Dagblaðið - 15.12.1975, Qupperneq 32
OECD segir:
Verðbólguna á Islandi
má minnka um helming
Mœlir með staðgreiðslukerfi
Veröbólguna á Islandi ætti aö
mega minnka niöur i um 25 pró-
sent á næsta ári meö fullu sam-
þykki verkalýöshreyfingar og
atvinnurekenda, segir efna-
hags- og framfarastofnunin
OECD i skýrslu um Island.
Skýrslan var birt i morgun.
OECD segir aö veröbólgan á
tslandi hafi veriö um 50 prósent.
Liklega sé Islendingum erfiöara
en flestum öörum þjóöum i
samtökunum aö ráöa viö erlend
áhrif á efnahaginn. Islendingar
yröu aö finna leiöir til aö draga
úr áhrifum sveiflna i tekjum i
fiskiönaöinum á veröbólgu og
hagvöxt. Þetta er „meiriháttar
orsök jafnvægisleysis í islenzku
efnahagslifi,” segir i skýrslu
OECD.
„Skyndileg aukning tekna i
fiskiðnaðinum veldur þvi, aö
menn kref jast aukningar tekna i
öörum greinum, þar sem ekki
þarf að vera neinn grundvöllur
fyrir henni,” segir OECD.
Meira að segja meiriháttar
umbætur á skipulagi verðjöfn-
unarsjóös fiskiönaöarins þarf til
aö bæta litillega úr skák. Sjóö-
urinn hefur meö öörum oröum
mjög takmörkuö áhrif.
Otflutningur Islendinga hefur
i ár verið miklu minni en vænzt
var. Þvi valda aöallega fimm
meiriháttar vandamál.
Fyrst nefnir OECD langt tog-
araverkfall og næst, að kvóti
var settur á sildveiöar i Noröur-
sjó.
Siöan nefnir OECD hrun
markaöarins fyrir frysta loðnu i
Japan.
Þá hefur þaö komið islenzkum
útflutningi illa, aö mörg riki
hafa sett upp viðskiptahömlur.
Loks kemur til, aö eftirspurn
hefur veriö minni en áöur i
heiminum almennt.
OECD leggur áherzlu á, aö Is-
lendingar taki upp staðgreiðslu-
kerfi skatta, og segir ennfrem-
ur, aö mestu skipti aö setja
hömlur á rikisútgjöld og draga
úr hinum gifurlega viöskipta-
halla.
—HH
íbúðarhús
brennur
' Ai x 'i
i Olafsvik
Ibúöarhúsiö að Sandholti 3 i
Ólafsvik brann til kaldra kola i
fyrrinótt. Einn maður, sem var i
húsinu, bjargaðist naumlega meö
brunasár á handleggjum.
Lögreglunni i Ólafsvik var til-
kynnt um eldinn um kl. fjögur og
er slökkviliöiö kom á staðinn
stuttu siðar var húsiö alelda. Sáu
menn strax, aö ekki myndi
reynast unnt að bjarga húsinu og
var þvi hafizt handa um aö verja
nærliggjandi hús.
Tókst þaö vel, þrátt fyrir
hávaðarok og neistaflug. Ekki
tókst aö bjarga neinu af innan-
stokksmunum úr húsinu, sem var
lágt vátryggt, gamalt forskallaö
timburhús, Alitið er, aö kviknað
hafi I út frá oliukyndingu. HP.
Landvœttirnir sjá
um gœzluna:
Liklega veröur minna um tiö-
indi úr þorskastriölnu á nastunni
en veriö hefur. Brezku togararnir
eru orðnir fáir eftir og vel varðir
af herskipum og öörum verndar-
skipum. Veður er hiö versta á
miöunum.
