Dagblaðið - 15.12.1975, Blaðsíða 4
Dagblaðið. Mánudagur 15. desember 1975.
PÓLITÍK f ÍÞRÓTTAHREYFINGUNNI
— lesandi skrifar vegna greinar Halls Símonarsonar
um „manninn með þingmanninn í maganum"
PÓLiTÍSK ÓLYKT í
ÍÞRÓTTAHREYFINGUNNi
Gestur Kristinsson, Hafnarfirði
skrifar:
„Tilefni þessa bréfs mins er
grein sú er birtist á iþróttasiöu
Dagblaðsins þann 11. desember
undir fyrirsögninni „Pólitisk ó-
lyktiiþróttahreyfingunni”og er
skrifuð af Halli Simonarsyni.
Hallur ræðst af talsverðri
hörkugegn Alfreð Þorsteinssyni
ogsakarhann um að draga póli-
tiskar deilur inn i iþróttahreyf-
inguna.
En hvað gerir þú ekki sjálfur,
Hallur?
Jú, á iþróttasiöu þinni birtir
þú pólitiska grein en þykist á
sömu stundu geta sett o‘ni við
aðra fyrir sama hlut.
Það er vitað — að mönnum
sýndist sitt hverjum um þessar
200 þúsund krónur sem Ellert
fékk greiddar. vonandi verður
aldrei svo að fólk hafi ekki mis-
jafnar skoðanir.
Ellert hlaut traustsyfirlýs-
ingu og nýtur fyllsta trausts svo
sem af atkvæðagreiðslunni má
sjá. En svo virðist sem enginn
megi hafa neitt á móti Ellert.
Að sjálfsögöu er enginn yfir
gagnrýni hafinn —- en greinar
sem þfn eiga ekki heima á i-
þróttaslöu.
Það kemur mér svolitið
spánskt fyrir sjónir að þú, Hall-
ur, skulir vera að svara fyrir
Ellert. Ætla hefði mátt að Ellert
hefði getað svarað fyrir sjálfan
sig — pilturinn sá.”
SLÍTUM STJÓRNMÁLA-
SAMBANDI - Qrsöqn úr Nato!
Óánægður hringdi:
„Framferði Breta á íslands-
miðum hefur alltaf verið til há-
borinnar skammar — en siðustu
atburðir i mynni Seyðisfjarðar
taka út yfir allan þjófabálk.
Slikur hroki og ruddaskapur
sem „brezka ljónið”, að visu
með illa brunnar tennur, sýndi
ber að mæta með hörku. Við
eigum ekki að láta okkur nægja
að mótmæla á hefðbundinn,
pólitiskan hátt — heldur miklu
ákveðnar. Eins og fram kom i
leiðara Dagblaðsins átti Einar
Ágústsson að ganga þegar af
fundi Nato — einnig á að slita
stjórnmálasambandi við Breta
svo og eigum við að segja okkur
úr „varnarbandalaginu” Nato
— sem hefur sýnt sig vera mátt-
litið og aðeins tæki i höndum
stóru þjóðanna. Við höfum ekk-
ert við þessa herra að tala —
látum þá sigla sinn sjó.”
Hinir stóru i Nato á fundi —
kumpánarnir Wilson, Ford,
P’Estaing og og Schmidt.
*
Bílstjórinn tyrfi
sórið sjólfur
Reiður hringdi:
„1 Dagblaðinu i siðustu viku
birtist frétt um yfirgengilega ó-
virðingu og sjálfsánægju bil-
stjóra nokkurs sem leyfði sér að
stytta sér leið og stórskemma
gróður fyrir vikið. Ég varð svo
hneykslaður og bit að ég átti
ekki orð. Raunar má segja að
þessi yfirgengilega frekja
mannsins endurspegli þjóðfé-
lagið —þetta stóra ÉG, sem öllu
tröllriður.
Ég vil þó leyfa bilstjóranum
að gera yfirbót — þvi legg ég til
að hann bæti þær skemmdir
sem hann varð valdur að —
sjálfur. Honum verði gert að
tyrfa það sár sem hann skyldi
eftir sig. Þá mun hann áreiðan-
lega ekki verða valdur að sliku
aftur.”
TREND MILLS gólfteppi
Amerisk gæðavara. Verð frá kr. 1900,- til 7500,-
í fyrsta sinn á íslandi.
Um 200 mismunandi litir og mynzt-
ur i RÝA
og stigagangateppum.
Verið velkomin.
SÚÐARVOGUR 4 (IÐNVOGAR) - REYKJAVlK
SlMAR: 36630 og 30581
Fiskúrvalið auglýsir. Höfum opnað
nýja verzlun að Þverbrekku 8, Kópa-
vogi.
í frystikistuna:
Nýtt fyrir húsmœður
Glæný ýsuflök, heilagfíski og smálúða.
Mikið úrval af öllum hugsanlegum fisk-
tegundum.
Ýtrasta hreinlæti, fljótog góð þjónusta.
FISKÚRVALIÐ
Skaftahlíð 24
FISKÚRVALIÐ
i verzluninni Iðufelli
FISKÚRVALIÐ
Sörlaskjóli 42.
Pöntunarsimi
85080
r
Urvals k jötvöru r
og þjónusta
ÁVALLT EITTHVAÐ
GOTTÍ MATINN
Stiga/i/ið 4ö-47 Sími 35645