Dagblaðið - 25.03.1976, Qupperneq 4
4
r
Dagblaðið. Fimmtudagur 25. marz 1976.
Drykkjumannahcelið á
Vífilsstöðum senn opnað
— auglýst
eftir
starfs-
fólki
styttri. Tíminn nýtist betur til
meðferðar. Margir, sem á svona
deild koma, eiga yfir höfði sér
að missa vinnuna og efnahagur-
inn er í hættu, þannig að miklu
máli skiptir að það þurfi ekki
að halda mönnum alltof lengi
frá starfi. Við höfum reiknað
með að miða meðferðarpró-
grammið við svona eins til
tveggja mánaða dvöl fyrst í
stað en þegar starfsemin
verður komin i fullan gang að
minnka þennan tíma niður í
einn mánuð. Eftir að vistmenn
útskrifast af deildinni er gert
ráð fyrir að þeir komi til eftir-
meðferðar á göngudeild.”
— Geta drykkjumenn farið
beint inn á þessa Vífilsstaða-
deild?
„Það getur verið um að ræða
drykkjumenn sem eru svo illa á
sig komnir andlega og líkam-
lega að þeir séu ekki færir um
að taka þátt í meðferð eins og
hún er fyrirhuguð á Vífilsstöð-
um, því það verður mikið álag.
Þá gæti komið til mála að sjúkl-
ingarnir yrðu undirbúnir undir
þá dvöl með vistun í Gunnars-
holti, þar sem meðferðin er
ekki eins aktív.”
— Hefur aldrei komið til tals
að fá sjálfboðaliða til vinnu á
Vífilsstaðadeildinni eða öðrum
slíkum?
„Jú, það hefur komið til tals
en sjálfboðaliðar eru dálítið ó-
stöðugur vinnukraftur. Einnig
er ábyrgð sjálfboðaliða tak-
markaðri en þeirra sem ráðnir
eru af heilbrigðiskerfinu. Það
er dálítið erfitt að reikna með
sjálfboðaliðunum.
Annars hafa Norðmenn farið
út í að ráða til hlutavinnu á
svona stofnunum menn sem
eru fyrrverandi drykkjusjúkl-
ingar og eru virkir þátttakend-
ur í AA-samtökunum. Þeir eru
fyrst og fremst ráðnir til þess
að binda þá sjálfa og reyna að
leggja á þá ábyrgð, en síðan fá
þeir greitt fyrir. En smám sam-
an missa þeir löngunina til þess
að taka þátt í starfinu þegar
þeir hafa sjálfir engan persónu-
legan hagnað af því.
En vel gæti komið til mála að
farið yrði út á þessar brautir
hér. Það er i sjálfu sér líka
eðlilegt að einstaklingar fái
önnur laun en bara ánægjuna
og óeðlilegt að fulllaunaður
starfskraftur vinni við hlið ein-
staklings sem vinnur án endur-
gjalds.”
— Ertu bjartsýnn á starf
þessarar nýju deildar?
— Eg er í eðli mínu bjart-
sýnismaður og mun reyna að
gera mit bezta. Það veitir sann-
arlega ekki af þessari deild því
vandamálið er stórt og ekki
útlit fyrir að það verði minna,”
sagði Jóhannes Bergsveinss.
„Málið er nú á því stigi að við
höfum fengið leyfi til þess að
auglýsa eftir starfsfólki til þess
að geta opnað Vífilsstaðadeild-
ina," sagði Jóhannes Berg-
sveinsson, yfirlæknir á nýja
drykkjumannahælinu sem reist
hefur verið i landi Vífilsstaða, í
viðtali við Dagblaðið.
„Tala starfsfólksins hefur
áhrif á það meðferðarpró-
gramrn sem við munum nota.
Því fleira og þjálfaðra starfs-
fólk sem við fáum þeim mun
verður dvalartími vistmanna
Þetta reisulega hús hefur lengi staðið tilbúið og beðið þess að fá að gegna hlutverki sínu. Nú hillir
undir að það verði opnað. Ljósm. DB — Bjarnleifur.
ERUM VIÐ FARIN AÐ
BORÐA ÚTSÆÐIÐ?
Alþýðubankinn:
BANKASTJORUNUM
SAGT UPP STORFUM
„Kartöflur.. . eru þær til?”
Viðskiptavinirnir í verzluninni
ráku upp stór augu. „Eru þær
Getur það verið að við séum nú
að borða kartöflur sem með
réttu hefðu átt að margfalda
sig næsta sumar?
skammtaðar? Hvað fáum við
raikið?”
„Þetta er svo sem ekki til
skiptanna, eitt til tvö kíló á
mann” sagði kaupmaðurinn.
„Ja, þær eru smáar, enda út-
sæði, sem mér áskotnaðist hjá
góðum bónda uppi í sveit. Ég
fékk bara nokkra poka. Nei, ég
á ekki von á meiru, en það er
aldrei að vita. Hvað þær kosta?
