Dagblaðið - 18.12.1975, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 18.12.1975, Blaðsíða 8
8 Vörugjald lœkkar í áföngum Dregið úr lœkkun niðurgreiðslna Rikisstjórnin hefur ákveöið að lækka niðurgreiðslur ekki jafn- mikið og til stóð samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Þess i stað verður vörugjald ekki fellt niður strax eins og ætlunin var. Vörugjaldið verður lagt niður i áföngum. Það á að lækka úr 12% i 10% um áramót og siðan niður i 6% 1. september. Tekjur af gjaldinu eru áætlað- ar munu verða 2200 milljónir króna á næsta ári. Niðurgreiðslur verða minnk- aðar minna en ráðgert var, þannig að framlög þeirra vegna verða 700 milljónum króna hærri en i fjárlagafrumvarpinu greindi. Matthias A. Mathiesen fjármálaráðherra sagði á þingi i gær, að ákvörðun um meiri niðurgreiðslur en til stóð hafi verið tekin til þess að fjárlaga- frumvarpið fæli ekki i sér að- gerðir sem yllu verðhækkunum heldur hið gagnstæða. Framangreindar ráðstafanir fela i sér, að rikissjóður fær 1500 milljón króna meiri tekjur en áður var ætlað. —HH Hallgrímskirkja: Kirkjusmíðinni á að Ijúka nœstu 2-4 árin Nú i desembermánuði eru einmitt 30 ár siðan bygging Hallgrimskirkju hófst. 1 desem- ber 1948 var hluti kórsins vigður og tekinn i notkun. Það var þvi skemmtileg til- viljun að einmitt nú nýlega var kirkjubyggingasjóðnum afhent riflegt framlag sem var fyrsta greiðsla af áheiti. „Þegar bókaútgáfan örn og örlygur gáfu út Bibliuhand- bókina sl. haust hétu forráða- menn útgáfufélagsins kirkju- byggingarnefnd Hallgrims- kirkju ákveöinni upphæð af sölu hverrar bókar.— Nú hefur fyrsti hluti áheitsins verið afhentur og var það rifleg fúlga,” sagði Hermann Þor- steinsson form. sóknarnefndar er við spjölluðurp við hann. — Hvers konar bók er Bibliuhandbókin? Það er nokkurs konar alfræði um bibliuna, sænsk að uppruna, þýdd af sr. Magnúsi Guðjóns- syni. Bókin er fallega mynd- skreytt. örn og örlygur eru brautryðjendur i útgáfu slikra bóka, þvi þetta er sú fyrsta sinn- ar tegundar á islenzku. Hér fékkst fyrir tveimur árum ensk bibliuhandbók sem hét „Lion Handbook of the Bible”. Islenzka Bibliuhandbókin kom út i fyrra á 300. ártið Hall- grims Péturssonar, 27. október, og á titilblaði bókarinnar er mynd af Hallgrimskirkju. Við i kirkjubyggingasjóðnum erum ákaflega þakklátir fyrir þetta framlag og hyggjum gott til frekari „afborgana” i framtið- inni!” — Hvernig gengur með kirkjubygginguna? „Við erum allglaðir yfir þvi að okkur miðar markvisst áfram. Nú er verið að byggja kirkjukórinn. Hinn 27. október á ártið Hallgrims Péturssonar, var hægt að steypa nokkuð myndarlegan viðauka ofan á kórinn. Nú erum við komnir vel á veg með næstu lotu og standa vonir til að kórinn verði full- gerður á næstu mánuðum. Fer það að visu nokkuð eftir veðri. Siðan verður farið að byggja yfir kirkjuna út frá kórnum i áföngum. Vonandi verður þvi verki lokið á næstu 2-3 árum. Má geta þess að gengið hefur verið frá skemmtilegu æsku- lýðsheimili i gömlu kirkjunni. Þar var leyst af hendi talsverð vinna sem var lokið fyrir haustiö. Er þar nú rekið blóm- legt barna- og unglingastarf. Það er ung stúlka, Asta Óskars- dóttir, sem vinnur að æskulýðs- starfinu i sókninni.” Hermann Þorsteinsson formaður sóknarnefndar Hallgrimskirkju tekur við fyrsta hluta áheitsins úr hendi Örlygs Ilálfdánarsonar, bókaútgefanda. — Hvað eru guðsþjónusturn- ar haldnar nú? „1 fyrra var vigður nýr kirkjusalur i turn- álmunni. þeirri sem snýr að safni Einars Jónssonar.” — Hvað er turninn hár? „Turninn er nákvæmlega 70 m á hæð. Ofan á honum er þriggja metra hár kross úr kvartsi sem nokkrir vinir kirkjunnar söfnuðu uppi við Miðdal og er krossinn steyptur úr þvi. t turninum eru niu klukkur i klukknaspilinu og þrjár stórar klukkur til sam- hringingar. Við erum þvi ekki i neinum vandræðum með að hringja inn stórhátiðirnar,” sagði Hermann Þorsteinsson. A.Bj. r . . . . l.. ~ ; r < / r' • . _____________Dagblaðið. Fimmtudagur 18. desember 1975. Fjáriagafrumvarp til 3. umrœðu Breytingartillögurnar við fjár- lagafrumvarpið, sem meirihluti fjárveitinganefndar Alþingis stóð að, voru allar samþykktar i gær. Breytingartillögur minnihluta nefndarinnar, stjórnarandstæð- inga, og einstakra þingmanna Bœndokonur fái Tvær konur i þingliði Sjálf- stæðisflokksins, Sigurlaug Bjarnadóttir og Ragnhildur Helgadóttir, flytja tillögu til þingsályktunar um könnun á möguleikum þess, að Lifeyris- sjóður bænda greiði bændakonum „allt að” þriggja mánaða fæðing- stjórnarandstöðunnar voru allar felldar. Fjárlagafrumvarpið fer næst til 3. umræðu, sem er hin siðasta. Fjárveitinganefnd mun þá enn leggja fram breytingartillögur. —HH fœðingarorlof arorlof. 