Dagblaðið - 25.09.1975, Side 7
DagblaOið. Fimmtudagur 25. september 1975.
7
Erlendar
fréttir
STAL 1000
RIFFLUM
Vinstrisinnaður herforingi i
portúgalska hernum viður-j
kenndi í gærkvöldi að vera
ábyrgur fyrir kærðum þjófnaði
á meira en 1000 rifflum. Segis*
hermaðurinn hafa komið vopn
unum í hendur „byltingarsinn-
aðra verkamanna”.
1 útvarpsviðtali sagðist
Alvaro Fernandes, höfuðsmað-
ur, sem er áhrifamikill innan
Copcon, öryggisþjónustu rfkis-
ins, hafa stolið rifflunum fyrr i
þessum mánuði. Eru þeir portú
galskir af gerðinni G-3.
Varnar-
bandalag
Suðaustur
Asíu
SEATO-ráðið ákvað í
gærkvöldi að leggja varn-
arbandalagið niður „með
tilliti til breyttra að-
stæðna". Átta þjóðir eru í
varnarbandalaginu (SA-
Asía).
Aðalritara samtak-
anna, Sunthorn Hungla-
doram frá Thaílandi, var
falið að undirbúa ná-
kvæma áætlun til að leysa
upp bandalagið sam-
kvæmt öllum reglum og
fyrirmyndum.
Ráðið lét þess þó getið í
samþykkt sinni, að mörg
verkefni SEATO væru
SIATO horfíð á
fund feðra sinna
svo mikils virði, að betur
færi að halda þeim áf ram
undir nýrri stjórn, jafn-
vel með sérsamningum
ríkja á milli. Helzt er um
að ræða tækni- og efna-
hagsaðstoð.
Upplausn bandalagsins
var tilkynnt í yf irlýsingu,
sem gefin var út eftir
fund, sem haldinn var í
höfuðstöðvum banda-
rísku sendinefndarinnar
hjá SÞ. Henry Kissinger
var viðstaddur fundinn.
Fundarstjóri var utan-
ríkisráðherra Chatachai
Choonhavan.
Utanríkisráðherrar
Ástralíu og Nýja Sjálands
voru einnig viðstaddir
fundinn auk fulltrúa ut-
anríkisráðherra Filipps-
eyja og Bretlands.
Frakkland og Pakistan
hafa ekki tekið þátt í
fundum SEATO um all-
langt skeið. Fundur ráðs-
ins i gær var hinn 20. í
röðinni. Fundir þessir
hafa yf irleitt verið haldn-
ir þegar utanríkisráð-
herrarnir hafa komið til
New York til allsherjar-
þings SÞ.
Lok stríðsins í Indókína
hafa aðallega orðið til að
draga úr mikilvægi
bandalagsins. Það var
stofnað 1955 að undirlagi
Bandaríkjanna til að
draga úr hættu kommún-
ismans. Bandalagsríkin
voru á sínum tíma sam-
mála um að hafa samráð
sín í milli um mögulegar
aðgerðir á hættutimum.
Bretland og Frakkland
hafa lítinn þátt tekið í
störfum SEATO og
Frakkland og Pakistan
hafa fyrir löngu kallað
heim allar hersveitir sín-
ar í sameiginlegum her
bandalagsins.
ÞÝZKALANDSVANDAMÁLIÐ
HEFUR VERIÐ LEYST
— segir utanríkisráðherra A-Þýzkalands
Austur-þýzki utanríkis-
ráðherrann Oskar Fischer
sagði á þingi SÞ í gær-
kvöldi, að hið „svokallaða
Þýzkalandsvandamál"
hef ði verið leyst með þróun
tveggja aðskilinna þýzkra
ríkja með mismunandi
þjóðskipulag. Hver sem
neitar þessari sagnfræði-
legu staðreynd, sagði utan-
rikisráðherrann, er ógnun
við friðinn og öryggið.
Fischer sagði Austur-
Þjóðverja hafa notað full-
veldisrétt sinn til að á-
kvarða sitt eigið þjóðskipu-
lag og þeir hefðu kosið
sósíalisma. Af þeirri braut
yrði ekki snúið. Austur-
Þjóðverjar vissu einnig, að
íbúar annarra landa væru
einlæglega áhugasamir um
gagnkvæm gagnleg sam-
skipti landa og þar af leið-
andi um að viðhalda og
styrkja friðinn, sagði
hann.
Utanríkisráðherrann
fullvissaði allsherjarþing-
ið um samstarfsvilja lands
síns „hvenær sem kemur
að framlagi SÞ til að
styrkja heimsfriðinn, til að
draga úr vígbúnaði og til
samstarfs þjóða heimsins
um sameiginlega hags-
muni."
