Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 15.12.1975, Qupperneq 12

Dagblaðið - 15.12.1975, Qupperneq 12
12 Dagbla&ið. Mánudagur 15. desember 1975. WBIAÐIÐ frfálst, úháð dagblað Ctgefandi: Dagblaöiö hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason íþróttir: Haliur Simonarson Hönnun: Jóhannes Reykdal Blaðamenn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bragi Sigurðsson, Erna V. Ingóifsdóttir, Hallur Hallsson, Helgi 'Pétursson, ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson. Handrit: Asgrfmur Pálsson, Hildur Gunnlaugsdóttir, Inga Guömannsdóttir, Maria ólafsdóttir. l.jósmyndir: Bjarnieifur Bjarnleifsson, Björgvin Pálsson Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson Auglýsingastjóri: Ásgeir Hannes Eiriksson Dreifingarstjóri: Már E.M. Ilalldórsson Áskriftargjald 800 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 40 kr. eintakiö. Blaöaprent hf. Ritstjórn Siðumúla 12, simi 83322, auglýsingar, áskriftir og af- greiðsla Þverholti 2, simi 27022. Röðin komin að rikissjóði Launþegar og atvinnureksturinn i /55 landinu hafa borið byrðarnar af áföll- um ársins, sem nú er senn liðið. Átta prósent samdráttur þjóðartekna hefur að fullu komið niður á þessum þáttum þjóðlifsins. Og þar á ofan hafa þeir orðið að kosta sjúklega ———' óráðsiðu rikisvaldsins, sem hefur velt sér i vellyst- ingum praktuglega á þessum samdráttartimum. Þjóðhagsstofnunin hefur nýlega sýnt þessi hlut- föll á mjög ljósan hátt. Hún áætlar, að á þessu ári muni einkaneyzlan minnka um 11% og fjárfesting atvinnuveganna um 16%. Jafnframt áætlar hún, að rikisreksturinn muni aukast um 2% og fjárfesting rikisins um heil 19%. Þessar tölur fela i sér þungan áfellisdóm yfir for- sætisráðherra, fjármálaráðherra, rikisstjórninni allri, þingflokkum hennar og alþingisliðinu öllu. Rikisstjórnin átti frumkvæðið með hrikalegu fjárlagafrumvarpi, sem þingmenn smurðu siðan á útgjöldum i nær algeru skeytingarleysi. Þjóðhagsstofnunin spáir þvi, að þjóðartekjumar muni enn minnka á næsta ári og þá um eitt prósent. Spurningin er nú sú, hvernig þessar tekjur eigi að skiptast milli meginþátta þjóðarbúskaparins. Það er eðlileg krafa launþega og atvinnurekstrar, að sá aðili, sem slapp við byrðarnar á þessu ári, taki við þeim á næsta ári. Þessi aðili er rikisvaldið. Það er að visu erfitt að snúa á aðeins einu ári ofan af hamslausri rikiseyðslu þessa árs. Skynsamlegt væri að ná þeim áfanga i tveimur skrefum. Á næsta ári mætti til dæmis minnka rikisreksturinn um 2% og framkvæmdir rikisins um 16%. Með þeim hætti mundi rikið rifa seglin að sama marki á næsta ári, og það hefur aukið þau á þessu ári. Árið 1977 mætti svo stiga skrefið til fulls með þvi að draga úr rekstri og framkvæmdum rikisins að hlutfallslega sama marki og þjóðartekjumar minnka á árabilinu 1975—1977. Þá loksins væri þvi marki náð, að rikið hefði tekið til jafns við aðra þátt i samdrætti þessara ára. Með þessum hætti mundi rikisstjórnin og þing- flokkar hennar bæta fyrir sinar eigin misgerðir. En þá er alveg eftir að lækna þjóðarbúið af misgerðum næstu rikisstjórnar á undan og hennar þingflokka. Sú rikisstjórn var jafn óskammfeilin i óráðsiunni og núverandi stjóm er. Samanlagt hafa þessar tvær rikisstjórnir búið til efnahagsvandræði þjóðarinnar Ef þvi ráði væri fylgt að minnka rikisreksturinn