Dagblaðið - 15.12.1975, Side 19

Dagblaðið - 15.12.1975, Side 19
Dagblaðiö. Mánudagur 15. desember 1975, 19 Bækurnar frá Almenna bókafélaginu Bjarni Benediktsson: Land og lýðveldi III. bindi Með þessu bindi er lokið merku rit- gerðasafni, sem ugglaust verður mönnum því dýrmætara, sem lengra liður, bæði sem einstakt heimildarrit og verðug minning um einn ágætasta son íslands á þessari öld. Verð m/sölusk. kr. 3.360.- öll þrjú bindin m/sölusk. kr. 5.520.- Guðmundur Daníelsson: Óratóría 74 Saga úr sjúkrahúsi með skopteikning- um Halldórs Péturssonar. Höfundur bregður skoplegu Ijósi á harðvítugtog tvísýnt stríð upp á líf og dauða við menn og máttarvöld, og hvernig honum tekst að lifa af heila þjóðhátíð tvennar kosningar og tvo holskurði á einu og sama sumrinu. Verð m/sölusk. kr. 2.640,- Guðmundur Hagalín: Segið nú amen séra Pétur Nýstárleg og áhrifamikil skáldsaga um hvernig mannleg náttúra, fjár- hyggjaog kynkvöt búa mönnum örlög. Aðalpersóna sögunnar hin glæsilega og geðrika Herborg Bjarnadóttir er einhver eftirminnilegasta kvenlýsing Hagalins. Verð m/sölusk. kr. 2.640.- Kristmann Guðmundsson:: Stjörnuskipið GEIMFERÐASAGA Vísindaskáldskapur hefur rutt sér mjög til rúms á bókmenntasviðinu og hlotið almennar vinsældir. Þessi nýja saga er spennandi og ákaflega fjör- lega rituð um lífið á hinum ólikustu stöðum í himingeimnum. Verð m/sölusk. kr. 2.400.- Jóhanna Þráinsdóttir Útrás Jóhanna Þrdinsdóttir: Útrós Útrás er fyrsta frumsamda bók höf undar, en áður hef ur hún birt smá- sögur í tímaritum. Skáldsagan útrás er raunsæ og hispurslaus lýsing á lífi ungrar ekkju, sem missir mann sinn af slysförum, eftir hjónaband, sem byggzt hefur á gagnkvæmri blekkingu. í beyskju sinni og ráðleysi varpar hún sér út í hringiðu skemmtanalífsins og kemst þá í kynni við ýmsar dekkri hliðar lífs- ins, fyrst hér heima og síðan i Banda- rikjunum. Sagan er gáskafull og bráðskemmti- leg en um leið umbúðalaus lýsing, sem ber í senn svip af þjóðfélagsádeilu, ástarsögu og djörfum bókmenntum. Verð m/sölusk. 2.520.- Jorge Luis Borges: Suðrið Smásagnasafn, valið og þýtt hefur Guðbergur Bergsson. Sögurnar eru sprottnar úr suðuramerískum jarð- vegi en eiga erindi við fólk hvar í heiminum sem er. Borges er í hópi virtustu skálda sem nú eru uppi og mikill aðdáandi forníslenzkra bók- mennta. Verð m/sölusk. kr. 2.280.- Dusko Popov: Njósnari nasista í þjónustu breta Bókin lýsir einstæðum njósnaferli höfundar. Þjóðverjar töldu hann fær- asta njósnara sinn en í reynd njósnaði hann fyrir breta og lifði í stöðugri lífs- hættu. Hann varaði við árásinni á Pearl Harbor löngu áður en hún var gerð en FBI trúði honum ekki. Popov var mikill gleðimaður og fyllyrt er, að hann sé fyrirmyndin af James Bond. Verð m/sölusk. kr. 2.280.- Michael AAooney: Hindenburgslysið Hindenburgloftfarið var tákn um mátt og megin nasismans — þar til sprengingin mikla varð 6. maí 1937 við Lakehurst í Bandarik j unum og Hindenburg brann til ösku og 36 manns fórust í augsýn hjálparvana áhorf- enda. Hvað gerðist? Var það skemmdar- verk. Þessum spurningum og mörgum fleirf svarar þessi spennandi bók. Verð m/sölusk. kr. 2.280.- Hiltgunt Zassenhaus: Menn og múrar Þýðandi Tómas Guðmundsson. Heillandi frásögn um fórnfýsi og hetjulund ungrar stúlku í síðustu heimsstyrjöld. Hún var kölluð engill fanganna og hér rekur hún minningar sinar frá þessum örlagaríku árum, sem hverjum lesanda hljóta að verða ógleymanlegar. Verð m/sölusk. kr. 2.640.- ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ Austurstræti 18 — Bolholti 6

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.