Dagblaðið - 07.02.1976, Blaðsíða 6
6
Dagblaðið. Laugardagur 7. febrúar 1976.
ig~. ~Tfc
SEATTLE: Doug Poth er aðeins þrettán ára gamall, en hann hefur samt fengið
útgefið skírteini sem sannar að hann er leynilögreglumaður. Hann gerði það
eitt að fylla út umsókn og borga fimm dollara. Allt var að undirlagi pabba sem
vildi sýna fram á slæmt eftirlit.
LONDON: Leikarinn Omar Sharif er í þungum þönkum á alþjóðlegu
bridge-móti í brezku höfuðborginni um síðustu helgi. Omar Sharif er í hópi
betri bridge-spilara heims.
ANGOLA: Toppfundur nokkurra afrískra forseta um borgarastyrjöldina
hefst í Mósambík í dag. Machel forscti Mósambík býður til fundarins.
Myndin var tekin í vikunni af Jonasi Savir.ibi, leiðtoga angólsku frelsishreyfing-
arinnar UNITA.
BOSTON: Framhlið sex hæða byggingar hrundi, niður á götuna í miklum eldsvoða sem upp kom í vikunni. Fjögur
hundruð slökkviliðsmenn börðust við eldinn. Engin slys urðu og þykir lygileg heppni.
SAN FRANCISCO: Miklir þurrkar geisa í Kaliforníu og er ástandið þar orðið mjög alvarlegt, einkum fyrir
nautgripabændur sem tapa stórfé daglega vegna þess að þeir þurfa að selja horaða gripi sína á niðursettu verði. í grennd
við King City, þar sem þessi mynd er tekin, hafa nautgripir hrunið niður úr þorsta og hungri.
ERLEND MYNDSJÁ
WASHINGTON: Vel fór á með bandarísku forsetafrúnni, Betty Ford, og Leu
Rabin, eiginkonu forsætisráðherra ísraels, 'þegar þau voru í bandarísku
höfuðborginni fyrir síðustu helgi. Myndin var tekin í opinberri móttöku
bandansku lórsetahjonanna í Hvíta húsinu.