um 2% og rikisframkvæmdimar um 16% á næsta ári, væri unnt að halda óbreyttri fjárfestingu i at- vinnuvegunum og bæta nokkuð lifskjör launþega, liklega um 3-4% að raunverulegu verðgildi. En þvi miður hefur rikisstjómin ekki treyst sér til að rifa segl rikisins. Hún hefur lagt fram of hátt frumvarp til fjárlaga næsta árs. Og ekki lækkar frumvarpið i meðförum alþingis, ef við þekkjum þingmenn okkar rétt. Þótt frumvarpið verði að lögum með óbreyttum tölum, felur það i sér, að einkaneyzlan, það er lifs- kjör almennings, getur ekkert batnað á árinu. Það felur einnig i sér, að fjárfesting atvinnuveganna verður enn að minnka um 14% á næsta ári. Allt er þetta samkvæmt spám Þjóðhagsstofnunar. Það blæs þvi ekki byrlega i æðstu sölum. Tengsl bandarísku verkalýðshreyfíngar- innar og mafíunnar Verkalýðssambandið Teamsters, sem hefur innan vé- banda sinna flutningabilstjóra, starfsmenn i vöruhúsum og fleiri tengda starfshópa, er stærsta auðugasta og valda- mesta verkalýðssamband Bandarikjanna. Félagar eru rúmlega tvær milljónir. Sam- bandið berst og vinfengist þar og þegar þvi sýnist. Leiðtogar þess eru i nánu vinfengi við Nixon, fyrrum forseta, sem i forsetatið sinni bauð þeim til Hvita hússins I sárabætur fyrir að sambandið var rekið Ur heildarsamtökum bandariskra verkalýðsfélaga, AFL-CIO. Fyrrum forseta sambandsins, Jimmy Hoffa, hefur verið sakn- að i rúma þrjá mán. og er nú talinn látinn. Það hefur gert nú- verandi forseta, Frank Fitzimmons, kleift að njóta valda sinna og aðstöðu án nokk- urrar meiriháttar andstöðu. Opinber rannsókn og uppljóstr- anir um spillingu innan sam- bandsins 1957 er að verða þoku- kennd minning. En sagan getur verið að end- urtaka sig. Rannsóknarnefndir Atvinnumálaráðuneytisins bandariska, alrikislögreglunnar FBIogskattaeftirlitsins hafa nú um þriggja mánaða skeið kann- að fjármálaleg umsvif sam- bandsins — sérstaklega þá hlið, sem snýr að undirheimum Bandarikjanna: Mafiunni. Fitzimmons sjálfur hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir per- sónuleg og atvinnuleg tengsl við Mafiuforingja og stjórn hans á gífurlegum sjóðum sambands- ins, m.a. llfeyrissjóði þess, sem nemur 1.3 milljörðum Banda- rikjadala, eða rúmlega 230 milljörðum isl. kr. I Detroit, þar sem Hoffa hvarf i sumar, hóf sonur hans, James P., tilraunir til að ná aftur stjórn sambands- ins i hendur fjölskyldunnar. Og i Washington skýrði öldunga- deildarþingmaðurinn Robert Griffin frá Michigan frá þvi, að hann myndi á þingi bera fram tillögu um að ný opinber rann- sókn yrði hafin á starfsemi sambandsins. „Ég held að það sé svo sannarlega kominn timi til að gera slika rannsókn,” sagði Griffin. Hann bætti þvi við, að ef Mafían hefði i raun og veru itök I sambandinu, þá væri vert að vita ,,i hvaða mæli Mafi- an stjómar efnahagslifi lands- ins.” Bandariska fréttaritið News- week fól einum blaðamanna sinna að kanna hvað væri að gerast I Teamsters-samband- inu. Hann skrifaði siðan grein, þar sem hann sagði blákalt, að tök Mafiunnar á sambandinu og fjármálum þess væru jafn sterk og þau voru er rannsóknin var gerð fyrir átján árum. Fitzimmons hefur falið daglega stjórn sambandsins i hendur gjaldkera þess, Murray (Dusty) Miller, en flýgur sjálfur lands- homa á milli i einni af einkaþot- um sambandsins. Stefna sam- bandsins er yfirleitt ekki mótuð