Dagblaðið - 21.01.1976, Blaðsíða 23
Dagblaðiö. Miðvikudagur 21. janúar 1976.
23
Sjónvarp
i
Útvarp
Útvarp kl.
14.30
á morgun:
Húsnœðið þegar orðið
LuAHMt Heimsókn í Öskjuhlíðarskóla,
prongT sem fiutt var í s.l. haust
— Við fórum i heimsókn i
öskjuhliðarskólann og hittum
að máli skólastjórann, Magnús
Magnússon, kennara og nem-
endur, sagði Gisli Helgason um
efniútvarpsþáttarsem hann sér
um á morgun kl. 14.30 ásamt
Andreu Þórðardóttur.
— Skólinn er fyrir börn sem
eru á mörkum þess að vera van-
gefin. Auk þess eru börn með
aðrar fatlanir i skólanum og lik-
lega eitthvað af börnum sem
talin eru fjölfötluð.
— Skólinn flutti i núverandi
húsnæði sitt i öskjuhliðinni i
október sl. Húsnæði þetta er þó
aðeins einn þriðji af þvi húsnæði
sem skólinn á að fá i framtið-
inni. Segir skólastjórinn að
bráðnauösynlegt sé að vjð^
bótarhúsnæðið veröi tilbúiþ-ékki
siðar en eftir tvö ár svo þröngt
sé þegar orðið h já þeim. Verður
að troða miklu fleiri i hverja
stofu en góðu hófi gegnir. Einnig
er aðstöðunni mjög ábótavant.
Þarna eru börn i hjólastólum og
verður að bera bau á milli hæða.
Skólinn tók til starfa fyrir 14
árum og var þá til húsa i gamla
Ármannsheimilinu og hét
Höfðaskóli.
Gisli sagði að á fjárlögum
fyrir árið 1976 væru veittar 4
milli. kr. til bveeinear skólans
og vill hann gjarnan fá svör við
þvi hve lengi stjórnvöld ætla að
láta þessi mál sitja á hakanum.
Magnús skólastjóri kynnir
skólann á mjög raunhæfan hátt
og skýrir frá þvi sem þar fer
fram. Virðisthann hafa einstakt
lag á að skilja vandamál þeirra
sem þar eru. Hann heldur þvi
fram að allir eigi rétt á skóla-
göngu, á hvaða stigi sem þeir
séu. Þeir geti alltaf lært eitt-
hvað. Likir hann námsárangri
sumra barnanna sem eru með
mikið skerta greind við þrek-
virki miðað við venjuleg börn.
Gisli sagði að honum fyndist
sérlega skemmtilegur og lýð-
ræðislegur andi rikjandi i skól-
anum og nefndi sem dæmi að
kennararnir færu fram á að
nemendur færu úr skónum og
Gisli Helgason og Andrea Þórðardóttir ræða við Magnús skólastjóra
Öskjuhliðarskólans. Likir Magnús námsárangri sumra barnanna,
sem eru með mikið skerta greind, við þrekvirki, miðað við venjuleg
börn.
fóru þá nemendur fram á að
kennararnir færu einnig úr
skónum. — A.Bj.
Útvarp kl. 19.35 „Vmnumál"
LAUN BANKASTJÓRA OG HLUNNINDI
„Við reynum að svara þeim
spurningum sem við fáum frá
hlustendum,” sagði Arnmundur
Backmann, annar stjórnandi
þáttarins Vinnumál sem er á
dagskrá útvarpsins i kvöld kl.
19.35. Arnmundur kvað það
mjög æskilegt að hlustendur
sendu þeim félögunum spurn-
ingar um þau málefni sem þátt-
ur þeirra fjallar um.
í kvöld verður rætt um rétt
manna til inngöngu i stéttafé-
lög. Kynnt verður Samband is-
lenzkra bankamanna og það
gerir Sólon Sigurösson deildar-
stjóri i Landsbanka tslands.
Stjórnendur þáttarins hafa
tekið þá stefnu að taka fyrir
málefni sem eru efst á baugi i
hvert skipti. Að undanförnu
hafa orðið miklar umræður um
laun bankastjóra og það mál
verður tekið fyrir i kvöld. Rætt
verður við Baldvin Jónsson
bankaráðsmann um launakjör
bankastjóra. K.P.
Verkamenn fengu nokkrar
krónur i kauphækkun 1. desem-
ber. Hvað fengu bankastjór-
arn ir?