1 lögum er gert ráð fyrir, að konur innan Alþýðusambandsins fái frá áramótum fæðingaroriof greitt, það er fái atvinnuleysis- bætur úr Atvinnuleysistrygginga- sjóði i þrjá mánuði við barnsburð. —HH Fljúgandi hálka á Hellisheiði Sæmileg færð er nú austan ört austur þar. Snjór var hvergi fjalla, að sögn lögreglunnar á orðinn mikill áður en hlána tók Selfossi. Fljúgandi hálka var þó og engar umferðatruflanir hafa i gærkvöldi á Hellisheiði og viða orðið af snjómagni en tafir hált annars staðar. Nú hlánar vegna hálku. ASI Hafnardœling og hafnargerð „Að hafa tækjakost til að annast alla hafnardælingu á landinu er annað en að hafa tækjakost til að annast alla hafnargerð,” sagði Kristinn Guð- brandsson forstjóri Björgunar hf. er hann hringdi i okkur eftir að hafa fengið Dagblaðið i gær. Blaðamanni varð á að gera tvær alvarlegar villur er hann skrifaði grein um möguleika i hafnamál- um. Hannn notaði orðin „hafnar- gerð” og „hafnarframkvæmdir” þar sem Kristinn átti aðeins við hafnardælingu. Kom hin rétta umsögn Kristins fram i upphafi greinarinnar en röng siðar og i fyrirsögn. Þá átti sér stað misskilningur milli blaðamanns og Kristins varðandi skipastól Björgunar h.f. Var rætt um Sandey I, sem er bú- in 24 tommu dælu, Sandey II, sem hefur 18 tommu dælu, og Sandey III, sem er prammi með 12 tommu dælu. Einnig var rætt um nýja skipið 1000 tonna sem er i smiðum hjá Stálsmiðjunni. Taldi blaðamaðurinn að hér væri um fjórða skipið að ræða. Það er rangt. Nýja skipið á að heita Sandey II, búið 18 tomma dælu og graftarkrana. Með þvi skipi má sprengja og grafa hvaða höfn landsins sem er. Skipin þrjú gætu annazt allahafnardælinguá land- inu. Þessi misskilningur leiðréttist hér með og skal tekið fram að hann er blaðamannsins en ekki Kristins. —AST— Sumir þeir mest lesnu fá ekki viðbótarlaunin „Guðrún frá Lundi mokaði tekjum inn i styrktarsjóði rit- höfunda og skrifaði bækur, sem þjóðin vildi lesa. Við hana var ekki dekrað með listamanna- launum eða yfirleitt á annan hátt. Hins vegar voru bækur hennar lesnar af alþýðu manna meira en flestra annarra is- lenzkra höfunda,” sagði Snjó- laug Bragadóttir i viðtali við Dagblaðið. Snjólaug mun vera eini rit- höfundurinn, sem sótt hefur um svokölluð viðbótarritlaun öll þrú árin, sem þau hafa komið til skipta, uppfyllt öll skilyrði til að hljóta þau, en aldrei hlotið þau. Snjólaugu má hiklaust telja meðal metsöluhöfunda undan- farinna ára. Ekki hefur hún fengið náð fyrir augum Úthlutunarnefndar listamanna- launa. „Það hlýt ég að sætta mig við,” sagði Snjólaug. „Kjörnir menn eða skipaðir, svo ég segi nú ekki sjálfkjörnir eða sjálfskipaðir, gefa út tilskipanir um, hvað sé list og hvað ekki. Ég segi hins vegar skoðun mina á rangindum i úthlutun viðbótarritlauna. Við skiptingu þeirra er ekki lagður neinn list- rænn mælikvarði á verk höf- unda. Þar er lagt til grundvallar að veita uppbót á laun vegna rit- starfa. Mig minnir að sölu- skattstekjur af bókum hafi komið til tals i sambandi við þau. Enda hafa vellrikir hátekjumenn notið þeirra með hliðsjón af þvi, að ég hygg,” sagði Snjólaug. Þess má geta, að 4 rithöfund- ar hafa fengið þessi viðbótarrit- laun f þau þrjú skipti, sem þeim hefur verið deilt út. Siðast sóttu 76höfundarum þessi ritlaun. 40 þeirra hlutu 300 þúsund krónur hver. Einn rithöfundur, Snjólaug Bragadóttir, hefur sótt um þau i öll þrjú skiptin, alltaf uppfyilt öll skilyrði, en aldrei fengið rit- launin. Nú er talað um að hætta við úthlutun þeirra. „Trúi þvi, hver sem vill,” segir Snjólaug, „en ég læt ekki traðka á mér með geðþóttaákvörðun hlut- drægra iífsgæðaskammtara ár eftir ár, án þess að láta til min heyra.” Nýjasta bók Snjólaugar Bragadóttur heitir: „Holdið er torvelt að temja”. Virðist svo sem „skömmtunarmenn” kom- ist nú að þvi, að fleira er erfitt að temja en holdið, þótt senni- legt megi telja, að hvellvakrar skýringar þeirra hlaupi ekki út- undan sér nú frekar en endra- nær, þegar þær verða gefnar hátt og snjallt. — BS.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.