Helgarblaðið - 07.02.1992, Page 24
Helgar 24 blaðið
Kalli og Kobbi
Þögn Moggans
Fréttaflutningur Morgunblaðs-
ins af niðurstöðum skoðanakönn-
unar DV um fylgi stjónmálaflokk-
anna hefur valdð athygii manna.
DV birti niðurstöðumar á mánu-
dag og ljósvakamiðlamir sömuleiðis
og dagblöðin strax daginn eftir -
nema Mogginn. Það var ekki fyrr en
í gær, fimmtudag, sem stærsta blað
landsins birti fréttina. Hún var þó
ekki á fréttasíðu, eins og halda
mætti, heldur falin innanum kvik-
myndaauglýsingar. Ef til vill hefur
það haft áhrif á fféttamat Mogga að
fylgi ríkisstjómarinnar hefiir aldrei
mælst minna, né heldur fylgi stjóm-
arflokkanna.
Bridge
Sævar Bjarnason
snýr aftur
Skákþing Reykjavíkur í
ár markar að því leyti tima-
mót að skákmenn af „eldri
kynslóðinni” taka þátt ■'
mótinu í meiri mæli en und-
anfarin ár: Sævar Bjarna-
son, Júlíus Friðjónsson,
Björgvin Víglundsson,
Haukur Angantýsson, Ag-
úst Ingimundarson, Haukur
Hlöðver og Bjarni Magnús-
son settu allir svip á skák-
mót sem haldin voru fyrir
aldarfjórðungi og meira.
Hin síðari ár hefur starf-
semi Taflfélags Reykjavík-
ur fyrst og síðast miðast við
ungiingastarfíð, en breyt-
ingarnar á skipan skák-
þingsins benda til þess að
innan stjórn TR heyrist
þær raddir, að ekki megi
keyra einn þátt starfsem-
innar svo að hann bitni á
öllum öðrum. Eigi alls fyrir
löngu tók stjórn Taflfélags
Reykjavíkur þá hrapallegu
ákvörðun að draga sig út úr
Evrópukeppni skákfélaga,
jafnvel þótt sveit félagsins
hafl barist um sigur í þeirri
keppni síðast. Ef slíkri
stefnu yrði haldið áfram
þýddi það ekkert annað en
útgöngu bestu skákmanna
féiagsins.
Fyrir síðustu umfcrð vora
þrír skákmenn efstir og jafnir:
Sævar Bjamason, Haukur
Angantýsson og Sigurður
Daði Sigfusson, allir með 8
vinninga. I fjórða sæti var Is-
firðingurinn Guðmundur
Gíslason með 7 1/2 vinning.
Síðasta umferð var æsi-
spennandi en þá áttust við
Sævar Bjamason og Björgvin
Víglundsson, Guðmundur
Gíslason og Haukur Angan-
týsson og Heimir Asgeirsson
og Sigurður Daði. Skák Guð-
mundar og Hauks lauk til-
tölulega fljótt með snaggara-
legum sigri Isfirðingsins sem
gat gert sér vonir um sigur í
mótinu því Sigurður Daði átti
afar erfiða stöðu gegn Heimi
Asgeirssyni og Björgvin Víg-
lundsson var til alls vís gegn
Sævari. Heimir jók yfirburði
sína jafnt og þétt gegn Sig-
urði Daða og átti auðunna
stöðu en lenti í miklu tíma-
hraki og lék af sér drottning-
unni. Þar með var Sigurður
Daði búinn að ná 9 vinning-
um.
Sævar þjarmaði eftir öllum
kúnstarinnar reglum að
Björgvini, fómaði skiptamun
og í framhaldinu vann hann
til baka með ríkulegum vöxt-
um. Skákin fór í bið og staða
Sævars er gjömnnin. Það er
því ljóst að Sævar og Sigurð-
ur Daði munu tefla 4 skáka
einvígi um titilinn. Staða
efstu manna þegar nokkmm
biðskákum, sem tefldar vom í
gærkvöldi, var ólokið:
I. Sigurður Daði Sigfússon
9 v. 2. Guðmundur Gíslason 8
1/2 v. 3. Sævar Bjamason 8 v.
