Dagblaðið - 25.03.1976, Síða 9
Dagblaðið. Fimmtudagur 25. marz 1976.
“
DAGBLAÐIÐ kannar kartöfluskortinn:
9
\
Nóg af glœnýjum kartöflum
að fá í Hollandi í gœrdag
— Danir og Þjóðverjar reyndust líka eiga nóg
Svo virðist sem
kartöfluskorturinn hér á landi
— eða að minnsta kosti
sunnanlands — sé að mestu
leyti orðinn til í
Grænmetisverzlun ríkisins við
Síðumúla. — Dagblaðið bað í
gær einn af stærstu ávaxta-
innflytjendum landsins að
kanna, hvort kartöflur væru
fáanlegar til afgreiðslu og þá
með hve löngum af-
greiðslufresti.
Heildverzlunin hafði þegar í
stað samband við þrjá
grænmetisútflytjendur í Hol-
landi, Þýzkalandi og Danmörku
Jákvætt svar barst nær
samstundis frá þeim öllum.
í Hollandi virðist vera nóg
um kartöflur. trtflytjandinn
tilkynnti þegar um 500 tonn af
nýuppteknum mexíkönskum
kartöflum, sem væri hægt að
skipa um borð í Urriðafoss
strax í dag. Kartöflur frá
Póllandi og öðrum
Evrópulöndum eru hins vegar
fyrraársuppskera. Mexikönsku
kartöflurnar eru afgreiddar i
25 kílóa pokum og kostar
þokinn 38.50 hollenzk gyllini
eða um 100.40 íslenzkar krónur
kílóið. Útflytjandinn tilkynnti
ennfremur, að hann gæti
útvegað íslendingum glænýjar
kartöflur allt árið. Það eina,
sem þyrfti að gera, væri að
komast að samningum.
Til marks um áhuga
hollenzka útflytjandans er það
að stuttu síðar sendi hann
annað skeyti, þar sem hann
kvaðst vita um 1000 tonn til
viðbótar af nýuppteknum
mexikönskum kartöflum. Þær
væru í mjög háum gæðaflokki
og væru tilbúnar til útskipunar
þegar í stað frá Rotterdam.
Fra Danmörku bárust þau
svör að til væru kartöflur frá
Marokkó. Þær eru einnig seldar
í 25 kílóa pokum og kostar
poikinn 80.50 danskar krónur,
sem er nálægt 93 krónum
íslenzkum hvert kíló. Þær eru
tilbúnar til afgreiðslu i m.s.
Hofsjökul um leið og svarskeyti
berst.
Til Þýzkalands er
kartöflusending væntanleg frá
Italiu. Hún verður tilbúin til
afgreiðslu í lok vikunnar. Verð
ítölsku kartaflnanna er 35.40
þýzk mörk hver 25 kílóa poki
eða um 97.60 íslenzkar kónur
hvert kíló.
Grænmetisverzlun rikisins
hefur einkaleyfi á innflutningi
kartafina. Pólsku kartöflurnar,
sem verzlunin hefur af ein-
hverjum ástæðum einskorðað
sig við að flytja inn, verða að
bíða þess að hitinn fari yfir
frostmark í Póllandi. í
Hamborg og Rotterdam er frost
um þessar mundir en það
virðist ekki há Hollendingum
og Þjóðverjum. Þeir eru reiðu-
búnir að skipa varningnum út
strax í dag.
Dagblaðið spurðist fyrir hjá
Grænmetisverzlun ríkisins um
söluverð kartaflnanna frá
Póllandi. Þær upplýsingar
fengust treglega og ekki fyrr en
eftir tvö sfmtöl. Jóhann Jónas-
son forstj. sagði að verðtilboð
Pólverjanna væri um 70 þús.
krónur tonnið, eða 70 krónur
kílóið, komið um borð í skip I
pólskri höfn. -ÁT-
howaver, wa can offar for proœpt shipmant from rottardam -
lf spaca available tomorrow by 'urridafoss':
new crop mexlcan ptatoea
varlety: alpha, yeLLow fLesh
in Jute bags of 25 kos orlginaL shipplng nattweight
sizesr 35/60 and 60/80 ea
at hfL. 38,50 per bag fob natt rotterdam
we do not know wtilch quantity aight intarast you, but we couLd
offar 10 or 20.000 bays in casa of need.
pLsa advlsa what tha prospects ara -
P.s. t
pLsa nota that these are 'new crop'potatoas , contrary to
evarything tnt r.nmg.g froa eurooa which is oLd crop, hence,
tFa difference ln prica. ' ---------—' *
thks vary auch wa shaLL be bac k in few minutes hava
to caLcuLate -m*
ok tkd and blbl for now
of course subjact finaL confiraation for quantity as potatoea
ere in saLe now
r8.t your tetex
-.............í.::,:ririn®,or p»tato.s
“fsjokjun
erms,
Nokkrir te|ex-anna, sem
kartöflukaup til íslands,
KARTOFLUR
Bonduellé.
HÁLFSTEIKTAR FRANSKAR
KARTÖFLUR
TILBÚNAR Á 3-5 MÍN.
FÁST í ÖLLUM HELZTU
MATVÖRUVERZLUNUM
LANDSINS
Eggert Krlstlánsson & Co. hf..
Sundagörðum 4, Sími 85300.
|f| UTBOÐ
Tilboð óskast i að smíða pipuundirstöður og stýringar
fyrir Skammadalsæð.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, gegn 5.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 7. apríl
1976, kl. 14.00 e.h.
í sjálfsmynd — Kristín á réttri bylgjulengd —
danadrottningu — Konungur listdansins.
Margrét að drukkna í
KARTOFLUR, — þessar fengum við að festa á mynd í matvörubúð, sem átti þær „bak víð” i
gærdag (DB-mynd Bjarnleifur)
INNKAUPASTOFNUN REYKTAVÍKURBORGAR
Fríkirltjuvegi 3 — Sími 25800
I