Dagblaðið - 20.12.1975, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 20.12.1975, Blaðsíða 10
10 Dagblaðiö. Laugardagur 20. desember 1975. MmBUÐIÐ frfálst, úháð dagblað Ltgefaudi: Dagblaöið hl. I'ramkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Kréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: llaukur Helgason Iþróttir: llallur Simonarson Hönnun: Jóliannes Revkdal Blaöamenn: Anna Bjarnason, Asgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bragi Sigurösson, Erna \'. lngólfsdóttir, Hallur Hallsson, Helgi Pétursson. Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson. Handrit: Asgrlmur Pálsson, Hildur Gunnlaugsdóttir, Inga (jiiömannsdóttir, Maria ólafsdóttir. Ljósnivndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Björgvin Pálsson (íjaldkeri: l'iáiiin Porleifsson Auglvsingastjóri: Asgeir llannes Eiriksson Dreiíingarstjóri: Már E.M. Halldórsson Askriltargjald K00 kr. á mánuöi innanlands. l lausasölu 40 kr. cintakiö. Blaðaprcnt hf. Ritstjórn Siöumula 12, simi S;i:t22, auglýsingar, áskriftir og af- greiösla l'verliolti 2, simi 27022. Framtíðarstefnan Á hvaða atvinnugreinar ber að leggja mesta áherzlu á næstu árum? Er ísland komið svo langt á þróunar- brautinni, að við getum unað þvi, að fólk flykkist i þjónustugreinar? Svarið er neitandi. 1 skýrslu Iðnþróunarnefndar er talið liklegast, að fólki i iðnaði fjölgi um 1,7 af hundraði á ári fram til 1985 en siðan hætti sú fjölg- un. Gert er ráð fyrir, að mannafli i fiskveiðum og fiskvinnslu haldist nokkuð óbreyttur næstu árin. Nokkur hin þróuðustu riki, svo sem Sviþjóð, hafa haft þá reynslu, að fólki hefur hlutfallslega tekið að fækka i iðnaði en i vaxándi mæli hafa menn snúið sér að ýmiss konar þjónustu, opinberri þjónustu og viðskiptum og verzlun. 1 rikisstjórnartið Magnúsar Kjartanssonar voru uppi miklar áætlanir um iðnþróun. Talað var um, að tvöfalda mætti útflutning iðnaðarvara á einu ári, og siðan mundi hann vaxa stórum skrefum, unz svo mætti segja. að ísland væri orðið iðnþróað. Svo litið varð úr framkvæmd þessara áætlana, að við borð liggur, að menn liti nú á þær sem spaug. ísland hefur þess i stað setið eftir i kapphlaupi þjóða um lifsgæði. Við höfum viðhaldið hinum hefð- bundnu atvinnugreinum og haft iðnaðinn sem ösku- busku. Við höfum ekki efni á þessu. Aukin framleiðsla er forsenda þess, að við búum við aukna hagsæld. Við höfum ekki efni á að ,,hlaupa yfir bekk” og una þvi, að mannfjölgunin fari i þjónustugreinar, fyrr en eftir langan tima. Fyrst þarf iðnaður að eflast mun meira en um þau 1,7 prósent á ári, sem að framan voru nefnd. Tækifærið gefst nú, og samtimis verður nauðsyn- in ljósari. Mönnum er almennt ljóst, að nú verður, ef vel á að vera, að leggja hluta fiskiskipaflotans. Þvi má gera ráð fyrir, að fólki, sem starfar við sjávarútveg, fari fækkandi. Landbúnaðurinn getur ekki tekið við fleira fólki. í þeirri grein ætti þvert á móti að fækka mjög fólki. Við erum ekki við þvi búin að fylgja Svium eftir með þvi að láta þjónustu taka meginskammtinn af mannfjölgurjinni. Við erum einfaldlega ekki nógu iðnþróað riki. Þróunin hefur verið hættulega hæg. Rannsóknir sýna, að framleiðni iðnaðarins er langmest. Útreikningar á hlutfallinu milli fjár magns og