Dagblaðið - 24.01.1976, Síða 24
„Skityrði að ekki vœri ögr-
að með veiðum ó meðan,/
— sagði forsœtisráðherra í gœrkvöldi — telur brezka
togara hafa fyrirmœli um að hlýðnast varðskipsmönnum
,,Ég hef ekki sönnur á þeim
fregnum að brezk stjórnvöld
hafi fyrirskipað togurunum að
fara út fyrir 200 mflurnar en ég
ætla að þeir hafi fengið fyrir-
mæli um að hlýða varðskipun-
um, hifa og fara, þegar varð-
skipsmenn segja þeim það,”
sagði Geir Hallgrimsson for-
sætisráðherra i viðtali við Dag-
blaðið i gærkvöldi.
Er þetta skilyrði sem þú hefur
sett fyrir för þinni til London?
,,Það má segja að skilyrðið
hafi verið að ekki væri verið að
ögra með veiðum meðan við-
ræður færu fram,” sagði for-
sætisráðherra.
Hefur rikisstjórnin fyrirskip-
aS varðskipsmönnum að klippa
ekki?
„Segja mætti að það hafi ver-
ið gert, meðan við höfum verið
að biða eftir að togararnir
fengju framangreind fyrirmæli
frá brezkum stjórnvöldum.”
,,Við höfum gengið að brezku
togurunum og hótað að klippa ef
þeir hifðu ekki og færðu sig,”
sagði Jón Magnússon, talsmað-
ur Landhelgisgæzlunnar, i gær-
kvöldi. „Við getum ekki staðfest
það enn, en brezk stjórnvöld eru
talin hafa fyrirskipað togurun-
um að fara út fyrir 200 milur en
þeir þrjózkast við,” sagði Jón
ennfremur.
Viðræður Geirs Hallgrims-
sonar og Wilsons eiga að hef jast
i dag og standa fram eftir degi.
Ráðgert var að forsætisráð-
herra héldi utan snemma i
morgun. Nokkrir fiskifræðingar
eru með honum i förinni, og
munu þeir ræða vjð brezka
starfsbræður um „svörtu
skýrsluna” á morgun og mánu-
dagsmorgun. Geir og Wilson
munu væntanlega ræðast aftur
við á mánudag. Ekki er enn vist
hvenær viðræðunum lýkur.
Geir og föruneyti hans mun
þegar eftir komuna til Englands
halda til sveitaseturs Wilsons og
dveljast þar.
Með Geir Hallgrimssyni i för-
innieru: Þórarinn Þórarinsson
alþingismaður, Guðmundur H.
Garðarsson alþingismaður,
Hans G. Andersen sendiherra,
Jón Jónsson forstöðumaður
Hafrannsóknastofnunarinnar,
Sigfús A. Schopka fiskifræðing-
ur, Jakob Jakobsson fiskifræð-
ingur, Einar B. Ingvarsson að-
stoðarmaður sjávarútvegsráð-
herra og Björn Bjarnason skrif-
stofustjóri.
Eins og fram kemur af fram-
angreindu var þóf á miðunum i
gær. Varðskipsmenn áttu i basli
við að stugga við brezku togur-
unum og var það skoðun varð-
skipsmanna að Bretarnir
þrjózkuðust við að hlýða fyrir-
mælum brezku stjórnarinnar.
Klippum var ekki beitt enn.
—HH
Dagsbrún
tekur strikið
— boðar
félagsfund
til þess
að gfla
verkfalls-
heimildar
„Ef einhver skriður hefði ver-
ið á samningum er óvist að
Dagsbrún hefði boðað svona
fyrirvaralaust til fundar til þess-
að afla verkfallsheimildar,”
sagði Guðmundur I. Guðmunds-
son varaformaður Dagsbrúnar i
viðtali við Dagblaðið.
AÍþýðusamband íslands hefur
hvatt aðildarfélög sin til að afla
verkfallsheimilda, og einhver
félög hafa þegar samþykkt að
veita hana. Stjórn Dagsbrúnar
hélt fund sl. fimmtudag og fjall-
aði um málið. Var það mat
hennar að kalla þegar saman
félagsfund til að fjalla um stöð-
una i samningunum og afla
formlegrar heimildar fyrir
stjórn félagsins til verkfalls-
boðunar. Verður fundurinn
haldinn þegar á morgun, sunnu-
dag,i Iðnó kl. 2 eftir hádegi. —
BS—
Hvernig vœri að búa
til listaverk — úr snió?
Það er ekki á hverjum vetri
að við Reykvikingar höfum svo
mikinn snjó að við getum byggt
úr honum listaverk á hverjum
degi.