- og unnin biðskák. 4. Haukur
Angantýsson 8 v. 5.-6. Hann-
es Hlífar Stefánsson og
Björgvin Víglundsson 7 v. og
biðskák hvor. 7.-8. Þröstur
Ámason og Láms Jóhann-
esson 7 v. 9.-12. Halldór G.
Einarsson, Júlíus Friðjónsson,
Bjami Magnússon og Snorri
Karlsson 6 1/2 v. og biðskák
hver.
Fyrir síðustu áramót sneri
Sævar Bjamason aftur til
landsins eftir u.þ.b. tveggja
ára dvöl í Svíþjóð og virðist
engu hafa gleymt. Sævar hef-
ur löngum haft gott auga fyrir
stöðubaráttu en það hefur
staðið frekari frama hans fyrir
þrifum hversu oft hann er
sleginn skákblindu. I þessu
móti var lítið um slíkt og ár-
angurinn eftir því. Sigurður
Daði Sigfússon er býsna
harðskeyttur skákmaður og
það má ná langt á hörkunni
eins og sigrar hans yfir Hann-
esi Hlífari og Heimi í síðustu
umferð bera með sér.
Guðmundur Gíslason er af-
ar sókndjarfur skákmaður
eins og sigrar hans yfir Hauki
Angantýssyni og Hannesi
Hlífari bera með sér. I raun er
það hálf undarlegt að hann
skuli ckki vera í efsta sæti í
mótslok. Taflfélag Reykjavík-
ur virðist vcra afskaplega
íhaldssamt félag. Þannig er
ævafornt kerfi notað við upp-
röðun keppcnda á skákþing-
inu. Svo undarlega vildi til að
Guðmundur tefldi aldrci við
Sævar Bjarnason og má
kenna um þessu úrelta fyrir-
komulagi sem er viðhaft við
framkvæmd skákþingsins.
En lítum á snaggaralcgan
sigur Guðmundar í síðustu
umferð. Haukur Angantýsson
hafði teflt af miklu öryggi og
ekki tapað skák er hann settist
að tafli sl. miðvikudagskvöld:
II. umferð:
Guðmundur Gíslason -
Haukur Anagntýsson
Hollensk vörn
1. d4 g6 2. c4 f5 3. Rc3
Rf6 4. h4!
(Skarplega teflt og um
margt dæmigert fyrir Guð-
mund.)
4... Bg7 5. Rh3 d6 6. Bg5
h6?
(Sennilega er þetta óná-
kvæmni því svartur veikir
peðstöðu sína meira en góðu
hófi gegnir.)
7. Bxf6 Bxf6 8. Rf4 Kf7
10. h5! gS 10. Rg6
(Þessi riddari lamar at-
Sævar Bjarnason og Sig-
ur&ur Da&i Sigfússon
munu a& öllum likindum
tefla einvígi um titilinn
„Skákmeistari Reykjavik-
ur" 1992.
hafnafrelsi svarts á kóngs-
vængnum.)
10.. . He8 11. e3 e5 12.
dxe5 dxe5 13. Db3! c6 14.
c5+ Kg7 15. Bc4 Dc7
(Ekki þýðir að teygja sig
eftir c5-peðinu: 15... Da5 16.
Hdl! Rd7 (ekki 16. .. Dxc5
17. Bf7! Hd8 18. Hxd8 Bxd8
19. Bg8! og vinnur) 17.
Dxb7!! Bxb7 18. Hxd7+Be7
19. Rxe7 og svartur er illa
beygður.)
16. 0-0 b5?
(Þessi Ieikur veikir aðeins
stöðu svarts. Bctra er 16...
Rd7 og svartur á þokkalega
stöðu.)
17. cxb6 axb6 18. Hacl
Rd7
(Ekki 18. .. b5 19. Rxb5!
cxb5 20. Bd5 Db8 21.Bxa8
Dxa8 22. Hc7+ Rd7 23. Hdl
Hd8 24. De6! og vinnur.)