Berlinarmúrinn: „Vandamáliö leyst meö skiptingu landanna,” segir
utanrikisráöherra A-Þýzkalands. En hvert var vandamáliö? Sameinaö
Þýzkaland?
Brezkur þingmaður vill
200 mílna landhelgi
Brezki þingmaðurinn David
Mudd frá Falmouth sagði i gær-
kvöldi, að hann myndi krefjast
útfærslu brezku landhelginnar úr
12 í 50 milur.
Mudd, sem er þingmaður
Ihaldsflokksins, sagði þetta i um-
ræðum sem urðu vegna áreksturs
búlgarska togarans Kaprela (2200
tonn) og brezka strandgæzlu-
skipsins Somersetbrook (1596
tonn) 17 milur suður af ströndum
Bretlands. Bæði skipin hafa ver-
iað dregin i höfn i Falmouth.
Brezkir fiskimenn hafa kvartað
sáran yfir þvi að undanförnu, að
austur-evrópskir togarar séu að-
sópsrtiiklir á vesturmiðum Bret-
lands.
Mudd sagðist æUa að benda á,
að áreksturinn sannaði brýna
þörf fyrir 50 milna landhelgi.
Nýr gjald-
miðill f
S-Víetnam
Verðlausir gamlir „piastr-
ar”, gjaldmiðill S-Vietnam,
flutu 1 gær eftir holræsum Sai-
gon-borgar um leið og hin nýju
stjórnvöld i landinu luku við
að skipta algjörlega um gengi.
Tók það tvo daga.
Seðlarnir, sem flutu i hol-
ræsunum, eru liklega komnir
frá svartamarkaðsbröskurum
og spákaupmönnum, sem orð-
ið hafa hræddir við að nást
með peninga frá Thieu-timan-
um. Með útgáfu nýrra piastra
er gamli gjaldmiðillinn bann-
aður.
í yfirlýsingu frá yfirvöldun-
um sagði, að gjaldmiðils-
breytingin hefði gengið vel.
Einn nýr piastri er jafnvirði
500 gamalla piastra. Nýtt
gengi, tekur gildi á mánudag-
inn, og verður þá hver nýr
piastri jafnvirði 54 islenzkra
króna.
Aðskilnaðarsinnum á
Bougainville miðar hœgt
Aðskilnaðarsinnar á Bougain-
ville hótuðu i gær að hertaka
nokkrar mikilvægar herstöðvar
stjórnar Papúa Nýju-Gineu á
eynni á næstu þremur vikum.
Fyrsta tilraun þeirra i þá átt — i
Boku á SV-hluta eyjunnar — virð-
ist hafa mistekizt.
Talsmaður stjórnar Papúa
Nýju Gineu á Bougainville sagð-
ist vera þeirrar skoðunar, að
skjót viðbrögð lögreglu hefðu
komið i veg fyrir að uppreisnar-
mönnunum tækist fyrirtætlun sín.
Herstöðin í Boku er mjög mikil-
væg fyrir aðskilnaðarsinnana,
sem vilja sjálfstæði Bougainville
frá nýja lýðveldinu Papúa Nýju
Gíneu. Um 200 aðskilnaðarsinnar
tóku þátt i vopnaskakinu i gær.
Að sögn talsmanns rikisstjórn-
arinnar munu um 50 lögreglu-
menn hafa bælt niður uppreisnar-
tilraunina i Boku.
Stjórnmálasamband
ísraels og Sovét
skammt undan
Utanrikisráðherrar Israels og
Sovétrikjanna héldu með sér fund
i aðalstöðvum Sovétríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum. Stóð fund-
urinn i þrjár klukkustundir.
Sovétrikin og tsrael hafa ekki
haldið uppi stjórnmálatenglsum
siðan i sex daga striðinu 1967.
Fundurinn var haldinn að
frumkvæöi Israels og var um-
ræöuefniö ýmsar hliðar á ástand-
inu fyrir Miðjarðarhafsbotni, að
sögn talsmanns israelsku sendi-
nefndarinnar.
Yigal Allon, utanrikisráðherra
Israels, og Andrei Gromyko, ut-
anrikisráðherra Sovétrikjanna,
eru báðir I New York til að sitja
allsherjarþing SÞ.
Utanrikisráðherrar landanna
hittust siðast fyrir nærri tveimur
árum, þegar Abba Eban, þáver-
andi utanrikisráðherra Israels,
og Gromyko voru á friðarráð-
stefnu i Genf.
Andrei Gromyko, utanrikisráö- Yigal Allon,
herra Sovetrikjanna. tsraeis.
utanrikisráöherra