framleiðslu i hinum ýmsu greinum sýna, að hlutfallið fyrir iðnaðinn er 0,57, fyrir sjávarútveg 1,36 og 3,52 fyrir landbúnað. Aukning starfsfólks við iðnað er þvi langsamlega hagkvæmust frá þjóð- hagslegu sjónarmiði, þegar um er að ræða að verja viðbótarfjármagni sem bezt. Þvi er bezt að leggja áherzlu á iðnaðinn á kom- andi árum. Hagkvæmast væri að gera það með þvi að leggja auðlindaskatt á sjávarútveginn og láta andvirði hans renna til iðnaðarins. Við ákvörðun á hvaða skipum eigi að leggja, á ekki að láta duttlungafullar leyfisveitingar hins opinbera ráða. Þetta yrði unnt að gera með auð- lindaskatti — sem mundi tryggja, að fjárhagslega hagkvæmustu útgerðarfyrirtækin stæðust en hin legðu upp laupana. Þetta eru hin réttu lögmál efnahagslifsins, og eftir þeim ætti að fara i alvöru, enda mikið i húfi. Eftir fjögur ár á tuttugustu öldinni: VERÐUR UM HVAÐ Fyrir fjórum árum stigu nokkr- ir menn út úr þyrlu á Filipseyjum og horfðust i augu við forfeður sina. Nánar tiltekið horfðust þeir i augu við 25 karla, konur og börn, sem höfðu misst af öllum menn- ingarskeiðum siðan á steinöld. 1 algjörri einangrun frá öðru fólki i margar aldir hafði þessi hópur fólks lifað i hellum i regndjúpum frumskógi, beitti áhöldum úr steini, stundaði hvorki veiðar né jarðyrkju, heldur lifði á rótum, berjum, ávöxtum, pálmakvoðu, froskum og fleiru af þvi tagi. Visindalegt gildi Tasaday- fólksins — eins og það kallar sig sjálft eftir skógivöxnum fjalla- heimkynnum sinum — er auöséð. Hér er um að ræða lifandi hóp fólks frá steinöld en ekki niður- grafnar leifar beina og áhalda. Tasadayarnir eru lifandi, talandi — sem er hvað mikilvægast frá visindalegu sjónarmiöi — og starfandi „eftirliking” þess sem við vorum öll fyrir löngu. Útval- inn hópur mannfræðinga, þjóð- háttafræðinga og fleiri visinda- manna var kominn á staðinn áður en langt um leið til að rannsaka „uppgötvunina”. Enginn var þó tiðari gestur en bandariskur blaðamaður sem starfar i Manila, höfuðborg Filipseyja, John Nance. Hann hefur nú skrifað bók um Tasadayana — „The Gentle Tasaday” — snilldarverk með skinandi góðum ljósmyndum sem hann hefur sjálfur tekið á fyrstu þremur árum þessa furðulega ættbálks á nýjum timum. Blaða- maðurinn i Nance leynir sér ekki. Hann hefur skráð með nákvæmni allt sem hefur vakið athygli hans i fari þeirra, hvort heldur er hegð- un og venjur, hugsun og trú. Hann hefur meira að segja tekið einka- samtöl fólksins upp á segulband og birtir beina kafla úr þeim. Nance gerir ekki nema hálfvolga tilraun til að dylja ótta sinn fyrir hönd þessa fólks, ótta við það sem kann að biða þess. Tasadayarnir hafa lýst fundi sinum við tuttug- ustu öldina sem „eldingarlosti”. Nance og félagar hans viður- kenna hreinlega — og i bókinni fer það ekkert á milli mála — að þeir eiga „engin orð”, ef svo má að orði komast. Tasadayarnir komust i kynni við járnöldina tiu árum áður þeg- ar einrænn veiðimaður, sem gengur undir nafninu Dafal, rakst á nokkra þeirra i frumskóginum. Hann gaf þeim fyrstu hnifana, bogana og örvarnar, klæðin og fleiri hluti sem þeim voru gjör- samlega framandi. Tasadayarnir höfðu aldrei átt vopn. Og það sem meira er: í máli þeirra eru engin orð yfir „óvin,” „morð” eða „strið”. Börn þeirra sýndu