19. Hfdl Rc5 20. Dc2 Hd8
21. Hxd8 Hxd8 22. b4!
(Riddarinn á enga fótfestu
á c5. Nú opinberast allir veik-
leikar svörtu stöðunnar.)
22.. . Ra6 23. Hdl De8
(Vitaskuld ekki 23. .. Rxb4
24. Hxd8 Rxc2 25. Hg8+ Kh7
26. Rf8 mát.)
24. b5! Rc7 25. Hd6 Bb7
(Afleikur í tapaðri stöðu,
25. .. cxb5 er svarað með 26.
Rxb5! t.d. 26. .. Rxb5 27.
Bxb5 Dxb5 28. Dc7+ og
vinnur.)
26. Dxf5
- og Haukur gafst upp.
Löglegt peningaspil?
Fyrir nokkrum árum
var í umræðunni fyrir-
huguð hótelbygging Eim-
skipaféiagsins á Kveldúlf-
slóðinni við Skúiagötu. Sú
umræða hefur legið niðri
um nokkurt skeið. Ein af
hugmyndunum í sam-
bandi við hótelrekstur fé-
lagsins var að starfrækja
„spilavíti", ætiað erjend-
um ferðamönnum. Á
þeim tíma mátti ekki
ræða slík mál opinberlega
og má tæpast enn. Hug-
myndir ráðamanna í sam-
bandi við rekstur „spila-
víti“ eru sóttar aftur í
fornöld. Flest öll Evrópu-
ríkin starfrækja opinbera
spilastaði sem reknir eru
undir eftirliti og skila
umtalsverðum tekjum í
ríkissjóð viðkomandi
lands. Danir hafa fyrstir
þjóða á Norðuriöndum
riðið á vaðið og starf-
rækja „spi!avíti“ á vegum
ferðamálaráðs og ríkis-
stjórnar.
Ég tel tímabært að vekja
upp umræðuna um þessi
mál í dag, sérstaklega í
ljósi þess að á undanföm-
um misserum hefur íjölgað
valkostum þeirra sem
stunda peningaspil í
Reykjavík. Flutt hefur ver-
ið til landsins fullkomið
„rúllettu“spil, þótt ekki
hafi það verið notað til
þessa. Einnig hafa sprottið
upp staðir í bænum, þar
sem menn geta óáreittir
stytt sér stundir við þessa
iðju. Ég tel þá betra að
slíkur staður sé rekinn und-
ir eftirliti og verði raun-
verulegur valkostur í þeirri
ferðamannaflóru sem ís-
land framtíðarinnar býður
upp á. Hugleiðum málið.
Jakob Kristinsson og
Pétur Guðjónsson sigruðu á
svæðamóti Norðurlands
eystra í tvímenningskeppni
sem fram fór nýlega. Spil-
að var á Dalvik. Röð efstu
para varð;
Jakob Kristinsson - Pétur
Guðjónsson 777
Ásgeir Stefánsson - Her-
mann Tómasson 752
Eiríkur Helgason - Jó-
hannes Jónsson 741
Reynir Helgason -
Magnús Magnússon 720
Alls tóku 34 pör þátt í
mótinu. Sigurinn veitti rétt
til þátttöku í úrslitum Is-
landsmótsins í tvímenn-
ingskeppni í vor.