Þær eru óniðurgreiddar. Eitt
hundrað krónur kíólilð”
Eitthvað á þessa leið var sam-
talið sem við urðum vitni að i
einni verzlun hér í Reykjavík í
kartöfluhallærinu. Auðvitað
keyptum við líka eitt kíló af
smælkinu. Ágætt svona spari i
brúnaðar. Það læddist þó að
manni sú hugsun að það væri
kannski betra að geyma
útsæðið, svo það færi ekki fyrir
okkur íslendingum eins og
Molbúunum forðum, að þegar
átti að setja niður kartöflurnar
um vorið var búið að éta allt
útsæðið. EVI
Bankastjórum Alþýðubankans
hefur verið sagt upp störfum.
Hinn 7. desember sl. leysti
bankaráðió hina tvo bankastjóra
bankans frá störfum meðan á
rannsókn á viðskiptum einstakra
aðila við bankann færi fram. Var
þeirrar rannsóknar óskað um leið,
eins og fram hefur komið í
fréttum.
Nú er dómsrannsókn lokió og
hafa gögn málsins og niðurstöður
rannsóknar verið afhentar sak-
sóknara ríkisins til athugunar og
ákvörðunar. Nauðsynlegt var því
fyrir bankaráðið að taka afstöðu
til þess, hver staða banka-
stjóranna væri nú. Taldi það rétt
að segja þeim upp störfum.
Sennilegt er talið að ekki verði
ráðið í stöður bankastjóra fyrr en
að loknum aóalfundi
Alþýðubankans hf., sem haldinn
verður seinni hluta
aprílmánaðar.
-BS-
Nýir bankastjórar munu væntanlega taka við Aiþýðubankanum
innan tiðar.
Timbrið sem hinir lögfróðu menn
Kópavogskaupstaðar tóku frá Arnarholti
Vegna fréttar um árekstra
milli byggingaeftirlitsmanns
Kópavogsbæjar og verktaka
leikskólabyggingar i Kópavogi
hefur verktakinn óskað að
eftirfarandi yfirlýsing hans
yrði birt:
„Eg vil mótmæla því harð-
lega sem Sigurður Gíslason,
eftirlitsmaður Kópavogsbæjar,
skýrði blaðamanni Dagblaðsins
frá 22. marz sl. Þar túlkar hann
„lslenzkan staðal” ser til fram-
dráttar við hinar ólöglegu að-
farir. sem hann og hans starfs-
menn hafa framkvæmt. Verður
að benda honum á að lesa grein
22.2 í íslenzkum slaðli en hún
hljóðar svo. honunt til fróð-
leiks: ....efni, sem verktaki
hefur lagt til og afgangs verður
þegar verkinu er lokið verður
eign verktaka nema annað hafi
verið áskilið í samningi.”
Aðeins er greitt fyrir afnot af
uppsláttarviði, ca 35% af verði
nýs timburs, enda ætlazt til að
sama timbrið sé notað oftar en
einu sinni. Hefur því Kópavogs-
kaupstaður aldrei orðið eigandi
að áöurgreindu timbri og því
engin ástæða til að fá leyfi hjá
háttvirtum eftirlitsmanni til að
flytja timbrið af byggingarstað,
þar sem hlutverki þess var að
fullu lokið. Um 5 mánaða tafir,
sem hann nefndi í viðtali sínu,
stafa af breytingum sem urðu á
húsinu samkvæmt ósk Kópa-
vogskaupstaðar.
Um B.M. Vallá er það að
segja, að þar stóð skuld um 400
þús. kr. á þessu tímabili. Hefði
sú skuld verið greidd ef Kópa-
vogskaupstaður hefði staðið í
fullúm skilum. Er því ekki um
neina tr.vggingu skulda að
ræða. Ilins vegar ávísaði ég á
innstæðu hjá Kópavogi til
handa B.M. Vallá fyrir áður-
nefndri upphæð.
Spyrja má Sigurð Gíslason
sérstaklega að því, hvaða verk-
taka hann hafi tilbúinn til að
taka við verkinu og hver hans
hagnaður sé í því. Sá dráttur
sem verið hefur á framkvæmd-
um síðan um- áramót hefur ein-
göngu verið tíðarfari og verk-
falli að kenna. Verður að krefj-
ast skaðabóta af hans hendi
fyrir hina ólöglegu töku á
timbri frá Arnarholti á Kjalar-
nesi. Virðist sem skapofsi hafi
stjórnað þessum góða manni
við þær framkvæmdir. Vona ég
að hann sé aðeins farinn að
jafna sig á hinu mikla heljar-
stökki, sem hann hefur tekið,
og vona að hann komi niður á
fæturna.
Eg vil sérstaklega taka fram,
að samskipti mín við bæjaryfir-
völd i Kópavogi í sambandi við
þetta mál hafa aó öðru le.vti
verið hin ágætustu. Mun ég
samkvæmt ákvörðun sjálfs
bæjarráðs halda verkinu
áfram. eins og ekkert hafi í
skorizt. þrátt fyrir þetta frum-
hlaup þessa eina starfsmanns.
Virðingarfyllst.
f.h. Trésm. Austurbæjar
Guðjón Pálsson.”
P.S. Eg vil aðeins geta þess.
að það var fréttamaður DB sem
leitaði til Sigurðar Gíslasonar
unt flutninga byggingarefnis-
ins undir lögregluvernd. Atti
hann engan þátt i að fréttin
birtist í Dagblaðinu. var
reyndar hissa á. hvernig við
höfðum komizt á snóðir uni at-
burðinn. —ASt