Okkur datt þvi svona i hug að
skemmtilegt væri að efna til
samkeppni um hver væri frum-
legastur i listaverkagerðinni
(auðvitað eiga ekki bara Reyk-
vikingar að taka þátt i þessari
keppni, heldur allir lands-
menn).
Verðlaun verða að sjálfsögðu
veitt þeim sem fer með sigur af
hólmi. Af þvi að islendingar eru
miklir lestrarhestar höfum við f
ákveðið að verðlaunin verði
bók.
Nú hvetjum við alla lands-
menn til þess að leggja höfuðið i
bleyti og finna sér verðugt við-
fangsefni til að búa til úr snjó,
ungir jafnt sem aldnir.
Hugsið ykkur lika hvað þið
verðið hressir og hreyknir
þegar inn er komið eftir útiver-
una.
Svo er bara að hringja i okkur
i 83322 og segja okkur frá lista-
verkunum. Ef þau eru hér i
Reykjavik getum við sent ljós-
myndara á staðinn. úti á landi
vandast heldur málið og
verðum við þvi'vinsamlegast að
fara fram á að þið gerizt lika
ljósmyndarar og sendið okkur
svo myndir.
EVI
fijáJst,úháð dagblað
Laugardagur 24. janúar 1976.
* .................*
Hafa
lagzt í
rúmið eftir
viðureignina
við
ófœrðina
Fjöldi manna er rúmliggj-
andi eftir ofreynslu við að ýta
bilum i ófærðinni sem verið
hefur á höfuðborgarsvæðinu
lengst af það sem af er árinu.
Allmargir hafa þurft að leita
læknis og vitað er um fólk sem
lagt hefur verið á sjúkrahús
vegna afleiðinga óvæntrar
áreynslu i snjóþyngslunum á
götum borgarinnar.
„Það munaði svo litlu að
mér fannst ég verða að taka
aðeins betur á,” sagði maður
á miðjum aldri sem ekki sagði
farir sinar sléttar, „og þvi fór
sem fór,” bætti hann við. Sá
liggur nú rúmfastur vegna af-
leiðinganna. Holl hreyfing er
öllum til góðs en full ástæða er
til að vara kyrrsetumenn og
heilsuveila við að ætla sér ekki
af, þegar billinn situr fastur,
ef ekki bregður til betri tiðar
hvað færðina varðar.
—BS-
f'
Fannst illa á sig
kontinn i skafli:
Er nú
óðum
að
hressast
Gamall maður fannst
kaldur liggjandi i snjóskafli á
Gelgjutanga um kl. 10 i gær-
morgun, eins og Dagblaðið
skýrði frá i gær. Það var
nánast fyrir tilviljun að
Sigurð L. Magnússon hjá
Jarðvinnuvélum bar þarna að
um það leyti sem bjart var
orðið. Varð hann mannsins
var og studdi hann inn fyrir og
reyndi að hlýja honum unz
sjúkraliðar komu á vettvang.
Maðurinn var lagður á gjör-
gæzludeild. Þar fékk blaðið
þær upplýsingar kl. 7 i gær-
kvöld að maðurinn hefði náð
sér og væri mikið að hressast.
Ekki var kunnugt á hvaða ferð
maðurinn hafði verið.
Ragnar Stefánsson jarðskjálftafrœðingur:
„TEL RANGT AÐ FÓLK SÉ HAFT VIÐ KRÖFLU"
„Aðvörun min var ekki tima-
bundin,” sagði Ragnar Stefáns-
son jarðskjálftafræðingur i
viðtali við Dagblaðið i gær, um
veru fólks á virkjunarsvæðinu
við Kröflu. „Ég tel enn rangt að
fólk sg haft þarna við vinnu
vegna yfirvofandi hættu á gosi.”
Sagði Ragnar að það hefði
komið fram að ýmsir hefðu spáð
gosi á þessum slóðum i náinni
framtið og að allt benti til þess
aðaf þvi yrði. Það væri auðvitað
ekki hægt að fullyrða neitt um
eðli gossins né hvar það yrði,
hvort þarna yrði svipað
sprungugos i Leirhnúk, eins og
varð fyrir jólin, eða hvort yrði
sprengigos þarna einhvers
staðar á svæðinu.
„Og á meðan slikt ástand var-
ir tel ég ekki rétt að hætta á
neitt,” sagði Ragnar ennfrem-
ur. ,,Að minu viti væri gáfulegra
að koma fólkinu fyrir á örugg-
um stað, óvissan um eðli gossins
gerir það að verkum að ég tel
alls ekki rétt að fólk sé þarna að
vinnu’.' HP