Dagblaðið - 31.03.1976, Qupperneq 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR Ml. MARZ 1976.
Byggingareftiriitsmaður
Kópavogs:
EG HEF EKKI HAFT
NEITT FRUMHLAUPI FRAMMI
Sif'urður Gislason bygginga-
eftirlitsmaður Kópavogs
skrifar:
Svar til forstjóra Trésmiðju
Austurbæjar Úuðjóns Páls-
sonar vegna skrifa hans í Dag-
blaðið 25. marz sl. og til glöggv-
unar á skrifum unvtimbur og
steypustyrktarstál frá Arnar-
holti 22. marz sl. sem undirrit-
aður átti engan þátt í að voru
birtar.
Forsaga þessa máls er sú, að
Kópavogskaupstaður bauð út
byggingu Leikskóla við Fögru-
brekku í byrjun okt. 1974.
Lægsta tilboði var tekið, en það
var frá Trésmiðju Austurbæj-
ar.
Til að rekja þetta mál tek ég
punkta á víð og dreif úr dagbók
minni:
— 11. des. 1974 var grafið fyrir
húsinu sem er 254 mz.
— í jan., febr. og marz var
ekkert framkv. vegna veður-
fars.
— 14. apríl 1975 fer fram úttekt
á botni.
— 29. apríl var bæjarverkfræð-
ingi falið af bæjarráði að
endurskoða teikningar vegna
dýpis a grunni o. fl. til
nýtingar á kjallara
— 2. mai voru verktaka
afhentar teikningar og 8. mai
var steypt í sökkla.
— Um mánaðamótin júlí-ágúst
var botnplata steypt, en þá ber
verktaki því við að enga smiði
væri að fá.
— 22. sept. var steypt í kjallara-
veggi.
— 26. sept. var loftplata yfir
kjallara steypt.
— 15. okt. lætur verktaki brjóta
göt á loftplötu í algjöru leyfis-
leysi og taka þaðan mikið magn
af timbri og fl.vtja upp að
Arnarholti. Eftirlitsmaður vítir
þessar aðgerðir.
— 12. nóv. hefst uppsláttur á
jarðhæð, en skortur á timbri
stöðvar verkið fljótlega.
— 1. des. hefst járnavinna í
Timbrið, sem flutt var í burt og aftur til baka!
veggi og kemur þá smámagn af
timbri.
— 8. des. er verktaki boðaður
til fundar við bæjarverk-
fræðing og þess krafizt að hann
skili margumbeðinni verkáætl-
un, sem hann skilaði daginn
eftir og hljóóaði uppá að verk-
lok yrðu 30. marz 1976.
— 15. des. Algjör stöðvun á
klæðningu loftplötu vegna
skorts á timbri.
30. des. skrifar
bæjarlögmaður verktaka, og er
hann áminntur um að bæta nú
þegar úr því sem ábótavant er,
en ef ekki úr rætist fyrir 10.
jan. 1976 muni verða gerð
tillaga til bæjarráðs Kópavogs
um riftun verksamnings.
Svarbréf frá verktaka barst
svo ekki fyrr en 14. jan. 1976,
þar sem hann viðurkennir drátt
frá verkáætlun.
I veggi var steypt 16. jan.
Snjókoma og frost hélzt fram til
mánaðamóta, en þá gerði
steypuveður fram til 9. febr.
Enginn var við vinnu þann
tíma. 1 loftplötu áttu að fara
herakustikplötur, en þær voru
fáanlegar í BYKO, þar hafði
verklaki ekki lánstraust svo
Kópavogskaupstaður greiddi
þær.
19. febr. skall á verkfall, en
ekkert hafði verið unnið til
þess tíma.
2. marz mættu smiðir til
vinnu og var vinnu við
loftplötu íokið 9. marz fyrir
hádegi og ákveðið að steypa
loftplötu sama dag.
Múrari og hjálparmenn hans
mættu kl. 13 til móttöku á
steypu, en kl. 15 fór eftirlits-
maður og hringdi til steypust.
B.M. Vallá til að grennslast
eftir töfum á afgreiðslu. Svar
steypust. var að verktaki fengi
enga steypuúttekt vegna skuld-
ar við stöðina. Verktaki var nú
boðaður til fundar við bæjar-
verkfræðing, og viðurkenndi
hann þar að hann gæti ekki
greitt fyrri skuld sína við stöð-
ina fyrr en eftir nokkra daga.
Steypubannið fékkst ekki aflétt
f.vrr en trygging hafði verið
lögð fram fyrir greiðslu verk-
DB-mynd. Björgvin
taka, með þeim fyrirvara að
verkið gengið með eðlilegum
hraða í fokhelt ástand. Kópa-
vogsbær keypti svo steypu í ,
loftplötu frá Steypustöðinni hf.
Loforð frá verktaka var gefið
um að hann kæmi með sperru-
efni daginn eftir, en það kom
ekki fyrr en að kvöldi 22. marz.
Helgina 20. og 21. marz sendi
verktaki vinnuflokk til að rífa
timbur innan af veggjum bygg-
ingar og þar með undan loftbita
endum án stífingar. Þess má
geta að eftir var að steypa
þungan bita ofan á loftplötu.
(Auk þess í sperrutær og
tvennar tröppur að kjallara).
