Dagblaðið - 25.03.1976, Síða 8
8
Dagblaðið. Fimmtudagur 25. marz 1976.
""
Bylting í farskrarþjonustu:
TEKUR EKKINEMA 2-3 SEKÚNDUR
AÐ FÁ UMBEDNAR UPPLÝSINGAR
Flugleiðir taka upp tölvu-bókun
„Þetta er algjör bylting.
Sætanýtingin verður betri, öll
afgreiðsla verður hraðvirkari
og þjónusta við viðskiptavin-
inga verður fullkomnari,” sagði
Islaug Aðalsteinsdóttir, en hún
veitir farskrárdeild flugfélag-
anna forstöðu.
íslaug var að tala um hið
nýja tölvukerfi sem verið er að
setja upp í farskrárdeildinni.
Starfsmenn fyrirtækisins, aðal-
lega þó farskrárdeildar, hafa
undanfarið verið á ströngum
námskeiðum til þess að læra að
vinna með þessum tölvum.
„Allar bókanir venfa færðar
inn á leturborðið og það tekur
ekki nema tvær og hálfa til
þrjár sekúndur að fá umbeðnar
upplýsingar birtar á skermin-
um. Sem dæmi um hve hagnýtt
þetta nýja kerfi er má geta þess
að ef um afpöntun á fari er að
ræða fæst vitneskja um það
samstundis en áður gátu liðið
allt upp í 5 klukkutímar þangað
til upplýsingarnar voru komnar
til skila.”
Það var mjög þröngt i far-
skrárdeildinni, en kennslan fer
fram í helmingi salarins, og þar
fara fram gagngerar breyting-
ar. Alls eru um 17 manns á
námskeiði núna, en þrír hópar
hafa farið á sams konar nám-
skeið í New York. Hvert nám-
skeið stendur yfir i átta daga.
„Það hafa verið umsjónar-
menn eða „supervæsorar”, eins
og þeir eru gjarnan kallaðir hér
hjá okkur í farskrá, sem unnið
haf að undirbúningi þessara
námskeiða. Eru það Örvar
Sigurðsson, Karólína Péturs-
dóttir og Roger Meiling. Þá
fengum við Cherlie Bee frá
New York skrifstofunni okkur
til aðstoðar.”
— Hafa sams konar tölvur
og skermar verið í notkun á
öðrum skrifstofum ykkar?
„Svona fyrirkomulag var tek-
ið í notkun í New York árið
1972 og er nú komið á fjóra
staði í Evrópu Kaupmanna-.
höfn, París, Frankfurt og
London. Þessi uppsetning hér
er þriðja skrefið og það stærsta
í Evrópu.
Næsta skrefið verður að setja
upp slíkt kerfi í Luxemborg.”
— Hvernig er þetta I fram-
kvæmd?
„Notuð er símalinan til Lon-
don og þaðan til Bandaríkj-
anna, en tölvan, sem allt fer í
gegnum er staðsett í Atlanta í
Bandaríkjunum.”
— Er þetta ekki dýrt spaug?
„Jú, ugglaust er það,” svaraði
Islaug. „SITA, sem er alþjóð-
legur félagsskapur flugfélag-
anna um fjarskipti, hefur keypt
tölvuna í Atlanta og leigir síðan
aðgang að henni til hluthafa
sinna. Flugleiðir eru hluthafar
í SITA. Ég veit ekki hver leigan
er, en það þarf að greiða þrjú
sent fyrir hvern farþega, sem
fluttur er með flugvélunum.”
— Hvað verða nýju skerm-
arnir margir?
„I farskrárdeild verða 23,
einn í hótelafgreiðslunni, fimm
í Lækjargötu og fjórir í Kefla-
vík, en líklega verða skermarn-
ir í Keflavík ekki teknir í notk-
un fyrr en í júni. Ráðgert er að
starfsemin fari í gang núna i
byrjun apríl.”
—•• Sparar þetta ekki manna-
hald?