að visu venjulega árásarhneigð og singirni barna, en hinir fullorðnu alls ekki. Þeir héldu þvi stöðugt fram er þeir voru spurðir að þeir væru hamingjusamir og enginn, sem fylgdist með þeim, lét sér detta annað i hug. Heimkynni þeirra — rúmgóðir hellarnir, gnótt ávaxta- trjáa og silfurtær lækur — litu út eins og Edengarðurinn sjálfur og virtist vera það. Það eina sem þeir óttuðust voru snákar. Við- brögð þeirra voru eins hagkvæm og hugsazt getur — snákarnir voru hræddir i burtu. Lif þessa frumstæða fólks var á engan hátt ljótt eða grimmilegt. EIGNARRÉTTUR OG Maðurinn er talinn æðsta skepna jarðarinnar og sú undar- legasta mætti fylgja með. Allar aðrar skepnur, sem frjálsar telj- ast, virðastgeta haft stjórn á sinu umhverfi. Aftur á móti ógnar nú æðsta skepnan þessum dásam- lega heimi meir en nokkru sinni fyrr, heimi, sem ekkert vantar i frá skaparans hendi. Toppmenn hans þurfa ekki annað en styðja á hnapp til að eyða heiminum með mengun eða atómeldi, þessum dásamlegu tækjum eignarréttar- ins. Kannski væri þetta bezta lausnin og sú eina til jafnréttis og tæki fyrr af en seigmyrðing af völdum hungurs og gereyðingar- vopna. Risaeðlur peningavald- sins ráða nú öllu smáu og stóru meira en nokkru sinni fyrr. Allar framieiðslugreinar eru trúlofað- ar, komnar i „hring”. Þessir hringar ráða, hvað al- menningur hefur fyrir sina hlut- deild og hvað hann svo verður að greiða fyrir vöruna, sinar lifs- nauðsynjar. Þetta þekkjum við bezt frá timum einokunar- verzlunarinnar hér á landi. Auðvitað mynda þessar sam- steypur bræðralag, og vilji ein- hverjir smærri stemma á að ósi, eru þeir keyptir á finan máta. Hjá okkur kemur þetta fram i minni stfl, en alveg samsvarandi. Þessar eðlur horfa vökulum augum á hvern skika, sem vaxt- arbroddur sýnist á, hverja á og læk, sem orðið gæti silunga- eða laxamóðir. Bændur standast ekki freistinguna, þvi stundum er all- vel boðið. A þennan hátt fer allt slikt land i auðn á sama hátt og þar sem risaeðlur fornaldarinnar fóru yfir. Enginn má þangað ó- þveginn lita eða nytja þessar jarðir. Þarna ris bara veiðihús á hentugum stað, sem sýnir, „hvar heldrimenn fara”. Bóndi úr Borg- arfirði sagði mér fyrir skömmu, að unga fólkið hrektist burt, sem vildi reisa heimili þarna, vegna þessara nýriku manna. Þarna á til dæmis fjármálaráð- herrann okkar jörð, þótt fátækur sé. Kannski er hægt að koma inn á skýrslurbullandi velmegunartapi á þessum jörðum. Ekki eru mörg ár siðan einn mesti fjármálamað- ur þessa lands keypti jörð fyrir austan fjall, en þar var tiltal um einhver opinber umsvif, sem þvi miður varð þó ekki af. Samt reisti hann þar búhokur og drap úr hor, sem mun hafa orðið skýrslumat- ur. Talað hefur verið um nýja höfn á Suðurlandi og tilnefndur staður á söndum austur. Þar hafa sézt menn með stikur og kvarða og sjálfsagt með það fyrir augum að bygg ja sig upp af þessari vöru. Alls staðar þar sem kauptún eru i vexti, svifa gammar yfir og kaupa upp móa og mýrar. Hér skiptir engu um gras eða veiði, bara fermetra. Þetta eru bara örfá dæmi um þá velmegunarhyggju, sem hefur gripið þjóðina eða réttara sagt okkar frammámenn. Fátækir menn geta aldrei verið á fyrsta plássi. Helzt væru það'þá skáld og listamenn á gamaisaldri, sem þá eru taldir