Jón Magnússon, talsmaður
Landhelgisgæzlunnar, sagöi i
morgun, að landvættirnir sæju
um gæzlu. Ekkert væri hægt aö
veiöa vegna veðurs. I skeyti frá
fréttastofunni Reuter er þaö haft
BRETARNIR FARNIR
AÐ TYGJA SIG HEIM
eftir Brian Willíams, um borö i
herskipinu Brighton, aö slæmt
veður hafi komiö þvi til leiðar,
sem varöskipin hefðu ekki getaö,
að reka brezku togarana heim.
Flestir togararnir eru famir og
ætla aö landa i Bretlandi fyrir jól-
in. Þeir voru flestir um fimmtiu,
þegar „floti hennar hátignar”
kom á vettvang, segir Williams.
Nú er aðeins tuttugu og einn tog-
ari á þessum slóðum.
„Fyrir þá, sem enn eru á mið-
unum, var slæma veðrið bæöi
blessun og bölvun,” segir
Williams.
„Þaö geröi störf þeirra hættu-
meiri en útilokaði um leið árásir
varöskipanna. Þau voru i vari i
fjöröum inni.”
Rétt er aö taka fram að ljós-
myndirnar, sem blaðiö birti á
föstudaginn frá ásiglingunni á
Þór, tók Bjarni Helgason skip-
herra hjá Landhelgisgæzlunni.
—HH
Bifreiðin var allilla útleikin eftir árás piltanna, mælaborðiö skemmt og talstöð, en svona framrúða
kostar tugi þúsunda. DB-mynd: BP
Tveir piltar réðust ú leigubílstjóra:
HENTU KÓKFLÖSKU í FRAMRÚÐUNA
Leigubílstjóri lenti i útistöö-
um viö tvo pörupilta á laugar-
dagsnóttina. Tók hann upp
mann viö Nótatún, en þá bar þar
að tvo unga menn, sem spuröu
farþegann hvort þeir mættu
fljóta meö.
Kvaö hann þaö vera i lagi, en
sagðist ætla suður i Hafnar-
fjörð. Þaö samþykktu drengirn-
ir ekki, heldur vildu þeir láta
aka sér niöur i Klúbb. Farþeg-
inn kvaðst ekki vera á leiöinni
þangaö, en þeir mættu sitja i
niöur aö Skipholti. Þaó þáöu
piltarnir. Er þangaö kom, fór
annar þeirra út, en hinn, sem
sat fram i hjá bilstjóranum,
neitaöi harölega aö fara.
Baö bilstjórinn hann góöfús-
lega aö fara og gerði sig lfk-
legan til þess aö opna huröina
fyrir honum. Brást hinn, sem úti
stóö þá hinn versti viö, þreif upp
huröina hjá bilstjóranum og
sparkaöi i hann, i mælaborð og
talstöö. Þrengdist bilstjórinn
viö þetta niöur i sætið, en gat
stutt á kalltakkann meö hnénu
og hrópaö á hjálp. Viö þaö tók
kauði á rás, en hinn, sem fram i
sat, snaraðist út, stillti sér upp
fyrir framan bifreiöina og lét
kókflösku, sem hann var meö,
riöa á framrúöunni.
Hvarf hann siðan út i myrkr-
iö.
Leigubllstjórinn, sem er
gamall iþróttamaöur, lét ekki
viö svo búiö standa heldur
hljóp á eftir piltunum og náöi
öðrum þeirra eftir eltingaleik
niöur við Austurbæjarbió.
Tókust þar meö þeim átök, en
þá bar þar aö annan leigubil, og
lét bilstjórinn lögregluna vita.
Kom hún á staöinn innan
skamms og tók piltinn i sina
vörzlu. HP.
Ung hjón í
gœzluvarðhaldi:
Grunuð um
aðild að
fjórsvikum
Ung hjón voru handtekin á
heimili sínu i Kópavogi á
laugardaginn og hneppt i
gæzluvarðhald.
Eru þau grunuð um aðild að
allmiklu fjársvikamáli sem
átti sér stað fyrir rúmu ári.