„Við erum vön að ráða allt
að þrettán manns aukalega yfir
sumarið, en þurfum ekki að
ráða neinn í ár,” sagði tslaug
Aðalsteinsdóttir. —A.Bj.
Þarna stendur Örvar „supcr” og útskýrir fyrir nemendum sínum.
„Eiginlega ekki svo erfitt en það þarf að muna einhver ósköp.”
„Þetta er voðalega erfitt,” sagði hann okkur, en bætti svo við.
DB-mynd Bjarnleifur.
íslaug Aðalsteinsdóttir, hún
veitir farskrárdeild Flugleiða í
Reykjavík forstöðu.
DB-mvnd: Bjarnleifur.
Mikill gróði af ólöglegum veiðum
NÆR 5 MILLJONIR
UMFRAM SEKTIRI
Ríkisstjórnin reynir nú að girða fyrir
Nú á að reyna að girða fyrir
að menn fái „löglega” gróða af
ólöglegum veiðum. Til þessa
hafa brot á ýmsum veiðireglum
varðað sektum sem oft hafa
verið mun lægri en andvirði
þess afla, sem fenginn hefur
verið með því að brjóta veiði-
reglur.
Ætlunin er að stöðva þetta
með lögum um upptöku ólög-
legs sjávarafla, og er fram
komið stjórnarfrumvarp um
það. Dæmi eru í greinargerð
frumvarpsins nefnd um gróða
af þessu tagi.
Síldveiðarnar við ísland á
síðastliðnu hausti sýna ástand-
ið. Hámarksafli sá, sem hver
bátur mátti veiða, var 215 tonn
síldar. Margir síldarbátanna
fiskuðu mun meira en þessum
kvóta nam, allt upp í 144 tonn
fram yfir kvótann. Brúttóverð-
mæti umframafla þess báts sem
lengst komst, miðað við að allt
hafi farið í 1. flokk, mun nema
5 milljónum 760 þúsund krón-
um, segir í athugasemdum með
frumvarpinu.
Ekki er vitað til þess, segir í
athugasemdunum, að neinn af
skipstjórum þeim sem kærðir
voru fyrir að hafa brotið þessa
reglu um hámarkssíldarafla
hafi enn hlotið dóm, en sam-
kvæmt lögum er ekki unnt að
dæma þá i meira en einnar
milljón króna sekt.
Þá segir að ekki þyki við
unandi að menn geti greitt
sektir með ólöglega fengnum
afla.
Frumvarpið gerir ráð fyrir
að ólöglegur afli verði gerður
upptækur og andvirði hans
renni í sérstakan sjóð, sem
varið skuli í þágu fiskirann-
sókna og vísindalegs eftirlits
með fiskveiðum eftir nánari
ákvörðun sjávarútvegsráðu-
neytisins. .
Ráðuneytið skuli úrskurða
hvort um ólöglegan sjávarafla'
sé að ræða, í hve miklu magni
og hvert skuli vera andvirði
þess afla sem það gerir upp-
tækan og innheimtir fjár-
greiðslur fyrir. Er viðurkennt
að með þessu fyrirkomulagi
yrði nokkuð gengið inn á verk-
svið dómstóla, en formælendur
frumvarpsins halda því fram að
þetta fyrirkomulag muni flýta
mjög afgreiðslu mála. Ákvörð-
unum ráðuneytisins megi enn-
fremur vísa til meðferðar Saka-
dóms.
Ölöglegur sjávarafli er sam-
kvæmt frumvarpinu: Sá sem
ekki nær ákveðinni lágmarks-
stærð, sem er umfram ákveðinn
hámarksafla, aflað með ólögleg-
um veiðarfærum eða á svæðum
þar sem viðkomandi veiðar eru
bannaðar eða án þess að til-
skilin veiðileyfi séu til staðar.
—HH
Það gerist alltaf eitthvað
í þessari Viku:
Rœtt um fermingu við sr. Óskar J. Þorláksson og nokkur fermingarbörn hans — Helgi Seljan
loðnubréfum — Konurnar á kassanum — Hrœrivél í marsgetraun — Hjá