Eftir 1. kvöldið (af 8) i
aðaltvímenningskeppni
Bridgefélags Reykjavíkur
(þátttaka 48 pör) er staða
efstu para þessi;
Hjördís Eyþórsdóttir - Ás-
mundur Pálsson 174
Bjöm Eysteinsson - Magn-
ús Ólafsson 148
Bemhard Bogason - Hlyn-
urGarðarsson 119
Hermann Lárusson - Ólafúr
Lámsson 116
Ómar Jónsson - Guðni Sig-
urbjamason 109
Helgi Jónsson - Helgi Sig-
urðsson 108
Sigtryggur Sigurðsson -
Bragi Hauksson 101
Jón S. Gunnlaugsson -
Björgvin Víglundsson 88
Aðalsteinn Jónsson, vin-
ur okkar á Eskifirði (sem
Þjóðviljinn nefndi Alla ríka
héma um árið), varð sjö-
tugur i síðustu viku. Um
leið og umsjónarmaður
ámar afmælisbaminu allra
heilla á þeim tímamótum,
verður hann að koma að
smásögu í tengslum við af-
mælið. Heimamenn gátu
ekki á sér setið og slógu
upp tvímenningsmóti í til-
efni afmælisins, á laugar-
daginn var. Reyðfirðingar
áttu hauk í homi á Reykja-
víkursvæðinu og bmgðu á
það ráð að notfæra sér inn-
eignina syðra. Aðalsteinn
átti að mæta á tvímenn-
ingsmótið og afmælisgjöfin
þeirra bridgemanna eystra
kom svo með flugvélinni
að sunnan. Það var sjálfur
Jón Baldursson, nýkrýndur
heimsmeistari. Jón settist
svo á móti Aðalsteini í
upphafi mótsins og saman
spiluðu þeir þetta mót. Það
er greinilegt að heimamenn
hafa auga fyrir frumlegum
uppátækjum, á sama hátt
og Aðalsteinn hefur um ár-
in haft augun opin fyrir ný-
sköpun í atvinnulífi sinnar
heimabyggðar.
Nú mun ljóst að alla
vega 5 spilarar héðan taka
þátt í Evrópumótinu í para-
keppni, sem spilað verður í
Ostende í Belgíu í lok
mars. Jacqui McGreal,
Hermann Lárusson, Hjör-
dís Eyþórsdóttir og Jakob
Kristinsson taka þátt í
sveitakeppninni, en Þorlák-
ur Jónsson mun svo spila
við Jacqui í tvímennings-
keppninni. Dröfn Guð-
mundsdóttir og Ásgeir P.
Ásbjörnsson hafa dregið til
baka umsókn sína.
Minnt er á aðaltvímenn-
ingskeppni Skagflrðinga
sem hefst næsta þriðjudag.
Spilaður verður barometer.
Skráning er hjá Ólafi í s.
16538.
Að lokum ein spilaþraut.
Að"lsteinn Jörgensen mun
að sögn hafa verið að
„vandræðast“ með þetta
spil í London á dögunum
(Sunday Times-mótinu) og
lagt það fyrir Qölda manns.
Hamman hristi höfúðið eft-
ir skamma yfirlegu og Kar-
en McCallum sagði spilið
óvinnandi, án aðstoðar frá
vöminni. Vildi meira að
segja veðja um það. Vilt þú
veðja við Karen?
♦ ÁKxx
V XXX
* ÁKG10
4 xx
V ÁKDGxx
♦ —
* 98xxx
Samningurinn er 6
hjörtu. Út kemur tígulás,
sem þú trompar. Þú leggur
niður hjartaás og í ljós
kemur að vinstri handar
andstæðingur þinn (Vestur)
liggur með fjórlitinn í
hjarta. Austur hendir tígli.
Ef þú spilar einhvem tím-
ann laufi, kemur í ljós að
Vestur á ekkert Iauf. Aust-
ur liggur með drottinguna
fjórðu á bak við ás/kóng í
borði.
Er einhver leið að fá 12
slagi í þessu spili?
Lausnin er í raun sára-
einföld. En líkt og mestu
uppgötvanir heimssögunn-
ar, sem margar hverjar hafa
öðlast tilvist fyrir einbera
tilviljun, er málið að koma
auga á hana. Þú trompar
tígulásinn, tekur hjartað í
fjórgang og hendir síðari
tíglinum úr borði. Þá kem-
ur ás og kóngur í laufi og
meira lauf. Sama er hvað
Austur gerir. Ef hann drep-
ur og spilar tígli, þá ein-
faldlega trompum við með
síðasta trompinu og hend-
um laufatíu úr blindum.
Fresti Austur að taka á dö-
muna, spilum við einfald-
lega meira laufi og eigum
alla slagina, sem þá em eft-
ir.
Við losum okkur við tíg-
ulhundinn úr borði (yfir-
færum laufavaldið í spil-
inu, yfir á tromplitinn).
Nokkuð nett spil.
Föstudagurinn 7. febrúar