áhættulausir, þó spýtt hafi verið á þá fyrrum. ---------------- Skipuleqgur ríkið Ekki eru landsmenn enn búnir að bita úr nálinni vegna setu vinstri stjórnarinnar sálúgu þvi margt af þvi, sem nú er orðið að stærstu vandamálunum i islenzku efnahags- og atvinnulifi, er einmitt til orðið vegna þess fyrir- hyggjuleysis og þeirrar eyöslu- stefnu sem hún markaði á hinum stutta valdaferli sinum. Nærtækasti þvi sambandi er að vitna til þeirrar fjarstæðukenndu sýndarmennsku sem fólst i togarakaupunum, skipum sem nú eru talin bezt geymd bundin við bryggjur eða seld úr landi aftur. Nýjasta (fjármála?) ævintýrið sem þjóðin má nú fara að búa sig undir að greiða fyrir vegna til- stuðnings vinstri stjórnarinnar, er álit frá nefnd sem skipuð var i april 1972 til þess að gera tillögur um staðarval rikisstofnana. t fréttum dagblaðanna sl. sunnudag segir að nefnd þessi hafi nú loks lokið störfum og skil- að áliti sinu, — viðamikilli skýrslu. Eitt dagblaðanna lýkur frétt sinni um skýrslu þessarar nefndar með þvi að segja að nefndarálitið sé að stærð eins og simaskráin! Þar á vist að vera til mikils jafnað en ekki sagði i fréttinni hvort miðað var við um- mál simaskrárinnar eða blaðsiðnafjölda. Hvort þetta nefndarálit verður notað af núverandi rikisstjóm eða ekki er ekki vitað en eitt mun vist, að ef farið verður eftir tillögum þeim, sem nefndin lét frá sér fara, mega almennir skatt- greiðendur fara að biðja fyrir sér þvi sjaldan hafa sézt nýstárlegri hugmyndir á prenti og sem gefa tilefni til viðamikilla útgjaida rikisins, — ef til vill stórkostlegri en nokkurn órar fyrir. Það væri ekki ein báran stök hjá þessari efnahagshrjáðu þjóð ef nú, ofan á alla aðra óáran, ætti að fara út i eins konar þjóðflutn- inga — innanlands sem væru kostaðir af hinum almenna borgara. Segja mætti þó að til einhvers væri að vinna ef þjóðflutningunum ætti að beina i öfuga átt við það sem lagt er til i nefndarálitinu, sem er eins stórt og simaskráin, — nefnilega i suðurátt, til suður- og suðvesturhluta landsins. En þannig litur málið bara ekki út f skýrslu nefndarinnar sem bú- in er að vera við störf frá þvi i april 1972. Heldur er raunveru- lega stefnt að þvi að slita sundur starfsemi mikilvægra stofnana sem nauðsynlegar eru hverju sjálfstæðu riki. Með þvi að leggja til að hluti þessara stofnana verði staðsettur i öðrum landshluta eða flytja stofnanir i heilu lagi út á lands- byggðina, þar sem fámenni og fólksflótti hefur ráðið rikjum, auk þess gifurlega kostnaðar sem er þessu samfara, er komið til móts við þá stefnu kommúnista hér sem annars staðar að leysa upp alltheildarskipulag stjórnunar og reksturs sem tilheyrir lýðræðis- riki, til að ná tökum á lömuðum eða hálf-lömuðum rikisstofnun- um, eftir að yfirsýn og aðhald hefur minnkað með dreifingu þeirra um alla landsbyggðina. Um niðurstöðu nefndarinnar þarf ekki að fara mörgum orðum, svo augljóslega sem fram kemur að þar hafa kommúnistar og vinstri öfl farið með sigur af hólmi, þótt nefndin hafi e.t.v. átt að vera ópólitisk eða verið skipuð með tilliti til hinnar pólitisku samtryggingar, þ.e. „einn úr hverjum flokki”. Nægir að benda á nokkrar þess- ara tillagna sem sýna vel hvað

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.