af Fitzimmons, heldur William (Bill) Presser, haröskeyttum náunga frá Cleveland, sem löngum hefur verið í tengslum við undirheima Bandarikjanna og hefur verið dæmdur fyrir grófa misnotkun á 590 þúsund Bandarikjadölum úr sjóðum sambandsins. Helzti ráðgjafi Fitzimmons um heppilégár fjárfestingar á sambandspen- ingunum er Allen Dorfman, sem áður var ráðgjafi lifeyrissjóðs sambandsins. Hann varð að hætta þvi starfi þegar upp komst 1972, að hann hefði þegið 55 þúsund dali i mútur frá eig- anda vefnaðarverksmiðju, sem vildi fá hálfa aðra milljón doll- ara að láni Ur sjóðnum. Rannsókn hins opinbera i Bandarlkjunum beinist fyrst og fremst að lifeyrissjóðnum og notkun hans. Fé sjóðsins kemur frá félögum, sem hver um sig borgar vikulega 22 dali (tæpl. 3500 kr.) af launum sinum i hann. Arum saman — fyrst með vitund og vilja Hoffa og nú Fitzimmons — hefur þessi sjóð- ur verið notaður til að styðja fjárfestingar Mafiuforingja og annarra góðra vina. Nærri 60 milljón dalir (rúmlega 10 miljarðar islenzkra króna) hafa verið notaðir til að byggja glæsilegt og iburðarmikið sveitasetur, Rancho La Costa nærri San Diego i Kalforniu, sem að hluta til er stjórnað af fyrrum bruggara og fjárhættu- spilara, Morris (Moe) Dalitz og Allan Roe, sem viðurkennt hef- ur á sig verðbréfabrask. Þar i nágrenninu býr Fitzimmons sjálfur i glæsilegri höll, sem talin er hafa kostað að minnsta kosti 250 þúsund dali, eða rúmlega 42 milljónir króna. Mestum peningum um þessar mundir er þó varið til fjárfest- inga i Las Vegas og uppáhalds- fjárfestingamaðurinn er dular- fullur lögfræðingur, Allen Glick að nafni. Glick býr i stranglega vörðu stórhýsi i La Jolla i Kali- fomiu, sem nágrannarnir kalla „virkið”. Börn hans fá ekki að leika sér með börnum nágrann- anna. Hann hefur fengið að láni úr lifeyrissjóði sambandsins smávægilegar 160 milljónir Bandarikjadala, eða rúmlega 27 milljarða islenzkra króna. Hann hefur hagnazt verulega á tengslum sinum við sambandið og sjóöinn og fengið þar mikil lán með hlægilega litlum vöxt- um. HIN NÝJA STÉTT HEIMTAR KROSSFESTINGU Hin mikla krossferö peninga- afla þjóöfélagsins gegn Guðna Þórðarsyni og fyrirtækjum hans vekur margar spurningar. Hvaö er hér á seyði? Er Guðni virki: lega siöasti þrepskjöldurinn fyrir alræði Arnarnesaðalsins i ferðamálum okkar, segja sum- ir. Og var þessi lélega sviðsetn- ing i Alþýðubankanum bara gerð til að koma höggi á and- stæðing — mann, sem ekki vildi semja við Arnarnesaðalinn. Talaðu ijósar maður: Arnar- nesaðallinn Hvað er það? Sam- nefnari fyrir einstaklinga er eiga hús upp á 40-60 millj., snekkju upp á 20 millj. bila og flugvélar til eigin afnota. Aðrar eignir hér og þar um landið og kannski viöar fyrir hundruð milljóna. Sem sagt menn, sem einu sinni trúðu á mátt sinn og megin, vildu láta verkin tala, söfnuðu auði. En ný þróun i at- vinnu- og stjórnmálum hefur kennt þessu fólki að dugnaður og ráðvendni er óþarfi i nútima- þjóðfélagi. Hin nýja stétt, sem situr i krafti peninga, sem bæði ég og þú hafa rétt þvi, trúir á valdið og vill láta það eitt tala. Hver sá, sem ekki beygir sig i duftið og viðurkennir alræðið, skal þurrkaður út af taflborð- inu. Nefndu dæmi: Vitað er að rikisábyrgð sú til Flugleiða i fyrra, hins samein- aða flugfélags Loftleiða og

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.