22. marz kl. 9.00 kom eftirlits-
maður á vinnustað, hafði þá
verið hlaðið á vörubíl öllu
steypustyrktarstáli sem eftir
var við bygginguna og því
timbri sem rifið hafði verið um
helgina.
Eftirlitsmaður mótmælti
þessu vegna fyrri reynslu sinn-
ar af timburflutningum af
byggingarstað og óskaði eftir
Útgerðarmenn
og skipstjórar netabóta
Þar sem afhendingartími frá verksmiðju á
nýju „CRYSTAL TWIST" og /#TRIPPLE CR0WN"
þorskanetum frá Momoi Fishing Net er nú
rúmlega hálft ár, viljum við biðja alla þá, sem
vilja tryggja sér þessi nýju net fyrir nœstu
vetrarvertíð að hafa samband við okkur strax,
eða sem allra fyrst.
MOMOI FISHING NET hafa einkaleyfi
(no. 720909) á þessari gerð neta.
MARCO
HF.
MYRARGÓTU 26,
SÍMAR 13480 - 15953
því að bíllinn færi ekki af
vinnusvæðinu fyrr en verktaki
hefði haft samband við sig. Kl.
10.00 kemur eftirlitsmaður
aftur á vinnustað, eftir að hafa
ráðfært sig við bæjarlögmann
og bæjarritara um aðgerðir.
A vinnustað var eftirlits-
manni sagt að verktaki hefði
komið og fengið skilaboðin og
sagt að það væri sitt mál en
ekki eftirlitsmanns og lét vöru-
bílinn keyra efnið upp að
Arnarholti, en þar er verktaki
með stórverk fyrir Reykja-
víkurborg.
Undirritaóur fór þvi upp að
Arnarholti til að kanna þetta og
sá þar byggingarefnið
Ræddi nú undirritaður við
bæjarlögmann, sem tók þá
ákvörðun að sækja efnið.
Fengnir voru 2 lögreglumenn
úr lögsagnarumdæminu til að
vera viðstaddir töku efnisins,
auk þess starfsmenn Kópavogs-
kaupstaðar með vörubíl.
Undirritaður hefur nú rakið
gang þessara byggingarfram-
kvæmda eins og þær hafa
gengið hingað til, lái mér hver
sem vill þótt langlundargeð
mitt sé að þrotum komið. Eg
vil lítillega til viðbótar svara
blaðagrein Guðjóns Pálssonar
persónulega.
Hann telur túlkun mína á ísl.
staðli ólöglega, en grein 23.1.
hljóðar svo: „Verkið verður
eign verkkaupa eftir því sem
því miðar áfram. Sama er um
allt efni, sem flutt hefur verið á
byggingarstað, og verkkaupi
hefur greitt. Verktaka er
óheimílt að flytja slíkt efni
brott af byggingarstað.
Grein 23.2. sem verktaki
vitnar I I blaðaskrifum sínum-
til upplýsinar undirrituðum:
„Efni sem verktaki hefur lagt
til og afgangs verður þegar
verkinu er að fullu lokið,
verður eign verktaka nema
annað hafi verið áskilið í verk-
samningi.” Verkinu er ekki
lokið.
Mótatimbur er fast undir
loftum og verður um tíma enn-
þá. Slæm reynsla mín frá fyrri
tíma þegar verktaki beitti sömu
brögðum og varð stopp I 2 mán-
uði vegna timburleysis var or-
sök þessarar stöðvunar, en í
þakið þarf um 2500 m af l”x6”
klæðningu.
Um 5 mán. tafir hefi ég stað-
fest með dagbók minni hér á
undan. Um skuld verktaka vió
steypust. B.M. Vallá hefi ég
svaraö. Guðjón Pálsson spyr
undirritaðan um hvaða verk-
taka hann hafi tilbúinn til að
taka við verkinu, það verður
ákvörðun bæjarráðs ef til
kemur, einnig spyr hann hvaða
hagnað undirritaður hafi af
skiptunum. Það get ég sagt
honum.að þaðhefur aldrei verið
til siðs i þau 10 ár sem undirrit-
aður hefur haft á hendi eftir-
litsstörf með byggingum að
taka við neinni þóknun úr
hendi verktaka. og því ósvífn-
ar dylgjur af hans hálfu að ég
hafi hagnaó af skiptum á verk-
taka, nema til að lina þær þján-
ingar mínar að horfa upp á svo
getulítinn verktaka.
Aðstaða á vinnustað heitir
þáttur í útboðslýsingu, — slík
hefur aldrei komið þrátt fyrir
ótal aðfinnslur eftirlitsmanns
að undanskildum umbúðakassa
utan af bifreið. Enn þá hefur
verktaka ekki tekizt að fá raf-
magn til lýsingar eða til vinnu
véla, en fengið það frá leikskýli
barnaleikvallar Kópavogsk.
sem er í næsta nágrenni.
Getuleysi verktaka til ráðn-
ingar á smiðum um hásumar-
titnann er kannski að rekja til
vinnuaðstöðunnar.
í lok þessara skrifa get ég
sagt að ég finni ekki nieð sjálf-
um mér að ég hafi haft nokkurt
frutnhlaup í frammi í sambandi
við verk þetta. eða skaðað
bæjarfélagið á nokkurn hátt
með aðfinnslum mínum gagn-
vart þessum verktaka.