Q Útvarp
MIÐVIKUDAGUR
21. janúar 1976
13.00 Við vinnuna. Tónleikar.
14.30 Miödegissagan :
„Kreutzersónatan” eftir
Leo Tolstoj Sveinn Sigurðs-
son þýddi. Arni Blandon
Einarsson les (8)
15.00 Miðdegistönleikar.
Berwaldtrióið leikur Trió
nr. 1 i Es-dúr eftir Franz
Berwald. André Navarra og
Jeanne-Marie Darré leika
Polonaise brillante og
Grand duo concertante fyrir
selló og pianó eftir Fréderic
Chopin. Tékkneska
filharmoniusveitin leikur
„Rökkur”, sinfóniskt ljóð
op. 39 eftir Zdenék Fibich.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.10 (Jtvarpssaga barnanna:
„Bróðir minn ljónshjarta”
eftir Astrid Lindgren
L
Þorleifur Hauksson les þýð-
ingu sina (12).
17.30 Framburðarkennsla i
dönsku og frönsku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Vinnumál.Þáttur um lög
og rétt á vinnumarkaði.
Umsjónarmenn : lög-
fræðingarnir Gunnar Eydal
og Arnmundur Backman.
20.00 Kvöldvaka.a. Einsöngur
Elsa Sigfúss syngur islensk
lög. Valborg Einarsson
leikur á pianó. b. Gisli
Gróuson Skerfjörð Magnús
Sveinsson kennari flytur
frumsamda smásögu. c.
Hagnýt llfsspeki.Dr. Sveinn
Bergsveinsson flytur frum-
ort stuttjóð. d. Þegar bjarn-
dýr gekk á land i Grimsey
Sigriður Schiöth les frásögn
Péturs Sigurgeirssonar
vigslubiskups. e. Litið til
byggða austan Lónsheiðar.
Þórður Tómasson safn-
vörður i Skógum flytur
fyrra hluta erindis sins. f.
Kórsöngur Kammerkórinn
syngur islensk lög. Söng-
stjóri: Rut L. Magnússon.
21.30 Ú t v a r p s s a g a n :
„Morgunn” annar hiuti Jó-
hanns Kristófers eftir
Romain Rolland i þýðingu
Þórarins Björnssonar. Anna
Kristin Arngrimsdóttir leik-
kona les (8).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „1 verum” sjálfsævi-
saga Theódórs Friðriksson-
ar Gils Guðmundsson les
si'ðara bindi (8).
22.40 Djassþátturi umsjá Jóns
Múla Arnasonar.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR
22. janúar
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (of
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna. kl.
8.45: Kristin Sveinbjörns-
dóttir les „Lisu eða Lottu”
eftir Erich Kastner (14).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða. Við sjóinn
kl. 10.25: Ingólfur Stefáns-
son talar við Guðna Þor-
steinsson fiskifræðing um
veiðarfæragerð.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Gino Gorini og Sergio
Lorenzi leika fjórhent á
pianó tvær sónötur eftir
Clementi/Félagar i Vinar-
oktettinum leika Kvintett i
G-dúr op. 77 eftir Dvorák.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. A frivaktinni
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
/j^Sjónvarp
18.00 Björninn Jógi. Banda-
risk teiknimyndasyrpa.
Þýðandi Jón Skaptason.
18.25 Kapiaskjól. Breskur
myndaflokkur byggður á
sögum eftir Monicu Dick-
ens. Brottförin. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
18.50 Gluggar. Bresk fræðslu-
myndasyrpa. Þýðandi og
þulur Jón O. Edwald.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Vaka. Dagskrá um bók-
menntir og listir á liðandi
stund. Umsjónarmaður
Aðalsteinn Ingólfsson.
21.15 McCloud. Bandariskur
sakamálamyndaflokkur.
Kvennamorðinginn. Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
22.05 Kaj Munk. Dönsk heim-
ildamynd um prestinn og
rithöfundinn Kaj Munk.
Vinir ug vandamenn segja
frá kynnum sinum af hon-
um. Einnig er lesið úr verk-
um hans. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir. (Nordvision-
Danska sjónvarpið).
23.05 Dagskrárlok.
VERKSMIÐJUÚTSALA
TERYLENEBUXUR - FLAUELSBUXUR -
DENIMBUXUR - BARNAJAKKAR OG EFNISBÚTAR
KLÆÐI HF.
SKIPHOLTI 7 R.