Einnigeru talin einhver tengsl
milli hjónanna og manns þess
er handtekinn var meö hass i
bil sinum nú fyrir helgina.
Máliö er allumfangsmikið
og hefur rannsókn staö>iö yfir
lengi, aö sögn rannsóknarlög-
reglunnar. HP
Hljóp fyrir
bifreið ó
Kleppsvegi
— hlaut höfuðmeiðsl
1 gærkvöldi varð ungur pilt-
ur fýrir bifreiö á Kleppsvegi
gegpt Laugarásbiói. Hafði
hann ætlaö að hlaupa yfir göt-
una til þess að ná i strætis-
vagn, en gætti ekki nægilega
aö sér og varð fyrir bifreið,
sem kom akandi austur
Kleppsveginn.
Pilturinn var fluttur á slysa-
deildina meö minni háttar höf-
uðmeiðsl. HP.
frjálst, óháð dagblað
Mánudagur 15. desember 1975.
Dauðaslys núlœgt
Patreksfirði:
Stór
steinn
lenti ó
vörubílnum
38 ára gamall maöur, Pálmi
Magnússon, frá Patreksfirði,
lézt, er bifreið hans fór út af
veginum við Sel I Raknadalshliö
á leiðinni frá Barðaströnd til
Patreksfjarðar. 15 ára gömlum
syni hans tókst að henda sér út
úr bifreiðinni áður en hún hrap-
aöi fram af veginum.
Pálmi var i mjólkurflutning-
um frá Barðaströnd á föstudág-
inn. Um kl. 13.30 voru þeir feög-
ar komnir á veginn meðfram
hliðinni og mun þá hafa orðið
grjóthrun úr hliðinni fyrir ofan
veginn. Lenti stór steinn á vöru-
flutningabifreiðinni, sem við
það hentist út af vegarbúninni.
Aður en þaö gerðist tókst
drengnum að henda sér út úr
bifreiðinni, en Pálmi barst með
henni 50-60 metra niöur stór-
grýtisurð alla leið niður i fjöru.
Dreiföist brak úr bilnum langa
vegu.
Er lögreglan kom á staðinn
var Pálmi ennþá með lifsmarki,
en lézt skömmu eftir að komið
var á sjúkrahúsið á Patreks-
firði.
Pálmi var kvæntur og lætur
eftir sig fjögur börn.
_________________—HP—
Ríkisstjórnin
rœðir land-
helgismólið
Landhelgismálin voru efst á
baugi á rikisstjórnarfundi i morg-
un.
Einar Ágústsson, utanrikisráð-
herra, mun á fundinym hafá gefið
skýrslu um för sina á fund
Atlantshafsbandalagsins i
Brussel. Ekki var búizt við stór-
tiöindum af þessum stjórnar-
fundi, og sennilegast taliö, að
frekari aðgerðir yrðu ekki i land-
heigismálum í bili.
—HH
Beið bana
á Reykja-
nesbraut
Maöur á miöjum aldri beiö
bana i umferðarslysi I Reykja-
vik siödegis á laugardag.
Kl. rúmlega 18 á laugardag
voru lögreglumenn staddir i
lögreglubifreiö móts viö gatna-
mót Bústaðavegar og Reykja-
nesbrautar. Sáu þeir hvar
maöur kemur gangandi eftir
eyjunni milli akbrautanna og
gengur umsvifalaust austur yfir
Reykjanesbraut, — fyrir
bifreiö, sem þar kom aðvlfandi
á eölilegum hraöa. Reyndi öku-
maður hennar aö hemla, en allt
kom fyrir ekki og varö maður-
inn fyrir bifreiöinni.
Var hann fluttur meö sjúkra-
bifreiö á Borgarspitalann, en
lézt þar skömmu siöar.
Aö sögn lögreglunnar er
fremur léleg lýsing á slysstaön-
um og auk þess var slæmt
skyggni.
Hinn látni hét Birgir Gunn-
arsson, 48ára. HP