinnufærum út á vinnumarkaðinn. Þetta em verk- efni sem stjómmálamenn þurfa að takast á við. Timaritið segir að tvær bestu leiðimar til að örva fjár- festingar séu að ná tökum á fjár- lagahallanum og lækka verðbólgu. Hins vegar telji bæði þingið og forsetaembættið að fyrra markið hafi óhagstæð áhrif á framleiðsl- una og það seinna sé óraunhæft. The Economist endar frásögnina af efnahagsmálum í Bandaríkjunum með þessum orðum: „Bandaríkin þurfa nú á að halda forseta sem getur bmgðist af stillingu við hin- um misskilda dmnga með tillögum sem skila hagvexti til lengri tíma litið. í staðinn hafa þau herra Bush, sem hefúr hörfað í óðagoti og gerir hlutina verri en þeir em.“ Enda er það að koma æ betur í ljós að þeir stjómmálamenn sem eitthvað geta í Bandaríkjunum em afskrifaðir vegna þess að þeir hafa einhvem tíma verið í slagtogi við kvenmann. Hinir sem em nógu miklir ræflar til að hafa aldrei að- hafst neitt komast hins vegar áfram - og passa síðan upp á að stjóm- málaumræðan snúist ekki um al- vöm stjómmál heldur einhverja af- þreyingu sem engu máli skiptir. George Bush getur hlaupiö sér til heilsubótar. En getur hann not- ab efnahagsbatann i Bandarikjunum sér til framdráttar e&a ætlar hann a& láta allt reka á reiáanum? Föstudagurinn 7. febrúar

x

Helgarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.